Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jóhann Berg fékk ekkert að spila í Moskvu AZ Alkmaar tapaði 0-1 á móti rússneska liðnu Anzhi Makhachkala í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld en leikurinn fór fram í Moskvu. AZ á inni seinni leikinn á heimavelli í næstu viku en í boði er sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. 23.8.2012 18:03
Fulham kvartar formlega undan Liverpool Fulham hefur sent enska knattspyrnusambandinu formlega kvörtun vegna ásóknar Liverpool í bandaríska landsliðsmanninn Clint Dempsey en forráðamenn Fulham eru ósáttir við yfirlýsingu Brendan Rodgers í sumar um að Liverpool væri búið að leggja inn fyrirspurn um kaup á leikmanninum. 23.8.2012 16:30
Fiorentina reynir að kaupa Berbatov Það er ekki enn útilokað að framherjinn Dimitar Berbatov hverfi á braut frá Man. Utd á næstunni. Ítalska félagið Fiorentina reynir nú að kaupa hann á 3 milljónir punda frá Man. Utd. 23.8.2012 15:45
Inter til í að skipta á Maicon og De Jong Ítalska félagið Inter leggur mikið upp úr því að fá hollenska miðjumanninn Nigel de Jong til félagsins og er tilbúið að senda bakvörðinn Maicon til Man. City í skiptum fyrir De Jong. 23.8.2012 15:00
Markvörður Leeds sendi gróf sms til eiganda QPR Forráðamenn QPR eru ekkert allt of sáttir við markvörðinn Paddy Kenny sem sendi gróf sms á eiganda félagsins í, að því er virðist, ölæði um síðustu helgi. Skilaboðin voru send aðfararnótt sunnudags. 23.8.2012 14:15
Jarvis á leið til West Ham West Ham hefur náð samkomulagi við Wolves um kaup á Matt Jarvis. Kaupverðið er tæpar 11 milljónir punda fyrir þennan 26 ára gamla leikmann. 23.8.2012 13:30
Garðar ekki með gegn ÍA í kvöld | Slasaði sig í handbolta Garðar Jóhannsson, framherjinn öflugi í liði Stjörnunnar, verður ekki með í leiknum gegn ÍA í Pepsideild karla í kvöld vegna afar sérstakra meiðsla. 23.8.2012 12:57
Cruyff: Mourinho er bilaður Hollenska goðsögnin Johan Cruyff er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og einhverra hluta vegna virðist hann hafa allt á hornum sér þessa dagana. 23.8.2012 12:45
Stjörnustúlkur á leið til Rússlands Íslandsmeistarar Stjörnunnar drógust gegn rússneska liðinu Zorky Krasnogorsk í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en dregið var nú í hádeginu. 23.8.2012 12:30
Poulsen nýr liðsfélagi Kolbeins hjá Ajax Knattspyrnumaðurinn Christian Poulsen er genginn í raðir hollenska meistaraliðsins Ajax. Hinn 32 ára gamli leikmaður verður því liðsfélagi íslenska landsliðsframherjans Kolbeins Sigþórssonar næstu tvö árin í það minnsta. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. 23.8.2012 11:15
Rodgers útilokar að sleppa Agger og Carroll Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, býst ekki við því að missa þá Daniel Agger og Andy Carroll áður en félagaskiptaglugginn lokar. 23.8.2012 09:45
Kvennalandsliðið spilar á Ullevaal Norska knattspyrnusambandið hefur tekið þá ákvörðun að breyta leikstað viðureignar Noregs og Íslands í lokaleik 3. riðils í undankeppni Evrópumótsins 2013. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. 23.8.2012 09:15
Guðjón Árni hefur skorað fimm mörk í síðustu þremur leikjum í Krikanum FH tekur á móti KR í 16. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta í kvöld og getur með sigri náð átta stiga forskoti á KR á toppi deildarinnar auk þess að eiga leik inni á Íslands- og bikarmeistarana úr Vesturbænum. 23.8.2012 08:00
Bara lán kemur til greina hjá Eggerti Gunnþóri Ekki er útlit fyrir að Eggert Gunnþór Jónsson fái að spila mikið verði hann áfram hjá enska B-deildarliðinu Wolves. Núverandi stjóri liðsins, Ståle Solbakken, virðist ekki ætla að nota hann mikið. 23.8.2012 06:00
Miðstöð Boltavaktarinnar | Báðir leikir í beinni á sama stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með báðum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. 23.8.2012 17:45
David Villa sektaður fyrir fjölskyldukveðjuna David Villa skoraði sitt fyrsta mark eftir meiðslin þegar Barcelona vann 5-1 sigur á Real Sociedad í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi. Hann var þá að spila sinn fyrsta deildarleik í átta mánuði. 22.8.2012 22:30
Kobe nálægt því að fara til Dallas árið 2007 Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, hefur greint frá því að Kobe Bryant hafi verið nálægt því að ganga til liðs við félagið fyrir fimm árum síðan. 22.8.2012 22:00
Di Matteo: Mjög skemmtilegur leikur fyrir áhorfendur Roberto Di Matteo er búinn að stýra Cheleea til sigurs í tveimur fyrstu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en lið hans lenti þó í kröppum dansi í 4-2 sigri á nýliðum Reading í kvöld. 22.8.2012 21:25
McDermott: Línuvörðurinn verður svekktur út í sjálfan sig Brian McDermott, stjóri Reading, var svekktur eftir 2-4 tap á móti Chelsea á Brúnni í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Reading komst yfir í 2-1 en fékk síðan á sig þrjú mörk í seinni hálfleik, þar af eitt rangstöðumark og lokamarkið þegar allt liðið var komið fram til að freista þess að jafna. 22.8.2012 21:16
Guidetti eftirsóttur þrátt fyrir veikindi John Guidetti er eftirsóttur víða um Evrópu þrátt fyrir slæm veikindi sem bundu næstum enda á knattspyrnuferil hans fyrir aðeins örfáum mánuðum síðan. 22.8.2012 21:15
Úrslit og markaskorarar kvöldsins í Meistaradeildinni Fimm leikir fóru fram í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld og eru lið BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi og Málaga frá Spáni í bestum málunum eftir 2-0 sigra á heimavelli. Anderlecht og Maribor töpuðu bæði en skoruðu dýrmætt mark á útivelli og ítalska liðið Udinese náði 1-1 jafntefli við Braga í Portúgal. 22.8.2012 20:49
Er Azpilicueta á leið til Chelsea? Samkvæmt frönskum fjölmiðlum eru taldar miklar líkur á því að spænski bakvörðurinn Cesar Azpilicueta sé á leið til Chelsea á næstu dögum. 22.8.2012 20:00
Guðjón og Kristinn skoruðu báðir í sigri Halmstad - Guðjón lagði upp tvö Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson voru báðir á skotskónum með Halmstad í sænsku b-deildinni í kvöld. Halmstad vann þá 3-0 heimasigur á Umeå og er enn með í baráttunni um annað sætið í deildinni sem hefur beint sæti í sænsku úrvalsdeildinni. Guðjón átti stórleik og kom að öllum þremur mörkunum en hann var með eitt mark og tvær stoðsendingar í leiknum. 22.8.2012 18:48
McShane um Guðjón Þórðar: Versti þjálfarinn sem ég hef haft á ferlinum Paul McShane úthúðar Guðjóni Þórðarsyni, þjálfara Grindavíkur, í færslu á fésbókarsíðu sinni í dag en Mcshane var ekki verið í náðinni hjá Guðjóni í sumar og fór til Aftureldingar í síðasta mánuði. Mcshane segir að Guðjón sé versti þjálfarinn sem hann hafi spilað fyrir á 18 ára ferli sínum en Víkurfréttir birti fésbókarfærslu McShane í dag. 22.8.2012 17:17
Hazard lagði upp þrjú í 4-2 sigri Chelsea á Reading Spánverjinn Fernando Torres opnaði markareikning sinn í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og Eden Hazard lagði upp þrjú mörk Chelsea vann 4-2 sigur á nýliðum Reading á Stamford Bridge í kvöld. Reading komst yfir með tveimur mörkum á fjögurra mínútna kafla í fyrri hálfleik en varð á endanum að sætta sig við tap. 22.8.2012 16:52
Fletcher á leið til Sunderland Sóknarmaðurinn Steven Fletcher er á leið frá Wolves eftir að félagið samþykkti loks tilboð Sunderland í kappann. 22.8.2012 19:00
Mourinho vill lána Sahin til Englands Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, segir að það komi vel til greina að lána Nuri Sahin til liðs í ensku úrvalsdeildinni svo hann geti fengið að spila meira. 22.8.2012 17:00
Agüero frá í mánuð Sergio Agüero verður frá í um mánuð vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leik Manchester City gegn Southampton um helgina. 22.8.2012 16:15
Norðmenn búnir að færa Íslandsleikinn yfir á Ulleval Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mun berjast við Belgíu og Noreg um sæti í úrslitakeppni EM í Svíþjóð í haust og einn af mikilvægustu leikjunum er lokaleikur Noregs og Íslands 19. september næstkomandi. Norðmenn eru nú búnir að færa Íslandsleikinn yfir á Ulleval en það kemur fram í frétt inn á heimasíðu Knattspyrnusambandsins. 22.8.2012 15:02
Gerrard og Suarez hvíldir gegn Hearts Steven Gerrard, Luis Suarez, Martin Skrtel og Glen Johnson ferðuðust ekki með liði Liverpool til Skotlands. Liverpool mætir Hearts í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildar í Edinborg annað kvöld. 22.8.2012 13:30
Welbeck fékk nýjan samning Danny Welbeck hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Manchester United. Þessi 21 árs gamli sóknarmaður hefur verið á mála hjá United allan sinn feril. 22.8.2012 13:00
Forseti Inter: Cassano getur gert gæfumuninn Massimo Moratti, forseti Inter, er afar spenntur fyrir því að fá Antonio Cassano til félagsins en hann er við það færa sig um set í Mílanóborg í skiptum fyrir Giampaolo Pazzini sem fer til AC Milan. 22.8.2012 12:15
Carvalho á leið til QPR Enska úrvalsdeildarfélagið QPR er heldur betur að stoppa í götin í vörninni hjá sér. Í morgun var greint frá því að félagið væri að kaupa Michael Dawson frá Tottenham og nú er greint frá því að félagið sé að fá Ricardo Carvalho frá Real Madrid. 22.8.2012 11:45
Grétar spilar í Tyrklandi í vetur Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson er búinn að finna sér nýtt félag en hann skrifaði í morgun undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið Kayserispor. 22.8.2012 11:00
Antonio Conte úrskurðaður í 10 mánaða keppnisbann Antonio Conte, þjálfari ítalska meistaraliðsins Juventus, var í dag úrskurðaður í 10 mánaða keppnisbann. Conte áfrýjaði dómi sem féll fyrr í þessum mánuði þar sem hann var fundinn sekur um að hafa vitað um tvö tilvik þar sem leikmenn ætluðu að hafa áhrif á úrslit leikja hjá Siena sem hann þjálfaði 2010-2011. 22.8.2012 10:30
Damiao verður ekki ódýr Forseti Internacional, Giovanni Luigi, segir að það muni þurfa risatilboð til þess að Leandro Damiao verði seldur frá félaginu. 22.8.2012 10:15
Hazard getur orðið listamaður eins og Zola Roberto di Matteo, stjóri Chelsea, segist sjá margt sameiginlegt með Eden Hazard og Gianfranco Zola sem var stjarna hjá Chelsea á árum áður. 22.8.2012 09:30
Dawson á leið til QPR Samkvæmt heimildum Sky Sports þá er Tottenham búið að samþykkja 9 milljón punda tilboð frá QPR í varnarmanninn Michael Dawson. 22.8.2012 09:00
Kom með grís á völlinn Það er allt leyfilegt á knattspyrnuvöllunum í Brasilíu. Það var endanlega staðfest er eldri kona mætti með grís á völlinn. 21.8.2012 23:30
Aron og Heiðar byrjuðu í markalausum leik Aron Gunnarsson og Heiðar Helguson voru báðir í byrjunarliði Cardiff City á útivelli gegn Brighton & Hove Albion í ensku B-deildinni í kvöld en þrátt fyrir það var ekki skoraði í leiknum. 21.8.2012 20:58
Ragnar í liðinu í sigri á Lille Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn fyrir FC Kaupmannahöfn sem sigraði Lille 1-0 í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Kaupmannahöfn stendur því vel að vígi fyrir seinni leikinn í Frakklandi en liðið sem sigrar í leikjunum tveimur kemst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. 21.8.2012 20:46
Þór/KA færist nær titlinum Þór/KA steig enn eitt skrefið í átt að Íslandsmeistaratitlinum með 1-0 sigri á Aftureldingu í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Þór/KA er þar með komið með 38 stig verður með minnst sex stiga forystu á toppnum þegar þrjár umferðir eru eftir. 21.8.2012 20:36
Þór og Víkingur Ó. færast nær Pepsí deildinni Topplið fyrstu deildar karla í fótbolta, Þór og Víkingur frá Ólafsvík unnu bæði leiki sína í kvöld þegar 17. umferð deildarinnar lauk með fimm leikjum. Þór sigraði ÍR á útivelli 2-1 og Víkingur Ó. sigraði Hauka á heimavelli sínum 2-0. Fjölnir sem er í þriðja sæti sigraði einnig sinn leik. 21.8.2012 20:27
BÍ/Bolungarvík slökkti í vonum Þróttar BÍ/Bolungarvík sigraði Þrótt á heimavelli sínum í kvöld 2-0 í 1. deild karla í fótbolta. Með sigrinum er sæti BÍ/Bolungarvíkur í 1. deildinni svo gott sem tryggt en Þróttur á nú litla möguleika á að komast upp í Pepsí deildina. 21.8.2012 20:07
Öruggt hjá ÍBV á Selfossi ÍBV gerði góða ferð á Selfoss í Pepsí deild kvenna í kvöld þar sem liðið vann öruggan 6-0 sigur. ÍBV komst þar með upp í 31 stig og tímabundið a.m.k. í annað sæti deildarinnar. Selfoss er sem fyrr í 7. sæti með 13 stig. 21.8.2012 19:52