David Villa sektaður fyrir fjölskyldukveðjuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. ágúst 2012 22:30 David Villa fer hér úr treyjunni. Mynd/AFP
David Villa skoraði sitt fyrsta mark eftir meiðslin þegar Barcelona vann 5-1 sigur á Real Sociedad í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi. Hann var þá að spila sinn fyrsta deildarleik í átta mánuði. Villa vildi þakka fjölskyldu sinni fyrir stuðninginn með því að fara úr treyjunni en undir henni var mynd af fjölskyldu hans og undir stóð: „Þetta hefði verið ómögulegt án ykkar." Spænska knattspyrnusambandið leyfir engin slík skilaboð sama hver þau eru og því bíður David Villa nú sekt á bilinu tvö til þrjú þúsund evrur eða frá 300 til 450 þúsund í íslenskum krónum. Villa fótbrotnaði illa í desember í fyrra og missti af restinni af tímabilinu sem og Evrópumótinu í sumar. Hann kom inn á sem varamaður á 74. mínútu á sunnudagskvöldið við mikinn fögnuð stuðningsmanna Barca á Nou Camp og ekki var minni fögnuður þegar hann skoraði fimmta mark Barcelona tíu mínútum síðar.
Spænski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Íslenski boltinn Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjá meira