Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neuer ekki í náðinni hjá stuðningsmönnum Bayern Harðkjarna stuðningsmenn Bayern Munchen eru allt annað en sáttir við að Manuel Neuer sé orðinn markvörður félagsins en hann kom frá Schalke í sumar. 8.7.2011 19:00
Eiði Smára boðinn tveggja ára samningur hjá Swansea Nýliðar Swansea í ensku úrvalsdeildinni hafa boðið Eiði Smára Guðjohnsen tveggja ára samning. Eiður skoðar einnig tilboð frá Bandaríkjunum. Þetta kom fram í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld. 8.7.2011 18:45
Clichy hafnaði Liverpool og valdi ekki City út af peningunum Gael Clichy lýsti því yfir á sínum tíma að menn færu aðeins til Man. City vegna peninganna. Hann er sjálfur farinn þangað en segir það ekki vera vegna peninganna. 8.7.2011 17:45
Eiður orðaður við Swansea Breski fjölmiðillinn Talksport greinir frá því að Eiður Smári Guðjohnsen hafi samþykkt að ganga til liðs við knattspyrnufélagið Swansea. Swansea vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í vor. 8.7.2011 17:20
Faðir Mata staðfestir áhuga utan Spánar Faðir og umboðsmaður Spánverjans Juan Mata hefur staðfest að áhugi sé á leikmanninum utan Spánar og meðal annars frá Englandi. Hermt er að bæði Liverpool og Arsenal vilji fá leikmanninn. 8.7.2011 17:00
Falcao ætlar ekki að elta Villas-Boas Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao ætlar að vera áfram hjá Porto þó svo áhugi sé á honum víða. Meðal annars frá Chelsea þar sem hans gamli þjálfari, Andre Villas-Boas, ræður nú ríkjum. 8.7.2011 16:15
Aron Einar búinn að skrifa undir hjá Cardiff Aron Einar Gunnarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Cardiff City. Aron Einar gekkst undir læknisskoðun í dag og gekk að henni lokinni frá samningnum. Cardiff á nú aðeins eftir að ganga frá greiðslu á uppeldisbótum til Coventry. 8.7.2011 16:01
Given líklega á leiðinni til Villa Markvörðurinn Shay Given er líkast til á förum frá Man. City í sumar en hann hefur reynt að komast frá félaginu í heilt ár án árangurs. Nú er hann orðaður við Aston Villa. 8.7.2011 15:30
Zidane mun vinna náið með Mourinho Frakkinn Zinedine Zidane mun taka við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid. José Mourinho, þjálfari liðsins, vildi að hann tæki starfið að sér. Þeir munu því vinna þétt saman á næstu leiktíð. 8.7.2011 14:45
Myndasyrpa frá Copa America Keppni á Copa America stendur nú sem hæst. Ljósmyndarar AFP hafa verið á ferðinni á öllum leikjum keppninnar og í myndasyrpunni má sjá brot af því besta. Í kvöld verður leikið í C-riðli þar sem að Úrúgvæ og Chile eigast við. Sá leikur hefst kl. 22.35. Hinn leikur kvöldsins er Perú - Mexíkó og hefst hann kl. 00.35. Báðir leikirnir eru í beinni útsendingu á Stöð 2 sport 2. 8.7.2011 13:45
Smalling fékk nýjan fimm ára samning Chris Smalling sannaði það síðasta vetur að hann er klár í slaginn með Man. Utd og félagið hefur nú verðlaunað hann með nýjum fimm ára samningi. 8.7.2011 13:34
Hermann búinn að framlengja við Portsmouth Það er nú orðið endanlega ljóst að Hermann Hreiðarsson leikur áfram með Portsmouth. Hermann skrifaði í dag undir nýjan eins árs samning við félagið. 8.7.2011 13:29
Adebayor brjálaður út í forráðamenn Man. City Framherjinn Emmanuel Adebayor er enn í stríði við félag sitt, Man. City. Adebayor fær ekki að fara með liðinu til Bandaríkjanna í dag og hann segir að félagið hafi ekki þor til þess að segja honum beint út að hann sé ekki velkominn hjá félaginu. 8.7.2011 13:15
Man. City selur nafn heimavallar félagsins Heimavöllur Man. City, City of Manchester Stadium, mun hér eftir heita Etihad Stadium en félagið seldi í dag nafn vallarins. 8.7.2011 12:30
Eriksson skoðar Hargreaves Sven-Göran Eriksson, stjóri Leicester, hefur greint frá því að hann sé að íhuga að gera samning við miðjumanninn Owen Hargreaves sem Man. Utd lét róa í sumar. Hargreaves hefur gert ýmislegt til að sanna að hann sé í formi og meðal annars nýtt sér Youtube til að auglýsa sig. 8.7.2011 11:45
Liverpool gæti flutt frá Anfield Eigandi Liverpool, Bandaríkjamaðurinn John W. Henry, segir að félagið gæti neyðst til þess að flytja frá heimavelli sínum, Anfield. Hann vill vera áfram á Anfield en segir að félaginu gæti reynst sá kostur nauðugur að færa sig um set. 8.7.2011 11:00
Frost í samskiptum Bellamy og Mancini Framherjinn Craig Bellamy hefur viðurkennt að hafa lent í rifrildi við Roberto Mancini aðeins nokkrum dögum eftir að Ítalinn tók við stjórnartaumunum hjá Man. City. Þeir hafa ekki talað saman síðan. 8.7.2011 10:15
Liverpool ætlar líka að selja leikmenn Liverpool gekk í gær frá kaupum á Charlie Adam frá Blackpool. Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til Liverpool í sumar en áður hafði félagið keypt Jordan Henderson. 8.7.2011 09:30
FH-ingar styðja Sigurstein - skora á aðra Knattspyrnudeild FH hefur tekið saman höndum og safnað fé til styrktar Sigursteini Gíslasyni og fjölskyldu hans. Sigursteinn greindist með krabbamein á dögunum. 8.7.2011 08:53
Úrslitaleikurinn fer fram í Buenos Aires - stuðningsmenn rústuðu vellinum Knattspyrnuyfirvöld í Suður-Ameríku hafa gefið grænt ljós á að úrslitaleikurinn í Copa-America fari fram á Minningarvellinum í Buenos Aires. Stuðningsmenn River Plate lögðu völlinn í rúst fyrir tíu dögum þegar ljóst var að félagið væri fallið úr efstu deild. 8.7.2011 07:00
Heimir: Fengum frábær færi til þess að skora Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var sár og svekktur þegar Vísir heyrði í honum í kvöld. ÍBV tapaði gegn írska liðinu Saint Patrick´s, 2-0, og er úr leik í Evrópudeild UEFA. 7.7.2011 22:46
Guðjón: Ég er að detta í gang Guðjón Baldvinsson, framherji KR, var afar kátur eftir öruggan 5-1 sigur Vesturbæinga á færeyska liðinu ÍF Fuglafjörður. 7.7.2011 22:40
ÍBV úr leik í Evrópudeildinni ÍBV er úr leik í Evrópudeildinni í knattspyrnu eftir 2-0 tap gegn Saint Patrick´s í Írlandi í kvöld. 1-0 sigur ÍBV á Vodafonevellinum dugði ekki til. 7.7.2011 20:32
Aron Einar semur við Cardiff á morgun Aron Einar Gunnarsson skrifar undir þriggja ára samning við Cardiff City í ensku fyrstu deildinni í fótbolta á morgun. Fyrst fer hann í læknisskoðun í fyrramálið. Þetta staðfesti Aron Einar við íþróttadeild fyrir örfáum mínútum. 7.7.2011 20:08
Redknapp ætlar að byggja í kringum Modric Harry Redknapp, stjóri Spurs, vonar að nýir leikmenn sannfæri króatíska miðjumanninn Luka Modric um að rétt sé að vera áfram hjá félaginu. Modric vill fara en félagið neitar að selja hann. Bæði Man. Utd og Chelsea vilja kaupa miðjumanninn. 7.7.2011 19:45
O´Shea fór líka til Sunderland Manchester United er búið að missa tvo varnarmenn til Sunderland í dag. Wes Brown fór fyrr í dag og nú er John O´Shea búinn að skrifa undir samning við félagið. Kaupverð leikmannanna var ekki gefið upp. 7.7.2011 19:00
Stórsigur hjá KR í Evrópudeildinni KR er komið áfram í Evrópudeild UEFA eftir afar öruggan sigur, 5-1, á færeyska liðinu ÍF Fuglafjörður í kvöld. KR vann rimmu liðanna 8-2 samanlagt. Yfirburðir KR-inga í leiknum voru miklir og talsverður gæðamunur á liðunum. Það mátti sjá strax í upphafi. 7.7.2011 16:50
Grindvíkingar endurgreiða stuðningsmönnum og bjóða í grill Grindvíkingar ætla að endurgreiða stuðningsmönnum liðsins sem lögðu leið sína í Kaplakrika í gærkvöld og sáu sína menn tapa 7-2 gegn FH. Þá bjóða leikmennirnir öllum stuðningsmönnum liðsins í grillveislu að lokinni æfingu liðsins annað kvöld. 7.7.2011 16:45
Wes Brown til Sunderland Varnarmaðurinn Wes Brown hefur gengið til liðs við Sunderland frá Manchester United. Brown skrifaði undir fjögurra ára samning í dag en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. 7.7.2011 16:00
Elfar Freyr Helgason á leið til AEK Knattspyrnumaðurinn Elfar Freyr Helgason úr Breiðabliki er á leiðinni til gríska félagsins AEK Aþenu. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverðið en Elfar Freyr á eftir að gangast undir læknisskoðun og semja um kaup og kjör. 7.7.2011 15:30
Argentína veldur vonbrigðum á heimavelli Það er óhætt að segja að landslið Argentínu í knattspyrnu hafi ollið stuðningsmönnum sínum vonbrigðum í Suður-Ameríkukeppninni í knattspyrnu til þessa. Liðið gerði markalaust jafntefli við Kólumbíu í gærkvöldi. Miklar vonir voru bundnar við argentínska liðið enda liðið stjörnum hlaðið og á heimavelli. 7.7.2011 14:15
Svíar unnu Bandaríkin - Brasilía og Bandaríkin mætast Svíþjóð lagði Bandaríkin 2-1 í lokaumferð C-riðils á heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Úrslitin þýða að Svíar mæta Áströlum í átta liða úrslitum en Bandaríkin mæta Brasilíu. 7.7.2011 13:30
Robbie Fowler semur við tælenskt félag Fyrrum framherji Liverpool Robbie Fowler hefur ákveðið að ganga til liðs við tælenska knattspyrnufélagið Muang Thong United. Fowler sem er einn vinsælasti leikmaðurinn í sögu Liverpool spilaði tvö síðustu tímabil í Ástralíu. 7.7.2011 12:15
Þakið hrundi á stúku FC Twente - einn látinn Björgunaraðgerðum er lokið á leikvangi FC Twente, De Grolsch Veste, í Enschede í Hollandi. Þakið á stúku hollenska félagsins hrundi í morgun var fólk fast í rústunum. Nýjustu fregnir herma að einn hafi látist, tíu fluttir á sjúkrahús og þrír fengu aðhlynningu á staðnum. 7.7.2011 11:00
Pepsimörkin: Gaupahornið í Vestmannaeyjum Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 var með innslag í Pepsimörkunum á Stöð 2 sport í gær. Gaupi brá sér á leik í Vestmannaeyjum og tók púlsinn á stemningunni í Eyjum. 7.7.2011 11:00
Lyfjahneyksli á HM kvenna í Þýskalandi Tveir leikmenn knattspyrnulandsliðs Norður-Kóreu féllu á lyfjaprófi að loknum leik liðsins gegn Kólumbíu í C-riðli á heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu í Þýskalandi. Ekki er greint frá því hvaða lyf leikmennirnir notuðu. 7.7.2011 10:15
Brown og O'Shea í læknisskoðun hjá Sunderland Allt útlit er fyrir að John O'Shea varnarmaður Manchester United sé á leiðinni til Sunderland. Írinn hélt áleiðis til Sunderland í gær en hann mun gangast undir læknisskoðun í dag. Wes Brown liðsfélagi O'Shea hjá United fór í læknisskoðun hjá Sunderland í gærkvöldi. 7.7.2011 09:29
Arsenal hafnar 20 milljóna punda boði United í Nasri Arsenal hefur hafnað 20 milljóna punda boði eða sem svarar um þremur og hálfum milljarði íslenskra króna Manchester United í franska miðjumanninn Samir Nasri. Arsenal vill fá 25 milljónir punda fyrir Nasri. 7.7.2011 09:19
Pepsimörkin: Mörkin og tilþrifin úr 9. umferð Fimm leikir fóru fram í 9. umferð í Pepsideildinni i fótbolta karla í gær. Mörkin létu ekki á sér standa og í þessari samantekt úr þættinum Pepsimörkin frá því í gær eru öll mörkin sýnd og það er breska hljómsveitin Coldplay sem sér um undirleikinn. 7.7.2011 08:05
Þorvaldur: Komum ekki boltanum yfir línuna „Þetta er alltaf jafnt svekkjandi,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, eftir ósigurinn í kvöld. Fram tapaði enn einum leiknum gegn Keflvíkingum, 1-0, í Keflavík í kvöld og er sem fyrr í næsta sæti með tvö stig. 6.7.2011 22:27
Ólafur: Barnaskapur að spila svona varnarleik Ólafur Kristjánsson þjálfari Blika var sæmilega sáttur með leik sinna manna í samtali við blaðamann. Hann hafði hann áhyggjur af slælegum varnartilburðum sinna manna en er þó ekki farinn að örvænta þótt stigataflan sýni ekki eins mörg stig og margir Blikar höfðu vonast eftir. 6.7.2011 23:07
Andri: Mjög sáttur með framlag minna manna Andri Marteinsson þjálfarin Víkinga var ánægður með leik sinna manna en að sama skapi var hann ekki eins sáttur með úrslit leiksins. Víkingar sem leiddu lengi vel gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks misstu leikinn niður í 2-2 jafntefli þegar skammt lifði leiks. 6.7.2011 23:04
Viktor: Gaman að skora framhjá Ingvari Hinn 17 ára Viktor Jónsson sýndi góðan leik með Víkingum í kvöld og skoraði seinna mark sinna manna í leiknum og það gegn sínum gamla þjálfara. 6.7.2011 23:01
Óli Þórðar: Vorum teknir í kennslustund „Frá fyrstu mínútu til síðustu var þetta kennslustund í fótbolta. Við komumst yfir þvert gegn gangi leiksins og það var engan vegin sanngjarnt en svona er þetta. Fótbolti getur farið á alla vegu en Stjörnumenn héldu áfram og stútuðu okkur,“ sagði þungur á brún Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis eftir ósigurinn gegn Stjörnunni í kvöld. 6.7.2011 22:58
Bjarni: Spiluðum frábærlega Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar hitti svo sannarlega naglan á höfuðið þegar hann skipti varnarmanninum Tryggva Sveini Bjarnasyni inná í framlínuna þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum gegn Fylki í kvöld. Tryggvi skoraði eftir mínútu og það lagði grunninn að 4-1 sigrinum. 6.7.2011 22:56