Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ronaldo skoraði í fyrsta sinn í tvo mánuði Brasilíumaðurinn Ronaldo skoraði langþráð mark fyrir lið sitt í nótt en þessi markahæsti leikmaður á HM frá upphafi var búinn að bíða í næstum tvo mánuði eftir marki. Ronaldo skoraði mark Corinthians í 1-1 jafntefli á móti Flamengo í brasilísku deildinni. 28.10.2010 16:45
Björgvin Karl þjálfar kvennalið KR næsta sumar Björgvin Karl Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari KR í Pepsi-deild kvenna í fótbolta og mun hann taka við liðinu af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur. Björgvin Karl skrifaði undir þriggja ára samning en þetta kemur fram í frétt á heimasíðu KR. 28.10.2010 16:19
Cole skírir VIP-boxið sitt eftir fatalínu söngvara Oasis Það eru ekki allir sem vita að Joe Cole, leikmaður Liverpool, og Liam Gallagher, söngvari Oasis, eru perluvinir. Svo miklir vinir eru þeir að Cole hefur skírt VIP-boxið sitt á Anfield eftir fatalínu Liam. 28.10.2010 16:00
Kuyt gæti spilað á móti Chelsea Dirk Kuyt vonast til þess að geta spilað á ný með Liverpool þegar liðið tekur á móti toppliði Chelsea á Anfield um þar næstu helgi. Kuyt hefur verið frá síðan í byrjun mánaðarins eftir að hafa meiðst í leik með hollenska landsliðinu en í fyrstu var búist við því að hann yrði frá í heilan mánuð. 28.10.2010 15:30
Hannes Þór búinn að semja við KR Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er farinn frá Fram og skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við KR. Þessi félagaskipti hafa legið í loftinu í nokkurn tíma og eru nú loks staðfest. 28.10.2010 14:19
Javier Hernandez var næstum því hættur í fótbolta árið 2009 Javier Hernandez er nýjasta stjarnan á Old Trafford eftir að hafa tryggt Manchester United sigur í síðustu tveimur leikjum og skorað sex mörk í fyrstu ellefu leikjum sínum með United. Faðir Javier Hernandez sagði The Sun frá því að hann strákurinn hafi næstum því valið viðskiptanám yfir fótboltann fyrir tveimur árum. 28.10.2010 14:00
Klose aftur á meiðslalistann hjá Bayern Miroslav Klose, framherji Bayern Munchen og þýska landsliðsins, var ekki fyrr kominn af meiðslalistanum að hann meiddist aftur á sama stað. Klose verður ekkert með næstu þrjár vikurnar eftir að hafa meiðst aðeins degi eftir að hafa snúið til baka eftir tveggja vikna fjarveru. 28.10.2010 13:30
Arnar Már Björgvinsson til liðs við Íslandsmeistara Breiðabliks Sóknarmaðurinn Arnar Már Björgvinsson er hættur hjá Stjörnunni og búinn að gera þriggja ára samning við Íslandsmeistara Breiðabliks. Þetta kemur fram á vefsíðunni fótbolti.net en Arnar Már er fyrsti leikmaðurinn sem Blikarnir fá til sín fyrir titilvörninni í Pepsi-deild karla næsta sumar. 28.10.2010 13:00
Owen gæti hætt ef hann fær ekki nýjan samning hjá Man Utd Michael Owen hefur gefið það í skyn að hann er að íhuga það að leggja skónna á hilluna ef að hann fær ekki nýjan saming hjá Manchester United eftir þetta tímabil. Hinn 30 ára Owen hefur glímt við langvinn meiðsli aftan í læri og af þeim sökum lítið spilað með United á þessu tímabili. 28.10.2010 12:30
Hodgson mun aldrei selja Pepe Reina til Manchester United Roy Hodgson, stjóri Liverpool, hefur eins og aðrir heyrt sögusagnirnar að Manchester United ætli að reyna að kaupa markvörðinn Pepe Reina frá Liverpool en stjórinn segir að það komi ekki til greina að selja spænska markvörðinn til erkifjendanna í Manchester. 28.10.2010 12:00
Nýstárlegt fagn Steinþórs slapp ekki við gula spjaldið - myndband Steinþór Freyr Þorsteinsson skoraði í síðasta leik Örgryte á tímabilinu í sænsku b-deildinni í fótbolta og bauð upp á frumlegt fagn að hætti Stjörnumanna. Dómari leiksins var þó ekki sammála og gaf Íslendingnum gult spjald. 28.10.2010 11:30
Wenger: Walcott orðinn miklu yfirvegaðari fyrir framan markið Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hrósaði framförunum hjá Theo Walcott eftir 4-0 sigur Arsenal á Newcastle í enska deildarbikarnum í gærkvöld. Theo Walcott skoraði tvö mörk í leiknum og hefur alls skorað 6 mörk í þremur byrjunarliðsleikjum sínum á tímabilinu. 28.10.2010 11:00
Illska hlaupin í baráttu Englendinga og Rússa um HM 2018 England og Rússland keppast þessa daganna um að sannfæra valnefnd FIFA um að heimsmeistarakeppnin eftir átta ár eigi að fara fram hjá þeim. Kosningarbaráttan hefur tekið á sig ósvífnari mynd að undanföru þar sem báðir aðilar virðast vera að reyna að spilla fyrir hinum. 28.10.2010 10:00
Carlos Tevez farinn heim til Argentínu Meiðsli Carlos Tevez eru alvarlegri en í fyrstu var talið og nú óttast forráðamenn Manchester City að Argentínumaðurinn missi jafnvel af Manchester-slagnum sem fer fram 10. nóvember næstkomandi. 28.10.2010 09:30
Benzema sagður á leið til Ítalíu Karim Benzema er sagður vilja losna frá Real Madrid þar sem honum hefur gengið illa að fóta sig síðan hann kom til félagsins frá Lyon í fyrra. 28.10.2010 08:00
Manchester United keypti HM-gullmedalíu Nobby Stiles Manchester United keypti gullverðlaun Nobby Stiles á HM 1966 fyrir metfé á uppboði í gær. Stiles lék með United frá 1960 til 1971 og enska landsliðinu frá 1965 til 1970. 28.10.2010 07:00
Arftaki Páls kolkrabba er franskur Sædýrasafnið í Oberhausen í Þýskalandi hefur fundið arftaka kolkrabbans Páls sem dó í síðustu viku. Sá er franskur en hann var veiddur undan ströndum Montpellier í suðurhluta Frakklands. 28.10.2010 06:00
Afellay ætlar til Atletico Madrid Spænska blaðið AS greinir frá því í dag að að miðjumaðurinn eftirsóttir hjá PSV Eindhoven, Ibrahim Afellay, sé búinn að samþykkja samningstilboð frá Atletico Madrid. 27.10.2010 23:30
Bjarni Þórður aftur í Fylki Bjarni Þórður Halldórsson, sem varið hefur mark Stjörnunnar undanfarin þrjú tímabil, er aftur genginn í raðir Fylkis. 27.10.2010 23:11
Bjarni skoraði fyrir Mechelen Bjarni Þór Viðarsson skoraði í kvöld sitt fyrsta mark fyrir belgíska úrvalsdeildarfélagið KV Mechelen er liðið vann 7-0 stórsigur á RC Waregem í bikarnum. 27.10.2010 22:54
FCK óvænt úr leik í danska bikarnum FCK tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í annað hvort deild eða bikar í Danmörku er liðið tapaði óvænt á heimavelli fyrir Horsens, 4-2, í dönsku bikarkeppninni. 27.10.2010 22:48
Mun Guardiola taka við af Ferguson? Það er enn mikið rætt og ritað um hver muni taka við af Sir Alex Ferguson er hann hættir loksins með Man. Utd. Ferguson hefur sjálfur ekki viljað gefa út hvenær hann hætti og mun þess vegna halda áfram með liðið á meðan hann hefur heilsu til. 27.10.2010 22:45
West Ham og Aston Villa áfram í bikarnum West Ham og Aston Villa komust í kvöld áfram í næstu umferð í ensku deildabikarkeppninni í knattspyrnu. 27.10.2010 21:20
Arsenal fór létt með Newcastle Einum leik af þremur er lokið í ensku deildabikarkeppninni í kvöld en í honum vann Arsenal stórsigur á Newcastle, 4-0. 27.10.2010 20:38
Neuer líkir Raul við Páfann Manuel Neuer, markvörður Schalke, fór mikinn í viðtali við Sport-Bild og þarf líklega að svara fyrir ýmislegt sem hann sagði í viðtalinu við blaðið. 27.10.2010 20:30
Gylfi spilaði í sigurleik Gylfi Þór Sigurðsson spilaði næstum allan leikinn er Hoffenheim vann nauman 1-0 sigur á Ingolstadt í þýsku bikarkeppninni í kvöld. 27.10.2010 19:05
Gata í Hannover verður nefnd eftir Enke heitnum Borgarstjórnin í Hannover ætlar að heiðra markvörðinn Robert Enke með því að skíra götu í borginni eftir markverðinum sem framdi sjálfsmorð fyrir tæpu ári síðan. 27.10.2010 19:00
Van Gaal þakkaði Sepp Blatter fyrir sigurinn á Bremen í gær Louis van Gaal, þjálfari Bayern Munchen, þakkaði Sepp Blatter, forseta FIFA, fyrir sigurinn á Werder Bremen í þýsku bikarkeppninni í gærkvöldi en dómaramistök hjálpuðu Bayern-liðinu að vinna leikinn. 27.10.2010 18:15
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Stoke City sem mætir West Ham í ensku deildabikarkeppninni í kvöld. 27.10.2010 18:12
Sextíu prósent vilja fá Mourinho sem næsta stjóra Man. United Jose Mourinho fékk yfirgnæfandi stuðning í lesendakönnun á skysports.com um hver eigi að taka við stjórastöðu Manchester United þegar hinn 69 ára gamli Sir Alex Ferguson hættir með liðið. 27.10.2010 17:30
Sneijder líklegastur til að hreppa gullbolta FIFA Hollendingurinn Wesley Sneijder þykir líklegastur til að hljóta fyrsta gullbolta FIFA sem eru ný verðlaun sambandsins fyrir besta knattspyrnumann ársins í heiminum. FIFA gaf í gær út lista með þeim 23 leikmönnum sem koma til greina í kjörinu sem verður tilkynnt í byrjun næsta árs. 27.10.2010 16:45
Forseti Inter hneykslaður á því að Milito sé ekki meðal þeirra bestu Massimo Moratti, forseti Inter Milan, var ekki sáttur með það að Diego Milito var ekki meðal þeirra 23 leikmanna sem koma til greina sem besti knattspyrnumaður ársins fyrir tímabilið 2010 en listinn var gefinn út af FIFA í gær. 27.10.2010 16:00
Nýir eigendur Blackburn redda bara fimm milljónum í nýja leikmenn Indverska eignarhaldsfélagið Venky er að ganga frá kaupum á Blackburn Rovers fyrir 46 milljónir punda eða um 8,2 millharða íslenskra króna. Sam Allardyce, stjóri Blackburn, fær samt bara fimm milljónir punda til að eyða í nýja leikmenn í janúarglugganum. 27.10.2010 15:30
Gylfi byrjar í kvöld Gylfi Sigurðsson verður „afar líklega“ í byrjunarliði 1899 Hoffenheim í kvöld er liðið mætir Ingolstadt í þýsku bikarkeppninni í kvöld. 27.10.2010 15:14
Moyes: Beckford þarf bara tíma David Moyes, stjóri Everton, segist hafa notað Jermaine Beckford meira en hann ætlað sér fyrir þetta tímabil. Moyes lítur á Jermaine Beckford sem framtíðarmann hjá félaginu en að þessi fyrrum framherji Leeds þurfi bara tíma til að aðlagast ensku úrvalsdeildinni. 27.10.2010 15:00
Defour veit af áhuga Manchester United Belgíski miðjumaðurinn Steven Defour hjá Standard Liege veit af því að hann sé undir smásjánni hjá Manchester United en segist ekkert hafa þó heyrt í fulltrúm Manchester United. 27.10.2010 14:30
Lasergeisla var beint að Cristiano Ronaldo í gær Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid lenti enn á ný í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu í gær að lasergeisla var beint að honum í leiknum á móti Real Murcia í spænska bikarnum í gærkvöldi. 27.10.2010 14:00
John Terry til varnar "grófu" liðunum John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur tjáð sig um gagnrýnina á grófan leik í ensku úrvalsdeildinni með því að lýsa því yfir að nokkur lið í deildinni hafi fengið ósanngjarna meðhöndlun í fjölmiðlum. 27.10.2010 13:30
Ray byrjunarliðsmaður í filippseyska landsliðinu - myndband Grindvíkingurinn Ray Anthony Jónsson leikmaður Grindavíkur lék alla leikina með landsliði Filippseyja í undankeppni suðaustur Asíukeppninnar í fótbolta, AFF Suzuki Cup, sem fram fór í Laos nú í lok október en síðasti leikur Ray og félaga var í gær. 27.10.2010 13:00
Michael Owen aftur meiddur aftan í læri Michael Owen verður frá næstu vikurnar eftir að hann meiddist enn á ný aftan í læri á æfingu í vikunni. Owen var af þeim sökum ekki í leikmannahópi Manchester United á móti Wolves í enska deildarbikarnum í gær. 27.10.2010 12:30
Jóhann Þórhallsson búinn að skrifa undir nýjan samning við Fylki Jóhann Þórhallsson verður áfram í Fylki þótt að hans gamla lið Þór sé komið aftur upp í úrvalsdeild karla. Jóhann er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið en samningur hans var runninn út. Þetta kom fram á heimasíðu Fylkis. 27.10.2010 12:24
Eiður Smári fær að byrja inn á í fyrsta sinn í kvöld Tony Pulis, stjóri Stoke City, hefur staðfest það að hann muni gera að minnsta kosti fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá því leiknum á móti Manchester United um helgina þegar Stoke nætir West Ham í enska deildarbikarnum í kvöld. 27.10.2010 12:00
Þóra kemur til greina sem besti markvörðurinn í sænsku deildinni Þóra Björg Helgadóttir, markvörður Svíþjóðarmeistara LdB FC Malmö, er ein af fjórum markvörðum sem koma til greina sem besti markvörður ársins en Þóra stóð sig frábærlega á sínu fyrsta ári með liðinu. 27.10.2010 11:30
Breyttar áherslur hjá Wenger í enska deildarbikarnum Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er búinn að ákveða það að breyta um áherslur í enska deildarbikarnum. Wenger segist vera hættur að nota unglingaliðið í keppninni og ætli þess í stað að nota sitt besta lið í öllum keppnum. 27.10.2010 11:00
Chicharito-treyjurnar rjúka út á Old Trafford Stuðningsmenn Manchester United eru búnir að finna sér nýja hetju ef marka má sölu á treyjum í verslun félagsins á Old Trafford. Javier Hernandez skoraði þrjú mörk þar af tvö þeirra sigurmörk í síðustu tveimur leikjum og treyjur með númer 14 og Chicharito á bakinu rjúka nú út eins og heitar lummur. 27.10.2010 10:30