Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjóðverjar búnir að panta HM-hótel án þess að vera komnir inn á HM Þjóðverjar telja sig vera örugga um að komast áfram á HM í Suður-Afríku næsta sumar því þýska knattspyrnusambandið hefur pantað fimm stjörnu hótelið Velmore Grande á meðan keppninni stendur. Þjóðverjar eru enn í hörkukeppni við Rússa um sigurinn í 4. riðli og um leið sæti inn á HM. 9.9.2009 12:00
Heiðar aftur orðaður við Boro Heiðar Helguson var í dag orðaður við Middlesbrough á ný en hann er á mála hjá Queen's Park Rangers. 9.9.2009 11:30
Dómari stöðvaði leik því bílnum hans var stolið - myndband Athyglisverð uppákoma átti sér stað í spænsku C-deildinni nú á sunnudaginn en þá áttust við lið Jumilla og Puente Tocinos. 9.9.2009 11:12
Geta endurskrifað hollenska fótboltasögu í kvöld Hollenska landsliðið á möguleika á að ná hundrað prósent árangri í undankeppni HM vinni þeir sigur á Skotum á Hampden í kvöld. Ekkert hollenskt landslið hefur náð að vinan alla leiki sína í undankeppni hvort sem það er fyrir HM eða EM. 9.9.2009 11:00
Kolo Toure verður fyrirliði hjá Manchester City Mark Hughes, stjóri Manchester City, hefur ákveðið að Kolo Toure taki við fyrirliðabandinu af Richard Dunn sem félagið seldi á dögunum til Aston Villa. Toure er aðeins búinn að vera í rúman mánuð hjá City sem keypti hann frá Arsenal í haust. 9.9.2009 10:30
Gary Neville: Meiðslamartröðin vonandi á enda Gary Neville hefur lítið getað spilað með Manchester United undanfarin tvö ár vegna meiðsla. Hann vonast nú til þess að geta fara hjálpað liðinu á ný og að hann sé laus við meiðslin. 9.9.2009 10:00
Didier Drogba: Ég fórna mér oft fyrir liðið Didier Drogba vill fá meira hrós fyrir hversu óeigingjarn hann er inn á fótboltavellinum. Drogba er einn öflugasti framherji heims bæði með Chelsea og landsliði Fílabeinsstrandarinnar en hann segir að fáir taki eftir því hversu duglegur hann er án boltans. 9.9.2009 09:30
Völsungur og KV upp í 2. deild Í kvöld varð ljóst að Völsungur frá Húsavík og KV eða Knattspyrnufélag Vesturbæjar munu leika í 2. deild næsta sumar. Völsungur vann 5-2 sigur gegn Hvíta riddaranum á Húsvíkurvelli í seinni umspilsleik liðanna í úrslitakeppni 3. deildar en fyrri leikurinn fór 1-1 og vann Völsungur því einvígið samanlagt 6-3. 8.9.2009 23:15
Þorkell Máni: Stefnum á að taka dolluna næsta sumar „Ég er svekktur með tapið en við börðumst og stefndum á sigur og ekkert annað. Það dugði því miður ekki að þessu sinni. Valsstúlkurnar þurftu samt virkilega að hafa fyrir sigrinum og mér fannst við vera að spila vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. 8.9.2009 22:30
Kristín Ýr: Erum bestar þegar við spilum okkar „sambabolta“ „Um leið og fyrsta markið kom þá fannst mér við vera með þetta í okkar höndum. Við erum bestar þegar við spilum okkar „sambabolta“ eins og við gerðum í síðari hálfleik í stað þessara kýlinga í fyrri hálfleik,“ sagði Kristín Ýr Bjarnadóttir eftir 0-2 sigur Vals gegn Stjörnunni í kvöld en Valur er nú í kjörstöðu til þess að verja titil sinn. 8.9.2009 22:15
Guardiola boðinn nýr samningur á Nývangi Spænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að knattspyrnustjóranum Pep Guardiola hjá Barcelona hafi verið boðinn nýr og betri samningur við félagið en nánast fullkomið síðasta keppnistímabil þegar Börsungar unnu þrennuna, deild, bikar og meistaradeild. 8.9.2009 21:30
Stórsigur hjá U-21 árs landsliðinu gegn Norður-Írum Strákarnir í U-21 árs landsliði Íslands unnu 2-6 sigur gegn Norður-Írum í undankeppni EM 2010 í kvöld en leikið var ytra. Staðan var 0-4 fyrir Íslandi í hálfleik. 8.9.2009 20:45
Freyr: Erum komin með níu fingur á titilinn „Þetta er mjög sætt og vissulega er þungu fargi af mér létt þar sem það er náttúrulega alltaf pressa á að skila titlum á Hlíðarenda. Við erum komin með níu fingur á þennan,“ segir Freyr Alexandersson þjálfari Vals í viðtali við Vísi eftir 0-2 sigur liðs síns gegn Stjörnunni á Stjörnuvelli í kvöld. 8.9.2009 20:30
Kristín Ýr afgreiddi Stjörnuna - Blikar töpuðu í Árbæ Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði bæði mörk Vals í 0-2 sigri gegn Stjörnunni í toppbaráttuslag Pepsi-deildar kvenna á Stjörnuvellinum í kvöld. 8.9.2009 18:46
Svíar óttast að Zlatan ætli að hætta í sænska landsliðinu Svíar hafa áhyggjur af því að Zlatan Ibrahimovic ætli að hætta að spila með sænska landsliðinu. Svíar eru ekki í alltof góðri stöðu í undankeppni HM en sigurmark Zlatans í uppbótartíma á móti Ungverjum um síðustu helgi hélt lífi í voninni um að komast á HM í Suður-Afríku. 8.9.2009 17:30
Bendtner vill skora 25 mörk fyrir Arsenal í vetur Daninn Nicklas Bendtner ætlar að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni í vetur og telur að þetta geti verið spútniktímabilið hans hjá Arsenal. Hann gerir sér þó grein fyrir því að hann þarf þá að fara að skora fleiri mörk en hann hefur gert til þessa. 8.9.2009 17:00
Tony Adams: Arsenal verður ekki enskur meistari á þessu tímabili Tony Adams, fyrrum fyrirliði Arsenal, segir Arsenal-liðið vera í stöðugri framför en þeir séu þó enn ekki tilbúnir að fara að keppa um enska meistaratitilinn af einhverri alvöru. 8.9.2009 16:30
Fabio Capello: Takk fyrir hjálpina Herra Bilic Fabio Capello segir Slaven Bilic, þjálfara króatíska landsliðsins, hafa hjálpað sér mikið við undirbúning enska landsliðsins fyrir leikinn. Bilic sagði að enska liðið hafi tapað "enska stílnum" síðan að Capello varð þjálfari liðsins. 8.9.2009 16:00
Norðmenn fá aðstoð frá íslenskum dómara í kvöld Örvar Sær Gíslason, dómari, verður í eldlínunni í dag þegar hann dæmir leik Hönefoss og Kongsvinger í næst efstu deild í Noregi. Um sannkallaðan toppslag er að ræða því að þetta eru félögin sem sitja sem stendur í öðru og þriðja sæti deildarinnar og í mikilli baráttu um að komast upp í efstu deild. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Knattspyrnusambandsins. 8.9.2009 15:30
Sandra: Viljum vera áfram með í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Sandra Sigurðardóttir, markvörður og fyrirliði Stjörnunnar, er klár í leikinn á móti Val í kvöld en með sigri geta Stjörnukonur komist á toppinn í Pepsi-deildinni en tapi þær leiknum eiga þær ekki lengur möguleika á Íslandsmeistaratitlinum í ár. 8.9.2009 15:00
Tevez ekki með á móti Arsenal - vonandi klár fyrir Manchester-slaginn Carlos Tevez verður ekki með Manchester City í stórleiknum á móti Arsenal um næstu helgi en Tevez meiddist á hné í leik Argentínu og Brasilíu í undankeppni HM um síðustu helgi. Mark Hughes, stjóri City, vonast til að Tevez verði orðinn góður fyrir nágranna- og derby-slaginn á móti Manchester United sem fram fer eftir tæpar tvær vikur eða 20. september. 8.9.2009 14:30
Árni Gautur er meiddur - Hannes Þór inn í hópinn Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Georgíu á Laugardalsvellinum á morgun. 8.9.2009 13:30
Frítt á toppleik Stjörnunnar og Vals í kvöld Avant, einn helsti styrktaraðili Stjörnunnar, hefur ákveðið að bjóða frítt á toppleik Stjörnunnar og Vals í Pepsi-deild kvenna í kvöld en heimastúlkur geta komist í toppsæti deildarinnar með sigri á sama tíma og Valskonur geta með sigri farið langt með að tryggja sér fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð. 8.9.2009 13:00
Rúrik Gíslason í liði mánaðarins í dönsku úrvalsdeildinni Danska Tipsbladet hefur valið Rúrik Gíslason í lið ágústmánaðar í dönsku úrvalsdeildinni en Rúrik hefur leikið frábærlega með Odense Boldklub. Rúrik fór á kostum í landsleik Íslendinga og Norðmanna á laugardaginn og sýndi þá hversu öflugur leikmaður hann er orðinn. 8.9.2009 12:30
Lampard vill horfa jákvætt á bannið - gæti þjappað liðinu betur saman Frank Lampard er á því að Chelsea-liðið gæti nýtt sér það að liðið megi ekki kaupa nýja leikmenn fyrr en árið 2011. Chelsea var sett í bann hjá FIFA vegna vinnubragða félagsins við að næla í Frakkan Gael Kakuta frá RC Lens. Flestir eru á því að Chelsea þurfi að styrkja leikmannahópinn á þessum tíma til að berjast um titlana í boði en Lampard trúir því að liðsheildin gæti orðið enn sterkari við þetta bann. 8.9.2009 12:00
Scolari: Fær 2,3 milljarða fyrir að þjálfa lið í Úsbekistan Það er svo sannarlega líf eftir það að vera rekinn frá Chelsea. Það sannar Luis Felipe Scolari sem er orðinn launahæsti þjálfari heims eftir að hafa gert ótrúlegan 18 mánaða samning við lið Bunyodkor frá Úsbekistan. 8.9.2009 11:30
Landsliðsmennirnir ánægðir með Tólfuna - gáfu 150 miða á Georgíuleikinn Leikmenn A-landsliðs Íslands í knattspyrnu voru ánægðir með stuðningssveit íslenska landsliðsins og þökkuðu Tólfunni fyrir frábæran stuðning á leiknum gegn Norðmönnum á laugardaginn. Í þakklætisskyni ákváðu leikmennirnir að gefa liðsmönnum Tólfunnar 150 miða á vináttulandsleikinn við Georgíu á morgun. 8.9.2009 11:00
Henry neitar því að hafa lesið yfir Domenech þjálfara Thierry Henry, fyrirliði franska landsliðsins, hefur neitað að hafa gagnrýnt landsliðsþjálfarann Raymond Domenech eftir að franska blaðið Le Parisien hafði eftir samtal hans við Domenech þjálfara þar sem Henry átti að hafa sagt að leikmönnum leiddist á æfingum og að þeir væru síðan týndir inn á vellinum. 8.9.2009 10:30
Manchester City í vandræðum eins og Chelsea og Manchester United Franska liðið Rennes hefur kvartað yfir vinnubrögðum enska liðsins Manchester City sem samdi við franska unglinginn Jeremy Helan fyrr á árinu eftir að Helan hafi ákveðið að skrifa ekki undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við uppeldisfélag sitt. 8.9.2009 10:00
Beckham útilokar ekki að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina „Ég hef ekki farið leynt með það að ég ætla mér að snúa aftur til Evrópu. Við skulum orða það að þannig að það séu nokkrir möguleikar í stöðunni,“ segir David Beckham í samtali við BBC Radio þegar hann inntur eftir því hvort honum hugnaðist að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina. 7.9.2009 23:30
Giggs planar að hætta á toppnum - útilokar ekki að fara út í þjálfun „Fótbolti er líf mitt og yndi en ég ætla ekki að vera enn að þegar ég verð fertugur. Ég gæti þó mögulega leitað að einhverjum öðrum áskorunum innan fótboltans eftir að ég legg skóna á hilluna,“ segir Ryan Giggs hjá Englandsmeisturum Manchester United í nýlegu viðtali við Sunday Mirror. 7.9.2009 22:45
Hafnarboltapeningar Hicks ekki notaðir fyrir Liverpool Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool þurfti að fresta framkvæmdum sínum við byggingu á nýjum leikvangi við Stanley Park þegar kreppan skall á en sá leikvangur mun rýma talsvert fleiri áhorfendur en Anfield leikvangurinn gerir nú. 7.9.2009 22:00
Gradi: Það sem gerðist fyrir Chelsea er frábært Enska d-deildarfélagið Crewe, þar sem Guðjón Þórðarson er við stjórnvölin, hefur tilkynnt ónefnt úrvalsdeildarfélag til enska knattspyrnusambandsins vegna ólögmætra viðræðna þess við ungan leikmann Crewe. 7.9.2009 20:30
Forráðamenn United senda Frökkunum tóninn Talsmaður Englandsmeistara Manchester United hefur staðfest að félagið hafi hug á því að kæra Le Havre fyrir ásakanir forráðamanna franska félagsins um að enska félagið hafi reynt að fá hinn unga Paul Pogba með ólöglegum hætti. 7.9.2009 19:45
Paddy Kenny dæmdur í níu mánaða langt bann Enska knattspyrnusambandið staðfesti í dag að markvörðurinn Paddy Kenny hjá Sheffield United hafi verið dæmdur í níu mánaða langt keppnisbann fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi eftir leik gegn Preston í úrslitakeppni b-deildarinnar á Englandi á síðasta keppnistímabili. 7.9.2009 18:45
Þýskaland og England leika til úrslita á EM í Finnlandi Nú liggur ljóst fyrir að heims -og evrópumeistarar Þjóðverja mæta Englendingum í úrslitaleik á EM í Finnlandi. Þýskaland vann Noreg 3-1 í seinni undanúrslitaleiknum sem fram fór í dag en staðan var 0-1 fyrir Noregi í hálfleik. 7.9.2009 18:00
Pape var á skotskónum á móti Skotum í dag Fylkismaðurinn Pape Mamadou Faye skoraði bæði mörk íslenska 19 ára landsliðsins sem vann 2-0 sigur á Skotum í vináttulandsleik í Skotlandi í dag. Liðin mætast í öðrum vináttulandsleik á miðvikudaginn. 7.9.2009 17:30
Tevez ekki með Argentínu á móti Paragvæ - meiddur á hné Carlos Tevez verður ekki með Argentínumönnum á móti Paragvæ í undankeppni HM á miðvikudaginn þar sem hann er meiddur á hné. Argentínumenn verða helst að vinna til að halda lífi í möguleikum sínum á að komast í úrslitakeppnina. 7.9.2009 16:30
Brian Kidd kominn til starfa hjá Manchester City Brian Kidd, fyrrum aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United, hefur ráðið sig í starf hjá nágrönnunum í Manchester City þar sem hann mun starfa við knattspyrnuakademíu félagsins. 7.9.2009 15:30
Wenger hefur mikla trú á Mario Balotelli hjá Inter Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur mikla trú á Mario Balotelli hjá Inter og spáir því að hann verði spútnikstjarna Meistaradeildarinnar á þessu tímabili. Balotelli þykir vera hæfileikaríkur framherji en hann er einnig þekktur fyrir það að hafa litla stjórn á skapi sínu. 7.9.2009 14:30
Pele sannar enn einu sinni að hann er skelfilegur spámaður Knattspyrnugoðið Pele hefur aldrei sýnt fótboltakunnáttu sína utan vallar og nýjast spádómur hans er enn ein sönnun á því. Pele spáði því í sumar að Nígería yrði fyrsta Afríkuþjóðin til þess að komast í undanúrslit á HM þegar keppnin yrði haldin í Suður-Afríku 2010. Nú stefnir hinsvegar allt í það að Nígería komist ekki einu sinni í úrslitakeppnina. 7.9.2009 14:00
Heskey býst við því að Defoe fái að byrja á móti Króötum Emile Heskey segist skilja það vel ef að Jermain Defoe fái sæti í byrjunarliði Englendinga í leiknum á móti Króötum á miðvikudaginn. Defoe hefur skoraði þrjú mörk í síðustu tveimur landsleikjum eftir að hafa komið inn af bekknum. 7.9.2009 13:30
Robinho: Ætlar að vinna enska titilinn en ekki að fara til Barcelona Brasilíumaðurinn Robinho hefur ekki áhuga á að fara til Barcelona þegar félagsskiptaglugginn opnar aftur í janúar en áhugi spænsku Evrópumeistaranna á þessum snjalla Brassa hefur verið mikið í fréttum síðustu daga. Robinho ætlar þess í stað að hjálpa Manchester City að vinna enska meistaratitilinn. 7.9.2009 12:00
Þær sænsku kveiktu í þeim norsku með ummælum á Facebook Norska kvennalandsliðið í fótbolta vann mjög óvæntan 3-1 sigur á Svíþjóð í átta liða úrslitum Evrópukeppni kvennalandsliða í Finnlandi en norsku stelpurnar voru eins og kunnugt er með íslenska liðinu í riðli og máttu þakka fyrir 1-0 sigur á Stelpunum okkar. 7.9.2009 11:30
Henry: Leikmenn franska liðsins eru týndir inn á vellinum Thierry Henry og félagar í franska landsliðinu eiga í hættu að missa af því að komast á HM í Suður-Afríku næsta sumar. Henry hefur komið fram fyrir hönd sinna félaga og kvartað við þjálfarann yfir leiðinlegum æfingum og að leikmenn vita ekki hvað er ætlast til þeirra inn á vellinum. 7.9.2009 11:00