Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Park hjá sérfræðingi í Bandaríkjunum Miðjumaðurinn Ji-Sung Park hjá Manchester United er nú í Bandaríkjunum hjá sérfræðingi þar sem hann leitar sér lækninga vegna hnémeiðsla. Park hefur ekki komið við sögu hjá toppliðinu síðan í mars og mun ekki leika meira með liðinu í vor. Óttast er að hann gæti orðið allt að eitt ár frá keppni vegna meiðsla sinna. Félagi hans Louis Saha er þó að verða klár í slaginn og gæti snúið aftur gegn Everton um helgina. 27.4.2007 14:16
Ferguson reiður út í Mourinho Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist gáttaður á því að enska knattspyrnusambandið skuli ekki vera búið að taka Jose Mourinho inn á teppi fyrir ummæli sín að undanförnu þar sem hann hefur hvað eftir annað látið í veðri vaka að sérstakar reglur gildi í dómgæslu í leikjum United. 27.4.2007 14:06
West Ham sektað um 5,5 milljónir punda Enska úrvalsdeildarliðið West Ham var í dag sektað um 5,5 milljónir punda eða rúmar 700 milljónir króna eftir að niðurstaða komst loks í félagaskiptamál þeirra Javier Mascherano og Carlos Tevez. Stig verða ekki dregin af liðinu í úrvalsdeildinni en Tevez fær ekki leikheimild með liðinu nema hann geri við það nýjan samning. Sektin er sú stærsta í sögu úrvalsdeildarinnar, en refsingin varð ekki eins þung og reiknað var með því þeir sem stóðu að félagaskiptunum á sínum tíma eru flestir hættir störfum. 27.4.2007 13:59
Espanyol með annan fótinn í úrslitum Spænska liðið Espanyol er komið með annan fótinn í úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða eftir 3-0 sigur á þýska liðinu Bremen í fyrri viðureign liðanna í kvöld. Moises Hurtado kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik og Walter Pandiani og varamaðurinn Ferran Corominas tryggðu sigurinn í þeim síðari. Markvörðurinn Tim Wiese var rekinn af velli hjá Bremen eftir klukkutíma leik. 26.4.2007 21:04
Roy Keane náði athygli leikmanna með karatetilþrifum Markvörðurinn Darren Ward hjá Sunderland segir að knattspyrnustjórinn Roy Keane geri lítið af því að öskra á leikmenn sína til að ná athygli þeirra, en segir að komið hafi til þess að Keane hafi tekið karatespörk í leiktöfluna til að undirstrika mál sitt. Sunderland á góða möguleika á að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni í vor eftir skelfilega byrjun á leiktíðinni. 26.4.2007 20:30
Zlatan missir væntanlega af leiknum við Íslendinga Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic hjá Inter Milan verður ekki meira með liði sínu á lokasprettinum í A-deildinni á Ítalíu og gæti misst af leikjum Svía við Ísland og Danmörku í undankeppni EM. Zlatan fer til Amsterdam í uppskurð vegna nárameiðsla á næstu dögum. Svíar mæta Dönum 2. júní og Íslendingum fjórum dögum síðar. 26.4.2007 19:33
Wenger: Flutningurinn á Emirates hefur kostað okkur stig Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir engan vafa á því í sínum huga að flutningur liðsins á Emirates völlinn hafi reynst því erfiðari en fólk geri sér grein fyrir. Ungir leikmenn liðsins hafi fundist þeir vera að spila á hlutlausum velli framan af tímabili, en séu nú óðum að venjast nýjum aðstæðum. 26.4.2007 18:15
Fimmtudagsslúðrið á Englandi Bresku slúðurblöðin eru full af safaríku efni í dag þar sem meðal annars er sagt frá því að Portúgalarnir Cristiano Ronaldo og Jose Mourinho hafi skotið föstum skotum sín á milli í viðtölum við sjónvarpsstöð frá heimalandi sínu. 26.4.2007 16:48
Mijatovic: Það voru mistök að leyfa Beckham að fara Predrag Mijatovic, yfirmaður knattspyrnumála hjá spænska liðinu Real Madrid, viðurkenndi í samtali við breska blaðið The Sun í dag að það hefðu verið mistök að leyfa David Beckham að fara frá félaginu. Hann segir klaufaskap í samningaviðræðunum vera ástæðu brottfarar leikmannsins. 26.4.2007 15:30
Uppselt á San Siro Ítalska félagið AC Milan hefur tilkynnt að þegar sé uppselt á síðari leik liðsins við Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildarinnar næsta miðvikudag. 67,500 áhorfendur munu fylgjast með leiknum, þar sem heimamenn þurfa að snúa við blaðinu eftir 3-2 tap á Englandi til að komast í úrslitaleikinn í Aþenu. 26.4.2007 15:27
Eggert: Við verðum að byggja nýjan leikvang Eggert Magnússon segir að West Ham verði að byggja nýjan knattspyrnuleikvang ef félagið ætli sér að verða rótgróinn klúbbur og eitt af sex stærstu félögunum á Englandi. Hann segir jafnframt að Alan Curbishley stjóri verði ekki látinn selja leikmenn þó liðið falli í 1. deilidina í vor. 26.4.2007 15:17
Wenger segir Ferguson vera stjóra ársins Arsene Wenger og Alex Ferguson hafa háð margt einvígið með liðum sínum Arsenal og Manachester United á síðasta áratug í ensku úrvalsdeildinni. Oft hefur andað köldu á milli þeirra, en þeir bera þó virðingu fyrir hvor öðrum eins og sést á ummælum Arsene Wenger í fjölmiðlum í dag. 26.4.2007 15:01
Real Madrid ætlar að kaupa Saviola Spænska blaðið Marca hefur í dag eftir umboðsmanni Argentínumannsins Javier Saviola hjá Barcelona að leikmaðurinn hafi gert munnlegt samkomulag um að ganga í raðir erkifjendanna í Real Madrid. Samningur Saviola rennur út í sumar en þessi 25 ára gamli framherji hefur aldrei náð að festa sig í sessi hjá Barcelona. 26.4.2007 14:56
Buffon sagður á leið til AC Milan Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að ítalski landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Buffon muni ganga til liðs við AC Milan frá Juventus í sumar. Buffon stóð við loforð sitt í vetur og spilaði með Juve í B-deildinni þar sem liðið er nálægt því að tryggja sér sæti á meðal þeirra bestu á ný. 26.4.2007 14:48
Klose átti fund með Bayern Munchen Þýskir fjölmiðlar slá því upp í dag að framherjinn Miroslav Klose hjá Werder Bremen hafi átt leynilegan fund með forráðamönnum Bayern Munchen á dögunum. Sagt er að þýsku meistararnir séu tilbúnir að bjóða Bremen 15 milljónir evra í kappann, en spænska blaðið Sport fullyrðir að Barcelona hafi einnig mikinn áhuga á markaskoraranum. Forráðamenn Bremen hafa staðfest áhuga Barcelona, en þar á bæ eru menn ekkert að flýta sér að selja hann. 26.4.2007 14:44
Podolski úr leik hjá Bayern Þýski landsliðsframherjinn Lukas Podolski hjá Bayern Munchen þarf að fara í hnéuppskurð og leikur ekki meira með liðinu á lokasprettinum í deildinni. Hann verður frá í þrjá mánuði vegna meiðsla sinna, en fyrir eru þeir Owen Hargreaves, Claudio Pizarro og Mark van Bommel allir tæpir vegna meiðsla fyrir mikilvægan leik liðsins gegn Hamburg á laugardaginn. 26.4.2007 14:40
Klinsmann í sjónvarpið Jurgen Klinsmann, fyrrum landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu, skrifaði í dag undir vænan samning við þýsku sjónvarpsstöðina Arena og mun starfa við að lýsa leikjum í heimalandinu. Þetta er talið binda enda á orðróm sem verið hefur á kreiki um að Klinsmann taki við starfi Jose Mourinho sem næsti stjóri Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Klinsmann býr enn í Bandaríkjunum en mun fljúga milli landa til að lýsa stærstu leikjunum í Þýskalandi, Englandi og Spáni í sjónvarpi. 26.4.2007 14:35
Undanúrslitin í UEFA bikarnum á Sýn í kvöld Í kvöld fara fram fyrri undanúrslitaleikirnir í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu og verða báðir leikir sýndir beint á rásum Sýnar. Espanyol tekur á móti Werder Bremen í beinni á Sýn og hefst útsending klukkan 18:35. Á sama tíma eigast við spænsku liðin Osasuna og Sevilla og er sá leikur í beinni á Sýn Extra. 26.4.2007 14:28
Reina: Leikmenn Chelsea eru þreyttir Markvörðurinn Jose Reyna hjá Liverpool segir að stíf keppni á öllum vígstöðvum sé greinilega farin að taka sinn toll af leikmönnum Chelsea. Hann segir þá hafa virkað þreytta í síðari hálfleiknum gegn Liverpool í gær. „Þeir eiga erfiðan leik í deildinni á laugardaginn og kannski verða þeir enn þreyttari í síðari leiknum gegn okkur," sagði Reina. 26.4.2007 13:48
Middlesbrough kaupir Woodgate Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough staðfesti í dag formlega að það hefði gengið frá kaupum á enska landsliðsmiðverðinum Jonathan Woodgate frá Real Madrid fyrir 7 milljónir punda. Woodgate hefur verið sem lánsmaður hjá enska liðinu í vetur og hefur náð ferlinum á skrið á ný á heimaslóðunum eftir alvarleg meiðsli undanfarin ár. Hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning á Riverside. 26.4.2007 13:42
Mourinho: Við ætlum að skora á Anfield Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var sáttur við 1-0 sigur sinna manna í Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Hann segir sína menn staðráðna í því að ná að skora í síðari leiknum á Anfield í næstu viku, því það muni fara langt með að fleyta liðinu í úrslitaleikinn. 25.4.2007 22:28
Benitez treystir á stuðning áhorfenda Rafa Benitez var sæmilega jákvæður eftir 1-0 tap hans manna í Liverpool gegn Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Stamford Bridge í kvöld. 25.4.2007 22:21
Chelsea lagði Liverpool Chelsea vann í kvöld 1-0 baráttusigur á Liverpool í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það var Joe Cole sem skoraði mark heimamanna eftir góðan undirbúning Didier Drogba eftir hálftíma leik og ljóst að mikið er eftir af þessu harða einvígi. Síðari leikurinn fer fram á Anfield í næstu viku. 25.4.2007 20:36
Lehmann verður áfram hjá Arsenal Þýska blaðið Bild hafði í dag eftir landsliðsmarkverðinum Jens Lehmann að hann ætlaði að vera hjá Arsenal eina leiktíð í viðbót. Samningur hans hjá Arsenal rennur út í sumar en markvörðurinn vildi semja til tveggja ára á meðan félagið bauð aðeins eins árs samning. Ef marka má fréttaflutning Bild virðist sem Lehmann hafi dregið í land með kröfur sínar. 25.4.2007 22:15
Miðvikudagsslúðrið á Englandi The Sun heldur því fram í dag að yfirmaður unglingastarfsins hjá Chelsea, Frank Arnesen, hafi verið að skoða leikmenn með hollenska þjálfaranum Guus Hiddink sem nú er landsliðsþjálfari Rússa. Hiddink hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Chelsea á næsta tímabili. 25.4.2007 17:33
Stuðningsmenn United og Roma sektaðir Knattspyrnusamband Evrópu sektaði í dag Manchester United og Roma vegna óláta stuðningsmanna félaganna á fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Roma var sektað um 31,000 pund en United um 14,500 pund. Félögin hafa þrjá daga til að áfrýja sektunum. 25.4.2007 16:56
Beckham: Ég myndi aldrei gagnrýna Capello David Beckham segist bera mikla virðngu fyrir þjálfara sínum Fabio Capello hjá Real Madrid og segir aldrei hafa komið til greina að gagnrýna hann þó hann hafi tekið sig út úr liðinu á sínum tíma. Capello neitaði að láta Beckham spila fyrst eftir að hann samdi við LA Galaxy í Bandaríkjunum, en hann vann sér aftur sæti í liðinu með dugnaði sínum. 25.4.2007 16:00
Nýr leikvangur á teikniborðinu hjá Portsmouth Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur lagt fram drög að byggingu nýs knattspyrnuleikvangs sem taka mun 36,000 manns í sæti. Hann verður reistur á hafnarsvæðinu í borginni og stefnt er að því að koma honum í gagnið árið 2011. Þetta þýðir að liðið mun flytja sig frá Fratton Park sem tekur aðeins rúmlega 20,000 manns í sæti. 25.4.2007 15:15
Miðaverð hækkar hjá Manchester United Stuðningsmenn Manchester United horfa fram á talsverða hækkun á miðaverði á næstu leiktíð, en fregnir herma að miðaverð muni hækka um allt að 14%. Hækkunin verður hvað mest á dýrustu sætunum í stúkunni, en ódýrustu miðarnir sem ætlaðir eru barnafólki verða lækkaðir í verði. 25.4.2007 15:15
Sálfræðistríðið heldur áfram Sálfræðistríð þeirra Rafa Benitez og Jose Mourinho hefur nú náð hámarki fyrir fyrri leik Chelsea og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikurinn verður að sjálfssögðu sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn og hefst útsending klukkan 18:30 að lokinni upphitun með Guðna Bergs. 25.4.2007 14:05
Alan Ball látinn Alan Ball, yngsti leikmaður enska landsliðsins sem vann heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu árið 1966, er látinn. Hann fékk hjartaáfall á heimili sínu í morgun. Ball spilaði 72 landsleiki fyrir England og spilaði með Everton, Arsenal og Southampton. Hann varð síðar knattspyrnustjóri Portsmouth, Manchester City og Southampton. Hann var aðeins 61 árs gamall. 25.4.2007 13:31
Chelsea yfir í hálfleik Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Liverpool í hálfleik í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Heimamenn hafa verið sterkari aðilinn í leiknum og það var Joe Cole sem braut ísinn fyrir heimamenn eftir frábæran undirbúning Didier Drogba á 29. mínútu. 25.4.2007 19:40
Byrjunarliðin klár hjá Chelsea og Liverpool Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Chelsea og Liverpool fyrir fyrri leik þeirra í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Liðskipan má sjá hér fyrir neðan, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn. 25.4.2007 17:51
Rooney tryggði United sigur á elleftu stundu Manchester United lagði AC Milan 3-2 í frábærum fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Ítalska liðið komst í 2-1 í fyrri hálfleik en Wayne Rooney tryggði enska liðinu dýrmætan sigur með marki í uppbótartíma. 24.4.2007 20:32
Kaka: Okkur varð hugsað til Roma-leiksins Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan sagði að sér hafi verið hugsað til leiks Manchester United og Roma þegar heimamenn skoruðu fyrsta markið eftir aðeins fimm mínútur í leiknum í kvöld. Hann vonast til þess að stuðningur áhorfenda nægi til að koma liði Milan í úrslitaleikinn. 24.4.2007 22:18
Rooney: Scholes er snillingur Wayne Rooney var að vonum ánægður eftir sigur Manchester United á AC Milan í kvöld, en hann skoraði jöfnunarmarkið og tryggði liði sínu sigur með glæsilegu marki í uppbótartíma. Hann segir félaga sína aldrei hafa misst trú á verkefninu þó liðið hafi lent undir. 24.4.2007 21:27
Ferguson: Liðið spilaði frábæran fótbolta Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með sigurinn á AC Milan í kvöld og sagði sína menn hafa spilað frábæran fótbolta á tíðum í leiknum. Hann segir sína menn eiga góða möguleika á að fara í úrslitaleikinn. 24.4.2007 21:21
Real í viðræðum við Diego? Svo virðist sem forráðamenn Real Madrid ætli að eiga það á hættu að vekja reiði enn eins félagsins í Evrópu vegna afskipta af samningsbundnum leikmanni. Spænska blaðið Marca greindi frá því í dag að Real hafi verið í sambandi við brasilíska miðjumanninn Diego hjá Werder Bremen. 24.4.2007 21:45
Maldini spilaði í Evrópu áður en Rooney og Ronaldo fæddust Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, spilaði sinn fyrsta Evrópuleik fyrir AC Milan árið 1985, en þá voru þeir Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ófæddir. Varamaðurinn Alessandro Costacurta hjá Milan er þó enn eldri og reyndari, en hann á einmitt 41 árs afmæli í dag. Leikmenn Milan eiga góðar minningar frá Old Trafford, því liðið tryggði sér sigur í Meistaradeildinni á þessum velli árið 2003. 24.4.2007 18:09
Mourinho fer ekki frá Chelsea Knattspyrnustjórinn Jose Mourinho segir að sér hafi létt mikið eftir fund sem hann átti með forráðamönnum Chelsea um helgina, þar sem endanlega var staðfest að hann væri ekki á förum annað eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum undanfarnar vikur. 24.4.2007 17:30
Eggert borgar undir 6000 stuðningsmenn Breska blaðið Daily Mail greinir frá því í dag að Eggert Magnússon stjórnarformaður ætli að greiða fyrir 6000 stuðningsmenn West Ham á útileikinn mikilvæga gegn Wigan í fallslagnum á laugardaginn. Sagt er að West Ham hafi farið fram á að fá fleiri miða en venjulega á leikinn og að 34 rútur muni ferja stuðningsmenn á leikinn. 24.4.2007 17:05
Hoddle tippar á Milan og Liverpool í úrslitum Glenn Hoddle, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist tippa á að það verði Liverpool og AC Milan sem mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Aþenu í vor og endurtaki þar með leikinn frá í Istanbul árið 2005. 24.4.2007 16:39
Mourinho sagður hafa falið sig í þvottakörfu Tvö bresk blöð halda því fram í dag að Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hafi notað mjög óhefðbundnar aðferðir til að koma skilaboðum til sinna manna þegar hann var í leikbanni í Meistaradeildinni fyrir tveimur árum. Hann fékk þá tveggja leikja bann fyrir framkomu sína á leik gegn Barcelona. 24.4.2007 14:26
90 milljón punda tilboð í City Hópur breskra fjárfesta hefur lagt fram 90 milljón punda yfirtökutilboð í enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City. Sky sjónvarpsstöðin greinir frá þessu í dag, en tilkynning þess efnis barst kauphöllinni í dag. Forráðamenn City fara mjög varlega í yfirlýsingum vegna þessa og segja tilboðið verða skoðað í rólegheitunum - ekkert segi að tilboðinu verði endilega tekið. 24.4.2007 14:21
Verðlaunaþrenna hjá Cristiano Ronaldo Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United bætti í dag við verðlaunasafnið sitt á leiktíðinni þegar hann var einróma kjörinn leikmaður ársins hjá samtökum stuðningsmanna í dag. Hann varð á dögunum fyrsti maðurinn í 30 ár til að vera kjörinn bæði besti leikmaðurinn og besti ungi leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni. 24.4.2007 14:18