Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrirliðinn missir af Skotaleiknum - Harpa kölluð inn í A-landslið kvenna Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður ekki með íslenska liðinu í vináttulandsleik á móti Skotlandi 4. ágúst næstkomandi. Katrín á við meiðsli að stríða. 1.8.2012 13:11
Framtíð Modric ræðst þegar Tottenham-liðið kemur aftur til Englands Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham enduðu æfingaferð sína til Bandaríkjanna með 2-1 sigri á New York Red Bulls í nótt. Gylfi Þór skoraði glæsilegt sigurmark og lagði einnig upp fyrra markið en góð frammistaða Íslendingsins dugði þó ekki til að fá enska fjölmiðla til að hætta að spyrja Andre Villas-Boas um Króatann Luka Modric. 1.8.2012 13:00
Cazorla á leið í læknisskoðun hjá Arsenal Spænski landsliðsmaðurinn Santi Cazorla verður væntanlega orðinn leikmaður Arsenal fyrir helgi en Sky Sports segir frá því að hann muni gangast undir læknisskoðun á Emirates í vikunni. 1.8.2012 12:30
Andy Carroll ekki í leikmannahópi Liverpool í Evrópudeildinni Andy Carroll er ekki í leikmannahópi Liverpool fyrir Evrópudeildarleikinn í Hvíta-Rússlandi á morgun og framtíð hans á Anfield er áfram í óvissu. Carroll var fyrr í vikunni sagður á leið til West Ham á láni en hann vill ekki fara til London og dreymir enn um endurkomu til Newcastle. BBC sagði fyrst frá því að Carroll yrði með í leiknum en dró það síðan til baka. 1.8.2012 11:45
Ytri-Rangá: Veiði eykst með lokun laxastiga Athygli vekur að eftir að stiganum í Árbæjarfossi var lokað hefur veiðin á svæðum 8 og 9 stóraukist og hefur ekki verið eins góð í mörg ár, og er góður stígandi á þessum svæðum. 1.8.2012 11:19
Snorri Steinn og Arnór fengu báðir útborgað í gær Danska liðið AG Kaupamannahöfn var tekið til gjaldþrotaskipta í gær en systir Kasi Jesper Nielsen segir í viðtali við Ekstra blaðið að allir leikmenn félagsins hafi fengið útborgað um þessi mánaðamót. 1.8.2012 11:00
Stelpurnar hans Þóris misstu frá sér sigurinn á móti Suður-Kóreu Norska kvennalandsliðið í handbolta missti frá sér sigurinn í 27-27 jafntefli á móti Suður-Kóreu í handboltakeppni Ólympíuleikanna í London. Suður-Kórea skoraði tvö síðustu mörkin í leiknum og náði í mikilvægt stig. 1.8.2012 10:14
Gareth Bale um Charlie Adam: Tala ekki um fólk eins og hann Gareth Bale lék með Tottenham í sigri á New York Red Bulls í nótt þrátt fyrir að hafa meiðst eftir ljóta tæklingu Liverpool-mannsins Charlie Adam í leiknum á undan. Bale er ekki búinn að fyrirgefa Skotanum. 1.8.2012 09:30
Guðmundur: Okkar bíður topplið Guðmundur Guðmundsson reiknar með erfiðum leik gegn Svíum á Ólympíuleikunum annað kvöld. Svíar eru með fjögur stig eftir tvo leiki, rétt eins og Ísland. 1.8.2012 08:30
Stjarnan og Þróttur berjast um sögulegt sæti í bikarúrslitum Stjarnan og Þróttur mætast í undanúrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. Það lið sem sigrar tryggir sér sæti í úrslitaleik bikarsins í fyrsta skipti. 1.8.2012 08:00
Guðjón Valur: Þurfum að halda dampi Guðjón Valur Sigurðsson segir að nú skipti meginmáli fyrir íslensku landsliðsmennina að halda dampi eftir góða byrjun Íslands á Ólympíuleikunum í London. 1.8.2012 07:30
Gylfi með glæsilegt sigurmark Tottenham Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sigurmark Tottenham er liðið lagði New York Red Bulls í æfingaleik liðanna vestanhafs í kvöld. 1.8.2012 01:33
Hörður Sveinsson lánaður til Keflavíkur Framherjinn Hörður Sveinsson spilar með Keflavík út tímabilið í Pepsi-deild karla í sumar. Fótbolti.net greinir frá þessu. 31.7.2012 22:45
Óvæntur sigur Breta á Brasilíu Kvennalandslið Breta vann óvæntan sigur á landsliði Brasilíu í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í dag. 31.7.2012 22:00
Bilið á toppnum aðeins þrjú stig | Fallbaráttan harðnar Ashley Bares skoraði tvívegis fyrir Stjörnuna í 3-0 sigri á KR í Vesturbænum í kvöld. Stjarnan er nú aðeins þremur stigum á eftir Þór/KA sem gerði jafntefli gegn Val fyrr í kvöld. 31.7.2012 21:20
Knudsen tryggði Dönum sigur á Spánverjum Michael Knudsen var hetja Dana þegar liðið vann eins marks sigur, 24-23, á Spánverjum í b-riðli handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í dag. 31.7.2012 20:11
Steven Pienaar aftur til Everton Suður-afríski miðjumaðurinn Steven Pienaar hefur gengið frá félagaskiptum til Everton. Liverpool Echo greinir frá þessu. 31.7.2012 19:00
Sænskur framherji til Þór/KA Topplið Þór/KA í Pepsi-deild kvenna hefur fengið liðsstyrk í titilbaráttunni. Sænski framherjinn Rebecca Johnson hefur gengið til liðs við félagið. 31.7.2012 17:17
Svíar fóru létt með Breta Sænska karlalandsliðið í handknattleik lagði það breska með 22 marka mun í A-riðli handboltakeppni Ólympíuleikanna í dag. 31.7.2012 17:00
Króatar lögðu Serba | Ungverjar höfðu Suður-Kóreu Króatar eru með fullt hús stiga að loknum tveimur leikjum í B-riðli handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í London eftir 31-23 sigur á Serbum í dag. 31.7.2012 16:52
Pepsi-mörkin: 13. umferð - Þátturinn í heild sinni 13. umferð Pepsi-deildar karla var gerð upp í Pepsi-mörkunum í gærkvöldi. Þátturinn í heild sinni er nú aðgengilegur á Vísi. 31.7.2012 16:31
Jökull Elísabetarson lánaður frá Breiðabliki til KV Breiðablik hefur lánað miðjumanninn Jökul Elísabetarson til Knattspyrnufélags Vesturbæjar sem leikur í 2. deild. Jökull verður hjá Vesturbæjarliðinu út tímabilið. 31.7.2012 16:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór/KA 2-2 | Norðankonur stálu stigi Tvö mörk á síðustu tuttugu mínútunum tryggðu toppliði Þór/KA 2-2 jafntefli gegn Val á Hlíðarenda. Valskonur réðu lögum og lofum á vellinum en ólíkt gestunum nýttu þær ekki færi sín. 31.7.2012 15:58
Shaneka hetja Eyjakvenna gegn Blikum Shaneka Gordon skoraði bæði mörk ÍBV í 2-1 útisigri á Breiðablik í 12. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Sigurmarkið kom í viðbótartíma en Blikar höfðu ráðið gangi mála lengst af í leiknum. 31.7.2012 15:48
Umræða um brot Kjartans Henrys Umdeilt atvik átti sér stað í viðureign KR og ÍA í 13. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu og sýnist sitt hverjum. 31.7.2012 15:44
Þróttur endurheimtir uppalda leikmenn Hjálmar Þórarinsson, Sigmundur Kristjánsson og Haraldur Hróðmarsson hafa gengið í raðir 1. deildarliðs Þróttar. Leikmennirnir eru uppaldir hjá félaginu og snúa því aftur á kunnulegar slóðir. 31.7.2012 15:00
Afríkumeisturunum pakkað saman | Myndir Íslendingar eru komnir á mikið og gott skrið á Ólympíuleikunum í London eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum íslenska handboltalandsliðsins. Strákarnir okkar sýndu heimsklassaframmistöðu gegn Túnisum nú í morgunsárið. 31.7.2012 14:30
Andy Carroll vill ekki fara til West Ham Þótt Liverpool og West Ham hafi komist að samkomulagi um leigusamning Carroll til Lundúnarfélagsins er málið langt í frá í höfn. Framherjinn virðist ekki vilja fara til West Ham. 31.7.2012 14:13
"Hlægilegt hjá greyið manninum" Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, gefur ekki mikið fyrir þau orð sem Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, lét falla eftir leik liðanna í Pepsideildinni í gærkvöld. Þar sakaði Þórður, Kjartan um "óþverraskap" þegar sá síðarnefndi steig ofan á hönd Guðjóns Sveinssonar með þeim afleiðingum að 18 spor þurfti til að sauma saman sárið. 31.7.2012 13:51
Heil umferð í Pepsi-deild kvenna | Breiðablik - ÍBV á Stöð 2 sport Heil umferð fer fram í kvöld í Pepsi-deild kvenna í fótbolta. Leikur Breiðabliks og ÍBV verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og einnig á Vísi. Breiðablik er í öðru sæti deildarinnar með 23 stig en Þór/KA er í efsta sæti með 28 stig. ÍBV er í fimmta sæti með 19 stig. 31.7.2012 13:00
Guðmundur: Ég fékk gæsahúð "Það kom fyrir að ég fékk gæsahúð yfir frammistöðu liðsins,“ sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson eftir frábæran sigur Íslands á liði Túnis á Ólympíuleikunum í morgun, 32-22. 31.7.2012 12:15
Lennon ristarbrotinn | tímabilið á enda hjá framherjanum "Ég verð líklega frá í tvo mánuði,“ sagði Steven Lennon í viðtali við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu 977 í dag. Framherjinn sterki meiddist illa undir lok leiksins gegn FH í gær þar sem að Jón Ragnar Jónsson varnarmaður FH braut klaufalega á Lennon. "Ég verð í gifsi í fjórar vikur,“ sagði Lennon en hann er ristarbrotinn og fjarvera hans er mikið áfall fyrir Fram sem berst fyrir lífi sínu í Pepsi-deild karla. 31.7.2012 11:52
Snorri Steinn: Þeir áttu ekkert svar "Þetta var það sem við lögðum upp með. Við byrjuðum leikinn á fullum krafti og vissum að það yrði lykillinn að því að vinna leikinn," sagði Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir sigurinn á Túnis í morgun. 31.7.2012 11:51
Ingimundur: Vorum búnir að undirbúa okkur mjög vel Ingimundur Ingimundarson sýndi ótrúlega frammistöðu í fyrri hálfleik Íslands og Túnis í morgun eins og aðrir varnarmenn íslenska landsliðsins. 31.7.2012 11:28
Aron: Fá lið eiga séns í okkur í þessum ham Aron Pálmarsson átti eins og svo margir aðrir í íslenska liðinu frábæran dag þegar að strákarnir okkar fóru illa með Túnis á Ólympíuleiunum í morgun, 32-22. 31.7.2012 11:19
Björgvin Páll: Þeir voru eins og brjálæðingar Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska liðsins, sagði varnarleik Íslands í fyrri hálfleik gegn Túnis hafa verið með ólíkindum. Strákarnir höfðu betur, 32-22, eftir að hafa gert út um leikinn í fyrri hálfleiknum. 31.7.2012 11:13
Pepsi-mörkin: Markaregnið úr 13. umferð Þrír leikir fóru fram í gær í Pepsi-deild karla og var 13. umferðin gerð upp í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport. Smashing Pumpkins sá um tónlistina, lagið heitir 1979. 31.7.2012 10:45
Guðjón Valur um gjaldþrot AGK: Ég er í sjokki Guðjón Valur Sigurðsson segir það vitaskuld afar slæmar fréttirnar sem bárust af gjaldþroti danska handboltafélagsins AGK nú í morgunsárið. 31.7.2012 10:41
Umfjöllun: Túnis - Ísland 22-32 | Túnisar kláraðir á mettíma Íslenska karlalandsliðið í handbolta átti ekki í vandræðum með að leggja Túnis að velli á Ólympíuleikunum í London í morgun. Ísland var með mikla yfirburði og staðan var 19-8 í hálfleik. Lokatölur 32-22. 31.7.2012 00:01
Hefur engar áhyggjur af húsbílavatni Sérfræðingur hjá Matvælastofnun segir ólíklegt að sníkjudýr berist með erlendum húsbílum í íslenskt vatnakerfi. Hann hefur meiri áhyggjur af kjölfestuvatni skipa. 31.7.2012 11:48
Hörgá að gefa flotta bleikjuveiði Á vef Stangaveiðifélags Akureyrar segir frá góðri bleikjuveiði í Hörgá, en í veiðibókina á netinu eru skráðar 211 bleikjur ásamt slatta af urriða/sjóbirtingi og besti tíminn að ganga í garð. 31.7.2012 11:21
Veiðibúðir Lax-ár á Grænlandi tilbúnar Margar ár og dalir eru í nágrenni veiðibúðanna en bleikjurnar í Grænlandi geta farið í 10 pundin en algengast er að þær séu frá 2-7 pund að stærð. 31.7.2012 10:53
Efri hluti Elliðaánna að koma sterkt inn Nú er hins vegar að ganga í garð sá tími sumars þegar flugusvæðið á efri hluta Elliðaánna fer að koma sterkt inn, enda kom það í ljós á morgunvaktinni. Þá gáfu Höfuðhylur, Símastrengur, Hraunið, Hundasteinar og Árbæjarhylur allir laxa. 31.7.2012 10:29
Umfjöllun: KR - ÍA 2-0 | Yfirburðir KR gegn Skaganum KR-ingar sigruðu Skagamenn örugglega á KR-vellinum í 13. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. 30.7.2012 17:08
Svisslendingur á heimleið eftir Twitter-ummæli Svissneski knattspyrnumaðurinn Michel Morganella hefur verið vikið úr Ólympíulandsliði þjóðar sinnar vegna niðrandi ummæla um suður-kóreska knattspyrnumenn. 30.7.2012 23:30