Fleiri fréttir

Villa skellti Fulham

Lokaleikur dagsins í enska boltanum var viðureign Aston Villa og Fulham en leikið var á Villa Park í Birmingham.

Dramatískur sigur hjá Everton

Everton fékk sín fyrstu stig á þessari leiktíð þegar Wigan kom í heimsókn á Goodison Park. Everton vann leikinn, 2-1, með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Framtíð Eiðs Smára skýrist á morgun

Það mun ekki skýrast fyrr en á morgun hver framtíð Eiðs Smára Guðjohnsen verður. Lokadagur félagaskiptagluggans er á morgun og þá kemur í ljós hvort Eiður fari frá Barcelona eða verði áfram í herbúðum félagsins.

Wenger mun fá afsökunarbeiðni

Keith Hackett, yfirmaður dómaramála í Englandi, mun biðja Arsene Wenger, stjóra Arsenal, afsökunar vegna brottvísunarinnar sem hann fékk á Old Trafford í gær.

Raikkönen vann eftir baráttu við Fisichella

Finninn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í belgíska kappakstrinium á Spa brautinni í dag eftir harða baráttu við Giancarlo Fisichella, en ekki munaði nema sekúndu á þeim köppum frá upphafi til enda mótsins.

Pesic farinn af Skaganum

Miðjumaðurinn Igor Pesic mun væntanlega ekki leika meira með Skagamönnum í sumar en hann fékk ekki leyfi frá útlendingastofu til að dvelja lengur á landinu.

Aðeins fimm af ellefu fastamönnum í byrjunarliði Þýskalands

Silvia Neid, þjálfari Þýskalands, hefur ákveðið að hvíla sex byrjunarliðsmenn í leiknum á móti Íslandi í dag en þýska liðið hefur þegar tryggt sér sigurinn í riðlinum. Fyrirliðinn Birgit Prinz er þó samt á sínum stað í byrjunarliðinu.

Öll félagaskiptin í þýska handboltanum

Það styttist í að tímabilið í þýska handboltanum hefjist. Meisturum Kiel er spáð sigri eins og oft áður en margir bíða spenntir eftir að sjá lið Rhein-Neckar Löwen sem hefur styrkt sig og meðal annars fengið Ólaf Stefánsson í sínar raðir.

Sigurður Ragnar: Það vilja allir leikmennirnir sanna sig

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, segir að það verði lítið mál að gera íslenska liðið tilbúið í að mæta Heims- og Evrópumeisturum Þýskalands í Tampere í dag þrátt fyrir að möguleikar íslensku stelpnanna að komast í átta liða úrslitin séu úr sögunni.

Haukur Páll lánaður til Noregs

Einn sterkasti leikmaður Þróttar, Haukur Páll Sigurðsson, leikur ekki meira með liðinu í sumar því hann er á leiðinni til Noregs.

Luka Modric fótbrotnaði

Tottenham varð fyrir miklu áfalli í leiknum gegn Birmingham í gær. Króatinn Luka Modric meiddist illa, fótbrotnaði, og verður lengi frá vegna meiðslanna.

Hafnaði Eiður tilboði frá Man. City?

Breska slúðurblaðið The Mirror hélt því fram í gærkvöldi að Eiður Smári Guðjohnsen hefði hafnað tilboði frá Man. City og þremur öðrum enskum félögum.

Katrín: Við vitum að allar þurfa að eiga toppleik

Katrín Jónsdóttir fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins er ein af fáum í íslenska liðinu sem hefur mætt áður Heims- og Evrópumeisturum Þjóðverja. Ísland og Þýskaland mætast í dag í lokaleik stelpnanna okkar á EM í Finnlandi. Leikurinn hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma.

Meistarar og meistaraefnið í vanda á Spa

Formúlu 1 kappaksturinn á Spa brautinni í dag er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11:30 og fremstur á ráslínu er Ítalinn Giancarlo Fisichella og við hlið hans Jarno Trulli frá sama landi.

Umfjöllun: KR neitar að gefast upp

KR ætlar að láta FH hafa fyrir því að verða Íslandsmeistari. KR hélt smá lífi í titilvonum sínum í kvöld með því að leggja Fram í Vesturbænum, 3-1.

Eins marks tap gegn Þjóðverjum

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur lokið keppni á EM í Finnlandi. Lokaleikur liðsins fór fram gegn Þjóðverjum í dag og tapaðist, 1-0.

Sjáið mörkin og tilþrifin á Vísi

Líkt og síðasta vetur mun Vísir bjóða upp á þá frábæru þjónustu að hægt er að sjá mörkin og helstu tilþrifin í leikjum ensku úrvalsdeildarinnar hér á vefnum.

Erlendu blaðamennirnir aðgangsharðir við Margréti Láru

Erlendu blaðamennirnir sem voru mættir á blaðamannafund fyrir leik Íslands og Þýskalands í gær höfðu mun meiri áhuga á að tala við Margréti Láru Viðarsdóttur en landsliðsþjálfarann og Eddu Garðarsdóttur sem voru einnig á fundinum.

Inter kjöldró AC Milan

Það var sannkallaður stórleikur í ítalska boltanum í kvöld þegar Mílanóliðin, Inter og AC Milan, mættust á San Siro.

Rooney: Fletcher var yfirburðamaður á vellinum

Wayne Rooney er ný vítaskytta hjá Man. Utd þar sem Ronaldo er farinn og Carrick klikkaði gegn Burnley. Rooney skoraði úr víti gegn Arsenal í dag og er sáttur við að vera orðin ný vítaskytta liðsins.

Sigurður Ragnar gerir þrjár breytingar - liðið liggur aftar

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, kvennalandsliðsþjálfari, tilkynnti í kvöld byrjunarliðið sitt á móti Þýskalandi á morgun í lokaleik íslenska liðsins á Evrópumótinu í Finnlandi. Sigurður Ragnar tilkynnti liðið að venju á liðsfundi kvöldið fyrir leik.

Jón Arnór: Ég var lélegur

Jón Arnór Stefánsson var ekkert að skafa utan af hlutunum frekar en fyrri daginn í samtali sínu við Vísi.is eftir ósigurinn gegn Austurríki í dag.

Fisichella: Besta stund lífs míns

Giancarlo Fisichella var í hæstu hæðum eftir að hafa náð besta tíma í tímatökum og að Force India hafði slegið stórliðunum við á Spa brautinni í dag.

Hólmar Örn: Vantar meiri skynsemi

„Við höfum gert of mikið af jafnteflum og miðað við hvernig þessi leikur spilaðist, sérstaklega fyrri hálfleikurinn, þá hefði ég viljað fá þrjú stig," sagði Hólmar Örn Rúnarsson, fyrirliði Keflavíkur, eftir 3-3 jafnteflið gegn Fjölni í dag.

Umfjöllun: Tap gegn Austurríki

Ísland hafnaði í fjórða sæti A-riðils B-deildar Evrópukeppni landsliða í körfubolta eftir, 76-65, ósigur gegn Austurríki í úrslitaleik um þriðja sæti riðilsins.

Magnús Ingi: Þurftum þrjú stig

Von Fjölnis að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni er orðin ansi veik en liðið gerði 3-3 jafntefli á heimavelli við Keflavík í dag. Fyrirliði Fjölnis, Magnús Ingi Einarsson, segir þó að Grafarvogspiltar haldi í vonina meðan tölfræðilegur möguleiki sé til staðar.

Diaby færði United sigur á silfurfati

Ferðalagið hjá Abou Diaby frá Manchester til London á eftir að verða langt. Glórulaust sjálfsmark leikmannsins á Old Trafford í dag færði Man. Utd 2-1 sigur á Arsenal í skemmtilegum leik.

Benitez: Leikmenn vildu sanna sig

Rafael Benitez, stjóri Liverpool, hrósaði leikmönnum sínum fyrir að hafa brugðist vel við þeirri gagnrýni sem liðið hefur mátt þola undanfarna daga.

Shevchenko búinn að semja við Dynamo Kiev

Dynamo Kiev gaf það út í dag að félagið væri búið að semja við framherjann Andriy Shevchenko. Hann var gefinn frá Chelsea og kostaði félagið því ekki neitt.

Selfoss með annan fótinn í efstu deild

Selfyssingar stigu stórt skref í átt að Pepsi-deildinni í dag er liðið kjöldró lið Fjarðabyggðar fyrir austan. Lokatölur 0-4 fyrir Selfoss.

Henning: Töpuðum í fyrri hálfleik

Henning Henningsson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta var vonsvikinn með að landsliðið hafi ekki haft trú á því að geta sigrað Svartfjallaland fyrr en það var orðið of seint.

Guðjón: Slök frammistaða

Guðjón Þórðarson, stjóri Crewe, var ekki par sáttur við leikmenn sína eftir að Crewe tapaði, 0-1, fyrir Bournemouth í dag.

Reading vann Íslendingaslaginn

Emil Hallfreðsson og félagar lutu í lægri haldi fyrir Íslendingaliðinu Reading á heimavelli sínum í dag. Lokatölur 1-3 fyrir Reading.

Sjá næstu 50 fréttir