Fleiri fréttir

Everton hefur ekki efni á að halda Jo

Brasilískí framherjinn Jo hefur skorað fimm mörk með Everton síðan hann gekk í raðir félagsins á lánssamningi í janúar. Félagið vill halda honum, en hefur ekki efni á því.

Woods fór illa að ráði sínu

Bæði Tiger Woods og Phil Mickelson fóru illa að ráði sínu undir lokin á hringjum sínum á Masters mótinu í golfi sem er við það að klárast.

Gomez tryggði Stuttgart sigur

Mario Gomez skoraði í uppbótartíma fyrir Stuttgart gegn Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og tryggði liðinu þar með dýrmætan sigur.

Vill bara tala við Shaq á Twitter

Shaquille O´Neal og Mark Cuban, eigandi Dallas, hafa skipst á skoðunum í fjölmiðlum í Bandaríkjunum undanfarið. O´Neal, sem nú leikur með Phoenix Suns, gaf í skyn að hann myndi ganga í raðir Dallas í sumar.

Stuðningsmenn City kölluðu Robinho af bekknum

"Þú veist ekki hvað þú ert að gera," kölluðu stuðningsmenn Manchester City að Mark Hughes, stjóra liðsins, eftir að það lenti undir gegn Fulham í dag. City tapaði leiknum 1-3 á heimavelli.

Ferguson: Ég þarf stundum að róa Ronaldo

Sir Alex Ferguson segir að hann þurfi stundum að róa Ronaldo inni á vellinum. Ronaldo á það til að pirrast inni sem að sögn stjórans verði til þess að hann missi einbeitinguna og gefi jafnvel mörk.

Real minnkaði forystu Barcelona í sex stig

Real Madrid vann nokkuð öruggan sigur á Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Liðið er þar með aðeins sex stigum frá Barcelona í baráttunni um titilinn á Spáni.

Senna ekki með gegn Arsenal

Marcos Senna verður ekki með Villareal í seinni leiknum gegn Arsenal í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.

Emil lék með umbúðir í tapi Reggina

Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Reggina sem tapaði 0-2 á heimavelli fyrir Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Emil lék í 79. mínútur.

Fulham upp í 8. sætið

Fulham vann góðan 1-3 sigur á Manchester City á útivelli í dag. Clint Dempsey skoraði tvö marka Fulham sem átti sigurinn skilinn gegn slöku liði City.

Moyes ósáttur við vítaspyrnudóminn

David Moyes, stjóri Everton, talaði undir rós þegar hann tjáði sig um vítaspyrnudóminn sem varð til þess að Aston Villa jafnaði í 3-3 í leik liðanna í dag.

Guðjón mun halda Crewe uppi

Geoff Thomas er fyrrum leikmaður Crewe og spilaði hann 155 leiki fyrir félagið. Hann telur að Guðjón Þórðarson muni bjarga félaginu frá falli úr þriðju efstu deildinni á Englandi.

Fyrsti oddaleikurinn í áratug

KR og Grindavík leika til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta annað kvöld. Staðan í einvíginu er 2-2 en þetta er í fyrsta skipti í tíu ár sem úrslitaeinvígið fer í oddaleik.

City yfir gegn Fulham

Manchester City er 1-0 yfir á heimavelli gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni, en hálfleikur er nú í leiknum.

Úrslit næturinnar úr NBA

Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Phoenix, Golden State og Portland unnu góða útisigra en efstu lið deildanna voru ekki í eldínunni.

Guðjón frábær í sigri Löwen

Guðjón Valur Sigurðsson var einn besti maður vallarins í sigri Rhein-Neckar Löwen á Gummersbach í frábærum leik í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Leikmennirnir vilja Hiddink áfram

John Terry, fyrirliði Chelsea, segir að leikmenn liðsins vilji hafa Guus Hiddink áfram við stjórnvölin hjá félaginu.

Aston Villa undir gegn Everton

Aston Villa hefur ekki unnið sigur í níu síðustu leikjum í ensku úrvalsdeildinni og nú eru þeir undir gegn Everton í hálfleik, 1-2 á heimavelli.

Gummersbach yfir í hálfleik

Gummersbach er yfir, 15-14 gegn Rhein-Neckar Löwen í þýska handboltanum en leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Shearer: Taugarnar verða þandar

Alan Shearer er sannfærður um að hann nái að bjarga sínu ástkæra félagi Newcastle frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Liðið náði aðeins 1-1 jafntefli gegn Stoke í gær og er sem stendur í kjallaranum, tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar sex leikir eru eftir.

Jackson Richardson til Rhein-Neckar Löwen

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í Rhein-Neckar Löwen hafa fengið góðan liðsstyrk út tímabilið. Einn besti handboltamaður sögunnar, Jackson Richardson, mun spila með liðinu út leiktíðina.

Nær Woods efstu mönnum?

Augu margra á Masters mótinu í golfi munu beinast að hollinu sem hefur leik klukkan 17.35 að íslenskum tíma. Þá slá þeir Tiger Woods og Phil Mickelson af fyrsta teig, hálftíma á undan forystusauðunum Angel Cabrera og Kenny Perry.

Ólafur með fjögur í stórsigri Ciudad

Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Ciudad Real sem vann fimmtán marka sigur á Alcobendas í spænska handboltanum í gær. Ólafur skoraði eitt markanna úr víti.

Guardiola hrósar sínum mönnum

Josep Guardiola, þjálfari Barcelona, var hæst ánægður með sigur sinna manna á Recreativo í gær. Þrátt fyrir að liðið hafi ekki spilað sömu snilldar knattspyrnuna og það sýndi í 4-0 niðurlægingunni á Bayern Munchen var 2-0 sigurinn öruggur.

United skuldar 200 milljarða

Fjármálasérfræðingur segir að eigendur Manchester United séu í mjög vondum málum ef þeir ná ekki að endurfjármagna gríðarlegar skuldir sínar.

LeBron James talinn líklegastur

Nú eru blaðamenn vestanhafs að leggja lokahönd á að skila inn atkvæðaseðlum sínum í kjörinu á verðmætasta leikmanni NBA deildarinnar í vetur.

Ferguson: Himnaríki eða helvíti

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist hafa varað við því fyrir löngu að lið hans gæti misst flugið eftir mikla rispu sem kom því á toppinn í úrvalsdeildinni.

Iniesta undir smásjá City

Spænski landsliðsmaðurinn Andres Iniesta er undir smásjá Manchester City, sem ætlar að gera Barcelona 6,5 milljarða króna tilboð í hann í sumar.

Inter færist nær titlinum

Jose Mourinho og félagar í Inter Milan á ítalíu hafa eflaust glott út í annað þegar þeir sáu úrslitin í kvöldleiknum í A-deildinni. Genoa vann þá 3-2 sigur á tíu leikmönnum Juventus og fyrir vikið eru titilvonir þeirra svarthvítu nánast úr sögunni.

Bayern rétti úr kútnum - Wolfsburg áfram efst

Bayern Munchen náði að snúa við blaðinu í dag eftir skellinn gegn Barcelona í Evrópukeppninni í vikunni þegar liðið vann 4-0 sigur á Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Eiður byrjaði í sigri Barcelona

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld þegar liðið vann fyrirhafnarlítinn 2-0 sigur á Recreativo í spænsku deildinni í knattspyrnu.

Sjá næstu 50 fréttir