Handbolti

Shearer: Taugarnar verða þandar

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Shearer á hliðarlínunni í gær.
Shearer á hliðarlínunni í gær. Mynd/Getty Images
Alan Shearer er sannfærður um að hann nái að bjarga sínu ástkæra félagi Newcastle frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Liðið náði aðeins 1-1 jafntefli gegn Stoke í gær og er sem stendur í kjallaranum, tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar sex leikir eru eftir.

„Þetta verður barátta fram á síðustu sekúndurnar og taugarnar verða þandar. En ég hef fulla trú á mínum mönnum," sagði Shearer.

„Mínir menn lögðu sig alla fram, hentu sér fyrir tæklingar og voru tilbúnir í stríð," sagði hann um leikinn gegn Stoke í gær. „Við þurfum á þessu að halda, og kannski aðeins meiru ef við ætlum að lifa af," sagði Shearer sem skoraði 148 mörk í 303 leikjum fyrir Newcastle.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×