Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjóðverjar heimsmeistarar í handbolta Þjóðverjar eru heimsmeistarar í handbolta eftir 29-24 sigur á Pólverjum í úrslitaleik í Köln í dag. Þjóðverjar höfðu yfir í hálfleik 17-13 og höfðu yfirhöndina allan leikinn. Pólverjar náðu góðum leikkafla um miðjan síðari hálfleik og náðu að minnka muninn í 22-21 en þá tóku heimamenn mikla rispu og tryggðu sér verðskuldaðan sigur. 4.2.2007 16:50
Everton-menn ósáttir við ummæli Benitez Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er í litlu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Everton í dag eftir að hann lét þau ummæli falla í gær að Everton væri smálið. Framkvæmdastjóri Everton segir Benitez vera einn um sínar skoðanir. 4.2.2007 14:48
Danir hirtu bronsið Danir tryggðu sér í dag bronsverðlaunin á HM í handbolta með því að leggja Frakka 34-27 í leiknum um þriðja sætið í Köln, eftir að hafa náð góðri forystu í hálfleik 21-15. Lars Christiansen skoraði 9 mörk fyrir Dani, sem eru ekki óvanir því að næla sér í bronsverðlaun á stórmótum undanfarin ár. 4.2.2007 14:43
Stenson sigraði í Dubai Svíinn Henrik Stenson sigraði á Dubai Desert Classic mótinu í golfi sem lauk í dag. Stenson spilaði lokahringinn á fjórum undir pari, 68 höggum, og varð einu höggi á undan Ernie Els og tveimur á undan Tiger Woods sem átti titil að verja á mótinu. 4.2.2007 14:38
Þriðji sigur Utah á Phoenix í vetur Utah Jazz lagði Phoenix Suns nokkuð óvænt á útivelli í NBA deildinni í körfubolta í nótt og var þetta þriðji sigur Utah á Phoenix í vetur. Jazz ber því ábyrgð á vænum hluta aðeins 10 tapleikja Phoenix, en þar af eru tvö þeirra á heimavelli Suns. Þá áttust þeir Kobe Bryant og Gilbert Arenas við í miklu einvígi Washington og LA Lakers. 4.2.2007 14:02
United hefur yfir gegn Tottenham Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Tottenham á White Hart Lane þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Það var hinn magnaði Cristiano Ronaldo sem skoraði mark United úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikhlé. 4.2.2007 17:00
Þjóðverjar yfir í hálfleik Þjóðverjar hafa yfir 17-13 gegn Pólverjum þegar flautað hefur verið til leikhlés í úrslitaleiknum á HM í handbolta. Þjóðverjarnir gerðu sig líklega til að stinga af fljótlega í leiknum en þeir pólsku eru gríðarlega baráttuglaðir og hafa náð að halda í við heimamenn sem eru vel studdir af 19.000 áhorfendum í Köln. 4.2.2007 16:00
Óvæntur sigur AZ á PSV Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar í Hollandi gerðu sér lítið fyrir og lögðu meistara PSV Eindhoven á útivelli í hollensku deildinni í dag 3-2. Grétar Rafn spilaði allan tímann í liði AZ, sem minnkaði forskot PSV niður í sex stig á toppi deildarinnar. 3.2.2007 22:19
Síðustu leikir skipbrot "Niðurstaðan er svolítil vonbrigði því við vorum svo nálægt því að komast í undanúrslitin," sagð Logi Geirsson sem átti mjög góðan leik í gær og hann stóð sig reyndar alveg frábærlega á þessu fyrsta stórmóti sem hann tekur almennilega þátt í. 3.2.2007 19:48
Jafnt hjá Arsenal og Middlesbrough Middlesbrough og Arsenal skildu jöfn 1-1 í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Yakubu kom Boro yfir úr vítaspyrnu og var Philippe Senderos hjá Arsenal vikið af velli í kjölfarið. Arsenal náði hinsvegar að jafna eftir skyndisókn á 77. mínútu og þar var að verki Thierry Henry. 3.2.2007 19:42
Króatar tryggðu sér fimmta sætið Króatíska landsliðið tryggði sér í dag fimmta sætið á HM með öruggum sigri á Rússum 34-25 eftir að hafa verið yfir 18-12 í hálfleik. Konstantin Igropulo var markahæstur hjá Rússum með 9 mörk en Vedran Zrnic skoraði 11 mörk fyrir Króata og arkitektinn Ivano Balic skoraði 8 mörk. 3.2.2007 17:44
Heiðar skoraði fyrir Fulham Chelsea náði í dag að minnka forskotið á Manchester United niður í þrjú stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 1-0 útisigri á Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton. Heiðar Helguson var á skotskónum hjá Fulham í sigri á Newcastle og West Ham tapaði enn einum leiknum. 3.2.2007 17:31
Everton og Liverpool skildu jöfn Grannliðin í Liverpool gerðu markalaust jafntefli í einvígi sínu á Anfield í dag. Everton varðist vel gegn Liverpool og þó þeir rauðu hafi verið með yfrburði í leiknum, náðu þeir ekki að tryggja sér sigur. Mark var dæmt af Craig Bellamy og Tim Howard sá vel við Peter Crouch, en besta færi leiksins átti Andrew Johnson hjá Everton, en hann lét Reina í marki Liverpool verja frá sér. 3.2.2007 15:33
Alfreð: Sæmilega sáttur með 8. sætið Alfreð Gíslason segist ekki alfarð ósáttur við að ná 8. sætinu á HM í handbolta og segir leikinn við Dani hafa ráðið gríðarlega miklu um niðurstöðuna. Hann segir skort á breidd hafa verið helstu hindrunina fyrir íslenska liðið á mótinu. 3.2.2007 14:52
Óskemmtileg endurkoma Hargreaves Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sneri aftur með liði Bayern Munchen í gærkvöldi eftir langa fjarveru vegna fótbrots. Ekki er hægt að segja að frumraun Hargreaves og nýja þjálfarans Ottmar Hitzfeld hafi verið glæsileg, því meistararnir steinlágu fyrir Nurnberg 3-0. 3.2.2007 14:50
Ólympíusætið fjarlægur möguleiki Í kjölfar taps íslenska liðsins fyrir Spánverjum í dag eru möguleikar liðsins til að komast á Ólympíuleikana í Kína orðnir nokkuð langsóttir, en sæti 2-7 á HM nú hefði gefið sæti í undankeppni fyrir Ólympíuleikana. 8. sætið þýðir hinsvegar að nú þarf íslenska liðið að tryggja sér sætið í gegn um Evrópumótið - ef liðið kemst þá þangað. 3.2.2007 14:35
Hetjuleg barátta en tap Spánverjar sigruðu Íslendinga 40-36 í leiknum um sjöunda sætið á HM í handbolta. Íslendingar börðust hetjulega í síðari hálfleiknum eftir að þeir lentu átta mörkum undir og náðu mest að minnka muninn í tvö mörk. Spánverjar, sem eru heimsmeistarar síðan 2005, reyndust hinsvegar ókleyfur múr. Fyrri hálfleikurinn varð banabiti íslenska liðsins en þá fóru fjölmörg dauðafæri forgörðum. 3.2.2007 14:19
Els í forystu að loknum þriðja degi Nú er þriðja hringnum á Dubai Classic mótinu í golfi lokið og Suður-Afríkumaurinn Ernie Els hefur þar tveggja högga forystu og er á 17 höggum undir pari. Þeir Jyoti Randhawa, Henrik Stenson og Ross Fisher eru í öðru sæti á 15 undir og Tiger Woods er þar skammt á eftir. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokahringnum í fyrramálið klukkan 9:00. 3.2.2007 14:15
Lögreglumaður lét lífið í óeirðum á Sikiley Öllum leikjum í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að lögreglumaður lét lífið í óeirðum á leik grannliðanna Catania og Palermo á Stadio Massimino. Þá hefur vináttuleik Ítala og Rúmena á miðvikudaginn einnig verið frestað. 3.2.2007 14:07
Vafasamt met hjá Boston Tíu leikir fóru fram í NBA í nótt. Indiana lagði LA Lakers í beinni útsendingu á Sýn. Sögufrægt lið Boston Celtics tapaði í nótt 14. leik sínum í röð og er þetta lengsta taphrina þessa stórveldis sem á að baki 16. meistaratitla. Denver vann langþráðan sigur þegar liðið skellti Portland í framlengingu. 3.2.2007 13:20
Spánverjar yfir Þegar fyrri hálfleikur er rétt um hálfnaður eru Spánverjar með eins marks forystu gegn Íslendingum 9-8. Birkir Ívar byrjar vel í markinu og enn getur allt gerst. 3.2.2007 13:16
Leikur Íslands og Spánar hafinn Leikur Íslendinga og Spánverja er hafinn í Köln-Arena fyrir framan 19 þúsund áhorfendur. Lið Íslands er hið sama og það hefur verið í undanförnum leikjum. Staðan er 3-2 fyrir Spáni eftir fimm mínútur. Snorri Steinn Guðjónsson hefur skorað bæði mörk Íslendinga. 3.2.2007 13:04
KR og Njarðvík áfram á toppnum Njarðvíkingar eru á toppnum í Iceland - Express deildinni í körfubolta með 26. stig og KR - ingar verma annað sætið , en fimmtándu umferðinni lauk í gær með tveimur leikjum. 3.2.2007 12:42
Ernie Els með forystu Nú stendur yfir í beinni útsendingu á Sýn keppni á Dubai Classic mótinu , en Ross Fisher hafði forystu að loknum öðrum hring í gær á fjórtán höggum undir pari , en þrumveður setti strik í reikinginn hjá mörgum kylfingum. 3.2.2007 12:24
Góður leikkafli Íslendinga Íslendingar áttu frábæran leikkafla og skoruðu fimm mörk í röð nú um miðbik síðari hálfleiksins gegn Spánverjum. Spánverjar hafa samt sem áður fjögurra marka forystu 27-23. Síðari hálfeikurinn er hálfnaður. 3.2.2007 13:59
Spánverjar með örugga forystu Spánverjar hafa góða forystu gegn Íslendingum þegar flautað hefur verið til hálfleiks, 19-13. Spánverjar komust mest í sjö marka forystu 17-10. Íslensku strákarnir hafa farið illa með fjölmörg dauðafæri og liggur munurinn á liðunum helst í því. Spánverjar eru heimsmeistarar síðan 2005 og ekki þekktir fyrir að glopra niður forystu sem þessari en leikurinn þrátt fyrir allt ekki nema hálfnaður. 3.2.2007 13:33
Magath snerist hugur Þýska úrvalsdeildarfélagið hefur nú loks ráðið nýjan þjálfara til að taka við af Thomas Doll sem rekinn var á dögunum, en það verður ekki Felix Magath eins og fyrst var talið, heldur Hollendingurinn Huub Stevens. Sá leiddi Schalke til sigurs í Evrópukeppni félagsliða árið 1997. 2.2.2007 19:45
Frakkar ósáttir við dómgæslu Michael Guigou, leikmaður franska landsliðsins í handknattleik, segir að lélegar ákvarðanir dómaranna í undanúrslitaleiknum við Þjóðverja hafi kostað lið sitt sæti í úrslitunum. 2.2.2007 18:30
Tveir leikir í úrvalsdeild karla í kvöld Í kvöld fara fram tveir leikir í úrvalsdeild karla í körfbolta og einn í kvennaflokki. Í karlaflokki tekur Fjölnir á móti KR í Grafarvogi og Njarðvíkingar taka á móti Tindasólsmönnum. Breiðablik mætir svo ÍS í kvennaflokki. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15. 2.2.2007 18:15
Indiana - LA Lakers í beinni á Sýn í kvöld Leikur Indiana Pacers og Los Angeles Lakers verður sýndur beint á Sýn á miðnætti í kvöld. Lið Indiana er enn að slípa sig saman eftir mikil leikmannaskipti á dögunum og hefur liðið unnið 24 leiki og tapað 21. Lakers hefur ekki gengið jafn vel undanfarið en liðið vann þó stórsigur á Boston í síðasta leik þar sem Kobe Bryant fór á kostum með 43 stigum. Lakers hefur unnið 28 leiki og tapað aðeins 18. 2.2.2007 17:02
Fisher í forystu á Dubai mótinu Breski kylfingurinn Ross Fisher hefur tveggja högga forystu á Earnie Els þegar tveimur hringjum er nú að verða lokið á Dubai Desert Classic mótinu í golfi. Fisher lék annan hringinn í röð á 65 höggum í dag og er samtals á 14 undir pari. Els á eftir að ljúka tveimur holum á öðrum hringnum, en gat ekki klárað vegna veðurs. Tiger Woods er á 9 höggum undir pari en Sýn verður með beinar útsendingar frá þessu sterka móti um helgina. 2.2.2007 16:52
Joey Barton valinn í enska landsliðið í fyrsta sinn Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Manchester City var í dag valinn í enska landsliðið í fyrsta sinn. Steve McClaren valdi í dag hóp sinn sem mætir Spánverjum í næstu viku og þar eru nokkrir menn að spila sinn fyrsta landsleik í langan tíma. 2.2.2007 16:29
Góð afkoma hjá KSÍ Ársreikningur KSÍ fyrir árið 2006 var birtur í dag og þar kemur fram að afkoma sambandsins er sem fyrr mjög góð. Tæplega 100 milljóna hagnaður var af rekstri sambandsins og var í framhaldi af þessu ákveðið að greiða sérstakt 16 milljóna framlag til aðildarfélaga sambandsins. Nánar má lesa um ársreikninginn á heimasíðu sambandsins, ksi.is. 2.2.2007 15:25
Þrír úr aðalliði United spiluðu með varaliðinu í gær Manchester United er nú fljótlega að endurheimta þrjá af lykilmönnum sínum úr meiðslum en í gær spiluðu þeir Alan Smith, Mikael Silvestre og Wes Brown allir 90 mínútur í markalausu jafntefli varaliðs félagsins við Liverpool. Kínverjinn Dong Fangzhou spilaði líka í gær og átti skot í stöng í leiknum, en Alex Ferguson var á meðal áhorfenda. 2.2.2007 14:27
Ledley King meiðist enn Miðvörðurinn og meiðslakálfurinn Ledley King hjá Tottenham verður væntanlega ekki mikið meira með liðinu á leiktíðinni eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í fæti. Síðast í morgun bárust fregnir af því að fyrirliðinn væri að ná heilsu, en þær reyndust heldur betur rangar og nú verður Lundúnaliðið að vera án King amk næstu tvo mánuðina. 2.2.2007 14:19
Bandaríkjamennirnir að eignast Liverpool Liverpool hefur náð samningum við amerísku viðskiptajöfrana George Gillett og Tom Hicks, sem væntanlega munu ganga frá yfirtöku í félaginu eftir helgina. Þeir áttu fund með stjórn Liverpool snemma í þessari viku og voru meginástæða þess að félagið hætti við að eiga viðskipti við DUI. Bandaríkjamennirnir eru sagðir ætla að greiða um 470 milljónir punda fyrir félagið og þar af fari 215 milljónir punda í nýjan leikvang. 2.2.2007 14:14
Langþráður sigur hjá Phoenix - Wade fór hamförum Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Dwyane Wade tryggði Miami góðan sigur á Cleveland og Phoenix vann fyrsta leik sinn í vetur gegn toppliðunum í Vesturdeildinni þegar liðið skellti San Antonio í frábærum leik í beinni á NBA TV. 2.2.2007 06:01
Nash og Bosh leikmenn mánaðarins í NBA Steve Nash hjá Phoenix Suns og Chris Bosh hjá Toronto Raptors voru í kvöld útnefndir leikmenn janúarmánaðar í NBA deildinni, en þeir verða báðir í byrjunarliðunum í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. 2.2.2007 01:15
Carmelo Anthony ekki valinn í stjörnuliðið Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver var ekki á meðal þeirra leikmanna sem í kvöld voru valdir sem varamenn í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. Talið er víst að þáttaka Anthony í slagsmálunum í New York fyrir nokkrum vikum hafi spilað stóran þátt í því að þessi stigahæsti leikmaður í NBA var ekki valinn í liðið. 2.2.2007 01:05
Óvíst að Owen spili á leiktíðinni Michael Owen segir að vel geti farið svo að hann spili ekkert á þessari leiktíð eftir að hann meiddist alvarlega á hné á HM síðasta sumar. Owen segist fara sér afar hægt í endurhæfingunni og ætlar ekki að taka neina áhættu. 2.2.2007 00:32
Alfreð ósáttur með vinstri vænginn Alfreð Gíslason var þokkalega sáttur við varnarleik og markvörslu íslenska liðsins í leiknum gegn Rússum í kvöld, en öfugt við leikinn við Dani var það sóknarleikurinn sem varð liðinu að falli í kvöld. Alfreð sagði íslenska liðið hafa gefið leikinn frá sér og var ósáttur með frammistöðu leikmanna á vinstri vængnum. 1.2.2007 20:36
Þjálfari Dana: Leikurinn við Íslendinga sat í okkur Ulrik Wilbek, þjálfari Dana, var að vonum vonsvikinn í kvöld eftir að baráttuglaðir lærisveinar hans féllu úr leik í undanúrslitunum á HM eftir maraþoneinvígi við Pólverja. Hann segir leikinn við Íslendinga enn hafa setið í hugum og limum danska liðsins í kvöld. 1.2.2007 23:04
Guðjón Valur: Þeir voru einfaldlega klókari en við Guðjón Valur Sigurðsson sagði Rússana hafa verið klókari í leik kvöldsins og sagði engar afsakanir um þreytu duga til við að útskýra tapið. 1.2.2007 19:22
Óli Stef: Sjaldan séð okkur svona lélega Ólafur Stefánsson var skiljanlega daufur í dálkinn þegar Arnar Björnsson íþróttafréttamaður náði tali af honum eftir leikinn við Rússa í kvöld. Hann sagðist sjaldan hafa séð íslenska liðið jafn lélegt í sóknarleiknum. 1.2.2007 19:12
Birkir Ívar: Hissa á áhugaleysi leikmanna Birkir Ívar Guðmundsson markvörður var hundfúll með frammistöðu íslenska liðsins í kvöld þegar það lá fyrir Rússum á HM í handbolta. 1.2.2007 19:05