Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Liverpool sagt hafa áhuga á Aroni Einari Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool er sagt vera að íhuga að bjóða fimm milljónir punda í Aron Einar Gunnarsson, leikmann Coventry og íslenska landsliðsins. 19.6.2009 12:36
Bolton hefur áhuga á Bowyer Samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla mun Bolton vera áhugasamt um að fá Lee Bowyer í sínar raðir. 19.6.2009 12:15
Monfils ekki með á Wimbledon Frakkinn Gael Monfils mun ekki taka þátt í Wimbledon-mótinu í tennis þar sem hann meiddist á úlnlið fyrir skömmu. 19.6.2009 11:45
Valdes áfram hjá Barcelona Markvörðurinn Victor Valdes hefur ákveðið að vera áfram í herbúðum Barcelona en hann skrifaði í gær undir nýjan samning við félagið sem gildir út leiktíðina 2014. 19.6.2009 11:15
Vettel fljótastur á Silverstone Þjóðverjinn Sebastian Vettel og Ástralinn Mark Webber, báðir á Red Bull voru sneggstir um Silverstone brautina sem verður notuð í síðasta skipti í kappakstri um helgina. Þeir óku á fyrstu æfingu keppnisliða í dag í skugga deilna um framtíð Formúlu 1. 19.6.2009 10:45
Derbyshire á leið frá Blackburn Allt útlit er fyrir að Matt Derbyshire muni ganga til liðs við Olympiakos á Grikklandi þar sem hann hefur verið í láni síðan um áramótin. 19.6.2009 10:45
Erfið ákvörðun að hætta í Formúlu 1 Nick Fry, forstjóri Brawn GP sem hefur forystu í meistaramótinu í Formúlu 1 segir að það hafi verið erfið ákvörðun hjá keppnisliðum að draga sig út úr Formúlu 1 2010 og lýsa yfir vanþóknun á FIA. 19.6.2009 10:18
Nadal ákveður sig í dag Rafael Nadal mun í dag taka endanlega ákvörðun um hvort hann muni verja meistaratign sína á Wimbledon-mótinu í tennis sem hefst á mánudaginn. 19.6.2009 10:15
Torres ætlar að vera áfram hjá Liverpool Fernando Torres segir gyllitilboð annarra félaga ekki freista sín og hann ætli sér að vera áfram í herbúðum Liverpool. 19.6.2009 09:45
Leik hætt á Opna bandaríska Hætta varð keppni snemma eftir miklar rigningar á Bethpage Black-vellinum á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi í nótt. 19.6.2009 09:15
Chelsea jafnar tilboð Liverpool í Johnson Portsmouth hefur nú samþykkt tilboð Chelsea í bakvörðinn Glen Johnson upp á 17,5 milljónir punda. Félagið var þegar búið að taka jafn háu boði Liverpool í kappann og allt útlit fyrir að Johnson væri á leið þangað. 19.6.2009 09:00
Formúlu 1 lið stofna eigin mótaröð FOTA, samtök Formúlu 1 liða sendu frá sér tilkynningu þess efnis að stofnuð verði ný mótaröð. Liðin segjast búinn að gefast upp á FIA og vilji sinna sínum málum betur 2010. 19.6.2009 08:25
Rússajeppinn kominn á endastöð „Það er voða lítið hægt að segja um hnéð á þessu stigi. Ég verð bara að bíða og sjá hvernig þetta verður. Það var verið að gera það sama og síðast nema að hnjáliðurinn er orðinn ónýtur, sem er ekki gott. Svo var verið að laga brjósk, bora göt og reyna að lappa upp á þetta og þá aðallega til þess að ég geti gengið óhaltur og verkjalaus í framtíðinni. Ef ég spila aftur handbolta þá er það bónus,“ sagði handknattleikskappinn Sigfús Sigurðsson. 19.6.2009 07:00
Keflvíkingar eru opnir fyrir öllu Körfuknattleiksdeild Keflavíkur stendur nú frammi fyrir því í fyrsta sinn í langan tíma að finna nýjan þjálfara. 19.6.2009 06:30
Skemmtilegt að breyta algjörlega um umhverfi Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ingimundarson hefur ákveðið að venda sínu kvæði í kross og yfirgefa herbúðir Keflavíkur og skrifa undir árs langan samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Solna frá Stokkhólmi. 19.6.2009 06:00
Fjölskylduhátíð hjá Golfklúbbi Reykjavíkur Golfklúbbur Reykjavíkur, GR, blæs til mikillar fjölskylduhátíðar í Grafarholtinu á laugardag í tilefni af 75 ára afmæli klúbbsins. Hátíðin byrjar klukkan 11 um morguninn og lýkur klukkan 16.00. 18.6.2009 23:45
Traore á leið til Monaco Djimi Traore, fyrrum leikmaður Liverpool og leikmaður Portsmouth, er á leið aftur í franska fótboltann. 18.6.2009 23:00
Real segir að Villa muni koma til félagsins Florentino Perez, hinn litríki forseti Real Madrid, segir að það sé aðeins tímaspursmál hvenær félagið semji við spænska landsliðsmanninn David Villa. 18.6.2009 22:30
Sky segir Tevez ekki fara til Liverpool Sky-fréttastofan segist hafa heimildir fyrir því að Carlos Tevez fari ekki til Liverpool sem er eitt fjögurra liða á Englandi sem hafa áhuga á argentínska framherjanum. 18.6.2009 22:07
Víðir sló út Þrótt en Keflavík fór áfram Þróttur Reykjavík er úr leik í VISA-bikar karla eftir háðulegt tap gegn Víði í Garðinum. Keflavík sigraði á sama tíma lið Einherja. 18.6.2009 21:59
Myndasyrpa úr leik Gróttu og KR Vesturbæingar og Seltirningar fjölmenntu á Gróttuvöll í kvöld þar sem fyrsti KSÍ-leikur nágrannaliðanna Gróttu og KR fór fram. 18.6.2009 21:36
Úrslit kvöldsins í VISA-bikarnum Bikarmeistarar KR eru komnir í sextán liða úrslit VISA-bikars karla eftir torsóttan sigur á nágrönnum sínum í Gróttu í kvöld. 18.6.2009 21:11
Íslendingasigrar í sænska kvennaboltanum Íslendingaliðið Djurgarden lenti ekki í neinum vandræðum með Stattena í sænska kvennaboltanum í kvöld og vann öruggan 6-0 sigur. 18.6.2009 21:00
Heimsmeistarar Ítala niðurlægðir af Egyptum Ítölsku blöðin munu líklega ganga af göflunum í fyrramálið eftir háðulegt tap ítalska landsliðsins gegn Egyptum í Álfukeppninni í kvöld. 18.6.2009 20:57
Birgir Leifur slakur Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er ekki beint að kveikja í Evrópumótaröðinni þessa dagana en hann átti afar dapran dag aftur í dag og er á meðal neðstu manna á Saint-Omer Open. 18.6.2009 20:45
KA komið í sextán liða úrslit Fyrsta leik kvöldsins í 32-liða úrslitum VISA-bikars karla er lokið. KA lagði Aftureldingu, 3-1, fyrir norðan. 18.6.2009 20:11
Búið að fresta leik á US Open Mótshaldarar á opna bandaríska meistaramótinu í golfi hafa frestað leik í dag. Kylfingar munu hefja leik á ný í fyrramálið. 18.6.2009 20:00
Keegan orðaður við Southampton Svo gæti farið að Kevin Keegan snúi aftur til Southampton og taki við knattspyrnustjórn liðsins ef marka má fréttir í enskum fjölmiðlum. 18.6.2009 19:15
KR hefur titilvörnina í kvöld. 32-liða úrslit í VISA-bikar karla klárast í kvöld þegar fram fer fjöldi leikja og margir þeirra eru afar áhugaverðir. 18.6.2009 18:30
Vill að landar sínir yfirgefi Real Madrid Ruud van Nistelrooy hefur hvatt landa sína fimm hjá Real Madrid að yfirgefa félagið ef þeir hafa kost á því. 18.6.2009 18:15
Button brattur á heimavellinum Jenson Button verður á heimavelli þegar hann mætir keppinautum sínum í Formúlu 1 á Silverstone í Bretlandi um helgina. 18.6.2009 17:32
Arbeloa gælir við endurkomu í spænska boltann Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool er talið vera á lokastigi við að ganga frá félagsskiptum hægri bakvarðarins Glen Johnson frá Portsmouth á 18 milljónir punda en með kaupunum er næsta víst að hægri bakvörðurinn Alvaro Arbeloa yfirgefi Anfield-leikvanginn. 18.6.2009 17:15
Sigurður Ingimundarson tekur við Solna Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ingimundarson hefur ákveðið að taka við þjálfarastöðunni hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Solna frá Stokkhólmi. Sigurður skrifar undir eins árs samning við sænska félagið. 18.6.2009 16:46
Meiri líkur en minni að Benzema verði áfram hjá Lyon Framherjinn Karim Benzema hjá Lyon er á meðal eftirsóttustu leikmanna heims um þessar mundir en franski landsliðsmaðurinn er orðaður við stórfélög á borð við Manchester United, Manchester City, Chelsea, Real Madrid og Barcelona. 18.6.2009 16:45
Brasilíumenn eru komnir í undanúrslit Bandaríkjamenn voru engin fyrirstaða fyrir léttleikandi lið Brassa í Álfukeppninni sem nú stendur yfir í Suður-Afríku en lokatölur urðu 3-0. Brasilíumenn tryggðu sér með sigrinum í undanúrslit mótsins. 18.6.2009 16:15
Mickelson missir líklega af Opna-breska meistaramótinu Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson verður í eldlínunni á Opna-bandaríska meistaramótinu á Bethpage-vellinum í kvöld en kylfingurinn er mikið búinn að vera í fréttunum undanfarið vegna veikinda eiginkonu sinnar sem greindist nýlega með brjóstakrabbamein. 18.6.2009 15:45
Perez: Tímaspursmál hvenær Villa kemur Florentino Perez, forseti Real Madrid, segir það aðeins tímaspursmál hvenær félagið gangi frá kaupum á framherjanum David Villa frá Valencia. 18.6.2009 15:45
Real Madrid neitar frétt The Guardian Spænska úrvalsdeildarfélagið Real Madrid hefur neitað frétt enska dagblaðsins The Guardian um að félagið hafi sent útvöldum félögum í ensku úrvalsdeildinni fax með lista níu leikmanna sem eru til sölu. 18.6.2009 15:15
Santa Cruz fáanlegur á 20 milljónir punda Framherjinn Roque Santa Cruz á ekki von á öðru en að vera áfram í herbúðum Blackburn þrátt fyrir yfirlýstan vilja sinn að yfirgefa félagið. Þannig er mál með vexti að leikmaðurinn er samningsbundinn Blackburn en klausa í samningi hans gerir það að verkum að áhugasöm félög geta keypt upp samning hans á 20 milljónir punda. 18.6.2009 14:45
Pirlo blæs á sögusagnirnar um Chelsea Miðjumaðurinn Andrea Pirlo er á meðal þeirra leikmanna AC Milan sem undanfarið hafa verið sterklega orðir við endurfundi við fyrrum þjálfara sinn Carlo Ancelotti hjá Chelsea. Raunar var haft eftir Pirlo í írska dagblaðinu Independent að hann hefði mikinn áhuga á að fara til Chelsea. 18.6.2009 14:15
Blackburn á höttunum eftir Ivan de la Pena Knattspyrnustjórinn Sam Allardyce býr sig nú undir að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum og breskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Ivan de la Pena hjá Espanyol væri á meðal þeirra leikmanna sem kæmu fyrir á óskalistanum. 18.6.2009 13:45
Wlad getur orðið næsti Lennox Lewis Úkraínumaðurinn Wladimir Klitschko er nú á lokastigi undirbúnings síns fyrir bardagann gegn Ruslan Chagaev frá Úsbekistan um helgina en Chagaev hljóp í skarðið fyrir Bretann David Haye sem meiddist á æfingu og gat því ekki mætt Klitschko. 18.6.2009 13:15
Coyle framlengir við Burnley Owen Coyle hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Burnley til loka tímabilsins 2013. 18.6.2009 12:45
Tíu lið komin á EM Aðeins sex sæti eru enn laus í úrslitakeppni Evrópumeistaramótsins í handbolta sem fer fram í Austurríki á næsta ári. Tíu þjóðir eru búnar að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. 18.6.2009 12:15
Villa búinn að ákveða sig David Villa segist þegar búinn að ákveða sig hvert hann vilji fara nú í sumar en hann hefur verið orðaður við mörg stórlið að undanförnu. 18.6.2009 11:45