Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Roeder sagði af sér Breska sjónvarpið hefur greint frá því að Glenn Roeder, stjóri Newcastle, hafi sagt starfi sínu lausu í dag. Hann sat í dag stjórnarfund með forráðamönnum félagsins og niðurstaðan sú að hann hættir störfum. Árangur Newcastle hefur alls ekki staðist háleit markmið stjórnarliða í vetur. 6.5.2007 19:40
Cleveland lagði New Jersey Cleveland hefur náð 1-0 forystu í einvígi sínu við New Jersey í undanúrstitum Austurdeildarinnar í NBA eftir nauman sigur í fyrsta leik liðanna í kvöld 81-77. Bæði lið hittu skelfilega í leiknum en það voru fyrst og fremst yfirburðir heimamanna í fráköstunum sem skiluðu sigrinum. 6.5.2007 19:34
Þriðji sigur Loeb í röð í Argentínu Franski heimsmeistarinn Sebastien Loeb á Citroen tryggði sér í dag sinn þriðja sigur í röð í Argentínurallinu. Frakkinn átti erfitt uppdráttar á fyrstu sérleiðunum en var svo í algjörum sérflokki það sem eftir var og kom í mark 36,7 sekúndum á undan Finnanum Marcus Grönholm. Loeb hefur fyrir vikið náð þriggja stiga forskoti í stigakeppni ökuþóra til heimsmeistara eftir fjórða sigur sinn á tímabilinu. Finninn Mikko Hirvonen varð þriðji í Argentínu og er einnig þriðji í stigakeppninni. 6.5.2007 18:21
Mourinho stoltur af sínum mönnum Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea sagðist vera afar stoltur af liði sínu þrátt fyrir að það missti titilinn í hendur Manchester United í dag eftir 1-1 jafntefli við Arsenal á útivelli. Hann segist hugsanlega stoltari af frammistöðu þeirra í vetur en þegar liðið vann titilinn síðustu tvö ár. 6.5.2007 18:09
Cleveland - New Jersey í beinni núna Fyrsti leikur Cleveland Cavaliers og New Jersey Nets hófst klukkan 17 og er hann sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Klukkan 20:50 verður svo útsending frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio á Sýn. Þetta eru fyrstu leikir liðanna í annari umferð úrslitakeppninnar. 6.5.2007 17:16
Van Gundy að hætta hjá Houston? Jeff Van Gundy, þjálfari Houston Rockets í NBA deildinni, ætlar að hætta með liðið og taka sér frí frá þjálfun. Þetta hefur dagblaðið New York Post eftir heimildamanni sínum í dag, en hann segir brottför hans ekki tengjast tapi liðsins á heimavelli fyrir Utah í úrslitakeppninni í nótt. Van Gundy er með lausa samninga hjá félaginu í sumar. 6.5.2007 17:08
Besti árangur Birgis Leifs á ferlinum Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék lokahringinn á Opna ítalska mótinu í Mílanó í dag á 69 höggum, eða 3 höggum undir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 13 höggum undir pari og er í 11. sæti og er ljóst að þetta er besti árangur hans á ferlinum og um leið besti árangur Íslendings á alþjóðlegu golfmóti. Hann fékk skolla á lokaholunni, sem kostaði hann nokkur þúsund evrur. 6.5.2007 16:17
Drogba ekki með Chelsea Nú klukkan 15 hefst leikur Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, en Chelsea þarf að sigra á Emirates í dag til að koma í veg fyrir að Manchester United verði enskur meistari. Didier Drogba er ekki í liði Chelsea í dag og er sagður meiddur á ökkla. Ashley Cole, fyrrum leikmaður Arsenal, er heldur ekki í byrjunarliði Chelsea. 6.5.2007 14:59
Sunderland hafnaði í efsta sæti 1. deildar Lærisveinar Roy Keane í Sunderland tryggðu sér í dag sigur í ensku 1. deildinni með því að bursta Luton 5-0. Birmingham tapaði á sama tíma 1-0 fyrir Preston og West Brom, sem burstaði Barnsley 7-0, mun mæta grönnum sínum í Wolves í úrslitakeppninni um sæti í úrvalsdeild. Í hinni viðureigninni um úrvalsdeildarsæti mætast Derby og Southampton. 6.5.2007 14:53
Sögulegur sigur hjá Utah - McGrady grét á blaðamannafundi Utah Jazz varð í nótt síðasta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA með dramatískum og sögulegum sigri á Houston Rockets í oddaleik í Houston 103-99. Utah varð með sigrinum aðeins 19. liðið í sögu NBA til að vinna leik 7 á útivelli af þeim 97 leikjum þeirrar tegundar sem háðir hafa verið. 6.5.2007 05:38
Detroit tók Chicago í kennslustund Detroit Pistons bauð Chicago Bulls velkomið í aðra umferð úrslitakeppninnar í nótt með stórsigri 95-69 á heimavelli sínum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Chicago skoraði aðeins 28 stig í síðari hálfleiknum og þótti fyrnasterkur varnarleikur Detroit-liðsins minna á þann sem tryggði liðinu meistaratitilinn árið 2004. 6.5.2007 05:29
Mayweather vann nauman sigur á De la Hoya Floyd Mayweather stóð við stóru orðin í nótt þegar hann sigraði Oscar de la Hoya naumlega á stigum í bardaga þeirra um WBC titilinn í léttmillivigt. Ekkert varð þó úr barsmíðunum sem Mayweather var búinn að lofa, því De la Hoya barðist hetjulega og veitti andstæðingi sínum góða keppni. 6.5.2007 05:11
Roeder rekinn frá Newcastle? Sky sjónvarpsstöðin greindi frá því nú fyrir stundu að Glenn Roeder, stjóri Newcastle, hafi verið boðaður á neyðarfund hjá stjórn félagsins í dag. Helsta umræðuefni fundarins mun vera slakur árangur liðsins á leiktíðinni og hallast flestir að því að Roeder verði látinn taka pokann sinn. Frekari frétta er að vænta af þessu máli í kvöld. 6.5.2007 18:45
Birgir Leifur í beinni á Sýn á morgun Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadegi opna ítalska mótsins í golfi upp úr klukkan 12 á morgun og þar gefst áhorfendum tækifæri til að fylgjast með Birgi Leifi Hafþórssyni keppa á Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur hefur verið í miklu stuði á mótinu og er sem stendur í 7-12 sæti. 5.5.2007 20:21
Mayweather - De la Hoya í beinni í nótt Bardagi ársins í hnefaleikaheiminum verður í Las Vegas í nótt þar sem hinn ósigraði og yfirlýsingaglaði Floyd Mayweather tekur á móti gulldrengnum Oscar de la Hoya. Sjónvarpsstöðin Sýn sýnir bardagann beint og hefst útsending klukkan eitt í nótt. 5.5.2007 17:50
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Fyrsti leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 23:00 í kvöld. Klukkan 17 á morgun verður fyrsti leikur Cleveland og New Jersey í beinni á stöðinni og klukkan 20:50 verður Sýn með beina útsendingu frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. 5.5.2007 17:07
Óbreytt staða á toppnum í þýska handboltanum Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Efstu liðin tvö Kiel og Hamburg unnu leiki sína og sem fyrr voru íslensku leikmennirnir áberandi í umferð dagsins. 5.5.2007 20:09
Eiður kom við sögu í sigri Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðustu fimm mínúturnar með Barcelona í kvöld þegar liðið styrkti stöðu sína á toppi spænsku deildarinnar með 2-0 sigri á Real Sociedad. Andres Iniesta og Samuel Eto´o skoruðu mörk Barcelona eftir frábæran undirbúining Ronaldinho. 5.5.2007 19:53
Mikill halli á rekstri KKÍ Fjármálastaða körfuknattleikssambands Íslands er fjarri því að vera í lagi sagði formaður sambandsins á ársþingi þess sem nú stendur yfir á Flúðum. Rekstrarhalli sambandsins á síðasta ári voru 14 milljónir króna. 5.5.2007 18:56
Schalke heldur toppsætinu Schalke hefur enn eins stigs forystu á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir að liðið vann 1-0 sigur á Nurnberg í dag. Stuttgart er í öðru sæti eftir 2-0 sigur á Mainz. Bayern verður líklega að gera sér sæti í UEFA keppninni að góðu eftir 1-1 jafntefli við botnlið Gladbach. Bremen er fimm stigum á eftir Schalke og á enn möguleika á titlinum ef það leggur Hertha á morgun. 5.5.2007 18:46
Aston Villa lagði Sheffield United Aston Villa vann auðveldan 3-0 sigur á Sheffield United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og því er United enn í fallhættu í deildinni. Gabriel Agbonlahor, Ashey Young og Patrick Berger skoruðu mörk Villa. Wigan getur enn komist upp fyrir Sheffield í lokaumferðinni á betri markamun, en liðið hefur 38 stig í 16 sæti líkt og West Ham. 5.5.2007 18:39
Rangers í Meistaradeildina Glasgow Rangers tryggði sér í dag sæti í Meistaradeild Evrópu með góðum 2-0 sigri á erkifjendum sínum Celtic í skoska boltanum. Kris Boyd skoraði fyrra mark Rangers og sitt 100. í úrvalsdeildinni í fyrri hálfleik og Charlie Adams bætti við öðru í þeim síðari. Rangers hefur ekki tapað leik síðan Walter Smith tók við liðinu í janúar, en Celtic er þegar búið að tryggja sér titilinn. 5.5.2007 18:33
Oddaleikur hjá HK og Stjörnunni Stjarnan lagði HK 28-23 í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu í deildarbikarkeppni karla í handbolta í dag. Liðin verða því að mætast í oddaleik í Digranesi á miðvikudagskvöldið. HK hafði yfir í leikhléi í dag 14-13 en heimamenn voru sterkari á lokasprettinum. 5.5.2007 18:24
Birgir Leifur: Spennustigið verður hátt Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er í 7.-12. sæti fyrir lokahringinn á Opna ítalska mótinu sem fram fer á morgun. Hann verður væntanlega í þriðja síðasta holli og fer þá út um klukkan níu að íslenskum tíma. Hann lék á 67 höggum, eða 5 höggum undir pari, í dag eins og fyrsta hringinn á fimmtudag. Birgir er því samtals á 10 höggum undir pari og er aðeins fjórum höggum frá toppsætinu. 5.5.2007 16:49
Stjarnan deildarbikarmeistari Íslandsmeistarar Stjörnunnar urðu í dag deildarbikarmeistarar kvenna í handbolta eftir sigur á Gróttu í annari úrslitaviðureignar liðanna á Seltjarnarnesi 25-23. Stjarnan var með þægilegt forskot þegar skammt var til leiksloka en Grótta náði að minnka muninn niður í eitt mark með æsilegum lokaspretti. Rakel Dögg Bragadóttir tryggði svo Stjörnunni sigurinn með marki í lokin. Stjarnan vann einvígið 2-0. 5.5.2007 16:16
West Ham af fallsvæðinu West Ham lyfti sér í dag af botni ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með 3-1 sigri á Bolton á heimavelli sínum. Wigan tapaði á sama tíma fyrir Middlesbrough á heimavelli 1-0 og missti West Ham upp fyrir sig í töflunni. Fulham krækti í gríðarlega mikilvæg stig með 1-0 sigri á Liverpool. 5.5.2007 15:52
Dabo kærir Barton Ousmane Dabo, leikmaður Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, hefur nú formlega lagt fram kæru til lögreglu vegna árásar Joey Barton liðsfélaga síns á dögunum. Lögreglan hefur staðfest þetta og Barton hefur þegar verið settur í leikbann út leiktíðina af forráðamönnum City. 5.5.2007 15:22
Ferguson: Ætli maður skelli sér ekki í golf Sir Alex Ferguson hrósaði skapgerð sinna manna í dag eftir að Manchester United lagði granna sína í City 1-0 í ensku úrvalsdeildinni. Hann segist ekki ætla að horfa á leik Arsenal og Chelsea á morgun og reiknar með því að leika frekar einn hring af golfi. 5.5.2007 15:16
United með aðra höndina á titlinum Manchester United er nú nánast búið að tryggja sér enska meistaratitilinn eftir 1-0 sigur á grönnum sínum í Manchester City í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Vítaspyrna Cristiano Ronaldo á 34. mínútu tryggði þeim rauðu sigurinn og nú verður Chelsea að vinna Arsenal á Emirates á morgun til að halda í von um titilinn. 5.5.2007 14:15
Reina getur bætt fyrir syndir föður síns Þegar Liverpool mætir AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Aþenu síðar í mánuðinum mun Pepe Reina, markverði Liverpool, gefast tækifæri til að bæta fyrir mistök sem faðir hans gerði í sams konar leik fyrir 33 árum. 5.5.2007 12:30
Met Spánar verður jafnað Annaðhvort Ítalía eða England mun jafna met Spánar yfir flesta Evrópumeistaratitla félagsliða þegar AC Milan og Liverpool mætast í úrslitum Meistaradeildar Evrópu síðar í mánuðinum. 5.5.2007 11:15
Ég er opinn fyrir öllu Landsliðsfyrirliðinn og fyrirliði Keflavíkur, Magnús Þór Gunnarsson, segir ekki víst að hann verði áfram í herbúðum Keflvíkinga næsta vetur en Magnús er samningslaus. 5.5.2007 10:45
Í viðræðum um nýjan samning Steven Gerrard, leikmaður Liverpool, hefur hafið viðræður um nýjan samning við félagið. Búist er við því að hann skrifi undir nýjan fjögurra ára samning sem tryggi honum 120 þúsund pund í vikulaun. 5.5.2007 09:30
Liverpool er eins og ítalskt lið fyrir tíu árum Gennaro Gattuso, leikmaður AC Milan, segir að Manchester United sé hæfileikara lið en Liverpool, sem mætir Milan í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Aþenu. 5.5.2007 08:45
Velur 19 manna landsliðshóp Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna, tilkynnti í gær 19 manna leikmannahóp sem verður til æfinga frá 7. maí til 16. júní en þessar æfingabúðir Júlíusar eru nokkuð umdeildar að því er greint hefur verið frá áður. 5.5.2007 08:30
ÍA: Hvað gerir Guðjón upp á Skaga? Fréttablaðið heldur áfram að telja niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu en næstu daga munum við birta spá íþróttamanna Fréttablaðsins um lokastöðu liðanna í Landsbankadeild karla 2007. Við spáum Skagamönnum sjötta sætinu. 5.5.2007 07:30
Brynjar þríbrotnaði á vinstri úlnlið Brynjar Valsteinsson, leikmaður HK, verður ekki meira með í úrslitum deildarbikarkeppninnar og gæti misst af upphafi næsta tímabils. Hann þríbrotnaði á úlnlið í vinstri hendi í leik gegn Stjörnunni í fyrrakvöld er hann lenti illa eftir að hafa keyrt upp völlinn í hraðaupphlaupi. 5.5.2007 06:00
Alltof stórt tap hjá strákunum í gær Íslenska 17 ára landsliðið er enn stigalaust og markalaust eftir fyrstu tvo leikina í úrslitakeppni stórmóts. Íslensku strákarnir töpuðu 0-3 fyrir Hollandi í gær eftir 0-2 tap fyrir Englendingum í fyrsta leiknum. Íslensku strákarnir léku betur en gegn Englandi og því var sárt að tapa leiknum svona stórt. 5.5.2007 06:00
Leeds er fallið Leeds óskaði eftir greiðslustöðvun í gær og þá var enn fremur ljóst að félagið fellur úr ensku 1. deildinni og spilar í C-deildinni 2007-08. Félag missir tíu stig við það að fara í greiðslustöðvun en með því að gera þetta núna þegar liðið átti aðeins litla möguleika á að bjarga sér í lokaumferðinni um helgina koma Leedsarar í veg fyrir að liðið byrji með tíu stig í mínus á næsta tímabili. 5.5.2007 05:00
New Jersey mætir Cleveland Í nótt varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA deildinni eftir að New Jersey vann nauman sigur á Toronto 98-97 í sjötta leik liðanna. Richard Jefferson skoraði sigurkörfu Nets á síðustu sekúndum leiksins og stal svo boltanum af Toronto liðinu í síðustu sókn liðsins. New Jersey vann einvígið 4-2. 5.5.2007 03:55
Björgvin og Arnar á leið í Hauka Það er mikill hugur í Haukamönnum fyrir komandi tímabil í handboltanum en Aron Kristjánsson hefur tekið við stjórnartaumunum hjá félaginu í stað Páls Ólafssonar. Haukar hafa þegar gengið frá samningi við skyttuna Gunnar Berg Viktorsson og markvörðinn Gísla Guðmundsson og eftir helgi verður væntanlega gengið frá samningum við skytturnar Björgvin Hólmgeirsson og Arnar Jón Agnarsson. 5.5.2007 03:15
Kláraði bara fimm holur Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur í GKG, náði bara að klára fimm holur á öðrum hring á opna Ítalíumótinu í golfi í Mílanó í gær. 5.5.2007 00:01
Valur vann KR Valur er deildameistari kvenna í fótbolta í þriðja sinn eftir 2-1 sigur á KR í úrslitaleik í Egilshöllinni í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir kom Val yfir eftir 25. mínútu og Nína Ósk Kristinsdóttir bætti síðan við öðru marki tólf mínútum eftir hálfleik. 5.5.2007 00:01
Óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppni NBA Öskubuskulið Golden State Warriors er komið í aðra umferð úrslitakepninnar í NBA deildinni eftir stórsigur á Dallas Maverics í stórkostlegum sjötta leik liðanna í nótt 111-86. Þetta eru almennt talin óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppninnar, en Golden State vann einvígið 4-2. 4.5.2007 05:48
Houston og Utah mætast í oddaleik Einvígi Houston Rockets og Utah Jazz í úrslitakeppni NBA hefur verið æsispennandi og í nótt knúði Utah fram oddaleik í Houston á laugardagskvöldið með 94-82 sigri í Salt Lake City. Staðan er því jöfn 3-3 í einvíginu og hafa allir leikir í seríunni til þessa unnist á heimavelli. 4.5.2007 04:36