Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Klose átti fund með Bayern Munchen Þýskir fjölmiðlar slá því upp í dag að framherjinn Miroslav Klose hjá Werder Bremen hafi átt leynilegan fund með forráðamönnum Bayern Munchen á dögunum. Sagt er að þýsku meistararnir séu tilbúnir að bjóða Bremen 15 milljónir evra í kappann, en spænska blaðið Sport fullyrðir að Barcelona hafi einnig mikinn áhuga á markaskoraranum. Forráðamenn Bremen hafa staðfest áhuga Barcelona, en þar á bæ eru menn ekkert að flýta sér að selja hann. 26.4.2007 14:44
Podolski úr leik hjá Bayern Þýski landsliðsframherjinn Lukas Podolski hjá Bayern Munchen þarf að fara í hnéuppskurð og leikur ekki meira með liðinu á lokasprettinum í deildinni. Hann verður frá í þrjá mánuði vegna meiðsla sinna, en fyrir eru þeir Owen Hargreaves, Claudio Pizarro og Mark van Bommel allir tæpir vegna meiðsla fyrir mikilvægan leik liðsins gegn Hamburg á laugardaginn. 26.4.2007 14:40
Klinsmann í sjónvarpið Jurgen Klinsmann, fyrrum landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu, skrifaði í dag undir vænan samning við þýsku sjónvarpsstöðina Arena og mun starfa við að lýsa leikjum í heimalandinu. Þetta er talið binda enda á orðróm sem verið hefur á kreiki um að Klinsmann taki við starfi Jose Mourinho sem næsti stjóri Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Klinsmann býr enn í Bandaríkjunum en mun fljúga milli landa til að lýsa stærstu leikjunum í Þýskalandi, Englandi og Spáni í sjónvarpi. 26.4.2007 14:35
Undanúrslitin í UEFA bikarnum á Sýn í kvöld Í kvöld fara fram fyrri undanúrslitaleikirnir í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu og verða báðir leikir sýndir beint á rásum Sýnar. Espanyol tekur á móti Werder Bremen í beinni á Sýn og hefst útsending klukkan 18:35. Á sama tíma eigast við spænsku liðin Osasuna og Sevilla og er sá leikur í beinni á Sýn Extra. 26.4.2007 14:28
Slæmur endasprettur hjá Heiðari Heiðar Davíð Bragason úr Kili í Mosfellsbæ lék lokahringinn á Welness mótinu í Danmörku í dag á 77 höggum, eða 5 höggum yfir pari. Hann byrjaði vel og eftir 13 holur var hann á 2 höggum undir pari, en lék síðustu fimm holurnar á 7 höggum yfir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 222 höggum, eða 6 höggum yfir pari. Heiðar Davíð hafnaði í 31.-34. sæti í mótinu. 26.4.2007 14:26
Reina: Leikmenn Chelsea eru þreyttir Markvörðurinn Jose Reyna hjá Liverpool segir að stíf keppni á öllum vígstöðvum sé greinilega farin að taka sinn toll af leikmönnum Chelsea. Hann segir þá hafa virkað þreytta í síðari hálfleiknum gegn Liverpool í gær. „Þeir eiga erfiðan leik í deildinni á laugardaginn og kannski verða þeir enn þreyttari í síðari leiknum gegn okkur," sagði Reina. 26.4.2007 13:48
Middlesbrough kaupir Woodgate Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough staðfesti í dag formlega að það hefði gengið frá kaupum á enska landsliðsmiðverðinum Jonathan Woodgate frá Real Madrid fyrir 7 milljónir punda. Woodgate hefur verið sem lánsmaður hjá enska liðinu í vetur og hefur náð ferlinum á skrið á ný á heimaslóðunum eftir alvarleg meiðsli undanfarin ár. Hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning á Riverside. 26.4.2007 13:42
Heitt í kolunum í Dallas Dallas jafnaði í nótt metin í 1-1 í einvígi sínu við Golden State í úrslitakeppninni í NBA með 112-99 sigri í öðrum leik liðanna. Gestirnir spiluðu vel í fyrri hálfleik, en misstu tökin á leiknum í síðari hálfleik þegar bæði Baron Davis og Stephen Jackson var hent í bað fyrir kjaftbrúk. 26.4.2007 05:01
Mourinho: Við ætlum að skora á Anfield Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var sáttur við 1-0 sigur sinna manna í Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Hann segir sína menn staðráðna í því að ná að skora í síðari leiknum á Anfield í næstu viku, því það muni fara langt með að fleyta liðinu í úrslitaleikinn. 25.4.2007 22:28
Benitez treystir á stuðning áhorfenda Rafa Benitez var sæmilega jákvæður eftir 1-0 tap hans manna í Liverpool gegn Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Stamford Bridge í kvöld. 25.4.2007 22:21
Chelsea lagði Liverpool Chelsea vann í kvöld 1-0 baráttusigur á Liverpool í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það var Joe Cole sem skoraði mark heimamanna eftir góðan undirbúning Didier Drogba eftir hálftíma leik og ljóst að mikið er eftir af þessu harða einvígi. Síðari leikurinn fer fram á Anfield í næstu viku. 25.4.2007 20:36
Dallas - Golden State í beinni í nótt Annar leikur Dallas Mavericks og Golden State Warriors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 1:30 í nótt. Golden State vann mjög óvæntan útisigur í fyrsta leiknum en annar leikurinn fer einnig fram í Dallas. 25.4.2007 23:02
Larry Brown að taka við Grizzlies? Forráðamenn Philadelphia 76ers í NBA deildinni hafa gefið Larry Brown leyfi til að ræða við eigendur Memphis Grizzlies um að hann taki hugsanlega við þjálfun liðsins í sumar. Brown hefur verið í stjórnunarstöðu hjá Philadelphia síðan hann var rekinn frá New York Knicks fyrir síðasta keppnistímabil. 25.4.2007 22:38
HK lagði Fram Tveir leikir fóru fram í deildarbikarkeppni karla í handbolta í kvöld. HK lagði Fram 28-26 eftir að jafnt var í hálfleik 14-14. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 8 mörk fyrir HK og þeir Tomas Eitutis, Valdimar Þórsson og Augustas Strazdas 5 hver en Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 8 fyrir Fram og Guðjón Drengsson 7. Þá vann Stjarnan góðan sigur á Val 27-23. 25.4.2007 22:17
Lehmann verður áfram hjá Arsenal Þýska blaðið Bild hafði í dag eftir landsliðsmarkverðinum Jens Lehmann að hann ætlaði að vera hjá Arsenal eina leiktíð í viðbót. Samningur hans hjá Arsenal rennur út í sumar en markvörðurinn vildi semja til tveggja ára á meðan félagið bauð aðeins eins árs samning. Ef marka má fréttaflutning Bild virðist sem Lehmann hafi dregið í land með kröfur sínar. 25.4.2007 22:15
Carlisle hættur hjá Indiana Pacers Rick Carlisle sem þjálfað hefur lið Indiana Pacers í NBA frá árinu 2003 er hættur hjá liðinu. Þetta tilkynnti Larry Bird forseti félagsins í dag. Carlisle náði frábærum árangri með Indiana á fyrsta ári sínu með liðið, en þar á bæ hefur allt verið á lóðréttri niðurleið eftir áflogin í Detroit 2004. Indiana komst ekki í úrslitakeppnina í ár og náði lakasta árangri sínum í nær tvo áratugi. 25.4.2007 20:50
Miðvikudagsslúðrið á Englandi The Sun heldur því fram í dag að yfirmaður unglingastarfsins hjá Chelsea, Frank Arnesen, hafi verið að skoða leikmenn með hollenska þjálfaranum Guus Hiddink sem nú er landsliðsþjálfari Rússa. Hiddink hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Chelsea á næsta tímabili. 25.4.2007 17:33
Schumacher: Árangur Hamilton kemur ekki á óvart Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher lætur nú lítið á sér bera í Formúlu 1 en hefur þess í stað verið á ferðalagi í tengslum við herferð í umferðaröryggi. Blaðamaður nokkur náði þó að skjóta á hann spurningu varðandi hinn unga og efnilega Lewis Hamilton á dögunum. 25.4.2007 17:25
Framkvæmdastjórar tippa á Dirk Nowitzki Nú styttist óðum í að fjölmiðlamenn í Bandaríkjunum velji verðmætasta leikmann ársins í deildarkeppninni í NBA körfuboltanum. Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks þykir afar líklegur til að hreppa hnossið að þessu sinni en hann hlaut nokkuð afgerandi kosningu í könnun sem gerð var í gær þar sem framkvæmdastjórar allra liða í deildinni voru spurðir um sitt álit. 25.4.2007 17:09
Heiðar í 11. sæti í Danmörku Heiðar Davíð Bragason úr Kili í Mosfellsbæ lék annan hringinn á Welness mótinu í Danmörku í dag á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Hann hefur því leikið 36 holur á samtals einu höggi yfir pari og er í 11.-17. sæti fyrir lokahringinn á morgun. 25.4.2007 17:02
Stuðningsmenn United og Roma sektaðir Knattspyrnusamband Evrópu sektaði í dag Manchester United og Roma vegna óláta stuðningsmanna félaganna á fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Roma var sektað um 31,000 pund en United um 14,500 pund. Félögin hafa þrjá daga til að áfrýja sektunum. 25.4.2007 16:56
Beckham: Ég myndi aldrei gagnrýna Capello David Beckham segist bera mikla virðngu fyrir þjálfara sínum Fabio Capello hjá Real Madrid og segir aldrei hafa komið til greina að gagnrýna hann þó hann hafi tekið sig út úr liðinu á sínum tíma. Capello neitaði að láta Beckham spila fyrst eftir að hann samdi við LA Galaxy í Bandaríkjunum, en hann vann sér aftur sæti í liðinu með dugnaði sínum. 25.4.2007 16:00
Nýr leikvangur á teikniborðinu hjá Portsmouth Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur lagt fram drög að byggingu nýs knattspyrnuleikvangs sem taka mun 36,000 manns í sæti. Hann verður reistur á hafnarsvæðinu í borginni og stefnt er að því að koma honum í gagnið árið 2011. Þetta þýðir að liðið mun flytja sig frá Fratton Park sem tekur aðeins rúmlega 20,000 manns í sæti. 25.4.2007 15:15
Miðaverð hækkar hjá Manchester United Stuðningsmenn Manchester United horfa fram á talsverða hækkun á miðaverði á næstu leiktíð, en fregnir herma að miðaverð muni hækka um allt að 14%. Hækkunin verður hvað mest á dýrustu sætunum í stúkunni, en ódýrustu miðarnir sem ætlaðir eru barnafólki verða lækkaðir í verði. 25.4.2007 15:15
Sálfræðistríðið heldur áfram Sálfræðistríð þeirra Rafa Benitez og Jose Mourinho hefur nú náð hámarki fyrir fyrri leik Chelsea og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikurinn verður að sjálfssögðu sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn og hefst útsending klukkan 18:30 að lokinni upphitun með Guðna Bergs. 25.4.2007 14:05
Bjartsýni í herbúðum Miami NBA meistarar Miami örvænta ekki þó liðið sé komið 2-0 undir í einvíginu við Chicago Bulls í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir stórt tap í gærkvöldi. Leikmenn liðsins eru flestir með gríðarlega reynslu og vilja meina að mikið sé eftir af einvíginu. 25.4.2007 13:48
Alan Ball látinn Alan Ball, yngsti leikmaður enska landsliðsins sem vann heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu árið 1966, er látinn. Hann fékk hjartaáfall á heimili sínu í morgun. Ball spilaði 72 landsleiki fyrir England og spilaði með Everton, Arsenal og Southampton. Hann varð síðar knattspyrnustjóri Portsmouth, Manchester City og Southampton. Hann var aðeins 61 árs gamall. 25.4.2007 13:31
Phoenix burstaði LA Lakers Phoenix náði í nótt 2-0 forystu í einvígi sínu við Los Angeles Lakers í úrslitakeppninni í NBA með auðveldum 126-98 sigri á heimavelli sínum. Sigur Phoenix var aldrei í hættu og líkt og í fyrsta leiknum var það varamaður ársins Leandro Barbosa sem stal senunni. 25.4.2007 05:04
Meistarar Miami í vandræðum Meistarar Miami Heat eru komnir í bullandi vandræði gegn frísku liði Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA deildarinnar eftir að Chicago vann sannfærandi 107-89 sigur í öðrum leik liðanna í nótt. Chicago leiðir nú 2-0 í einvíginu og næstu tveir leikir fara fram í Miami. 25.4.2007 03:47
Fyrsti sigur Toronto í úrslitakeppni síðan 2002 Toronto Raptors vann í nótt fyrsta sigur sinn í úrslitakeppni NBA síðan árið 2002 þegar liðið skellti New Jersey á heimavelli 89-83 og jafnaði metin í einvíginu í 1-1. Anthony Parker skoraði 26 stig fyrir heimamenn og Chris Bosh skoraði 25 stig og hirti 13 fráköst. Þjálfarinn Sam Mitchell var í gær útnefndur þjálfari ársins í deildinni og fékk verðlaunagripinn afhentan fyrir leikinn. 25.4.2007 03:35
Tiltekt hjá Seattle Supersonics Eigendur Seattle Supersonics voru ekki sáttir við slakan árangur liðsins í deildarkeppninni í NBA í vetur og í gærkvöldi ráku þeir framkvæmdastjóra og þjálfara liðsins. Seattle lauk keppni með 31 sigur og 51 tap í deildarkeppninni og er það versti árangur liðsins 20 ár og þriðji lélegasti árangurinn í 40 ára sögu félagsins. 25.4.2007 03:17
Chelsea yfir í hálfleik Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Liverpool í hálfleik í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Heimamenn hafa verið sterkari aðilinn í leiknum og það var Joe Cole sem braut ísinn fyrir heimamenn eftir frábæran undirbúning Didier Drogba á 29. mínútu. 25.4.2007 19:40
Byrjunarliðin klár hjá Chelsea og Liverpool Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Chelsea og Liverpool fyrir fyrri leik þeirra í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Liðskipan má sjá hér fyrir neðan, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn. 25.4.2007 17:51
Rooney tryggði United sigur á elleftu stundu Manchester United lagði AC Milan 3-2 í frábærum fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Ítalska liðið komst í 2-1 í fyrri hálfleik en Wayne Rooney tryggði enska liðinu dýrmætan sigur með marki í uppbótartíma. 24.4.2007 20:32
Kaka: Okkur varð hugsað til Roma-leiksins Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan sagði að sér hafi verið hugsað til leiks Manchester United og Roma þegar heimamenn skoruðu fyrsta markið eftir aðeins fimm mínútur í leiknum í kvöld. Hann vonast til þess að stuðningur áhorfenda nægi til að koma liði Milan í úrslitaleikinn. 24.4.2007 22:18
Rooney: Scholes er snillingur Wayne Rooney var að vonum ánægður eftir sigur Manchester United á AC Milan í kvöld, en hann skoraði jöfnunarmarkið og tryggði liði sínu sigur með glæsilegu marki í uppbótartíma. Hann segir félaga sína aldrei hafa misst trú á verkefninu þó liðið hafi lent undir. 24.4.2007 21:27
Ferguson: Liðið spilaði frábæran fótbolta Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með sigurinn á AC Milan í kvöld og sagði sína menn hafa spilað frábæran fótbolta á tíðum í leiknum. Hann segir sína menn eiga góða möguleika á að fara í úrslitaleikinn. 24.4.2007 21:21
Real í viðræðum við Diego? Svo virðist sem forráðamenn Real Madrid ætli að eiga það á hættu að vekja reiði enn eins félagsins í Evrópu vegna afskipta af samningsbundnum leikmanni. Spænska blaðið Marca greindi frá því í dag að Real hafi verið í sambandi við brasilíska miðjumanninn Diego hjá Werder Bremen. 24.4.2007 21:45
Stjarnan burstaði Hauka Tveir leikir fóru fram í undanúrslitum deildarbikarkeppni kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan burstaði Hauka 40-22 í Ásgarði þar sem Sólveig Lára Kjærnested skoraði 9 mörk fyrir Stjörnuna og Kristín Clausen 6, en Ramune Pekarskyte skoraði 10 mörk fyrir Hauka. Þá vann Grótta 23-18 sigur á Val. Liðin mætast að nýju á fimmtudagskvöldið, en tvo sigra þarf til að komast í úrslitarimmuna. 24.4.2007 21:36
Maðurinn flaugst á við Shaquille O´Neal og lifði það af Chicago Bulls og Miami Heat mætast öðru sinni í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA í kvöld. Scott Skiles þjálfari Chicago spilaði með Shaquille O´Neal hjá Miami þegar hann var nýliði með liði Orlando Magic árið 1992 og vann sér það þá til frægðar að slást við tröllið og lifa það af. 24.4.2007 18:41
Maldini spilaði í Evrópu áður en Rooney og Ronaldo fæddust Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, spilaði sinn fyrsta Evrópuleik fyrir AC Milan árið 1985, en þá voru þeir Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ófæddir. Varamaðurinn Alessandro Costacurta hjá Milan er þó enn eldri og reyndari, en hann á einmitt 41 árs afmæli í dag. Leikmenn Milan eiga góðar minningar frá Old Trafford, því liðið tryggði sér sigur í Meistaradeildinni á þessum velli árið 2003. 24.4.2007 18:09
Mourinho fer ekki frá Chelsea Knattspyrnustjórinn Jose Mourinho segir að sér hafi létt mikið eftir fund sem hann átti með forráðamönnum Chelsea um helgina, þar sem endanlega var staðfest að hann væri ekki á förum annað eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum undanfarnar vikur. 24.4.2007 17:30
Eggert borgar undir 6000 stuðningsmenn Breska blaðið Daily Mail greinir frá því í dag að Eggert Magnússon stjórnarformaður ætli að greiða fyrir 6000 stuðningsmenn West Ham á útileikinn mikilvæga gegn Wigan í fallslagnum á laugardaginn. Sagt er að West Ham hafi farið fram á að fá fleiri miða en venjulega á leikinn og að 34 rútur muni ferja stuðningsmenn á leikinn. 24.4.2007 17:05
Hoddle tippar á Milan og Liverpool í úrslitum Glenn Hoddle, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist tippa á að það verði Liverpool og AC Milan sem mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Aþenu í vor og endurtaki þar með leikinn frá í Istanbul árið 2005. 24.4.2007 16:39
Heiðar lék á 72 höggum í dag Heiðar Davíð Bragason, atvinnukylfingur úr GKj, hefur nú lokið leik á fyrsta hring á Wellness mótinu, sem er hluti af dönsku mótaröðinni, sem fram fer í Römö vellinum. Hann lék hringinn í dag á 72 höggum, eða pari vallar. Hann lék nokkuð stöðugt og gott golf - fékk 3 fugla á hringnum, 12 pör og 3 skolla. Heiðar hitti 7 brautir, 12 flatir og var með 30 pútt. 24.4.2007 16:36