Formúla 1

Schumacher: Árangur Hamilton kemur ekki á óvart

Michael Schumacher
Michael Schumacher NordicPhotos/GettyImages

Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher lætur nú lítið á sér bera í Formúlu 1 en hefur þess í stað verið á ferðalagi í tengslum við herferð í umferðaröryggi. Blaðamaður nokkur náði þó að skjóta á hann spurningu varðandi hinn unga og efnilega Lewis Hamilton á dögunum.

Hamilton er aðeins 22 ára og hefur vakið heimsathygli fyrir að ná á verðlaunapall með McLaren liðinu í þremur fyrstu keppnum sínum. Honum hefur í kjölfarið verið líkt við Michael Schumacher og eigandi McLaren liðsins sagði Hamilton hafa hæfileika til að skáka Schumacher.

"Það kemur mér ekkert á óvart að hann sé góður ökumaður - ég vissi það fyrir. Það sem kemur mér hinsvegar á óvart er hve stöðugur hann hefur verið," sagði hinn sjöfaldi heimsmeistari. Hamilton hefur þegar sagt að Schumacher sé eitt af átrúnaðargoðum sínum í Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×