Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frábær frammistaða íslenska kvennalandsliðsins Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann glæstan sigur á heimamönnum í Portúgal í Algarve-bikarnum í dag, 5-1. Hólmfríður Magnúsdóttir átti stórleik fyrir íslenska landsliðið og skoraði þrennu. 12.3.2007 17:47
Rúnar Kristinsson í KR? Rúnar Kristinsson, fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu og núverandi atvinnumaður hjá Lokeren í Belgíu, er við það að ganga í raðir KR og mun leika með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri Íslands í dag, heldur þessu fram á bloggsíðu sinni og segir ekki langt að bíða þar til tilkynnt verður opinberlega um komu Rúnars í Vesturbæinn. 12.3.2007 17:02
Zidane vildi ekki spila með Evrópuúrvalinu Zinedine Zidane afþakkaði að spila með Evrópuúrvali Marcelo Lippi í góðgerðarleik sem fram fer á Old Trafford annað kvöld. Áður hafði Marco Materazzi, varnarmaður Inter Milan og sá er Zidane skallaði eftirminnilega í úrslitaleik Frakka og Ítala á HM í sumar, staðfest komu sína í leikinn en þó er það ekki talin ástæða þess að Zidane afþakkaði boðið. 12.3.2007 16:57
Í bann út tímabilið eftir hrottabrot - Með myndbandi Chris Simon, leikmaður NY Islanders í NHL-deildinni í íshokkí í Bandaríkjunum, hefur verið dæmdur í leikbann sem gildir út leiktíðina fyrir viðurstyggilegt brot á Ryan Hollweg, leikmanni NY Rangers. Atvikið átti sér stað í leik liðanna á fimmtudag og sló Simon Hollweg með kylfunni, beint í andlitið. 12.3.2007 16:00
Mourinho sleppur við refsingu Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sleppur við ákæru frá enska knattspyrnusambandinu þrátt fyrir að hafa kallað Mike Riley, dómara leiks Chelsea og Tottenham í bikarnum í gær, það sem á góðri íslensku myndi þýðast sem "tíkar-sonur". Riley minntist ekki á atvikið í skýrslu sinni og Mourinho segist ekkert hafa meint með orðum sínum. 12.3.2007 15:00
Man. Utd. og Chelsea mætast ekki í undanúrslitum Draumaúrslitaleikur Manchester United og Chelsea í ensku bikarkeppninni er ennþá mögulegur eftir að ljóst var að þessi tvö efstu lið úrvalsdeildarinnar drógust ekki gegn hvort öðru í undanúrslitum. Blackburn mætir sigurvegaranum úr viðureign Chelsea og Tottenham og Watford mætir annaðhvort Man. Utd. eða Middlesbrough. 12.3.2007 14:37
Louis van Gaal orðaður við ástralska landsliðið Hollenski þjálfarinn Louis van Gaal, þjálfari Grétars Steinssonar og félaga hjá AZ Alkmaar, er nú sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá ástralska landsliðinu í knattspyrnu. Van Gaal er hins vegar ekki svo áhugasamur þar sem hann telur að ástralska liðið geti ekki unnið HM í knattspyrnu. 12.3.2007 14:15
Supercross Daytona úrslit. Gríðarleg stemming var á Daytona um helgina þar sem menn áttu vona á hörku baráttu á milli James Stewaert og Ricky Carmichael. 12.3.2007 13:27
Supecross lites úrslit Monster / Kawasaki ökumaðurinn Ben Townley gerði sér lítið fyrir og vann á Daytona nú um helgina. 12.3.2007 13:17
Mourinho: Yrði heiður að þjálfa Real Madrid Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að það væri mikill heiður fyrir sig ef hann fengi einhverntímann að þjálfa stórlið Real Madrid á Spáni. Framtíð portúgalska þjálfarans hjá Chelsea hefur verið mikil til umræðu síðustu vikur og segja margir að leið hans liggi til Spánar fari svo að hann verði látinn fara frá Chelsea. 12.3.2007 13:15
Loksins tapaði Federer Svisslendingurinn Roger Federer tapaði sínum fyrsta leik síðan í ágúst þegar hann beið í lægri hlut fyrir Guillermo Canas í annari umferð Indian Wells meistaramótsins í dag. Federer tapaði í tveimur lotum, 7-5 og 6-2, en áður hafði hann unnið 41 viðureign í röð. 12.3.2007 13:05
Barcelona vill fá Robben Forráðamenn Barcelona eru sagðir vera að undirbúa tilboð í hollenska vængmanninn Arjen Robben frá Chelsea. Samkvæmt spænskum fjölmiðlum er Barcelona búið að gefa upp vonina á að fá Cristiano Ronaldo frá Man. Utd. og hefur félagið því snúið sér að Robben, sem hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea á tímabilinu. 12.3.2007 12:30
Versta tap í sögu LA Lakers á heimavelli Ekkert lát er á sigurgöngu Dallas í NBA-deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið yfirburðasigur á LA Lakers, 108-72, útivelli. Þetta var 17. sigur Dallas í röð og hefur liðið nú unnið 52 af 61 leik sínum í vetur. Þetta var jafnframt versta tap Lakers í sögu félagsins síðan það flutti frá Minneapolis til Los Angeles árið 1960. 12.3.2007 11:41
Motocross æfingar á langasandi. Vélhjólaíþrótta klúbbur Akranes fékk leyfi fyrir að halda æfingu á langasandi síðastliðinn sunnudag 12.3.2007 11:12
FH og Breiðablik á toppnum Breiðablik er í fyrsta sæti sínum riðli Lengjubikarsins í knattspyrnu eftir sigur á Þrótti 4-1 í gær. Breiðablik hefur unnið alla 3 leiki sína og er með 9 stig. Fram og KR eru með 6 stig en liðin hafa sigrað í báðum sínum leikjum. Keflavík er einnig með 6 stig en eftir 3 leiki. 12.3.2007 09:33
Romairo með þrennu Gamla brýnið, Romario, er enn að enda þótt hann sé orðinn 41. árs. Brasilíski kappinn skoraði þrennu í gær þegar Vasco da Gama sigraði Madureira 4-1. Romario er þá búinn að skora 995 mörk og vantar því aðeins 5 til þess að ná takmarki sínu að skora 1000 mörk á ferlinum. 12.3.2007 09:32
Robben á leið til Barcelona? Enska blaðið The Sun segir að hollenski útherjinn, Arjen Robben, sé orðinn leiður á vistinni hjá Englandsmeisturum Chelsea. Blaðið segir að Txiki Begiristain yfirmaður knattspyrnumála hjá Spánarmeisturum Barcelona beini nú kastljósinu að Robben. Barcelona hefur í nokkurn tíma sagt ætla að freista þess að kaupa Portúgalann Ronaldo hjá Manchester United. Ronaldo verður væntanlega áfram í herbúðum United og þess vegna skoðar Barcelona möguleikann á því að fá Arjen Robben í sínar raðir. 12.3.2007 09:19
Mourinho í klípu Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea neitar að hafa viðhaft ósæmilegt orðbragð við Mike Riley dómara í leik Chelsea og Tottenham í gær. Mourinho á að hafa sagt „hórusonur“ þegar hann var á leið til búningsherbergja í hálfleik. Knattspyrnustjórinn neitar að hafa beint orðum sínum að dómaranum en ekki fór á milli mála að Mourinho mislíkaðir margar ákvarðanir Rileys. Knattspyrnustjórinn segir í samtali við enska fjölmiðla að hann beiti þessu tungutaki mörgum sinnum bæði á æfingum og í leikjum. Enska knattspyrnusambandið á væntanlega eftir að krefjast skýrslu um málið og hugsanlega refsað knattspyrnustjóranum. 12.3.2007 09:16
Ósigur eftir flautukörfu annan leikinn í röð Washington Wizards tapaði öðrum leiknum í röð á flautukörfu. Á laugardag skoraði Steve Francis sigurkörfu New York Knicks gegn Wizards og í gærkvöldi endurtók sagan sig þegar Udonis Haslem skoraði fyrir Miami í 106-104 sigri. Haslem skoraði þegar aðeins 0,3 sekúndur voru til leiksloka. Gilbertas Arenas var stigahæstur hjá Wizards með 33 stig en Gary Payton skoraði 17 fyrir Miami. Shaquille O´Neal skoraði 12 stig fyrir Miami. 12.3.2007 09:13
Yao Ming óstöðvandi Kínverski risinn Yao Ming skoraði 37 stig í gærkvöldi þegar Houston Rockets sigraði Orlando Magic 103-92. Ming er nýstaðinn upp úr erfiðum meiðslum og var aðeins að spila fjórða leik sinn eftir að hafa misst af 32 leikjum eftir að hafa fótbrotnað fyrr á leiktíðinni. Tracy McGrady var einnig atkvæðamikill í liði Houston, skoraði 19 stig og var með 10 stoðsendingar. Í síðustu 10 leikjum hefur Houston haft betur í rimmunni við Orlando í 9 þeirra. 12.3.2007 09:11
Óeirðaseggir hugsanlega útilokaðir frá leikjum Framkvæmdastjóri handknattleikssambands Íslands segir að óeirðaseggirnir sem stofnuðu til slagsmála á bikarúrslitaleik Stjörnunnar og Fram í gær, verði útilokaðir frá handboltaleikjum í framtíðinni. 11.3.2007 22:15
Mourinho spilar fótbolta með syni sínum og vinum hans Það skemmtilegasta sem Jose Mourinho gerir er ekki að vinna titla með Chelsea. Hann fær mesta ánægju af því að spila fótbolta með syni sínum og vinum hans, en það gera þeir vikulega á heimili portúgölsku fjölskyldunnar í London. Skemmst er frá því að segja að sonurinn vill ekki vera með pabba sínum í liði. 11.3.2007 20:30
Watford í undanúrslit Watford varð í kvöld annað liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu þegar það bar sigurorð af 1. deildarliði Plymouth á útivelli. Fyrr í dag hafði Blackburn tryggt sig áfram en Man. Utd. og Middlesbrough þurfa að mætast að nýju, líkt og Chelsea og Tottenham. 11.3.2007 20:15
Inter lagði AC Milan í uppgjöri erkifjendanna Topplið Inter á Ítalíu sigraði AC Milan, 2-1, í uppgjöri nágrannana og erkifjendanna í Mílanó-borg í dag. Inter lenti reyndar undir í fyrri hálfleik eftir að fyrrum leikmaður þess, Brasilíumaðurinn Ronaldo, hafði skorað. En tvö mörk í síðari hálfleik tryggðu Inter sigurinn og hefur liðið nú 19 stiga forystu á toppi deildarinnar. 11.3.2007 19:00
Ballack veit að hann getur betur Michael Ballack, hinn þýski miðvallarleikmaður Chelsea, viðurkennir að hann hafi ekki verið upp á sitt besta á sínu fyrsta tímabili í England. Miklar væntingar voru gerðar til Ballack eftir að hann gekk í raðir Chelsea frá Bayern Munchen síðasta sumar – væntingar sem hann hefur engan veginn náð að standa undir. 11.3.2007 18:45
Bayern Munchen og Werder Bremen skildu jöfn Meisturum Bayern Munchen í Þýskalandi mistókst að blanda sér af alvöru í toppbaráttuna í úrvalsdeildinni í dag en þá gerði liðið 1-1 jafntefli við Werder Bremen á heimavelli sínum í Munchen. Bayern spilaði einn sinn besta leik á tímabilinu og aðeins einstök óheppni og klaufaskapur upp við mark Bremen kom í veg fyrir sigur liðsins. 11.3.2007 18:38
Óvænt tap Sevilla gegn Gimnastic á Spáni Sevilla mistókst að komast fram yfir Barcelona og á topp spænsku úrvalsdeildarinnar þegar liðið tapaði mjög óvænt fyrir einu af neðstu liðum deildarinnar, Gimntastic, með einu marki gegn engu. Þetta var fyrsta tap Sevilla í síðustu átta leikjum í spænsku deildinni. 11.3.2007 18:31
Blackburn í undanúrslit Blackburn tryggði sér í dag þáttökurétt í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu með því að leggja Manchester City af velli á heimavelli sínum, 2-0. Aaron Moekena og Matt Derbyshire skorurðu mörk heimamanna sem spiluðu vel og áttu sigurinn fyllilega skilinn. 11.3.2007 17:44
Ron Artest: Ég hef brugðist Fimm dögum eftir að hafa verið handtekinn vegna gruns um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi hefur leikmaður Sacramento í NBA-deildinni, beðist afsökunar á framferði sínu. Artest segist hafa brugðist hlutverki sínu, sem eiginmaður, faðir og leikmaður Sacramento, og biður um fyrirgefningu. 11.3.2007 17:30
Carragher segir að Benitez fari ekki fet Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, er sannfærður um að knattspyrnustjórinn Rafa Benitez sé kominn til að vera á Anfield, þrátt fyrir endalausar vangaveltur um að hann sé á förum til Real Madrid. Carragher segir í viðtali við opinbera heimasíðu Liverpool að Benitez sé einn besti þjálfari heims. 11.3.2007 17:00
Jol og Mourinho kvíða fyrir síðari leiknum Martin Jol og Jose Mourinho, knattspyrnustjórar Tottenham og Chelsea, hlakkar ekki mikið til síðari leiks liðanna í ensku bikarkeppninni á mánudag í næstu viku en þá þurfa liðin að mætast öðru sinni eftir 3-3 jafnteflið á Stamford Bridge í dag. Þjálfararnir segja álagið á leikmönnum sínum vera með ólíkindum þessa dagana. 11.3.2007 16:29
Wenger fær 20 milljónir punda í sumar Arsene Wenger hefur verið lofað veglegri summu til að fá nýja leikmenn til Arsenal í sumar og mun sú upphæð ekki minnka neitt þrátt fyrir að félagið verði af umtalsverðum tekjum með því að vera þegar fallið úr leik í Meistaradeildinni. Talið er að upphæðin sem Wenger fái sé um 20 milljónir punda. 11.3.2007 16:00
Lemgo lagði Flensburg í þýska handboltanum Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fimm mörk og átti stórgóðan leik þegar Lemgo bar sigurorð af Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 34-30. Lemgo var þremur mörkum undir í hálfleik en náði með frábærum leik í síðari hálfleik að snúa leiknum sér í vil. Logi Geirsson lék ekki með Lemgo vegna meiðsla. 11.3.2007 15:50
Joe Cole ætlar að spila gegn Valencia Enski miðjumaðurinn Joe Cole hefur lofað stjóra sínum Jose Mourinho að vera orðinn klár í slaginn þegar Chelsea mætir Valencia í Meistaradeild Evrópu í næsta mánuði. Cole hefur verið frá æfingum og keppni stærstan hluta tímabilsins vegna álagsmeiðsla í fæti og gekkst nýverið undir aðgerð til að fá bót meina sinna. 11.3.2007 15:30
Chelsea náði að knýja fram annan leik Leikmenn Chelsea sýndu úr hverju þeir eru gerðir með því að skora tvö mörk í síðari hálfleik og tryggja sér þannig 3-3 jafntefli gegn Tottenham á Stamford Bridge í viðureign liðanna í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Liðin þurfa því að eigast við að nýju á White Hart Line, og fer sá leikur fram þann 19. mars næstkomandi. 11.3.2007 14:33
Scumacher er ekki að kaupa Toro Rosso Gerhard Berger, annar tveggja eiganda Toro Rosso liðsins í formúlu 1, segir ekkert hæft í þeim fréttum að hann sé um það bil að selja sinn hlut til Michael Scumacher, fyrrum heimsmeistara í formúlunni. 11.3.2007 14:25
Grétar lék allan leikinn fyrir AZ Landsliðsmaðurinn Grétar Steinsson lék allan leikinn fyrir lið sitt AZ Alkmaar þegar það gerði markalaust jafntefli við Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni í dag. Grétar spilaði í stöðu hægri bakvarðar og stóð vel fyrir sínu. AZ er áfram í 2. sæti deildarinnar eftir jafnteflið, sjö stigum á eftir toppliði PSV. 11.3.2007 13:47
Leikmenn Chelsea steinrunnir í fyrri hálfleik Útlitið er ekki bjart fyrir Jose Mourinho og lærisveina hans hjá Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Tottenham í ensku bikarkeppninni. Staðan er 3-1, gestunum frá Tottenham í vil, en varnarleikur heimamanna minnir helst á rygðað gatasigti. 11.3.2007 13:31
Nistelrooy: Skil ekki hvernig við náðum ekki að vinna Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy hjá Real Madrid segir með ólíkindum að Barcelona skuli hafa sloppið með jafntefli í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni, svo miklir hafi yfirburðir Real verið. Hetja heimamanna, Lionel Messi, segir að gærdagurinn muni seint líða honum úr minni. 11.3.2007 12:58
Klitschko fór létt með Austin Úkraínski hnefaleikakappinn Vladimir Klitschko varði IBF-heimsmeistaratitil sinn í þungavigt í nótt með því að sigra Bandaríkjamanninn Ray Austin í bardaga þeirra í Þýskalandi. Austin reyndist Klitschko auðveld bráð og var bardaginn stöðvaður strax í annari lotu. 11.3.2007 12:45
Rijkaard: Messi hefur magnaða hæfileika Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, hélt ekki vatni yfir frammistöðu Argentínumannsins Lionel Messi, sem skoraði þrennu í leik liðsins gegn Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, sagði Victor Valdes í marki Barcelona, hafa komið í veg fyrir sigur sinna manna. 11.3.2007 11:30
12. sigur San Antonio í röð San Antonio Spurs er á fljúgandi siglingu í NBA-deildinni um þessar mundir og í nótt vann liðið sinn 12. sigur í röð þegar það lagði New Jersey af velli á heimavelli, 93-77. Eins og svo oft áður var það liðsheildin sem skóp sigur San Antonio, en allir þeir 12 leikmenn sem voru á skýrslu liðsins náðu að skora stig í leiknum. 11.3.2007 10:17
Messi skoraði þrennu og jafnaði á síðustu mínútu Lionel Messi var hetja Barcelona í leik liðsins gegn Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, en hann skoraði öll þrjú mörk liðsins í 3-3 jafntefli, það síðasta þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma. Leikurinn var stórkostleg skemmtun en Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 10 mínútur leiksins. 10.3.2007 22:54
Mikið fjör í fyrri hálfleik á Nou Camp Stórleikur Barcelona og Real Madrid í spænska boltanum í kvöld hefur reynst hin frábæra skemmtun og nú þegar fyrri hálfleikur er liðinn hafa fjögur mörk litið dagsins ljós, tvö frá hvoru liði. Lionel Messi hefur skorað bæði mörk Barcelona en Ruud van Nistelrooy bæði mörk Real Madrid. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 10.3.2007 21:44
Eiður í hópi varamanna Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekknum hjá Barcelona sem tekur á móti erkifjendunum í Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það er Samuel Eto´o sem spilar í fremstu víglínu Barcelona ásamt Ronaldinho og Lionel Messi. Byrjunarlið Barcelona er óbreytt frá því í leiknum gegn Liverpool í Meistaradeildinni á þriðjudag. 10.3.2007 20:43