Formúla 1

Scumacher er ekki að kaupa Toro Rosso

Gerhard Berger.
Gerhard Berger. MYND/Getty

Gerhard Berger, annar tveggja eiganda Toro Rosso liðsins í formúlu 1, segir ekkert hæft í þeim fréttum að hann sé um það bil að selja sinn hlut til Michael Scumacher, fyrrum heimsmeistara í formúlunni.

“Ég veit ekkert hvaðan þetta er komið. Það hefur enginn rætt við mig um að selja minn hlut,” segir Berger, sem á sínum tíma vann 10 mót í formúlunni. Berger bætti því við að það væri ekkert vit í að selja sinn hlut á þessum tímapunkti, en ekki er langt síðan hann fjárfesti í Toro Rosso liðinu. “Þið ættuð frekar að tala við Didi,” en þar átti hann við Didi Mateschitz, meðeiganda sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×