Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Allt vitlaust í Belgrad (myndband) Fjórir stuðningsmenn og tveir lögreglumenn slösuðust þegar óeirðir brutust út fyrir leik Rauðu Stjörnunnar og PAOK Thessaloniki í körfubolta í fyrrakvöld. Átökin brutust út þegar stuðningsmenn erkifjenda heimaliðsins mættu í höllina og ætluðu að styðja við bakið á PAOK. Kveikt var á blysum í stúkunni og öllu lauslegu kastað í allar áttir eins og sjá má að meðfylgjandi myndskeiði. 7.12.2006 17:24
Cannavaro meiddur eftir tæklingu samherja Nýkjörinn knattspyrnumaður Evrópu, ítalski miðvörðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid, missir væntanlega af sínum þriðja leik í röð með félaginu eftir að hann meiddist á ökkla á æfingu liðsins í morgun. Cannavaro varð þá fyrir harkalegri tæklingu frá félaga sínum Ruud Van Nistelrooy og reiddist sá ítalski í kjölfarið og neitaði að taka í hönd félaga síns eftir æfinguna. 7.12.2006 17:15
Tottenham án lykilmanna um jólin Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham verður að sætta sig við að vera án tveggja lykilmanna í árlegri leikjatörn yfir jólin, en í dag tilkynnti Martin Jol knattspyrnustjóri að Robbie Keane yrði frá í 5-6 vikur vegna hnémeiðsla og Jermaine Jenas í um mánuð vegna ökklameiðsla. Tottenham á því aðeins tvo leikfæra framherja í hóp sínum því Egyptinn Mido verður einnig frá um óákveðinn tíma. 7.12.2006 17:02
Leikmenn Sunderland léku í kynlífsmyndbandi Forráðamenn enska 1. deildarliðsins Sunderland hafa nú hrundið af stað rannsókn eftir að út spurðist að þrír af leikmönnum liðsins hefðu leikið í klámfengnu myndbandi. Leikmennirnir eru Ben Alnwick, Liam Lawrence og Chris Brown, en þeir eiga ekki von á góðu frá Roy Keane knattspyrnustjóra og Niall Quinn stjórnarformanni ef þessar fréttir reynast réttar. 7.12.2006 16:56
Yfirtaka í Man City á viðræðustigi Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City er nú nýjasta félagið á Englandi til að vera orðað við yfirtöku, en forráðamenn félagsins hafa staðfest að þeir séu í viðræðum við fjárfesta sem hafi í huga að kaupa félagið. Breska sjónvarpið segir að hér sé um fjársterkan einstakling að ræða og því hefur verið slegið fram að 70 milljón punda tilboð verði lagt fram fljótlega. 7.12.2006 16:44
Boateng sleppur við bann Miðjumaðurinn George Boateng hjá Middlesbrough sleppur við leikbann eftir að rauða spjaldið sem hann fékk í leik gegn Tottenham í vikunni var dregið til baka. Aganefnd knattspyrnusambandsins fór yfir átökin sem upphófust á lokamínútum leiksins og komst að þeirri niðurstöðu að Boateng hefði ekki gert neitt til að uppskera rautt spjald. 7.12.2006 15:30
Atouba fær tveggja leikja bann og sekt Kamerúnmaðurinn Timothee Atouba hjá HSV í Þýskalandi hefur verið settur í tveggja leikja bann og gert að greiða sekt í kjölfar þess að hann sýndi stuðningsmönnum liðsins dónalegt fingramál þegar honum var skipt af velli í sigri HSV á CSKA Moskva í gærkvöld. 7.12.2006 15:23
Shevchenko er tilbúinn að pakka saman Framherjinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea segist vera ánægður í herbúðum Chelsea, en segist óttast að leikstíll hans henti ekki áherslum Jose Mourinho. Hann segist vera tilbúinn að pakka niður í tösku og fara aftur til Ítalíu ef Chelsea geti ekki notað sig. 7.12.2006 15:11
Birgir Leifur á fimm yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku í dag en sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Birgir lauk fyrsta hringnum á 77 höggum eða 5 yfir pari og er því á meðal neðstu manna á móginu. Birgir verður því að leika óaðfinnanlega á morgun ef hann á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu þar sem 70 kylfingar halda áfram keppni. 7.12.2006 15:06
Íslandsmet hjá Ragnheiði Sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR bætti í morgun Íslandsmet sitt í 100 metra skriðsundi á EM sem fram fer í Helsinki þegar hún synti vegalengdina á 55,95 sekúndum. Hún var hársbreidd frá því að komast í undanúrslit í greininni og hafnaði í 25. sæti af 44 í undanrásunum. 7.12.2006 14:59
Loks vann Washington á útivelli Washington Wizards vann sinn fyrsta sigur á útivelli á leiktíðinni í NBA í nótt þegar liðið sótt New York Knicks heim og vann 113-102. Gilbert Arenas skoraði 38 stig og Antawn Jamison bætti við 33 stigum fyrir Washington, en Eddy Curry skoraði 22 stig og hirti 11 fráköst fyrir New York. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í leikjum næturinnar. 7.12.2006 14:40
Sigurður Eyjólfsson tekur við af Jörundi Áka Sigurður Ragnar Eyjólfsson var í dag ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu og tekur við starfi Jörundar Áka Sveinssonar. Sigurður hefur skrifað undir tveggja ára samning við KSÍ og verður Guðni Kjartansson aðstoðarmaður hans. 7.12.2006 14:31
Pardew biður stuðningsmenn West Ham afsökunar Alan Pardew var ekki par hrifinn af frammistöðu sinna manna í West Ham í kvöld þegar liðið lá 2-0 á heimavelli fyrir Wigan fyrir framan þá Eggert Magnússon og Björgólf Guðmundsson sem sátu í heiðursstúkunni. 6.12.2006 23:16
Leikmenn Arsenal voru taugaóstyrkir Arsene Wenger viðurkennir að hans menn hafi verið of varkárir og taugaóstyrkir í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Porto á útivelli í Meistaradeildinni, en það tryggði liðinu engu að síður efsta sætið í riðlinum. 6.12.2006 23:01
Ferguson ánægður að sjá fimm bresk lið í 16-liða úrslitunum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist afar sáttur við að sjá fimm bresk lið í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í ár eftir sigur United á Benfica í kvöld. "Það er frábært að sjá þessi lið komast áfram og það er ljóst að eitt þeirra á góða möguleika á að vinna keppnina. Ég vona bara að það verði okkar lið," sagði Ferguson. 6.12.2006 22:53
Cleveland - Toronto í beinni á miðnætti Leikur Cleveland Cavaliers og Toronto Raptors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpssstöðinni á Fjölvarpinu á miðnætti í kvöld. Cleveland er hörkulið með LeBron James í fararbroddi, en liðinu hefur gengið afleitlega gegn veikari liðum deildarinnar það sem af er í vetur. 6.12.2006 22:44
Atouba í vondum málum Kamerúnski landsliðsmaðurinn Timothee Atouba hjá Hamburg á væntanlega von á mjög harðri refsingu frá félagi sínu og aganefnd knattspyrnusambands Evrópu eftir að hann sýndi stuðningsmönnum Hamburg miðfingurinn þegar honum var skipt af velli í langþráðum sigri liðsins í Meistaradeildinni í kvöld. 6.12.2006 22:29
West Ham lá heima fyrir Wigan Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Björgólfur Guðmundsson sat við hlið Eggerts Magnússonar í heiðursstúku West Ham í kvöld en þurfti að horfa upp á sína menn tapa 2-0 fyrir Wigan. Þá vann Newcastle afar mikilvægan sigur á Reading 3-2 í æsilegum leik. 6.12.2006 22:14
Gummersbach steinlá fyrir Nordhorn Fjórir leikir voru háðir í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach töpuðu stórt fyrir Nordhorn á útivelli 42-31 og lét Alfreð hafa eftir sér eftir leikinn að sínir menn gætu gleymt því að gera eitthvað í Meistaradeildinni um næstu helgi ef þeir ætluðu sér að spila svona áfram. 6.12.2006 21:58
Suðurnesjaliðin unnu leiki sína Grannliðin Grindavík og Keflavík lögðu andstæðinga sína nokkuð örugglega í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Grindavík lagði Breiðablik 88-67 þar sem Tamara Bowie skoraði 39 stig og hirti 15 fráköst fyrir Grindavík en Tiara Harris skoraði 26 stig og hirti 9 fráköst fyrir Blika. Keflavík lagði ÍS 91-67 þar sem TaKesha Watson hjá Keflavík fékk þungt höfuðhögg og var flutt á sjúkrahús með heilahristing og brotnar tennur. 6.12.2006 21:49
Góður sigur United á Benfica Manchester United tryggði sér efsta sætið í F-riðli Meistaradeildarinnar og sæti í 16-liða úrslitum með 3-1 sigri á Benfica á Old Trafford í kvöld. Nélson kom Benfica óvænt yfir í leiknum en Nemanja Vidic jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Þeir Ryan Giggs og Louis Saha bættu svo við tveimur mörkum í þeim síðari og tryggðu enska liðinu sigurinn. Nú er ljóst hvaða lið fara í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. 6.12.2006 21:33
Súrt tap hjá Lemgo Íslendingalið Lemgo er úr leik í EHF keppninni í handbolta eftir súrt tap fyrir franska liðinu Dunkerque. Franska liðið vann fyrri leik liðanna 35-30, en Lemgo vann leikinn í kvöld 31-27 og var því aðeins marki frá því að fara áfram í keppninni þar sem liðið átti titil að verja frá í fyrra. Logi Geirsson var markahæstur í liði Lemgo með 7 mörk ásamt Filip Jicha. 6.12.2006 21:13
Naumur sigur Fram á Akureyri Fram tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum SS-bikarsins í handbolta þegar liðið lagði Akureyri 31-30 í hörkuleik. Fram og Stjarnan hafa því tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar. 6.12.2006 21:05
McLaren vill fá Alonso strax Forráðamenn McLaren í Formúlu 1 ætla að fara þess á leit við kollega sína hjá Renault að þeir leysi heimsmeistarann Fernando Alonso undan samningi nokkrum vikum fyrr en áætlað var svo hann geti hafið prófanir strax með nýja liðinu sínu. 6.12.2006 20:51
Jafnt í hálfleik á Old Trafford Nú er kominn hálfleikur í frábærum leik Manchester United og Benfica á Old Trafford í Meistaradeildinni og er staðan jöfn 1-1. Gestirnir frá Portúgal komust yfir þvert gegn gangi leiksins þegar bakvörðurinn Nélson skoraði með glæsilegu skoti eftir 27 mínútur, en Nemanja Vidic jafnaði fyrir heimamenn í uppbótartíma. Leikurinn hefur verið eign Manchester United síðasta hálftímann og sóknarleikurinn í fyrirrúmi. 6.12.2006 20:32
HM 2010 verður með óbreyttu sniði Alþjóða knattspyrnusambandið hefur gefið það út að HM í knattspyrnu sem fram fer í Suður-Afríku muni standa yfir dagana 11. júní til 11. júlí árið 2010. Keppnin verður með sama sniði og HM í Þýskalandi í sumar, þar sem mótshaldarar fá öruggt sæti í keppninni. 6.12.2006 18:25
Stern viðurkennir mistök David Stern, yfirmaður NBA deildarinnar í körfubolta, hefur loks viðurkennt að hann hafi gert mistök þegar hann ákvað að taka nýja keppnisboltann í notkun í deildinni í haust. Boltinn er úr gerfiefni og kom í stað gamla leðurboltans, en flest allar stórstjörnurnar í deildinni hafa gagnrýnt boltann harðlega og segja hann ómögulegan. 6.12.2006 16:15
Nedved hótar að hætta Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hjá Juventus er æfur yfir því að hafa verið dæmdur í fimm leikja keppnisbann fyrir að móðga og stíga ofan á dómara í leik Juve og Genoa um síðustu helgi. Nedved segist frekar ætla að hætta að spila en að gangast við banninu. 6.12.2006 15:58
Birgir Leifur í beinni á Sýn í fyrramálið Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér fyrir skömmu keppnisrétt á evrópsku mótaröðinni í golfi og hann verður í eldlínunni innan um marga af bestu kylfingum heims á tveimur mótum sem haldin verða í Suður-Afríku fyrir jól. Fyrra mótið hefst í fyrramálið og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. 6.12.2006 15:14
Newell ákærður fyrir ummæli í garð dómara Mike Newell, stjóri Luton Town í ensku fyrstu deildinni, hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir niðrandi ummæli sín í garð aðstoðardómara eftir leik gegn QPR í byrjun síðasta mánaðar. 6.12.2006 15:03
Við verðum að nýta færin í kvöld Sir Alex Ferguson segir að sínir menn í Manchester United verði að nýta færi sín til hins ítrasta í leiknum við Benfica í Meistaradeildinni í kvöld ef þeir ætli sér að ná hagstæðum úrslitum. Enska liðinu nægir stig til að komast áfram, en liðið hefur átt það til að fara illa með færi sín í keppninni til þessa og það hefur kostað liðið að mati knattspyrnustjórans. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 19:30. 6.12.2006 14:51
Wenger ætlar að sækja til sigurs Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ekki ætla að fara til Porto í kvöld með það fyrir augum að hanga á jafntefli þó sú niðurstaða yrði nóg fyrir hans menn til að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra í kvöld klukkan 19:30. 6.12.2006 14:40
Phillips á sér framtíð hjá Chelsea Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að vængmaðurinn smávaxni Shaun Wright-Phillips eigi sér framtíð með félaginu þrátt fyrir þrálátan orðróm þess efnis að hann fari frá félaginu í janúar. Phillips hefur m.a. verið orðaður við West Ham og gamla félagið sitt Manchester City, en hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Chelsea í gær í Meistaradeildinni. 6.12.2006 14:36
Boateng og Zokora eiga yfir höfði sér bann Þeim Derek Boateng og Didier Zokora hafa báðir íhugað að áfrýja rauðu spjöldunum sem þeir fengu að líta í leik Tottenham og Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í gær, en leikmennirnir tókust á þegar hitnaði verulega í kolunum undir lok leiksins. Zokora fær þriggja leikja bann að öllu óbreyttu, en Boateng fjögurra leikja bann vegna annars brottreksturs á leiktíðinni. 6.12.2006 14:32
Beckham er ríkasti knattspyrnumaður Bretlandseyja David Beckham er ríkasti knattspyrnumaður á Bretlandseyjum samkvæmt nýrri könnum sem birt var í dag. Beckham er nærri þrisvar sinnum ríkari en næsti maður á listanum, Michael Owen. 6.12.2006 14:15
Nash gaf 20 stoðsendingar í sigri Phoenix Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Phoenix Suns vann sinn 7. leik í röð með því að leggja Sacramento af velli 127-102 og hefur liðið heldur betur rétt úr kútnum eftir tap í 5 af fyrstu 6 leikjum sínum í vetur. Leandro Barbosa skoraði 26 stig fyrir Phoenix og Steve Nash átti 20 stoðsendingar. Mike Bibby skoraði 21 stig fyrir Sacramento. 6.12.2006 13:57
New Jersey - Dallas í beinni í kvöld Leikur New Jersey Nets og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld. Dallas hafði unnið 12 leiki í röð áður en liðið tapaði fyrir Washington í nótt og því verður áhugavert að sjá hvort liðið nær að rétta úr kútnum gegn Nets í kvöld. Leikurinn hefst klukkan hálf eitt eftir miðnætti. 5.12.2006 23:09
Charlton af botninum Herman Hreiðarsson og félagar í Charlton lyftu sér af botni ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið lagði Blackburn nokkuð verðskuldað á heimavelli sínum með marki frá Talal El Karkouri beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma. Tottenham lagði Middlesbrough 2-1 þar sem tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið. 5.12.2006 22:10
Barcelona áfram Barcelona tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með nokkuð öruggum 2-0 sigri á Werder Bremen á heimavelli sínum. Ronaldinno og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk spænska liðsins í frábærum leik í beinni útsendingu á Sýn. 5.12.2006 21:34
Ekkert mark komið í ensku úrvalsdeildinni Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leikjunum tveimur sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Tottenham tekur þar á móti Middlesbrough og Hermann Hreiðarsson er í eldlínunni þar sem botnlið Charlton tekur á móti Blackburn. 5.12.2006 21:04
Barcelona í góðum málum Ronaldinho og Eiður Smári Guðjohnsen eru á skotskónum hjá Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld en liðið hefur 2-0 forystu gegn Bremen á heimavelli sínum og er því í ágætri stöðu til að komast áfram í 16-liða úrslitin. Leikurinn hefur verið mjög skemmtilegur og auk þess að skora átti Eiður Smári sín bestu tilþrif í vetur þegar hann lék á þrjá varnarmenn Bremen en skot hans hafnaði í stönginni. 5.12.2006 20:28
Eiður í byrjunarliði Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Werder Bremen í Meistaradeildinni nú klukkan 19:45 en bein útsending frá leiknum hefst á Sýn klukkan 19:30. Hér fyrir neðan má sjá byrjunarliðin. 5.12.2006 19:03
Jewell vill leyfa leikaraskap Hinn litríki og skemmtilegi Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan í ensku úrvalsdeildinni, hefur fundið lausn á vandamáli sem verið hefur uppi á borðinu í deildinni að undanförnu. Hann vill hvetja leikmenn til að reyna leikaraskap við hvert tækifæri. 5.12.2006 18:42
Magath á von á skemmtilegum leik í kvöld Felix Magath, þjálfari Bayern Munchen, segist eiga von á góðri skemmtun fyrir áhorfendur í kvöld þegar Bayern tekur á móti Inter Milan í leiknum um toppsætið í B-riðli Meistaradeildarinnar. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra 2 í kvöld. 5.12.2006 17:45
Sigurður Sveinsson hættur hjá Fylki Stjórn handknattleiksdeildar Fylkis og Sigurður Sveinsson komust í dag að samkomulagi um að Sigurður léti af störfum sem þjálfari liðsins. Gengi Fylkis hefur valdið miklum vonbrigðum það sem af er leiktíðinni og er í næst neðsta sæti deildarinnar. Liðið hefur tapað fimm leikjum í röð, nú síðast fyrir Val um helgina. Fjallað verður um málið í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. 5.12.2006 17:24