Formúla 1

McLaren vill fá Alonso strax

Fernando Alonso er enn samningsbundinn Renault
Fernando Alonso er enn samningsbundinn Renault NordicPhotos/GettyImages

Forráðamenn McLaren í Formúlu 1 ætla að fara þess á leit við kollega sína hjá Renault að þeir leysi heimsmeistarann Fernando Alonso undan samningi nokkrum vikum fyrr en áætlað var svo hann geti hafið prófanir strax með nýja liðinu sínu.

Alonoso er tvöfaldur ríkjandi heimsmeistari ökuþóra hjá Renault og er samningsbundinn liðinu fram að áramótum. McLaren-menn vilja reyna að fá hann lausan strax svo hann geti hafið prófanir fyrir áramótin.

"Ef ég á að vera hreinskilinn vil ég fá hann strax yfir til okkar," sagði Martin Whitmarsh, stjóri McLaren. "Við viljum gjarnan fara að fá nýja liðsmanninn okkar undir stýrið og hann á skilið að fá að skipta strax eftir allan þann árangur sem hann hefur náð með Renault," sagði Whitmarsh og bætti við að hann ætlaði að spyrja liðsstjóra Renault að þessu þegar hann væri búinn að hella í hann eins og tveimur flöskum af kampavíni á verðlaunahátíð Alþjóða Akstursíþróttasambandsins á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×