Fleiri fréttir Inter að undirbúa tilboð í Beckham? Breska götublaðið The Sun greinir frá því í dag að ítölsku meistararnir í Inter Milan séu að undirbúa að bjóða David Beckham frá Real Madrid samning og heldur því fram að hann muni fá 110 þúsund pund í vikulaun. Samningur Beckham rennur út í júlí og því geta félög boðið honum samning á nýju ári ef hann nær ekki samningum við Real. 5.12.2006 14:50 Nedved í fimm leikja bann Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved var í dag dæmdur í fimm leikja bann með liði Juventus í ítölsku B-deildinni eftir að hafa fengið rautt spjald í leik Juve og Genoa. Nedved missti stjórn á skapi sínu og traðkaði á andstæðingi sínum og bætti um betur og tróð dómaranum niður þegar hann fékk að líta rauða spjaldið. Juventus er í öðru sæti deildarinnar og mætir toppliðinu Bologna í næsta leik. 5.12.2006 14:45 Barcelona - Bremen í beinni á Sýn Það verða að venju þrír leikir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðvum Sýnar úr Meistaradeild Evrópu í kvöld. Aðalleikurinn á Sýn er viðureign Barcelona og Werder Bremen, þar sem spænska liðið verður að vinna til að komast áfram í keppninni. Leikur Roma og Valencia er sýndur á Sýn Extra og leikur Bayern og Inter á Sýn Extra 2. Útsending hefst klukkan 19:30 á öllum leikjunum. 5.12.2006 14:37 Washington stöðvaði Dallas Tólf leikja sigurgöngu Dallas Mavericks í NBA deildinni lauk í nótt þegar liðið tapaði fyrir Washington 106-97 á útivelli. Gilbert Arenas skoraði 38 stig fyrir Washington en Dirk Nowitzki skoraði 27 stig fyrir Dallas. 5.12.2006 14:22 Eldjárn frá Tjaldhólum seldur Stórgæðingurinn Eldjárn frá Tjaldhólum hefur verið seldur en það voru Kristjón Benediktsson, Guðmundur Björgvinsson og kona hans Eva Dyröy sem keyptu klárinn af Guðjóni Steinarssyni. 5.12.2006 17:29 Blendnar tilfinningar hjá Mourinho Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, vissi ekki alveg í hvorn fótinn hann ætti að stíga þegar hann var spurður að því í dag hvort hann vildi að Manchester United og Arsenal kæmust áfram í Meistaradeild Evrópu. Ensku liðin eru í baráttu við tvo lið frá Portúgal, heimalandi Mourinho. 4.12.2006 22:00 Markalaust hjá Man. City og Watford Manchester City og Watford gerðu markalaust jafntefli í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var lítið fyrir augað og voru úrslitin nokkuð sanngjörn. 4.12.2006 21:45 Ronaldinho segir að Barca muni sækja til sigurs Brasilíski snillingurinn Ronaldinho segist sannfærður um að Barcelona verði í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Katalóníu í dag. 4.12.2006 20:54 Snæfell á toppinn Snæfell vann gríðarlega mikilvægan sigur á Grindavík á útivelli í Iceland Express-deild karla í kvöld, 68-75. Með sigrinum komst Snæfell á topp deildarinnar. 4.12.2006 20:30 Leikmenn Bremen óttast ekki Barcelona Þýski landsliðsmaðurinn Thorsten Frings og leikmaður Werder Bremen segir að leikmenn liðsins óttist Evrópumeistara Barcelona ekki neitt og að liðið muni spila til sigurs í viðureign liðanna í Meistaradeildinni á morgun. Lið Bremen kom til Barcelona í morgun og æfði á Nou Camp í morgun. 4.12.2006 20:15 Benitez spenntur fyrir hugsanlegri yfirtöku Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, viðurkennir að hann sé spenntur fyrir hugsanlegri yfirtöku International Capital fyrirtækisins frá Dubai á félaginu. Benitez segir mikilvægt fyrir liðið að fá meiri pening til leikmannakaupa. 4.12.2006 19:25 Liverpool staðfestir viðræður Rick Parry, stjórnarformaður Liverpool, hefur staðfest að félagið eigi í viðræðum við Dubai International Capital fyrirtækið um mögulega yfirtöku þess á enska félaginu. Parry segir í yfirlýsingu sem send var út nú síðdegis að nýir eigendur komi með mikla möguleika inn í félagið. 4.12.2006 18:45 Eggert: Argentínumennirnir klára tímabilið hjá West Ham Argentínumennirnir Carlos Tévez og Javier Mascherano munu ekki fara frá West Ham þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar. Þetta heldur Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, fram í viðtali við Sky Sports í dag. 4.12.2006 17:45 Doyle stefnir á markakóngstitilinn Kevin Doyle, hinn funheiti framherji Reading, stefnir á að enda tímabilið í hópi markahæstu manna ensku úrvalsdeildarinnar. Eftir gott gengi að undanförnu er hann orðinn markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. 4.12.2006 17:00 Baros vantar mikið upp á sjálfstraustið Milan Baros getur orðið frábær fyrir Aston Villa – ef hann nær að vinna aftur upp sjálfstraustið sem hann hefur skort svo mánuðum skiptir. Þetta segir Martin O´Neill, stjóri Villa. 4.12.2006 16:15 Saha segir Ferguson hafa bjargað ferli sínum Louis Saha, framherji Manchester United, hefur greint frá því að hann hafði komist mjög nálægt því að leggja skóna á hillunna fyrir ekki löngu síðan en að Alex Ferguson hefði fengið hann ofan af því með sínum sannfæringarkrafti. 4.12.2006 15:45 Formaður KSÍ: Halldór gefur ekki kost á sér Halldór B. Jónsson, varaformaður KSÍ, ætlar ekki að gefa kost á sér til formanns, en kosið verður um hver hreppir embættið á ársþingi sambandsins í febrúar. Enn sem komið er hefur aðeins Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, gefið kost á sér. 4.12.2006 15:15 Þetta er maðurinn sem vill kaupa Liverpool Á myndinni hér til hliðar sést Mohammad bin Rashid Al Maktoum, krónprins Dubai, og maðurinn sem stendur á bakvið yfirtökutilboð Dubai International Capital á Liverpool. Ef forráðamenn Liverpool samþykkja tilboð Maktoum er ljóst að það mun kveða við nýjan tón í flóru erlendra eigenda félaga í ensku úrvalsdeildinni. 4.12.2006 14:30 Íþróttir á hádegi 4.12.2006 14:29 Henry tjáir sig um meiðslin og Wenger Thierry Henry staðfesti nú í hádeginu að hann yrði frá út árið vegna meiðsla á hálsi. Hann sagði jafnframt að ekkert væri til í fregnum um ósætti milli hans og Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal. 4.12.2006 13:45 Við munum vinna Werder Bremen Leikmenn Barcelona munu mæta sigurvissir til leiks gegn Werder Bremen í viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn, þrátt fyrir að hafa aðeins náð 1-1 jafntefli gegn Levante um helgina. Leikurinn er hreinn úrslitaleikur um hvort liðið fer áfram í 16-liða úrslit og nægir Bremen annað stigið í leiknum. 3.12.2006 21:30 KR tapaði óvænt í Hveragerði Skallagrímur komst upp að hlið KR og Snæfells á topp Iceland Express-deild karla í körfubolta eftir tiltölulega auðveldan sigur á Þór á Þorlákshöfn í kvöld, 98-80. Á sama tíma tapaði topplið KR fyrir Hamar/Selfoss í Hveragerði, 83-69. Fjórir leikir voru á dagskrá í kvöld. 3.12.2006 20:48 Drogba ætlar að verða bestur á Englandi Didier Drogba, framherji Chelsea, skortir ekki sjálfstraust. Í dag lýsti hann því yfir að markmið hans á tímabilinu væri að verða besti framherji Bretlandseyja. Drogba, sem spilað hefur frábærlega það sem af er leiktíð, segist enn eiga mikið inni. 3.12.2006 20:45 Real einu stigi á eftir Barcelona Real Madrid heldur áfram að saxa á forskot Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta og eftir 2-1 sigur liðsins á Atletico Bilbao í kvöld munar nú aðeins einu stigi. David Beckham og Ronaldo komu inn á í hálfleik hjá Real í kvöld og breyttu gangi leiksins. 3.12.2006 20:01 Sýningin Skeifnasprettur 2006 lauk í dag Skeifnasprettur 2006 lauk í dag í Ölfushöllinni og var mikið um skemmtilegar uppákomur. Sýnd var heitjárning á stærsta hesti Íslands, minnsti hestur Íslands fékk álímda skó og voru þeir svo sýndir í reið strax á eftir. Hans og Gréta, móðurlausu tvíburafolöldin frá Feti, 3.12.2006 19:32 Ólafur með þrjú í sigri Ciudad Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Ciudad Real sem lagði danska liðið GOG af velli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag, 33-28. Þetta var fyrri viðureign liðanna. 3.12.2006 19:15 Grétar spilaði í stórsigri AZ Grétar Steinsson lék allan leikinn en Jóhannes Karl Guðjónsson var allan tímann á varamannabekknum þegar AZ Alkmaar burstaði Excelsior 5-0 í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 3.12.2006 19:00 Hvað er í gangi á milli Wenger og Henry? Það ríkir undarlegt ástand í herbúðum Arsenal um þessar mundir og orðrómurinn um ósætti milli fyrirliðans Thierry Henry og stjórans Arsene Wenger fer vaxandi. Wenger hefur nú gefið í skyn að Henry muni ekki spila meira á árinu, þrátt fyrir að hann sé heill heilsu, og að hann muni ekki koma neinn leikmann í janúar. 3.12.2006 18:30 West Ham tapaði fyrir Everton Eggert Magnússon og lærisveinar hans í West Ham máttu þola 2-0 tap gegn Everton í leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Bjarni Þór Viðarsson var í leikmannahópi Everton en fékk ekki tækifærið að þessu sinni. 3.12.2006 17:57 Óvænt tap HK gegn Stjörnunni HK missti af gullnu tækifæri til að komast á topp DHL-deildar karla í handbolta á nýjan leik með því að bíða í lægri hluti fyrir Stjörnunni á heimavelli sínum í dag, 27-30. Haukar lögðu Framara af velli og ÍR-ingar höfðu betur gegn Akureyri. 3.12.2006 17:42 Liverpool tekur á móti Arsenal í bikarnum Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu, þeirri fyrstu sem liðin úr úrvalsdeildinni taka þátt í. Núverandi bikarmeistarar í Liverpool drógust gegn Arsenal nú síðdegis og munu liðin mætast á Anfield í byrjun janúar. 3.12.2006 17:24 Baptista vill spila meira Julio Baptista, brasilíski sóknarmaðurinn sem kom til Arsenal í haust frá Real Madrid, kveðst ósáttur með að fá ekki fleiri tækifæri í byrjunarliði liðsins. Baptista hefur fengið að spila afar lítið síðan hann kom til Arsenal og aðeins skorað eitt mark í vetur. 3.12.2006 16:30 Rikjaard óánægður með nýtingu sinna manna Frank Rikjaard, þjálfari Barcelona, skaut föstum skotum að leikmönnum sínum í samtali við spænska fjölmiðla eftir jafntefnisleikinn gegn Levante í gær og gagnrýndi þá fyrir að nýta færin ekki nægilega vel. 3.12.2006 16:00 Vince Carter var maður næturinnar Vince Carter hjá New Jersey var maður næturinnar í NBA-körfuboltanum en hann skoraði 41 stig og var maðurinn á bakvið 112-107 sigur liðs síns á Philadelphia. Þetta var það mesta sem Carter hefur skorað í einum leik í ár. 3.12.2006 15:15 Faðir leikmanns fékk hjartaáfall og lést Hörmulegt atvik átti sér stað í viðureign Tenerife og Ponferradina í spænsku 2. deildinni í gær þegar faðir eins leikmanns Tenerife fékk hjartaáfall er hann horfði á leikinn úr áhorfastúkunum og lést. 3.12.2006 14:45 Nýtt upphaf fyrir Bellamy Craig Bellamy gæti orðið eins og nýr leikmaður fyrir Liverpool eftir að hans persónulegu vandamál eru nú úr sögunni, að sögn Rafael Benitez, stjóra liðsins. Bellamy var hreinsaður af ákærum um líkamlegt ofbeldi í vikunni og hélt upp á áfangann með því að skora tvö mörk gegn Wigan í gær. 3.12.2006 14:15 Southgate æfur út í Ronaldo Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough, sakaði portúgalska vængmanninn Cristiano Ronaldo hjá Man. Utd. um að vera svindlara eftir viðureign liðana í gær. Ronaldo fiskaði vítaspyrnu í fyrri hálfleik með því sem virtust vera leikrænir tilburðir. 3.12.2006 13:30 Kvennalandsliðið hafnaði í 3. sæti Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hafnaði í 3. sæti í undanriðli sínum fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta eftir góðan fimm marka sigur á Ítölum í morgun, 30-25. Rúmenía hafnaði í efsta sæti riðilsins og komst áfram í lokakeppnina. 3.12.2006 13:14 Houllier bætti eigið met í Frakklandi Lyon setti nýtt stigamet í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær þegar liðið lagði Le Mans af velli 1-0. Lyon, meistarar síðustu fimm ára, hafa unnið 14 af fyrstu 16 leikjum sínum í deildinni og bættu þannig 20 ára gamalt met Paris St. Germain sem þá vann 13 af fyrstu 16 leikjum sínum, einmitt undir stjórn Gerard Houllier, núverandi stjóra Lyon. 3.12.2006 13:00 Hans og Gréta í Ölfushöll í dag, sunnudag Búið er að setja upp sér stíu fyrir móðurlausu folaldstvíburana frá Feti þau Hans og Grétu á sýningunni Skeifnaspett sem haldin er nú um helgina í Ölfushöll á Ingólfshvoli. Hans og Gréta eru undan Árna Geir frá Feti og Skák frá Feti en merin féll frá folöldunum aðeins nokkrum dögum eftir að þau fæddust. 3.12.2006 09:16 Barcelona náði aðeins jafntefli Barcelona fór illa að ráði sínu gegn Levante í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og varð að láta sér lynda jafntefli, 1-1. Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn fyrir Barcelona og náði ekki að seta mark sitt á leikinn. 2.12.2006 21:01 Slæmt tap Viggó og félaga Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska handknattleiksliðinu Flensborg reið ekki feitum hesti frá heimsókn sinni til Celje Lasko í Meistaradeildinni í kvöld og tapaði stórt, 41-31. 2.12.2006 20:15 Mikilvægur sigur Man. Utd Manchester United þurfti að hafa mikið fyrir 2-1 sigri á Middlesbrough í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem lauk nú undir kvöld. Það var Darren Fletcher sem skoraði sigurmark leiksins og tryggði Man. Utd. sex stiga forystu á toppi úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar. 2.12.2006 19:40 Eiður stefnir á sigur í HM félagsliða Eiður Smári Guðjohnsen hjá Barcelona segir að hann og samherjar sínir stefni á sigur í Heimsmeistarakeppni félagsliða sem hefst í Japan þann 10. desember næstkomandi. 2.12.2006 19:30 Wenger hrósar ungu leikmönnunum Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósaði ungu leikmönnunum sínum í hástert eftir sigurinn gegn Tottenham fyrr í dag. Í fjarveru Thierry Henry, Philippe Senderos og William Gallas þurfti Wenger að stilla upp afar ungu liði sem þjálfarinn segir að hafi staðist allar sínar væntingar. 2.12.2006 19:15 Sjá næstu 50 fréttir
Inter að undirbúa tilboð í Beckham? Breska götublaðið The Sun greinir frá því í dag að ítölsku meistararnir í Inter Milan séu að undirbúa að bjóða David Beckham frá Real Madrid samning og heldur því fram að hann muni fá 110 þúsund pund í vikulaun. Samningur Beckham rennur út í júlí og því geta félög boðið honum samning á nýju ári ef hann nær ekki samningum við Real. 5.12.2006 14:50
Nedved í fimm leikja bann Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved var í dag dæmdur í fimm leikja bann með liði Juventus í ítölsku B-deildinni eftir að hafa fengið rautt spjald í leik Juve og Genoa. Nedved missti stjórn á skapi sínu og traðkaði á andstæðingi sínum og bætti um betur og tróð dómaranum niður þegar hann fékk að líta rauða spjaldið. Juventus er í öðru sæti deildarinnar og mætir toppliðinu Bologna í næsta leik. 5.12.2006 14:45
Barcelona - Bremen í beinni á Sýn Það verða að venju þrír leikir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðvum Sýnar úr Meistaradeild Evrópu í kvöld. Aðalleikurinn á Sýn er viðureign Barcelona og Werder Bremen, þar sem spænska liðið verður að vinna til að komast áfram í keppninni. Leikur Roma og Valencia er sýndur á Sýn Extra og leikur Bayern og Inter á Sýn Extra 2. Útsending hefst klukkan 19:30 á öllum leikjunum. 5.12.2006 14:37
Washington stöðvaði Dallas Tólf leikja sigurgöngu Dallas Mavericks í NBA deildinni lauk í nótt þegar liðið tapaði fyrir Washington 106-97 á útivelli. Gilbert Arenas skoraði 38 stig fyrir Washington en Dirk Nowitzki skoraði 27 stig fyrir Dallas. 5.12.2006 14:22
Eldjárn frá Tjaldhólum seldur Stórgæðingurinn Eldjárn frá Tjaldhólum hefur verið seldur en það voru Kristjón Benediktsson, Guðmundur Björgvinsson og kona hans Eva Dyröy sem keyptu klárinn af Guðjóni Steinarssyni. 5.12.2006 17:29
Blendnar tilfinningar hjá Mourinho Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, vissi ekki alveg í hvorn fótinn hann ætti að stíga þegar hann var spurður að því í dag hvort hann vildi að Manchester United og Arsenal kæmust áfram í Meistaradeild Evrópu. Ensku liðin eru í baráttu við tvo lið frá Portúgal, heimalandi Mourinho. 4.12.2006 22:00
Markalaust hjá Man. City og Watford Manchester City og Watford gerðu markalaust jafntefli í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var lítið fyrir augað og voru úrslitin nokkuð sanngjörn. 4.12.2006 21:45
Ronaldinho segir að Barca muni sækja til sigurs Brasilíski snillingurinn Ronaldinho segist sannfærður um að Barcelona verði í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Katalóníu í dag. 4.12.2006 20:54
Snæfell á toppinn Snæfell vann gríðarlega mikilvægan sigur á Grindavík á útivelli í Iceland Express-deild karla í kvöld, 68-75. Með sigrinum komst Snæfell á topp deildarinnar. 4.12.2006 20:30
Leikmenn Bremen óttast ekki Barcelona Þýski landsliðsmaðurinn Thorsten Frings og leikmaður Werder Bremen segir að leikmenn liðsins óttist Evrópumeistara Barcelona ekki neitt og að liðið muni spila til sigurs í viðureign liðanna í Meistaradeildinni á morgun. Lið Bremen kom til Barcelona í morgun og æfði á Nou Camp í morgun. 4.12.2006 20:15
Benitez spenntur fyrir hugsanlegri yfirtöku Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, viðurkennir að hann sé spenntur fyrir hugsanlegri yfirtöku International Capital fyrirtækisins frá Dubai á félaginu. Benitez segir mikilvægt fyrir liðið að fá meiri pening til leikmannakaupa. 4.12.2006 19:25
Liverpool staðfestir viðræður Rick Parry, stjórnarformaður Liverpool, hefur staðfest að félagið eigi í viðræðum við Dubai International Capital fyrirtækið um mögulega yfirtöku þess á enska félaginu. Parry segir í yfirlýsingu sem send var út nú síðdegis að nýir eigendur komi með mikla möguleika inn í félagið. 4.12.2006 18:45
Eggert: Argentínumennirnir klára tímabilið hjá West Ham Argentínumennirnir Carlos Tévez og Javier Mascherano munu ekki fara frá West Ham þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar. Þetta heldur Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, fram í viðtali við Sky Sports í dag. 4.12.2006 17:45
Doyle stefnir á markakóngstitilinn Kevin Doyle, hinn funheiti framherji Reading, stefnir á að enda tímabilið í hópi markahæstu manna ensku úrvalsdeildarinnar. Eftir gott gengi að undanförnu er hann orðinn markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. 4.12.2006 17:00
Baros vantar mikið upp á sjálfstraustið Milan Baros getur orðið frábær fyrir Aston Villa – ef hann nær að vinna aftur upp sjálfstraustið sem hann hefur skort svo mánuðum skiptir. Þetta segir Martin O´Neill, stjóri Villa. 4.12.2006 16:15
Saha segir Ferguson hafa bjargað ferli sínum Louis Saha, framherji Manchester United, hefur greint frá því að hann hafði komist mjög nálægt því að leggja skóna á hillunna fyrir ekki löngu síðan en að Alex Ferguson hefði fengið hann ofan af því með sínum sannfæringarkrafti. 4.12.2006 15:45
Formaður KSÍ: Halldór gefur ekki kost á sér Halldór B. Jónsson, varaformaður KSÍ, ætlar ekki að gefa kost á sér til formanns, en kosið verður um hver hreppir embættið á ársþingi sambandsins í febrúar. Enn sem komið er hefur aðeins Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, gefið kost á sér. 4.12.2006 15:15
Þetta er maðurinn sem vill kaupa Liverpool Á myndinni hér til hliðar sést Mohammad bin Rashid Al Maktoum, krónprins Dubai, og maðurinn sem stendur á bakvið yfirtökutilboð Dubai International Capital á Liverpool. Ef forráðamenn Liverpool samþykkja tilboð Maktoum er ljóst að það mun kveða við nýjan tón í flóru erlendra eigenda félaga í ensku úrvalsdeildinni. 4.12.2006 14:30
Henry tjáir sig um meiðslin og Wenger Thierry Henry staðfesti nú í hádeginu að hann yrði frá út árið vegna meiðsla á hálsi. Hann sagði jafnframt að ekkert væri til í fregnum um ósætti milli hans og Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal. 4.12.2006 13:45
Við munum vinna Werder Bremen Leikmenn Barcelona munu mæta sigurvissir til leiks gegn Werder Bremen í viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn, þrátt fyrir að hafa aðeins náð 1-1 jafntefli gegn Levante um helgina. Leikurinn er hreinn úrslitaleikur um hvort liðið fer áfram í 16-liða úrslit og nægir Bremen annað stigið í leiknum. 3.12.2006 21:30
KR tapaði óvænt í Hveragerði Skallagrímur komst upp að hlið KR og Snæfells á topp Iceland Express-deild karla í körfubolta eftir tiltölulega auðveldan sigur á Þór á Þorlákshöfn í kvöld, 98-80. Á sama tíma tapaði topplið KR fyrir Hamar/Selfoss í Hveragerði, 83-69. Fjórir leikir voru á dagskrá í kvöld. 3.12.2006 20:48
Drogba ætlar að verða bestur á Englandi Didier Drogba, framherji Chelsea, skortir ekki sjálfstraust. Í dag lýsti hann því yfir að markmið hans á tímabilinu væri að verða besti framherji Bretlandseyja. Drogba, sem spilað hefur frábærlega það sem af er leiktíð, segist enn eiga mikið inni. 3.12.2006 20:45
Real einu stigi á eftir Barcelona Real Madrid heldur áfram að saxa á forskot Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta og eftir 2-1 sigur liðsins á Atletico Bilbao í kvöld munar nú aðeins einu stigi. David Beckham og Ronaldo komu inn á í hálfleik hjá Real í kvöld og breyttu gangi leiksins. 3.12.2006 20:01
Sýningin Skeifnasprettur 2006 lauk í dag Skeifnasprettur 2006 lauk í dag í Ölfushöllinni og var mikið um skemmtilegar uppákomur. Sýnd var heitjárning á stærsta hesti Íslands, minnsti hestur Íslands fékk álímda skó og voru þeir svo sýndir í reið strax á eftir. Hans og Gréta, móðurlausu tvíburafolöldin frá Feti, 3.12.2006 19:32
Ólafur með þrjú í sigri Ciudad Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Ciudad Real sem lagði danska liðið GOG af velli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag, 33-28. Þetta var fyrri viðureign liðanna. 3.12.2006 19:15
Grétar spilaði í stórsigri AZ Grétar Steinsson lék allan leikinn en Jóhannes Karl Guðjónsson var allan tímann á varamannabekknum þegar AZ Alkmaar burstaði Excelsior 5-0 í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 3.12.2006 19:00
Hvað er í gangi á milli Wenger og Henry? Það ríkir undarlegt ástand í herbúðum Arsenal um þessar mundir og orðrómurinn um ósætti milli fyrirliðans Thierry Henry og stjórans Arsene Wenger fer vaxandi. Wenger hefur nú gefið í skyn að Henry muni ekki spila meira á árinu, þrátt fyrir að hann sé heill heilsu, og að hann muni ekki koma neinn leikmann í janúar. 3.12.2006 18:30
West Ham tapaði fyrir Everton Eggert Magnússon og lærisveinar hans í West Ham máttu þola 2-0 tap gegn Everton í leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Bjarni Þór Viðarsson var í leikmannahópi Everton en fékk ekki tækifærið að þessu sinni. 3.12.2006 17:57
Óvænt tap HK gegn Stjörnunni HK missti af gullnu tækifæri til að komast á topp DHL-deildar karla í handbolta á nýjan leik með því að bíða í lægri hluti fyrir Stjörnunni á heimavelli sínum í dag, 27-30. Haukar lögðu Framara af velli og ÍR-ingar höfðu betur gegn Akureyri. 3.12.2006 17:42
Liverpool tekur á móti Arsenal í bikarnum Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu, þeirri fyrstu sem liðin úr úrvalsdeildinni taka þátt í. Núverandi bikarmeistarar í Liverpool drógust gegn Arsenal nú síðdegis og munu liðin mætast á Anfield í byrjun janúar. 3.12.2006 17:24
Baptista vill spila meira Julio Baptista, brasilíski sóknarmaðurinn sem kom til Arsenal í haust frá Real Madrid, kveðst ósáttur með að fá ekki fleiri tækifæri í byrjunarliði liðsins. Baptista hefur fengið að spila afar lítið síðan hann kom til Arsenal og aðeins skorað eitt mark í vetur. 3.12.2006 16:30
Rikjaard óánægður með nýtingu sinna manna Frank Rikjaard, þjálfari Barcelona, skaut föstum skotum að leikmönnum sínum í samtali við spænska fjölmiðla eftir jafntefnisleikinn gegn Levante í gær og gagnrýndi þá fyrir að nýta færin ekki nægilega vel. 3.12.2006 16:00
Vince Carter var maður næturinnar Vince Carter hjá New Jersey var maður næturinnar í NBA-körfuboltanum en hann skoraði 41 stig og var maðurinn á bakvið 112-107 sigur liðs síns á Philadelphia. Þetta var það mesta sem Carter hefur skorað í einum leik í ár. 3.12.2006 15:15
Faðir leikmanns fékk hjartaáfall og lést Hörmulegt atvik átti sér stað í viðureign Tenerife og Ponferradina í spænsku 2. deildinni í gær þegar faðir eins leikmanns Tenerife fékk hjartaáfall er hann horfði á leikinn úr áhorfastúkunum og lést. 3.12.2006 14:45
Nýtt upphaf fyrir Bellamy Craig Bellamy gæti orðið eins og nýr leikmaður fyrir Liverpool eftir að hans persónulegu vandamál eru nú úr sögunni, að sögn Rafael Benitez, stjóra liðsins. Bellamy var hreinsaður af ákærum um líkamlegt ofbeldi í vikunni og hélt upp á áfangann með því að skora tvö mörk gegn Wigan í gær. 3.12.2006 14:15
Southgate æfur út í Ronaldo Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough, sakaði portúgalska vængmanninn Cristiano Ronaldo hjá Man. Utd. um að vera svindlara eftir viðureign liðana í gær. Ronaldo fiskaði vítaspyrnu í fyrri hálfleik með því sem virtust vera leikrænir tilburðir. 3.12.2006 13:30
Kvennalandsliðið hafnaði í 3. sæti Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hafnaði í 3. sæti í undanriðli sínum fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta eftir góðan fimm marka sigur á Ítölum í morgun, 30-25. Rúmenía hafnaði í efsta sæti riðilsins og komst áfram í lokakeppnina. 3.12.2006 13:14
Houllier bætti eigið met í Frakklandi Lyon setti nýtt stigamet í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær þegar liðið lagði Le Mans af velli 1-0. Lyon, meistarar síðustu fimm ára, hafa unnið 14 af fyrstu 16 leikjum sínum í deildinni og bættu þannig 20 ára gamalt met Paris St. Germain sem þá vann 13 af fyrstu 16 leikjum sínum, einmitt undir stjórn Gerard Houllier, núverandi stjóra Lyon. 3.12.2006 13:00
Hans og Gréta í Ölfushöll í dag, sunnudag Búið er að setja upp sér stíu fyrir móðurlausu folaldstvíburana frá Feti þau Hans og Grétu á sýningunni Skeifnaspett sem haldin er nú um helgina í Ölfushöll á Ingólfshvoli. Hans og Gréta eru undan Árna Geir frá Feti og Skák frá Feti en merin féll frá folöldunum aðeins nokkrum dögum eftir að þau fæddust. 3.12.2006 09:16
Barcelona náði aðeins jafntefli Barcelona fór illa að ráði sínu gegn Levante í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og varð að láta sér lynda jafntefli, 1-1. Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn fyrir Barcelona og náði ekki að seta mark sitt á leikinn. 2.12.2006 21:01
Slæmt tap Viggó og félaga Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska handknattleiksliðinu Flensborg reið ekki feitum hesti frá heimsókn sinni til Celje Lasko í Meistaradeildinni í kvöld og tapaði stórt, 41-31. 2.12.2006 20:15
Mikilvægur sigur Man. Utd Manchester United þurfti að hafa mikið fyrir 2-1 sigri á Middlesbrough í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem lauk nú undir kvöld. Það var Darren Fletcher sem skoraði sigurmark leiksins og tryggði Man. Utd. sex stiga forystu á toppi úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar. 2.12.2006 19:40
Eiður stefnir á sigur í HM félagsliða Eiður Smári Guðjohnsen hjá Barcelona segir að hann og samherjar sínir stefni á sigur í Heimsmeistarakeppni félagsliða sem hefst í Japan þann 10. desember næstkomandi. 2.12.2006 19:30
Wenger hrósar ungu leikmönnunum Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósaði ungu leikmönnunum sínum í hástert eftir sigurinn gegn Tottenham fyrr í dag. Í fjarveru Thierry Henry, Philippe Senderos og William Gallas þurfti Wenger að stilla upp afar ungu liði sem þjálfarinn segir að hafi staðist allar sínar væntingar. 2.12.2006 19:15