Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Birgir Leifur áfram Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk fjórða hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina á einu höggi undir pari og er því í á meðal 30 efstu kylfinga á mótinu sem fram fer á Spáni. Tveir hringir eru óleiknir á mótinu og þar komast 30 af 70 efstu kylfingunum á Evrópumótaröðina á næsta tímabili og horfurnar því þokkalegar hjá Birgi. 14.11.2006 16:15
Guardiola leggur skóna á hilluna Fyrrum landsliðsmaður Spánar í knattspyrnu, Josep Guardiola, hefur lagt skóna á hilluna 35 ára gamall. Guardiola lék síðast sem atvinnumaður í Katar og Mexíkó, en hann spilaði lengst af með Barcelona þar sem hann vann spænsku deildina og Evrópukeppnina. Hann spilaði 47 landsleiki fyir Spánverja á árunum 1992-2000. 14.11.2006 16:15
Real kaupir Marcelo Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid hefur nú gengið frá samningi við brasilíska landsliðsbakvörðinn Marcelo og fréttir herma að hann hafi skrifað undir samning til ársins 2103. Marcelo verður ætlað að leysa landa sinn Roberto Carlos af hólmi í stöðu vinstri bakvarðar hjá Real í framtíðinni. Hann gengur formlega í raðir félagsins á morgun ef hann stenst læknisskoðun. 14.11.2006 16:10
De la Hoya og Mayweather berjast í maí Oscar de la Hoya og Floyd Mayweather munu mætast í hringnum þann 5. maí. Þetta staðfesti De la Hoya í samtali við ESPN sjónvarpsstöðina í dag, en bardaga þeirra hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu í mörg ár. Bardaginn verður líklega síðasti bardagi þeirra beggja á ferlinum og líklegt er að báðir fái metupphæð fyrir bardagann, sem fram fer í Los Angeles eða Las Vegas. 14.11.2006 15:38
Enn tapa New York og Boston Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og unnust þeir allir á útivöllum. Cleveland lagði New York í Madison Square Garden, Seattle vann óvæntan sigur á New Jersey og Orlando skellti Boston. 14.11.2006 14:39
Sigurður Jónsson tekur við Djurgården Sigurður Jónsson, fyrrum þjálfari Víkings og Grindavíkur í Landsbankadeild karla, hefur verið ráðinn þjálfari sænska úrvalsdeildarfélagsins Djurgården og tekur formlega við starfi sínu 1. desember nk. Djurgården er sterkt lið og varð t.a.m. sænskur meistari á síðasta ári. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins, en Sigurður er nú kominn hingað til lands eftir að hafa skrifað undir þriggja ára samning við sænska félagið. 14.11.2006 14:21
Gummersbach mætir Medvedi Í dag var dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska liðinu Gummersbach mæta rússneska liðinu Medvedi og Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta danska liðinu GOG. Leikið verður 2. og 10. desember. 14.11.2006 14:08
Verðlaunaafhendingar á uppskeruhátíð hestamanna Uppskeruhátíð hestamanna var haldin hátíðleg um liðna helgi á Broadway, Hótel Íslandi. Húsfyllir var á hátíðinni þar sem Kári Stefánsson var veislustjóri við misjafnan fögnuð gesta. Það var svo Samúel Örn Erlingsson sem sá um kynningar á knöpum ársins. 14.11.2006 09:28
Larsson fer ekki frá Helsingborg Martin O´Neill, stjóri Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni og fyrrum þjálfari sænska framherjans Henrik Larsson, segir algjörlega útilokað að fyrrum landsliðsframherjinn gangi í raðir Aston Villa eða Barcelona í janúar eins og mikið hefur verið rætt undanfarið. 13.11.2006 22:45
Leikstíll Bolton hentar Anelka illa Franski framherjinn Nicolas Anelka segist eiga erfitt með að aðlagast leikstíl Bolton í ensku úrvalsdeildinni og segist ekki finna sig þegar hann þurfi að spila einn í framlínunni. Anelka gekk í raðir Bolton í sumar frá Fenerbahce í Tyrklandi og hefur áður leikið með liðum eins og Arsenal og Real Madrid. 13.11.2006 22:30
Curbishley hefur ekki áhuga á Charlton Alan Curbishley segist ekki hafa áhuga á að snúa aftur til síns gamla félags Charlton í stað Ian Dowie sem sagði starfi sínu lausu í kvöld. Curbishley hefur verið atvinnulaus síðan hann hætti hjá Charlton í sumar eftir 15 ára starf. 13.11.2006 22:15
Grindavík lagði ÍS í framlengdum leik Grindavíkurstúlkur lögðu Stúdínur 64-62 í rafmögnuðum spennuleik í Kennaraháskólanum í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Fyrri hálfleikur var gríðarlega sveiflukenndur, en ÍS skoraði síðustu 5 stigin í fjórða leikhlutanum og tryggði sér framlengingu. 13.11.2006 21:29
Eigum ekki möguleika á titlinum Jose Reina segir að leikmenn Liverpool séu búnir að afskrifa möguleika sína á því að vinna enska meistaratitilinn, en hafi þess í stað sett stefnuna á að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili. 13.11.2006 21:15
Newell verður tekinn inn á teppi á morgun Mike Newell, stjóri Luton í 1. deildinni á Englandi, hefur verið stanslaust í fréttum þar í landi í allan dag í kjölfar karlrembulegra ummæla sinna eftir tap Luton gegn QPR á dögunum. Kona sinnti þar hlutverki aðstoðardómara og sagði Newell að konur ættu ekkert erindi í að dæma "alvöru knattspyrnuleiki." 13.11.2006 20:13
Dowie hættur hjá Charlton Enska úrvalsdeildarfélagið Charlton hefur tilkynnt að Ian Dowie knattspyrnustjóri hafi sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld, en frekari yfirlýsingar er að vænta í fyrramálið. 13.11.2006 20:06
Ætlar að spila þrátt fyrir meiðsli Ísraelski landsliðsmaðurinn Yossi Benayoun hjá West Ham gætti átt á hættu að lenda í ónáð hjá Alan Pardew knattspyrnustjóra, eftir að hann lýsti því yfir í dag að hann ætlaði að spila með landsliði sínu á miðvikudaginn gegn ráðleggingum lækna enska liðsins. 13.11.2006 19:45
Cahill frá í sex vikur Ástralski miðjumaðurinn Tim Cahill hjá Everton verður frá keppni næstu sex vikurnar eftir að hafa meiðst á hné í leik Everton og Aston Villa um helgina. Cahill verður fyrir vikið ekki í liði Ástrala sem mætir Ghana í vináttuleik á Loftus Road á þriðjudaginn. 13.11.2006 18:49
Enn meiðast Börsungar Evrópumeistarar Barcelona hafa orðið fyrir enn einu áfallinu eftir að læknar liðsins tilkynntu í dag að argentínski framherjinn Javier Saviola væri meiddur á læri og gæti ekki leikið næstu 4-6 vikurnar. Það er því ljóst að það verður nóg að gera hjá þeim Eiði Smára Guðjohnsen og Santiago Ezquerro á næstunni, en þeir eru einu tiltæku framherjarnir í leikmannahópi Barcelona í dag. 13.11.2006 18:07
Dregur úr ummælum Berlusconi Andriy Shevchenko, leikmaður Chelsea, hefur dregið úr ummælum Silvio Berlusconi forseta AC Milan um helgina þar sem forsetinn sagði Shevchenko hafa lýst því yfir í samtali við sig að hann langaði að snúa aftur til Ítalíu og spila með Milan. 13.11.2006 18:00
Ívar og Brynjar framlengja við Reading Íslensku landsliðsmennirnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson hafa framlengt samninga sína við enska úrvalsdeildarfélagið Reading. Ívar framlengdi samning sinn við félagið til ársins 2009 og Brynjar Björn til ársins 2008. 13.11.2006 18:00
New York - Cleveland í beinni í nótt Leikur New York Knicks og Cleveland Cavaliers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Mikil ólga er í herbúðum New York líkt og í fyrra og pressan mikil á Isiah Thomas þjálfara, en Cleveland hefur verið í vandræðum með lakari lið deildarinnar það sem af er leiktíðinni. Hægt er að nálgast dagskránna á NBA TV á heimasíðu Sýnar. 13.11.2006 17:15
Boro óskar eftir undanþágu fyrir Southgate Forráðamenn Middlesbrough eru nú að vinna í því að fá undanþágu frá ráðamönnum ensku úrvalsdeildarinnar sem gefur knattspyrnustjóranum Gareth Southgate tímabundið leyfi til að stýra liðinu út leiktíðina. Southgate er enn ekki búinn að verða sér út um B-réttindi til þjálfunar, en þarf raunar að sækja fleiri námskeið en það til að teljast fullgildur knattspyrnustjóri. 13.11.2006 16:45
Leik Hamars og Snæfells frestað Leik Hamars/Selfoss og Snæfells sem fara átti fram á Selfossi í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs. Leikurinn fer þess í stað fram í Hveragerði annað kvöld klukkan 19:15. Einn leikur er á dagskrá hjá konunum í kvöld, þegar Stúdínur taka á móti Grindavík í íþróttahúsi Kennaraháskólans klukkan 19:15. 13.11.2006 16:18
Smith hafnar lánssamningum Alan Smith hefur hafnað tilboðum sem honum bárust um að fara sem lánsmaður frá Manchester United til að koma sér í leikform. Leeds og Cardiff höfðu farið fram á að fá hann að láni í nokkra mánuði, en Smith segist sjálfur ætla að bæta við æfingar sínar til að koma sér aftur í gott form eftir erfið meiðsli. 13.11.2006 15:53
Ronaldo ætlar að spila Cristiano Ronaldo hjá Manchester United virðist ekki ætla að taka undir áhyggjur stjóra síns Alex Ferguson því hann virðist líklegur til að spila með landsliði Portúgal. Ronaldo meiddist á ökkla í deildarleik um helgina og var Alex Ferguson búin að fara þess á leit við landsliðsþjálfara Portúgala að Ronaldo yrði hvíldur fyrir leik gegn Kazakstan á miðvikudag. 13.11.2006 15:48
Van Persie spilar ekki gegn Englendingum Framherjinn efnilegi Robin Van Persie hjá Arsenal verður ekki með landsliði Hollendinga þegar það spilar vináttuleik við Englendinga á miðvikudag, en hann og kona hans eiga von á sínu fyrsta barni. Clarence Seedorf hefur verið valinn í landsliðið í fyrsta sinni í rúm tvö ár, en ekkert pláss er í hópnum fyrir Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid sem skoraði fjögur mörk í deildarleik í gærkvöldi. 13.11.2006 15:43
Rooney yfirheyrður vegna áfloga Enski landsliðsmaðurinn Wayne Rooney hjá Manchester United verður á næstu dögum færður til yfirheyrslu í kjölfar þess að ráðist var á ljósmyndara fyrir utan næturklúbb í Manchester þann 15. október sl. Rooney verður væntanlega ekki handtekinn vegna þessa, en maðurinn hlaut ekki sár eftir árásina. 13.11.2006 15:35
Lennon og Jenas ekki með gegn Hollendingum Tottenham leikmennirnir Jermaine Jenas og Aaron Lennon hafa báðir dregið sig út úr landsliðshópi Englendinga sem mætir Hollendingum á miðvikudaginn vegna meiðsla. Lennon er meiddur á hné, en Kieran Richardson hjá Manchester United leysir Jenas af hólmi þar sem hann er meiddur á kálfa. 13.11.2006 15:31
Birgir Leifur á pari á Spáni Birgr Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á þriðja keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina í dag þegar hann lauk keppni á þremur höggum yfir pari og er því samanlagt á pari vallar. Hann er sem stendur í kring um 30. sætið á mótinu og á góða möguleika á því að komast í gegn um frekari niðurskurð. 13.11.2006 15:25
Solskjær knattspyrnumaður ársins Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United var í gær kosinn knattspyrnumaður ársins í Noregi og landi hans Steffen Iversen hjá Rosenborg var kjörinn besti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar. Þeir Kristján Örn Sigurðsson hjá Brann og Veigar Páll Gunnarsson hjá Stabæk voru valdir í lið ársins í úrvalsdeildinni. 13.11.2006 15:22
Áfall fyrir Barcelona Spánar- og Evrópumeistarar Barcelona urðu fyrir enn einu áfallinu í gær þegar í ljós kom að Argentínumaðurinn Lionel Messi þarf í aðgerð eftir að hafa meiðst í leik Barcelona og Zaragoza í gærkvöldi. Messi er með brákað bein i fætinum og getur ekki spilað með liðinu næstu þrjá mánuðina. 13.11.2006 15:11
Tvíburarnir Hans og Gréta móðurlaus á Feti Á hrossaræktarbúinu Feti fæddust tvíburafolöld fyrir um viku síðan en þau eru undan Árna Geir frá Feti og Skák frá Feti. Skák veiktist heiftarlega eftir að hún kastaði tvíburunum og dó tveimur dögum seinna. Í samtali við Brynjar Vilmundarson sagði hann að nú væri vakað dag og nótt yfir systkinunum 13.11.2006 07:52
Þóroddur og Albert vígja nýja hestasundlaug Stórglæsileg hestasundlaug var opnuð formlega á föstudaginn í Áskoti í Ásahreppi. Það eru hjónin Jakob Þórarinsson og Arnheiður Auðbergsdóttir sem standa að fyrirtækinu Sundhestar ehf sem á og rekur sundlaugina. Það var svo Þóroddur frá Þórodsstöðum sem vígði laugina við mikinn fögnuð viðstaddra. 13.11.2006 07:45
Fimmti sigur LA Clippers í röð LA Clippers vann í nótt fimmta leik sinn í röð eftir tap í fyrsta leiknum þegar liðið skellti New Orleans 92-76 á heimavelli sínum. Þetta var þriðja tap New Orleans í röð, en liðið vann fjóra fyrstu leiki sína í upphafi leiktíðar. 13.11.2006 05:21
Sýning hjá Ronaldinho Brasilíski snillingurinn Ronaldinho undirstrikaði það í kvöld að enginn knattspyrnumaður í heiminum stenst honum snúning þegar hann er í essinu sínu. Hann tryggði Barcelona 3-1 sigur á Zaragoza með því að skora tvö marka liðsins og leggja það þriðja upp. 12.11.2006 22:02
Lehmann dregur sig úr landsliðshópnum Jens Lehmann getur ekki leikið með Þjóðverjum gegn Kýpurbúum í undankeppni EM í næstu viku vegna flensu. Þetta var tilkynnt í dag eftir að markvörðurinn missti af leik Arsenal og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Það verður Robert Enke hjá Hannover sem mun taka sæti hans í liðinu, en Timo Hildebrand hjá Stuttgart verður væntanlega í byrjunarliðinu. Þjóðverjar hafa unnið alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni til þessa. 12.11.2006 23:00
Gravesen skoraði þrennu Danski miðjumaðurinn Thomas Gravesen fór á kostum í dag þegar Glasgow Celtic lagði St. Mirren auðveldlega 3-1 á útivelli í skosku úrvalsdeildinni í dag. Gravesen skoraði þrennu fyrir liðið, en hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir leik Íslendinga og Dana í undankeppni EM í haust. Celtic er með 15 stiga forskot á toppi deildarinnar. 12.11.2006 22:30
Haukar úr leik Karlalið Hauka er úr leik í Evrópukeppninni í handbolta eftir 29-19 tap fyrir Paris Handball á heimavelli sínum í kvöld. Haukar töpuðu fyrri leiknum með 10 marka mun og sáu því vart til sólar í einvíginu. Fyrr í dag féllu Fylkismenn úr Áskorendakeppni Evrópu eftir naumt tap gegn St. Otmar frá Sviss. 12.11.2006 22:20
Grindavík og KR á toppnum Grindvíkingar og KR-ingar sitja á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir leiki kvöldsins, en Snæfell og Njarðvík eiga leik til góða og geta komist upp að hlið þeirra með sigri í næsta leik. KR ingar unnu auðveldan sigur á ÍR í Seljaskóla 81-66 og Grindavík lagði Tindastól á Sauðárkróki 101-82. Þá vann Þór í Þorlákshöfn góðan sigur á Fjölni 97-95. 12.11.2006 21:54
LA Lakers - Memphis í beinni Leikur LA Lakers og Memphis Grizzlies verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld klukkan 2:30. Kobe Bryant er nú kominn á fullt með liði Lakers á ný eftir meiðsli, en hefur þó haft mjög hægt um sig í stigaskorun í síðustu leikjum. 12.11.2006 21:47
Palermo á toppnum Palermo situr í toppsæti ítölsku A-deildarinnar eftir leiki dagsins, en liðið vann 3-0 sigur á Torino í dag. Í kvöld mættust Parma og Inter í æsilegum og dramatískum leik, þar sem Inter tryggði sér sigur á lokamínútunum. 12.11.2006 21:32
Stuttgart á toppinn Stuttgart skellti sér í toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar í Hannover 2-1 á útivelli, eftir að hafa lent undir 1-0. Þetta er í fyrsta sinn í meira en tvö ár sem Stuttgart nær á toppinn í deildinni. 12.11.2006 21:08
Jafnt á Nou Camp í hálfleik Staðan í leik Barcelona og Zaragoza er jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés á Nou Camp í Barcelona. Gestirnir komust yfir með marki frá varnarmanninum Gabriel Milito á 15. mínútu en Ronaldinho jafnaði metin á 30 mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Eiður Smári er í liði Barcelona og hefur átt ágæta spretti í fyrri hálfleiknum. 12.11.2006 21:01
Sigurinn á Liverpool var mjög mikilvægur Arsene Wenger var að vonum ánægður með frammistöðu sinna manna í Arsenal í dag þegar liðið skellti Liverpool 3-0 á Emirates vellinum. Hann sagði sigurinn gríðarlega mikilvægan fyrir sína menn. 12.11.2006 20:49
Powell og Richards best á árinu Frjálsíþróttamennirnir Asafa Powell og Sanya Richards voru í dag útnefnd frjálsíþróttamenn ársins 2006 af Alþjóða Frjálsíþróttasambandinu. Jamaíkumaðurinn Powell jafnaði heimsmeitið í 100 metra hlaupi og vann öll 16 mótin sem hann keppti á í ár og Richards, sem er frá Bandaríkjunum, var sömuleiðis ósigrandi í 400 m hlaupi og sló 22 ára gamalt bandarískt met í kvennaflokki. 12.11.2006 20:33