Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Cisse byrjaður að æfa á ný Franski landsliðsmaðurinn Djibril Cisse mætti á sína fyrstu æfingu hjá liði Marseille í Frakklandi í dag, þar sem hann er sem lánsmaður frá Liverpool. Cisse hefur ekkert geta æft með liðinu síðan hann fótbrotnaði upphitunarleik Frakka gegn Kínverjum í byrjun júní. 20.10.2006 16:15
Arnar og Bjarki semja við FH Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir gerðu í dag eins árs samning við Íslandsmeistara FH í knattspyrnu. Bræðurnir eru 33 ára gamlir og léku sem kunnugt er með uppeldisfélagi sínu ÍA á síðustu leiktíð, þar sem þeir gegndu einnig þjálfarastarfi. 20.10.2006 16:02
Atli og Óskar til KR Eins og fyrst kom fram í Fréttablaðinu í morgun var haldinn blaðamannafundur hjá KR í dag þar sem tilkynnt var að félagið hefði gert þriggja ára samning við þá Atla Jóhannsson frá ÍBV og Óskar Örn Hauksson frá Grindavík. Þessir ungu leikmenn eiga vafalítið eftir að styrkja vesturbæjarliðið verulega fyrir átökin næsta sumar, enda voru þeir tveir eftirsóttustu leikmennirnir á markaðnum í haust. 20.10.2006 15:49
Cattermole semur við Boro Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough hefur framlengt samning sinn við miðjumanninn unga Lee Cattermole til ársins 2010. Cattermole er aðeins 18 ára gamall en er orðinn fastamaður í liði Gareth Southgate eftir að hafa fengið sitt fyrsta tækifæri undir stjóri Steve McClaren á síðustu leiktíð. 20.10.2006 15:15
Tímamótaleikur hjá Paul Scholes um helgina Miðjumaðurinn magnaði Paul Scholes hjá Manchester United kemst í mjög sérstakan hóp manna í sögu Manchester United um helgina þegar liðið tekur á móti Liverpool, en þá verður hann aðeins níundi leikmaðurinn í sögu félagsins til að spila 500 leiki. 20.10.2006 15:02
Villa Park fær ekki nýtt nafn Forráðmenn enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa hafa vísað fregnum breska sjónvarpsins á bug um að endurskíra eigi heimavöll liðsins, Villa Park, og fá honum nafn styrktaraðila. Heimildir breska sjónvarpsins gátu til um að Villa ætti von á tugum milljóna punda frá styrktaraðilum ef Villa Park fengi nýtt nafn að frumkvæði nýja eigandans, Randy Lerner. 20.10.2006 14:59
West Ham í viðræðum vegna Ólympíuleikvangsins Richard Caborn, íþróttamálaráðherra á Englandi, staðfestir í samtali við breska sjónvarpið í dag að úrvalsdeildarfélagið West Ham sé í alvarlegum viðræðum við Ólympíunefndina um að kaupa Ólympíuleikvanginn í London eftir leikana þar í borg árið 2012. 20.10.2006 14:30
Buffon ætlar ekki að fara til Chelsea Umboðsmaður ítalska markvarðarins Gianluigi Buffon segir skjólstæðing sinn ekki ætla að ganga í raðir Englandsmeistara Chelsea í janúar eins og breskir fjölmiðlar hafa haldið fram í dag. Umboðsmaðurinn segir Buffon ekki ætla að fara frá félaginu í janúar, enda hefði hann farið strax frá Juve eftir að liðið féll í B-deildina ef hann hefði ætlað sér það á annað borð. 20.10.2006 14:27
Clippers vann grannaslaginn Los Angeles Clippers lagði granna sína í LA Lakers í leik liðanna á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni, en alls fóru fram átta leikir í nótt. 20.10.2006 14:07
Serbía logar í kynþáttahatri Lögreglan í Belgrad í Serbíu hefur handtekið 152 stuðningsmenn fyrir kynþáttafordóma á leik Rad og Novi Pazar í annari deildinni þar í landi í gær, en þetta var í annað sinn á nokkrum dögum þar sem lögregla þarf að hafa afskipti af stuðningsmönnum vegna kynþáttafordóma í serbneska boltanum. 19.10.2006 22:30
Chelsea kenndi okkur hvernig á að vinna Barcelona Fabio Cannavaro, varnarmaður Real Madrid, segir að liðið ætli sér að nota leik Chelsea í gær sem góða lexíu í því hvernig á að vinna Barcelona fyrir leik spænsku risanna á sunnudaginn, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn. 19.10.2006 22:15
Lakers - Clippers í beinni í nótt Undirbúningstímabilið í NBA deildinni heldur áfram í kvöld og þá verða átta leikir á dagskrá. Grannaslagur Los Angeles Lakers og Los Angeles Clippers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsrásinni á Digital Ísland og hefst hann klukkan tvö í nótt. 19.10.2006 21:56
Suðurnesjaliðin unnu leiki sína Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í kvöld. Suðurnesjaliðin unnu öll fyrstu leiki sína og þá unnu Haukar afar nauman sigur á nýliðum Tindastóls í Hafnarfirði. 19.10.2006 21:44
Arsenal lagði Breiðablik Arsenal vann í kvöld 4-1 sigur á Breiðablik í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Enska liðið vann fyrri leikinn 5-0 hér heima á dögunum og því eru Blikar úr leik. Það var Laufey Björnsdóttir sem skoraði mark íslenska liðsins í kvöld. 19.10.2006 21:16
Góður dagur hjá ensku liðunum Ensku liðin þrjú sem taka þátt í Evrópukeppni félagsliða áttu góðan dag þegar fyrstu leikirnir í riðlakeppninni fóru fram. Newcastle lagði Fenerbahce 1-0 á heimavelli í kvöld með marki frá Antoine Sibierski undir lok leiksins. 19.10.2006 20:55
Auðveldur sigur hjá Flensburg Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska liðinu Flensburg völtuðu yfir makedónsku meistarana í Metalurg Skopje 43-24 í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag og hafa því fullt hús í D-riðli eftir fjóra leiki. Jafnræði var með liðunum framan af, en góð rispa Flensburg um miðjan fyrri hálfleikinn gerði út um leikinn. 19.10.2006 20:08
Schumacher sallarólegur Michael Schumacher segist halda til Brasilíukappakstursins með sama hugarfari og áður, þrátt fyrir að þar verði um að ræða síðustu keppni hans sem ökumanns í Formúlu 1. Hann segist fullkomlega sáttur við að leggja stýrið á hilluna eftir glæstan feril. 19.10.2006 19:34
Tottenham lagði Besiktas Enska liðið Tottenham vann í kvöld auðveldan útisigur á tyrkneska liðinu Besiktas í fyrsta leik liðanna í B-riðli Evrópukeppni félagsliða 2-0. Enska liðið fór afar illa með færi sín í leiknum og hefði sigurinn átt að vera mun stærri. 19.10.2006 18:54
Deildarkeppnin hefst í kvöld með fjórum leikjum Keppni í úrvalsdeild karla í körfubolta hefst með látum í kvöld þegar fjórir leikir eru á dagskrá og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Íslandsmeistarar Njarðvíkur hefja titilvörnina í Seljaskóla gegn ÍR, Keflavík tekur á móti Skallagrími, Fjölnir fær Grindavík í heimsókn og þá taka Haukar á móti Tindastól. 19.10.2006 18:31
McCarthy varð fyrir kynþáttafordómum Enska úrvalsdeildarliðið Blackburn hefur sent evrópska knattspyrnusambandinu kvörtun eftir leik liðsins við Wisla Krakow í dag eftir að suður-afríski framherjinn Benni McCarthy kvartaði yfir ítrekuðum kynþáttaníð mótherja sinna. Hann nafngreindi þar sérstaklega serbneska varnarmanninn Nikola Mijailovic í þessu sambandi. 19.10.2006 18:13
Ég hefði aldrei átt að fara til Williams Íslandsvinurinn Mark Webber í Formúlu 1 hefur viðurkennt að hann hafi gert stór mistök þegar hann ákvað að ganga til liðs við Williams liðið á sínum tíma, en hann ekur í síðasta sinn fyrir liðið í Brasilíu um helgina og gengur þá í raðir Red Bull. 19.10.2006 17:45
Gerrard verður með gegn United Rafa Benitez hefur staðfest að Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, verði með í stórleik liðsins gegn Manchester United á OldTrafford á sunnudaginn. Gerrard var ekki í liði Liverpool sem vann sigur á Bordeaux í Meistaradeildinni í gær vegna meiðsla á læri. Þá verður danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger einnig klár eftir að hafa jafnað sig af meiðslum. 19.10.2006 17:34
Þarf í uppskurð á hásin Spænski landsliðsmaðurinn Asier del Horno hjá Valencia þarf að fara í uppskurð vegna meiðsla á hásin sem hafa haldið honum frá keppni allar götur síðan hann gekk í raðir liðsins frá Englandsmeisturum Chelsea í sumar. Þetta þýðir líklega að hann verði frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði til viðbótar. 19.10.2006 16:55
Blackburn hafði sigur í Póllandi Blackburn vann í dag mikilvægan 2-1 útisigur á Wisla Krakow frá Póllandi í fyrsta leik sínum í E-riðli Evrópukeppni félagsliða. Blackburn lenti undir snemma leiks þegar skot hrökk af Robbie Savage og í netið, en hann jafnaði metin á 56. mínútu og David Bentley skoraði svo sigurmark enska liðsins í blálokin. 19.10.2006 16:46
Wembley opnaður á næsta ári Enska knattspyrnusambandið hefur loksins bundið enda á deilur sínar við verktaka sem standa að byggingu nýja Wembley leikvangsins í Lundúnum og því hefur verið tilkynnt að þetta vandræðamannvirki verði loks opnað formlega í byrjun næsta árs. Sambandið er þó ekki tilbúið að lofa því að úrslitaleikurinn í enska bikarnum geti farið þar fram næsta vor. 19.10.2006 16:15
Risamót á Íslandi í næsta mánuði Aflraunasambandið IFSA mun í næsta mánuði halda keppnina IFSA Sterkasti maður heims hér á Íslandi. Keppnin fer fram dagana 18.-25 nóvember og er hér um að ræða bæði undankeppni og úrslit. Það er Magnús Ver Magnússon, fjórfaldur sterkasti maður heims, sem sér um skipulagningu mótsins. 19.10.2006 15:59
Besiktas - Tottenham í beinni á Sýn Riðlakeppnin í Evrópukeppni félagsliða hefst með látum í dag og er leikur Wisla Krakow og Blackburn þegar hafinn í Póllandi. Leikur tyrkneska liðsins Besiktas og Tottenham hefst klukkan 17:00 og verður hann sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. 19.10.2006 15:30
Fimm leikir í nótt Fimm æfingaleikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA liðna nótt. New Jersey er enn án sigurs eftir fjóra leiki, en Toronto hefur unnið alla fjóra leiki sína á undirbúningstímabilinu. Grannaslagur LA Lakers og LA Clippers verður sýndur beint á NBA TV í nótt klukkan hálf tvö. 19.10.2006 14:42
Barthez er ekki á leið til Chelsea Jose Mourinho hefur hafnað þeim fréttum sem voru á kreiki í enskum miðlum í morgun um að franski markvörðurinn Fabien Barthez væri á leið til Chelsea til að leysa Petr Cech af hólmi. Barhtez lagði hanskana á hilluna fyrir skömmu. 19.10.2006 14:33
Ekkert tilboð á leiðinni að svo stöddu Forráðamenn West Ham hafa alfarið neitað þeim fregnum bresku blaðanna að stutt sé í að Eggert Magnússon kaupi félagið fyrir 75 milljónir punda. Eggert sjálfur sagði í samtali við NFS í dag að hann furðaði sig á vinnubrögðum bresku blaðanna, því hann ætti enn eftir að funda með stjórn félagsins og það væri frumforsenda þess að hægt sé að gera kauptilboð. 19.10.2006 14:23
Leikmenn Reading sleppa við refsingu Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur gefið það út að þeim Stephen Hunt og Ibrahima Sonko hjá Reading verði ekki refsað í kjölfar meiðslanna sem þeir ollu markvörðum Chelsea í leik liðanna um síðustu helgi. Í yfirlýsingu frá nefndinni segir að dómari leiksins hafi séð bæði atvik og ákveðið að gera ekkert í þeim og því verði ekki farið með málið lengra. 19.10.2006 14:19
Samningsbundinn Arsenal til 2014 Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hefur undirritað nýjan samning við Arsenal sem gildir til ársins 2014. Þessi samningur er nokkuð sérstakur fyrir þær sakir að hann er til átta ára, sem er einsdæmi nú á dögum, en þessi ungi knattspyrnumaður hefur verið mjög eftirsóttur af stórliðum Evrópu undanfarið ár. 19.10.2006 14:15
Keflavík lagði Skallagrím í spennandi leik Fyrsta umferð Iceland Express deildarinnar hófst í gær þegar Keflvíkingar mættu Skallagrímsmönnum í íþróttahúsinu við sunnubraut en báðum liðum hefur verið spáð góðu gengi í vetur. Leikurinn var jafn og æsispennandi allan tímann og fór í framlengingu en lyktaði með naumum sigri Keflvíkinga 87-84. 19.10.2006 05:00
Aragones framlengir samning sinn Spænska knattspyrnusambandið hefur nú formlega framlengt samning landsliðsþjálfarans umdeilda Luis Aragones um tvö ár. Áður hafði legið fyrir munnlegt samkomulag um þetta, en forseti knattspyrnusambandsins hefur staðfest að búið sé að skrifa undir. 18.10.2006 22:45
Hefðum átt að vinna stærra Jose Mourinho var mjög sáttur við sigur sinna manna á Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld og sagðist helst ósáttur við að ná ekki að gera út um leikinn fyrr með því að skora fleiri mörk. Hann segist nú hafa sett stefnuna á að halda toppsætinu í riðlinum. 18.10.2006 22:07
Kiel burstaði Hildesheim Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Kiel burstaði Hildesheim á útivelli 34-25 eftir að hafa verið yfir 19-12 í hálfleik og þá vann Nordhorn góðan útisigur á Kronau/Östringen 25-22. Kiel er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi á eftir lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach. 18.10.2006 21:20
Haukastúlkur lögðu HK Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í kvöld. Haukar unnu þar sannfærandi útisigur á HK í Digranesi 26-39. Haukar hafa hlotið 6 stig í 4 leikjum í deildinni en HK hefur aðeins unnið einn leik. 18.10.2006 21:11
Drogba tryggði Chelsea sigur á Barcelona Chelsea vann í kvöld sannfærandi sigur á Barcelona 1-0 í Meistaradeild Evrópu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en náði sér ekki á strik frekar en félagar hans í liðinu og var skipt af velli á 60. mínútu. Didier Drogba skoraði sigurmarkið á 47. mínútu með laglegu skoti og Chelsea er komið í vænlega stöðu í riðlinum með fullt hús eftir þrjá leiki. 18.10.2006 20:34
Mikil óánægja með nýja boltann Mikil óánægja er meðal leikmanna í NBA deildinni með nýja keppnisboltann sem notaður verður í vetur, en þetta er bolti úr gerviefni sem koma á í stað leðurboltans sem notaður hefur verið í 35 ár. Raunar eru það aðeins dýraverndunarsinnar sem eru ánægðir með boltann. 18.10.2006 19:59
Jafnt í hálfleik á Stamford Bridge Nú hefur verið flautað til hálfleiks á Stamford Bridge í leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Ekkert mark er enn komið í leikinn og besta færið átti Didier Drogba hjá Chelsea eftir 15 mínútna leik, en náði ekki að skora. Eiður Smári er í byrjunarliði Barcelona en hefur fengið úr litlu að moða enn sem komið er. 18.10.2006 19:32
Eggert fundar með stjórn West Ham í vikunni Breska dagblaðið Independent greinir frá því í dag að Eggert Magnússon muni funda með forráðamönnum West Ham fyrir helgina þar sem kauptilboð hans í félagið upp á 75 milljónir punda verði tekið fyrir. Því er einnig haldið fram í blaðinu að framtíð félagsins gæti jafnvel ráðist fyrir leik West Ham og Tottenham á sunnudag. 18.10.2006 19:15
Eiður í byrjunarliði Barcelona Nú styttist í að flautað verði til leiks í Meistaradeild Evrópu. Stórleikur kvöldsins er viðureign Chelsea og Barcelona og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona gegn sínum gömlu félögum og tekur við heiðursverðlaunum frá Chelsea fyrir leikinn. 18.10.2006 18:14
Ferdinand verður með gegn Liverpool Sir Alex Ferguson getur væntanlega stillt upp nokkuð sterku liðið í stórleiknum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn, en þeir Rio Ferdinand, Gabriel Heinze og Gary Neville eru allir að verða búnir að ná sér af meiðslum sínum og eru farnir að æfa á fullu. Þá verður Ryan Giggs líka í liði United, en hann missti af Evrópuleiknum í gær vegna veikinda. 18.10.2006 17:30
Sigur á Bordeaux gæfi okkur meðbyr í deildinni Rafa Benitez vonast innilega eftir sigri á franska liðinu Bordeaux í Meistaradeildinni í kvöld og telur að útisigur í kvöld gæfi liði sínu byr undir báða vængi fyrir erfiðan leik við Manchester United í úrvalsdeildinni á sunnudag. Liverpool er aðeins í tíunda sæti í úrvalsdeildinni. 18.10.2006 17:15
Roman Abramovich kemur til Íslands á morgun Milljarðamæringurinn Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur í nægu að snúast þessa dagana. Í kvöld verður hann að venju á sínum stað í stúkunni þegar Chelsea tekur á móti Barcelona í Meistaradeildinni, en á morgun kemur hann hingað til lands og þiggur heimboð Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. 18.10.2006 17:00