Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eiður sæmdur verðlaunum fyrir leikinn í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður sæmdur sérstökum verðlaunum fyrir ár sín hjá Chelsea skömmu fyrir leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. Það verður stjórnarformaðurinn Bruce Buck sem afhendir Eiði verðlaunagripinn, en landsliðsfyrirliðinn vann tvo Englandsmeistaratitla með félaginu áður en hann gekk í raðir Barcelona í sumar. 18.10.2006 15:26
Við erum miklu betri en Chelsea Victor Valdes hefur nú sent liðsmönnum Chelsea góða ögrun fyrir stórleik liðanna á Stamford Bridge í Meistaradeildinni í kvöld, en markvörðurinn ungi sagði Sky sjónvarpsstöðinni í dag að Barcelona væri einfaldlega betra lið en Chelsea. 18.10.2006 15:19
Cleveland malaði Maccabi Cleveland Cavaliers var ekki í vandræðum með ísraelska liðið Maccabi Tel Aviv í æfingaleik liðanna í Ohio í gærkvöldi og vann auðveldan sigur 93-67. Drew Gooden skoraði 21 stig og hirti 8 fráköst, Donyell Marshall skoraði 19 stig og hirti 8 fráköst og LeBron James skoraði 13 stig, gaf 8 stoðsendingar og hirti 8 fráköst í liði Cleveland. 18.10.2006 14:54
Vöxtur Ferrari er helsta afrek Schumacher Fyrrum þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Sir Jackie Stewart, segir að sjö heimsmeistaratitlar séu ekki merkasta afrek Michael Schumacher í Formúlu 1 - heldur sú staðreynd að hann eigi stærstan þátt í að gera lið Ferrari að því stórveldi sem það er í dag. 18.10.2006 14:45
Grannarnir í Liverpool kærðir Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur birt Liverpool og Everton kæru fyrir að hafa ekki heimil á leikmönnum sínum í varaliðsleik þann 10. október sl. Leikmenn liðanna tókust þá á eftir að brotið hafði verið á Jerzy Dudek, markverði Liverpool, en sá brást illa við og lenti í riskingum í kjölfarið. 18.10.2006 14:31
Ísland niður um 8 sæti Íslenska karlalandsliðið fellur um 8 sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun. Íslenska liðið er nú í 95. sæti listans og því á svipuðum stað og í upphafi árs. Brasilíumenn eru enn í toppsætinu, Ítalir í öðru og Frakkar í því þriðja. 18.10.2006 14:28
ÍR 2 lagði Víking/Fjölni í bikarnum ÍR 2 lagði Víking/Fjölni í Austurbergi í kvöld 34-32 í SS-bikarkeppninni í handknattleik. Utandeildarlið ÍR hafði forystu allan leikinn og leiddi í hálfleik 19-14. 17.10.2006 23:45
Einar skoraði 6 fyrir Grosswallstadt Einn leikur fór fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Einar Hólmgeirsson var markahæstur í liði Grosswallstadt með sex mörk þegar liðið gerði jafntefli við Göppingen á heimavelli 27-27. Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyrir Grosswallstadt. 17.10.2006 22:59
Van Nistelrooy og Beckham í sögubækurnar Félagarnir Ruud Van Nistelrooy og David Beckham skráðu nöfn sín í sögubækurnar í kvöld í stórsigri Real Madrid á Steua Búkarest. Beckham spilaði sinn 100. leik á ferlinum í keppninni og þá varð Nistelrooy aðeins þriðji leikmaðurinn til að skora 50 mörk í Meistaradeildinni þegar hann skoraði glæsilegt fjórða mark spænska liðsins. 17.10.2006 22:43
Ferguson hrósar fyrirliðanum unga Sir Alex Ferguson hlóð Wayne Rooney hrósi eftir 3-0 sigur Manchester United á FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í kvöld, en framherjinn ungi tók við fyrirliðabandinu í fyrsta sinn í fjarveru þeirra Ryan Giggs og Rio Ferdinand. 17.10.2006 22:31
Cleveland - Maccabi Tel Aviv í beinni Sjónvarpsleikurinn á NBA TV í kvöld verður mjög áhugaverður því þar etja kappi LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers og ísraelska Evrópustórveldið Maccabi Tel Aviv. Leikurinn hefst klukkan 23 og er sýndur beint á NBA TV á Digital Ísland. 17.10.2006 22:26
Á von á skemmtilegum leik á morgun Jose Mourinho segist eiga von á skemmtilegum leik þegar hans menn í Chelsea taka á móti Barcelona í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. 17.10.2006 22:15
Ánægður með óvænt gengi Celtic Gordon Strachan var að vonum ánægður með sigur sinna manna í Glasgow Celtic á portúgalska liðinu Benfica í Meistaradeildinni í kvöld. Hann segir árangur liðsins til þessa í keppninni framar sínum björtustu vonum. 17.10.2006 22:11
Kennir dómaranum og vallaraðstæðum um tapið Arsene Wenger kennir dómaranum og lélegum vallaraðstæðum um tap Arsenal gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld, en viðurkennir að heimamenn hafi ráðið ferðinni löngum stundum í leiknum. 17.10.2006 21:20
Markasúpa í Meistaradeildinni Það var mikið fjör í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu og menn voru sannarlega á skotskónum á flestum vígstöðvum. Alls voru skoruð 25 mörk í leikjunum 8 í kvöld og það voru leikmenn Porto og Real Madrid sem voru iðnastir við kolann. 17.10.2006 20:36
United yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Leikur Manchester United og FC Köbenhavn er sýndur beint á Sýn og þar hafa heimamenn í Manchester 1-0 forystu með marki frá Paul Scholes. Heimamenn hafa verið miklu betri í hálfleiknum en markvörður danska liðsins hefur farið mikinn. 17.10.2006 19:41
Henry skoraði löglegt mark Brasilíumaðurinn Gilberto var afar óhress með tap Arsenal gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld og sagði dómarann hafa dæmt fullkomlega löglegt mark af félaga sínum Thierry Henry. 17.10.2006 19:10
Arsenal tapaði í Moskvu Arsenal varð að sætta sig við 1-0 tap gegn CSKA Moskva í G-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag. Mark CSKA skoraði Daniel Carvalho í fyrri hálfleik, en leikurinn var mjög fjörugur. Arsenal sótti grimmt að marki CSKA eftir þetta, en bæði lið fengu reyndar dæmd af sér mörk vegna rangstöðu. 17.10.2006 18:25
Mourinho ósáttur við viðbragðstíma sjúkraliða Jose Mourinho gagnrýndi í dag viðbragðstíma sjúkraliða í Reading í kjölfar höfuðkúpubrots markvarðarins Petr Cech í leik Reading og Chelsea um helgina og sagði það hafa tekið hálftíma og koma leikmanninum á sjúkrahús. Talsmenn sjúkrahússins vísa þessu á bug. 17.10.2006 18:07
Íslandsmeistararnir verja titla sína Í dag var haldinn árlegur blaðamannafundur fyrir upphaf leiks í úrvalsdeildum karla og kvenna í körfubolta og þar spá þjálfarar og fyrirliðar allra liða í deildunum í spilin fyrir komandi leiktíð venju samkvæmt. Njarðvík og Haukar munu verja titla sína ef marka má spár í dag. 17.10.2006 17:44
Arsenal undir í hálfleik Arsenal er undir 1-0 gegn CSKA Moskvu í fyrsta leik dagsins í Meistardeild Evrópu. Heimamenn hafa verið mjög sprækir með Brasilíumennina Vagner Love og Daniel Carvalho fremsta í flokki, en það var einmitt sá síðarnefndi sem skoraði mark Moskvu með þrumuskoti úr óbeinni aukaspyrnu. 17.10.2006 17:37
Davenport fer ekki í leikbann Miðvörðurinn ungi Calum Davenport hjá Tottenham fer ekki í leikbann eftir að rauða spjaldið sem hann fékk í leik gegn Aston Villa um helgina var dregið til baka. Davenport fékk dæmda á sig vítaspyrnu í leiknum og var rekinn af velli, en myndbandsupptaka sýndi að dómurinn var út í hött. Þetta eru góð tíðindi fyrir Tottenham, enda er aðeins einn eiginlegur miðvörður leikfær í liðinu í dag. 17.10.2006 17:11
Farinn að vinna á ný Gamla kempan Sir Bobby Robson hefur nú fengið grænt ljós á að byrja að vinna aftur sem ráðgjafi írska landsliðsins í knattspyrnu eftir að hafa gengist undir krabbameinsaðgerð. Robson er 73 ára gamall og hefur misst af fjórum síðustu leikjum Íra vegna veikinda sinna. 17.10.2006 16:00
Eggert hækkar tilboð sitt í West Ham Breska sjónvarpið greinir frá því í dag að hópur fjárfesta undir stjórn Eggerts Magnússonar hafi nú hækkað tilboð sitt í enska úrvalsdeildarfélagið West Ham. 17.10.2006 15:30
Steven Reid frá í fjóra mánuði Miðjumaðurinn Steven Reid hjá Blackburn getur ekki spilað fótbolta næstu fjóra mánuðina eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í baki. Reid meiddist í landsleik Íra og Þjóðverja í byrjun september og getur nú ekki byrjað að spila aftur fyrr en í fyrsta lagi í febrúar á næsta ári. 17.10.2006 14:45
Fjórir leikir í beinni á Sýn í dag Rétt er að minna enn og aftur á knattspyrnuveisluna sem verður á sjónvarpsstöðvum Sýnar í dag og í kvöld, en boðið verður upp á fjórar beinar útsendingar frá Meistaradeild Evrópu. Fjörið hefst með leik CSKA Moskva og Arsenal á Sýn klukkan 16:15. 17.10.2006 14:36
Gerrard verður ekki með gegn Bordeaux Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, getur ekki leikið með liðinu gegn Bordeaux í Meistaradeildinni annað kvöld vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í leiknum gegn Blackburn um helgina. Gerrard fór því ekki með félögum sínum til Frakklands, en vonir standa til um að hann verði búinn að ná sér fyrir leikinn gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. 17.10.2006 14:18
Fjórir leikir í nótt Fjórir leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt. Detroit lagði Utah 90-85 í sjónvarpsleiknum á NBA TV sem sýndur var beint í gærkvöldi. Ronald Murray skoraði 19 stig fyrir Detroit, en hann gekk í raðir liðsins frá Cleveland í sumar. Ronnie Brewer og Carlos Boozer skoruðu 15 stig hvor fyrir gestina. 17.10.2006 09:30
Heiðar náði sér ekki á strik Heiðar Helguson náði sér ekki á strik með Fulham í gær þegar liðið lagði botnlið Charlton 2-1 í ensku úrvalsdeildinni. Heiðar fékk aðeins 5 í einkunn hjá Sky sjónvarpsstöðinni á meðan Hermann Hreiðarsson fékk 6 hjá Charlton. Darren Bent fékk hæstu einkunn Charlton eða 8, en varamaðurinn Claus Jensen hjá Fulham var kjörinn maður leiksins og fékk 9, enda átti hann stóran þátt í sigri liðsins. 17.10.2006 07:30
Ætlar að láta hart mæta hörðu Jens Lehmann hefur gefið sóknarmönnum sem gera sig líklega til að valda sér meiðslum skilaboð í kjölfar meiðsla þeirra Petr Cech og Carlo Cudicini hjá Chelsea um helgina. Lehmann segir að úr því að dómarar ætli ekki að vernda markverði fyrir glæfralegum árásum - verði þeir að verja sig sjálfir. 17.10.2006 03:48
Renault á ekki von á bellibrögðum Ferrari Flavio Briatore, liðsstjóri Renault í Formúlu 1, segist ekki eiga von á því að lið Ferrari beiti bellibrögðum í síðustu keppni ársins í Brasilíu um næstu helgi, en þar þarf heimsmeistarinn Fernando Alonso aðeins eitt stig til að verja titilinn. 16.10.2006 23:00
Hilario er vandanum vaxinn Miðjumaðurinn Joe Cole hjá Chelsea segir að liðið sé ekki á flæðiskeri statt þó þeir Petr Cech og Carlo Cudicini séu meiddir, því þriðji markvörðurinn sé vandanum vaxinn. Hilario heitir sá kappi og gekk í raðir Chelsea í sumar, en hann hefur áður spilað gegn Barcelona í Meistaradeildinni. 16.10.2006 22:15
Páll Axel safnaði mestu fé Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson safnaði mestu fé allra í gær þegar fram fóru úrslitaleikirnir í meistarakeppni KKÍ, en Iceland Express og Lýsing borguðu ákveðnar peningaupphæðir fyrir hverja troðslu og 3ja stiga körfu sem skoruð var í leiknum og rann upphæðin til heyrnadaufra barna. 16.10.2006 21:45
Fulham 2-1 Charlton Tvö mörk á tveimur mínútum gerðu það að verkum að Fulham sigraði grannaslaginn gegn Charlton 2-1 í kvöld. Brian McBride skoraði á 65 mínútu og Claus Jensen á þeirri 67. Jensen kom inn á fyrir Heiðar Helguson. Darren Bent minkaði muninn fyrir Charlton sem eru í miklum vandræðum á botni deildarinnar með þrjú stig. Fulham er í níunda sæti með 12 stig. 16.10.2006 21:00
Cudicini getur ekki spilað gegn Barcelona Ítalski markvörðurinn Carlo Cudicini heilsaði upp á félaga sína hjá Chelsea á æfingu í dag, aðeins 48 tímum eftir að hann rotaðist í leik gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni. Hann segist vonandi verða búinn að ná sér um helgina, en segir ekki möguleika á því að mæta Barcelona í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. 16.10.2006 21:00
Tottenham í miklum vandræðum Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham er nú í gríðarlegum vandræðum með að manna vörnina fyrir leikinn gegn Besiktas í Evrópukeppni félagsliða á fimmtudaginn, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn. Aðeins einn nothæfur miðvörður er í hóp liðsins í dag. 16.10.2006 21:00
Liðið er búið að missa sinn besta leikmann Eiður Smári Guðjohnsen segir að hans menn í Barcelona verði að skora fyrsta markið í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudaginn, því það sé mjög erfitt að lenda undir gegn jafn vel skipulögðu liði og gömlu félögum hans í Chelsea. Hann segist líka vita af hverju Chelsea hefur ekki byrjað mjög vel í ensku úrvalsdeildinni í haust. 16.10.2006 20:45
Ætlar að taka til í liði sínu Roy Keane hefur látið í veðri vaka að hann ætli sér að gera enn frekari breytingar á leikmannahópi sínum á næstu dögum, en lið Sunderland hefur aðeins fengið fjögur stig út úr síðustu fjórum leikjum sínum í deildinni og nálgast nú fallsvæðið. 16.10.2006 20:15
Patrekur og Konráð þjálfa Stjörnuna tímabundið Patrekur Jóhannesson fyrirliði og Konráð Olavsson munu stýra karlaliði Stjörnunnar í handbolta þangað til eftirmaður Sigurðar Bjarnasonar finnst, en Sigurður sagði starfi sínu lausu í gær. Formaður handknattleiksdeildar félagsins staðfesti þetta í samtali við NFS í kvöld, en vonaðist til að ganga frá ráðningu þjálfara í vikunni. 16.10.2006 19:45
Denilson í hópnum hjá Arsenal Brasilíski táningurinn Denilson verður í 18 manna leikmannahópi Arsene Wenger fyrir leikinn gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni á morgun, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 16:15. Denilson er aðeins 18 ára gamall og gekk í raðir enska liðsins frá Sao Paulo í Brasilíu í sumar. 16.10.2006 19:39
Tottenham ætlar ekki á Ólympíuleikvanginn Forráðamenn Tottenham hafa nú hætt við öll áform um að reyna að fá að kaupa Ólympíuleikvanginn í London sem notaður verður á leiknunum árið 2012, því félagið hefur ekki áhuga á að spila á velli sem hefur hlaupabrautir. 16.10.2006 19:15
Íslendingarnir í byrjunarliðum Þeir Hermann Hreiðarsson og Heiðar Helguson verða í byrjunarliðum Charlton og Fulham þegar liðin mætast í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni sem hefst nú klukkan 19. Leikurinn er á heimavelli Fulham, sem er í 12. sæti deildarinnar, en Hermann og félagar í Charlton þurfa nauðsynlega á sigri að halda því liðið er á botninum með aðeins 3 stig. 16.10.2006 18:45
Fjórir leikir í beinni á Sýn á morgun Það verður óvenju mikið um dýrðir á sjónvarpsstöðvum Sýnar í vikunni þegar leikjunum í Meistaradeild Evrópu verða gerð góð skil að venju, en boðið verður upp á fjórar beinar útsendingar á morgun. Þetta er vegna þess að leikur CSKA og Arsenal fer fram nokkru fyrr en aðrir leikir og hefst klukkan 16:15 á morgun. 16.10.2006 18:30
Detroit - Utah í beinni Sjónvarpsstöðin NBA TV heldur áfram beinum útsendingum frá undirbúningstímabilinu í NBA í nótt, en leikur kvöldsins verður viðureign Detroit Pistons og Utah Jazz og hefst leikurinn strax klukkan 23:30 að þessu sinni. 16.10.2006 18:15
Eiður hugsar ekki um að skora á Stamford Bridge Eiður Smári Guðjohnsen er nú að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir viðureign Chelsea og Barcelona á Stamford Bridge á miðvikudagskvöldið. Hann segist væntanlega muni fagna hóflega ef hann nær að skora gegn sínum gömlu félögum, en hefur meiri áhyggjur af vini sínum Petr Cech. 16.10.2006 16:55