Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ferguson ætlar ekki að kaupa Ballack Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist ekki ætla að reyna að kaupa Þjóðverjann Michael Ballack frá Bayern Munchen og segir lið sitt þegar hafa á að skipa sterkum leikmönnum sem spila sömu stöðu. 25.11.2005 15:00
Indiana stöðvaði sigurgöngu Cleveland Tveir leikir voru á dagskrá að kvöldi þakkargjörðardagsins í NBA deildinni í körfubolta í gær. Indiana stöðvaði átta leikja sigurhrinu Cleveland og Los Angeles Lakers unnu góðan sigur á Seattle á heimavelli sínum. 25.11.2005 14:30
Feginn að sleppa við ákæru Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United segist feginn því að nauðgunarákæra á hendur honum hafi verið látin niður falla. 25.11.2005 14:00
George Best er látinn Norður-írska knattspyrnugoðsögnin George Best er látinn á Cromwell sjúkrahúsinu í London. Hann hafði barist fyrir lífi sínu undanfarna daga með alvarlega sýkingu í lungum og var í öndunarvél. Hann hafði ekki komist til meðvitundar í nokkurn tíma og voru vinir hans og ættingjar við hlið hans á spítalanum í gær, þegar læknar gáfu það út að hann ætti skammt eftir. 25.11.2005 13:00
Indiana - Cleveland í beinni Það verður sannkallaður Austurdeildarslagur á dagskrá í NBA deildinni í nótt, en það er viðureign Indiana Pacers og Cleveland Cavaliers. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan eitt eftir miðnætti, en þar má gera ráð fyrir hörkurimmu. 24.11.2005 22:30
Stórt tap hjá Valerenga Árni Gautur Arason og félagar í Valerenga töpuðu 4-0 fyrir Midtjylland í Royal League, eða Skandinavíudeildinni í kvöld. Start, lið Jóhannesar Harðarsonar töpuðu sömuleiðis 4-2 fyrir sænska liðinu Hammarby, þar sem Jóhannes lék 70 mínútur í liði Start. 24.11.2005 21:58
Tap hjá Haukum í lokaleiknum Kvennalið Hauka tapaði síðasta leik sínum í Evrópukeppni félagsliða í kvöld, þegar liðið lá fyrir Ribeira á Sikiley 80-58. Haukar töpuðu því öllum leikjum sínum í þessari frumraun sinni í Evrópukeppni. 24.11.2005 21:15
Enn vinna Njarðvíkingar Fimm leikir fóru fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Njarðvíkingar halda efsta sætinu í deildinni eftir sigur á Snæfelli 103-78 í kvöld og því hefur liðið unnið sjö fyrstu leiki sína. Þá unnu Keflvíkingar góðan sigur á grönnum sínum í Grindavík 108-101. 24.11.2005 20:30
Jafnt hjá Alkmaar og Boro Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough í Evrópukeppni félagsliða. Boro er á toppi riðilsins og er komið áfram í keppninni. Grunnt var á því góða milli Grétars og George Boateng í leiknum og þeir fengu báðir að líta gult spjald fyrir grófar tæklingar hvor á annan. 24.11.2005 19:30
Ashley Cole spilar ekki á árinu Arsenal hefur gefið það út að varnarmaðurinn Ashley Cole geti ekki leikið með liðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót. Cole er fótbrotinn, en vonast var til um að hann yrði klár í slaginn í desember. 24.11.2005 18:30
Lokaleikur Hauka í kvöld Kvennalið Hauka spilar síðasta leik sinn í Evrópukeppninni gegn Ribera á Sikiley í kvöld, en auk þess verða fimm leikir á dagskrá í Úrvalsdeild karla hér heima. 24.11.2005 17:16
Reyndi að kaupa Crouch Stuart Pearce, stjóri Manchester City hefur viðurkennt að hann hafi reynt að kaupa framherjann Peter Crouch frá Southampton á sínum tíma, en hinn langi framherji endaði sem kunnugt er í herbúðum Liverpool. Crouch hefur ekki enn náð að skora í nítján leikjum í vetur, en Pearce telur hann þó vera mjög góðan leikmann. 24.11.2005 17:00
Bobby Robson hefur áhuga á Portsmouth Gamla kempan Bobby Robson er sagður koma til greina sem næsti knattspyrnustjóri Portsmouth, en hann hefur lýst því yfir að hann sé heitur fyrir því að halda áfram að vinna sem knattspyrnustjóri þrátt fyrir að vera kominn vel á áttræðisaldur. 24.11.2005 16:15
Dagar hans eru taldir að mati lækna Læknar á Cromwell-sjúkrahúsinu í London segjast óttast að knattspyrnuhetjan George Best látist af veikindum sínum á næsta sólarhring, en hann hefur verið þungt haldinn undanfarið vegna sýkingar í lungum. "Ástandið er orðið það alvarlegt að við erum hræddir um að hann eigi stutt eftir. Það er lítið sem við getum gert núna," sagði talsmaður lækna sem annast Best. 24.11.2005 15:30
Perrin látinn fara frá Portsmouth Knattspyrnustjórinn Alain Perrin var í dag látinn taka pokann sinn hjá úrvalsdeildarliði Portsmouth eftir aðeins átta mánuði í starfi. Undir stjórn Perrin náði liðið aðeins fjórum sigrum í tuttugu leikjum og þó Perrin hefði stuðning leikmanna, var í dag ákveðið að láta hann fara. Joe Jordan, þjálfari, tekur við liðinu þangað til eftirmaður Perrin verður fundinn. 24.11.2005 15:00
Fyrsti sigur Atlanta Hawks Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA í nótt sem leið og þar bar hæst að Atlanta Hawks vann fyrsta sigur sinn á tímabilinu þegar það skellti Boston. Detroit og San Antonio héldu sínu striki og burstuðu andstæðinga sína. 24.11.2005 13:45
Hvorki reiður né þakklátur Guðjóni Þórðarsyni Það er fáir íslenskir knattspyrnumenn sem státa af eins glæsilegum knattspyrnuferli og Guðni Bergsson. Fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson hefur skráð sögu Guðna sem er ekki ævisaga heldur fótboltasaga, Í bókinni er ferill Guðna rakinn ítarlega frá uppeldinu hjá Val til tímans hjá Tottenham og Bolton. 24.11.2005 08:30
Houston - Phoenix í beinni Leikur Houston Rockets og Phoenix Suns verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan hálf eitt í nótt. Bæði þessi lið hafa átt nokkuð erfitt uppdráttar vegna meiðsla lykilmanna, en Houston mun í nótt reyna að afstýra fimmta tapi sínu í röð. 23.11.2005 22:15
Ensku liðin áfram - Shevchenko skoraði fjögur Ensku liðin Liverpool og Chelsea eru komin áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir leiki kvöldsins og úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan undirstrikaði enn og aftur að hann er einn besti markaskorari heimsins þegar hann afgreiddi Fenerbahce með fjórum mörkum. 23.11.2005 21:45
Eiður getur slegið met Árna í kvöld Átta leikir verða á dagskrá í Meistaradeild Evrópu í kvöld og leikur Liverpool og Betis verður sýndur klukkan 19:30 á Sýn. Viðureign Anderlecht og Chelsea verður í beinni á Sýn Extra á sama tíma, en þar getur Eiður Smári Guðjohnsen slegið met Árna Gauts Arasonar yfir flesta Evrópuleiki ef hann fær að spila í kvöld. 23.11.2005 18:45
Burstuðu Belga 34-22 Íslenska kvennalandsliðið var ekki í teljandi vandræðum með það belgíska með 12 marka mun í undankeppni HM á Ítalíu, eftir að staðan hafði verið 17-11 fyrir Ísland í hálfleik. Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoraði 6 mörk fyrir Ísland og Hanna G. Stefánsdóttir skoraði 5 mörk. 23.11.2005 17:30
Taylor er bara "gervimeistari" Hnefaleikarinn Bernard Hopkins, eða "Böðullinn" eins og hann er jafnan kallaður, segir að andstæðingur sinn Jermain Taylor sé ekkert annað en gervimeistari og ætlar að gersigra hann þegar þeir mætast í hringnum þann 3. desember næstkomandi. 23.11.2005 17:00
Leikmenn Portsmouth vilja halda í Perrin Milan Mandaric, stjórnarformaður Portsmouth, segir að leikmenn liðsins séu allir á einu máli um að Alain Perrin knattspyrnustjóri liðsins eigi að fá frekari tækifæri með liðið þó gengið hafi ekki verið upp á marga fiska undanfarið. 23.11.2005 16:30
Dæmdur í 18 mánaða keppnisbann Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier hjá Middlesbrough var í dag dæmdur í eins og hálfs árs keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi eftir Evrópuleik Middlesbrough og Xanthi þann 29. september síðastliðinn. Xavier var fundinn sekur um að hafa neitt anabólískra stera og er fyrsti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni sem hefur verið fundinn sekur um brot af þessu tagi. 23.11.2005 16:30
Ísland niður um eitt sæti Í dag var birtur nýr styrkleikalisti Alþjóða Knattspyrnusambandsins, en þar hefur íslenska landsliðið fallið um eitt sæti frá því listinn var birtur síðast og situr í 93. sæti listans. Brasilía er sem fyrr í efsta sæti listans, Tékkar í öðru og Hollendingar í því þriðja. Þar á eftir koma Argentína, Frakkland, Spánn, Mexíkó, Bandaríkin og Englendingar eru loks í níunda sætinu. 23.11.2005 16:00
Sítur sambandi við Vodafone á næsta ári Manchester United hefur borið auglýsingar símafyrirtækisins Vodafone síðan árið 2000, en nú er ljóst að samstarfið nær aðeins út sumarið 2006, þegar knattspyrnufélagið mun leita á önnur mið. Talsmenn símafyrirtækisins segja það ætla að einbeita sér að Meistaradeild Evrópu í framtíðinni. 23.11.2005 15:39
Áttundi sigur Cleveland í röð Cleveland Cavaliers vann nokkuð átakalítinn sigur á Boston Celtics í NBA deildinni í nótt, þar sem LeBron James fór á kostum og Dallas Mavericks er einnig á sigurbraut og vann sjötta leikinn í röð. 23.11.2005 15:00
Ívar og félagar á toppinn Reading, lið Ívars Ingimarssonar í ensku fyrstu deildinni, komst í gærkvöld á toppinn þegar það vann góðan 3-0 sigur á Ipswich á útivelli. Ívar var að venju í byrjunarliði Reading og átti stóran þátt í einu marka sinna manna. 23.11.2005 14:15
Hörður á leið til hollenska félagsins Waallwijk Hörður Sveinsson, framherji Keflavíkur, mun að öllum líkindum fara til æfinga hjá hollenska félaginu RKC Waalwijk á næstunni, en hollenska félagið hefur fylgst vel með honum undanfarna mánuði. Guðlaugur Tómasson, umboðsmaður Harðar, segir danska félagið FC Midtjylland einnig hafa sýnt honum áhuga en Hörður æfði með liði félagsins fyrir skömmu. 23.11.2005 13:15
Garðar Gunnlaugsson: Skoska liðið Dunfermline sendi Val í gær tilboð í framherjann Garðar Gunnlaugsson en Garðar hefur verið undir smásjá nokkurra erlendra liða. Málið er á frumstigi en botn gæti fengist í málið fyrir helgi. 23.11.2005 12:00
Vantar reynslumeiri leikmenn í liðið Bjarni Jóhannsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki, segist ætla að reyna að styrkja leikmannahóp sinn umtalsvert fyrir næsta keppnistímabil en Breiðablik vann 1.deildina með yfirburðum í sumar og ætlar félagið sér að tryggja stöðu sína í Landsbankadeildinni á næsta ári. 23.11.2005 11:30
Hjálmar og Jóhannes að framlengja samningana Hjálmar Jónsson og Jóhannes Harðarson munu á næstu dögum ganga frá samningum við félög sín, Hjálmar er á mála hjá Gautaborg í Svíþjóð en Jóhannes hjá norska félaginu Start. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður þeirra beggja, vinnur nú að samningamálum fyrir þá báða. 23.11.2005 11:00
Biður Klitschko afsökunar Hnefaleikafrömuðurinn umdeildi Don King hefur beðið Úkraínumanninn Vitali Klitschko afsökunar á miður fallegum orðum sem hann lét falla í garð Klitschkos í kjölfar þess að hann dró sig úr bardaganum gegn Hasim Rahman. Sömu meiðsli leiddu siðan til þess að Klitschko lagði hanskana á hilluna. 23.11.2005 10:30
Tap fyrir Ítölum í fyrsta leik Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik hóf leik í undankeppni EM á Ítalíu í gærkvöld. Ísland er í riðli með fimm öðrum liðum og komast fjögur efstu liðin áfram í umspilsleiki sem fram fara næsta sumar. Fyrsti leikur íslenska liðsins var gegn heimamönnum í gær og tapaðist með sex mörkum, 19-25. 23.11.2005 10:00
Hodgson hefði viljað halda í Borgvardt Roy Hodgson, fráfarandi þjálfari Viking í Noregi, segist hafa viljað halda Allan Borgvardt í röðum félagsins. Stjórn félagsins vildi ekki hlusta á hann. 23.11.2005 09:00
Asinn á Íslandi kemur á óvart "Það hefur verið gaman að vera á Íslandi, þó það hafi gengið svona upp og ofan í handboltanum. Það er svolítið sláandi hversu mikill hraði er í íslensku samfélagi," sagði Guðmundur Hrafnkelsson, fyrrum landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, en hann leikur nú með liði Aftureldingar í DHL-deildinni og stundar nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands, eftir að hafa búið erlendis um árabil. 23.11.2005 08:45
Fyrri leikurinn á Akureyri KA og rúmenska handknattleiksfélagið Steaua Búkarest hafa komist að samkomulagi um að spila leiki liðanna heima og að heiman. Að því er fram kemur á heimasíðu KA voru einhverjar líkur á því að báðir leikirnir færu fram ytra en af því varð ekki. Fyrri leikur liðanna fer fram á Akureyri 3. desember en síðari leikurinn ytra verður spilaður 11. desember. KA sló út georgíska liðið Mamuli Tbilisi í síðustu umferð. 23.11.2005 08:15
Ekki með Blikum næsta sumar Færeyski varnarmaðurinn Hans Fróði Hansen mun ekki leika með nýliðum Breiðabliks í Landsbankadeildinni næsta sumar þar sem hann hefur ákveðið að gerast spilandi þjálfari hjá liði LÍF í heimalandi sínu. 23.11.2005 07:45
ÍR-ingar bíða og bíða Erindi stjórnar handknattleiksdeildar ÍR til stjórnar HSÍ um að leik ÍR og ÍBV verði seinkað frá 17. desember til 18. desember hefur enn ekki verið svarað. Um fimm vikur eru síðan upprunaleg beiðni var lögð inn. 23.11.2005 07:15
LeBron James sýnir listir sínar Leikur Cleveland Cavaliers og Boston Celtics verður sýndur beint á NBA TV á miðnætti í kvöld. Cleveland er heitasta liðið í NBA í dag og hefur unnið sjö leiki í röð og hefur enn ekki tapað á heimavelli sínum. Þarna gefst körfuboltaunnendum gott tækifæri á að sjá sjálfan LeBron James hjá Cleveland sýna listir sínar, en hann hefur verið sjóðandi heitur undanfarið. 22.11.2005 22:30
Markalaust á Old Trafford Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið. Manchester United náði ekki að leggja vængbrotið lið Villareal á heimavelli sínum og því eru möguleikar liðsins ekki glæsilegir í riðlinum. Bayern Munchen burstaði Rapid Vín 4-0 og Arsenal stal sigrinum gegn Thun í blálokin. 22.11.2005 21:30
Íhugar að fella niður þjóðsöngva á landsleikjum Sepp Blatter, forseti FIFA, segist vera að hugsa um að leggja fyrir stjórn sambandsins tillögu um að leggja niður þann sið að flytja þjóðsöngva fyrir landsleiki í knattspyrnu vegna þeirrar vanvirðingar sem þjóðir séu farnar að sýna hvor annari við flutning söngvanna í dag. 22.11.2005 20:15
Ricky Hatton í besta formi á ferlinum Hnefaleikarinn Ricky Hatton segist vera í besta formi sem hann hafi verið í á ævi sinni og hlakkar til að verja IBF titil sinn gegn Carlos Maussa á laugardagskvöldið, en sá bardagi verður í beinni útsendingu á Sýn. 22.11.2005 20:15
Sex marka tap gegn Ítölum Íslenska kvennalandsliðið tapaði 25-19 fyrir því ítalska í undankeppni EM í kvöld. Staðan var 14-11 í hálfleik fyrir ítalska liðið, sem hafði yfir allan leikinn. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst íslensku stúlknanna með 6 mörk, en Berglind Hansdóttir fór á kostum í markinu og varði 25 skot. Íslenska liðið mætir Belgum á morgun klukkan 16. 22.11.2005 20:00
Stórleikir á Sýn í kvöld Tveir stórleikir verða sýndir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bein útsending frá leik Manchester United og Villareal hefst klukkan 19:30 á Sýn, en klukkan 19:35 fer í loftið bein útsending á Sýn Extra frá leik Barcelona og Werder Bremen. 22.11.2005 19:00