Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Keflavík mætir Fjölni Í dag var dregið í 32-liða úrslit bikarkeppninnar í körfubolta. Tveir af leikjunum verða viðureignir úrvalsdeildarliða, en það eru leikir Keflavíkur og Fjölnis annarsvegar og Skallagríms og ÍR hinsvegar. 22.11.2005 15:00
Ekki hrifinn af Glazer-fjölskyldunni Franski snillngurinn Eric Cantona, sem gerði garðinn frægan með Manchester United á tíunda áratugnum og hefur oft lýst yfir áhuga sínum á að taka við knattspyrnustjórastöðu hjá félaginu, segir að hann myndi ekki koma nálægt félaginu á meðan það er í eigu Glazer-feðga. 22.11.2005 14:30
Framlengdi samning sinn til 2009 Steve McClaren hefur framlengt samning sinn við úrvalsdeildarlið Middlesbrough til ársins 2009, en hann hafði verið orðaður nokkuð við Manchester United og enska landsliðið í framtíðinni. 22.11.2005 14:00
San Antonio lagði Sacramento Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. San Antonio lagði Sacramento á útivelli, Philadelphia lagði New Orleans, Utah sigraði Milwaukee og Golden State vann New Jersey, þar sem Vince Carter meiddist í baki og gat aðeins spilað hálfan leikinn. 22.11.2005 13:30
Leik Birmingham og Bolton frestað Leik Birmingham og Bolton í ensku úrvalsdeildinni, sem fara átti fram í kvöld var frestað vegna þoku á St. Andrews-vellinum í Birmingham. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær leikurinn verður spilaður, en þokan var það þykk að ekki þótti vert að reyna að leika knattspyrnu við þessar aðstæður. 21.11.2005 21:00
Wenger heimtar sigur Arsene Wenger vill ná í öll þrjú stigin á útivelli gegn FC Thun í Meistaradeildinni annað kvöld, þrátt fyrir að Arsenal hafi þegar tryggt sér áframhaldandi þáttöku í keppninni með góðri frammistöðu í undangengnum leikjum. 21.11.2005 19:15
Enn á gjörgæslu og sýnir lítil batamerki George Best liggur enn á gjörgæsludeild Cromwell-spítalans í London, en læknar segja ástand hans stöðugt, hvorki betra né verra. "Blóðprufur sýna ögn skárra ástand á honum, en heilsa hans heilt yfir hefur ekki skánað mikið og það er ákveðið áhyggjuefni," sagði einn læknanna sem annast Best. 21.11.2005 18:15
Vill setja stuðningsmenn United í bann Stuðningsmenn Manchester United eiga yfir höfði sér bann á heimavelli Charlton ef kvörtun þeirra nær fram að ganga eftir atburði helgarinnar. Starfsmaður á vellinum varð fyrir kynferðislegri áreitni frá stuðningsmanni United og þar að auki fóru nokkrir stuðningsmenn liðsins inn á völlinn eftir að leikmenn liðsins höfðu stofnað til mikilla láta við endalínuna þegar þeir fögnuðu marki sínu í leiknum. 21.11.2005 17:15
Verðum að sigra Villareal Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að leikurinn við Villareal í Meistaradeildinni annað kvöld verði að vinnast og treystir á að heimavöllurinn nægi til að koma sínum mönnum áfram. 21.11.2005 16:30
Crouch þarf að vera grimmari Markakóngurinn Ian Rush hefur góð ráð handa Peter Crouch, framherja Liverpool, en hann segir hinn lappalanga Crouch skorta eigingirni og grimmd til að skora mörk í ensku úrvalsdeildinni. 21.11.2005 16:00
Raul meiddur á hné Fyrirliði Real Madrid, framherjinn Raul, er meiddur á hné og verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði. Raul meiddist í tapinu gegn Barcelona um helgina, en forráðamenn Real vona að hann þurfi ekki í aðgerð vegna þessa. Ef allt fer þó á versta veg, gæti það hinsvegar sett strik í reikninginn fyrir þáttöku Raul á HM með Spánverjum næsta sumar. 21.11.2005 15:30
Besta byrjun Clippers í sögunni Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að Los Angeles Clippers lagði Golden State og hefur því unnið átta af fyrstu tíu fyrstu leikjum sínum, sem er besta byrjun í sögu félagsins. 21.11.2005 14:45
Petersson með stórleik Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Alexander Petersson fór á kostum í liði Grosswallstadt og skoraði 12 mörk þegar liðið lagði Minden 29-27 á útivelli. Einar Hólmgeirsson bætti við tveimur mörkum fyrir Grosswallstadt, en Snorri Steinn Guðjónsson var líka frábær í liði Minden og skoraði 9 mörk. 21.11.2005 14:30
Logi skoraði 25 stig fyrir Bayeruth Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson átti mjög góðan leik með liði sínu Bayeruth í þýsku 2. deildinni í gærkvöldi þegar liðið sigraði Heidelberg 91-82. Logi skoraði 25 stig í leiknum. Þá skoraði Jón Arnór Stefánsson 7 stig þegar lið hans Napoli burstaði Rosetu 84-66 í ítölsku úrvalsdeildinni. 21.11.2005 14:15
Útlitið dökkt hjá Ólöfu Maríu Ólöf María Jónsdóttir lék á þremur höggum yfir pari á þriðja keppnisdegi úrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina og er því að samtals 13 höggum yfir pari. Möguleikar Ólafar á því að komast áfram eru því heldur litlir eins og staðan er í dag. 21.11.2005 14:00
Viggó leitar á náðir Patreks Vegna meiðsla þeirra Markúsar Mána Michaelssonar og Jaliesky Garcia, hefur Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari ákveðið að kalla Patrek Jóhannesson aftur inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Morðmönnum um næstu helgi. Patrekur hefur ekki spilað landsleik lengi og hefur átt við erfið meiðsli að stríða. Hann hefur þó sýnt gamla takta við og við með Stjörnunni og skoraði m.a. 13 mörk í síðasta leik. 21.11.2005 13:00
Fram sigraði ÍR Fram vann góðan sigur á ÍR í DHL-deild karla í handbolta í Austurbergi í kvöld, 38-32. Sergiy Serenko skoraði 8 mörk fyrir Fram og Haraldur Þorvarðarson og Jóhann Einarsson skoruðu 7 hvor, en hjá heimamönnum voru þeir Ólafur Sigurjónsson og Andri Númason með sex mörk hvor. HK sigraði FH í Digranesi 29-26. 20.11.2005 21:01
Hitzfeld segir Manchester United hafa boðið sér starf Ottmar Hitzfeld, fyrrum þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segir að forráðamenn Manchester United hafi boðið sér starf hjá félaginu. 20.11.2005 20:15
Eitt Íslandsmet á lokadeginum Meistaramóti Íslands í sundi lauk í Laugardalslauginni í dag, Fjögur Íslandsmet féllu á mótinu, þar af eitt í dag. Sigrún Brá Sverrisdóttir úr Fjölni bætti metið í 200 metra flugsundi þegar hún synti á 2 mínútum 20,23 sekúndum. Örn Arnarsson var ekki með á lokadeginum eftir að hafa þurft á sjúkrahús vegna hjartsláttartruflana eftir keppni á laugardag. 20.11.2005 19:30
Lokadeginum aflýst og Wales sigraði Kylfingarnir Stephen Dodd og Bradley Dredge frá Wales höfðu sigur á heimsbikarmótinu í golfi sem var blásið af í dag vegna veðurs. Þetta var í annað skipti sem Wales vinnur sigur á mótinu, en síðast gerðist það fyrir um 20 árum síðan. Englendingarnir Luke Donald og David Howell urðu í öðru sæti á mótinu. 20.11.2005 19:30
Chelsea kaupir ungling á metfé Ensku meistararnir Chelsea gengu í dag frá kaupum á serbneska varnarmanninum Slobodan Rajkovic frá OFK Belgrad á metfé, 3,5 milljónir punda. Þetta er hæsta upphæð sem greidd hefur verið fyrir leikmann undir 18 ára aldri. Fjöldi stórliða í Evrópu hefur lengi verið á höttunum eftir Rajkovic, sem er fastamaður í U-21 árs liði Serbíu og Svartfjallalands. 20.11.2005 19:12
Næsti sólarhringur sker úr um framhaldið Knattspyrnugoðið George Best liggur enn þungt haldinn á Cromvell sjúkrahúsinu í London með sýkingu í lungum. Læknar gáfu það út nú fyrir stundu að væntanlega kæmi í ljós á næstu 24 tímum hvort Best lifði raunina af, en hann er í öndunarvél og er í bráðri lífshættu. Fjölskylda hans dvelur nú öll hjá honum á sjúkrahúsinu, en Best hefur ekki komið til meðvitundar í nokkurn tíma. 20.11.2005 19:00
Stórsigur Fiorentina á Milan Fiorentina skaust í annað sæti ítölsku A deildarinnar í dag, þegar liðið vann stórsigur á AC Milan, 3-1. Ítalski landsliðsmaðurinn Luca Toni skoraði tvö marka Fiorentina, sem er í öðru sætinu ásamt Milan eftir sigurinn. Juventus hefur enn fimm stiga forskot í deildinni eftir sannfærandi 4-1 sigur á Roma í gær. 20.11.2005 18:55
Ólöf lék betur í dag Ólöf María Jónsdóttir lék annan hringinn á úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina í golfi á þremur höggum yfir pari í dag og er því alls á tíu höggum yfir pari. Ólöf lék hringinn í dag á 76 höggum og er í 62.-67. sæti, en 50 bestu kylfingarnir vinna sér inn þáttökurétt á mótaröðinni á næsta ári. 20.11.2005 18:50
Mayweather stóð við stóru orðin Hnefaleikarinn Floyd Mayweather stóð við stóru orðin í gær og lumbraði auðveldlega á Sharmba Mitchell, en það tók hann aðeins sex lotur að láta dómarann stöðva bardagann, svo vel saumaði hann að andstæðingi sínum. Mayweather hefur unnið alla 35 bardaga sína á ferlinum. 20.11.2005 18:30
Woods sigraði í bráðabana Tiger Woods vann sjöunda golfmót sitt á árinu í nótt þegar hann tryggði sér sigur í bráðabana á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fór í Japan. Woods og heimamaðurinn Kaname Yokoo voru efstir og jafnir á 8 höggum undir pari eftir lokahringinn, en Woods tryggði sér sigurinn með öruggu golfi í bráðabananum eftir að hafa verið klaufi á síðustu holunum á lokahringnum. 20.11.2005 18:15
Baráttusigur Middlesbrough Middlesbrough vann 3-2 baráttusigur á Fulham á heimavelli sínum í dag, í síðari leiknum í ensku úrvalsdeildinni. Boro lenti tvisvar undir í leiknum en náði að tryggja sér sigurinn í lokin með marki Jimmy Floyd Hasselbaink. 20.11.2005 18:00
Cleveland vann sjöunda leik sinn í röð Cleveland Cavaliers vann sigur á Philadelphia 76ers í NBA í nótt í æsilegum leik sem endaði 123-120 fyrir Cleveland. Larry Hughes hjá Cleveland og Allen Iverson hjá Philadelphia skoruðu báðir 37 stig í leiknum, en LeBron James náði þrennu með 36 stigum, 11 fráköstum og 10 stoðsendingum. 20.11.2005 17:45
Við vorum óheppnir Martin Jol, stjóri Tottenham var ekki sáttur við að missa leikinn gegn West Ham niður í jafntefli á síðustu andartökunum í dag, en liðin skildu jöfn á White Hart Lane 1-1. 20.11.2005 17:30
Auðveldur sigur Premat Frakkar héldu sigurgöngu sinni áfram á heimsmeistaramótinu í kappakstri um helgina, þegar Malasíukappaksturinn fór fram. Alexandre Premat, sem var annar í rásröðinni í morgun, vann sprettkeppnina og vann svo auðveldan sigur í aðalkeppninni eftir að hafa haldið forystunni í 30 hringi. 20.11.2005 16:15
Ferdinand tryggði West Ham stig Anton Ferdinand tryggði West Ham stig á elleftu stundu gegn Tottenham í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Mido kom heimamönnum í Tottenham yfir á 16. mínútu, en Ferdinand jafnaði leikinn á síðustu andartökunum í uppbótartíma. 20.11.2005 15:00
NBA karfan, Hnefaleikar og A1 í beinni San Antonio Spurs og Phoenix Suns, liðin sem börðust í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í fyrra, eigast við í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en auk þessa verður nóg um að vera á sjónvarpsstöðinni Sýn í nótt og í fyrramálið, þar sem boðið verður upp á hnefaleika og kappakstur í beinni útsendingu. 19.11.2005 22:15
Ólafur hafði betur í Íslendingaslagnum Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar í spænska handboltanum, hafði betur gegn Torrevieja 35-27 í dag, en hornamaðurinn Einar Örn Jónsson leikur með Torrevieja. Ólafur skoraði fimm mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti, en Einar Örn skoraði sex fyrir lið sitt, þar af þrjú úr vítum. Ciudad Real er í þriðja sæti deildarinnar, einu stigi frá toppnum, en Torrevieja er í ellefta sæti. 19.11.2005 21:30
Gummersbach sigraði Pfullingen Þrír leikir fóru fram í þýska handboltanum í dag. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach unnu góðan sigur á Pfullingen 30-25, þar sem Guðjón Valur skoraði 7 mörk og Róbert Gunnarsson bætti við 6 mörkum. 19.11.2005 21:00
Anja bætti eigið met Sundkonan Anja Ríkey Jakobsdóttir úr Ægi bætti eigið met í 100 metra baksundi á Íslandsmótinu í sundi í dag. Anja synti 100 metrana á 1 mínútu, 2,81 sekúndu, sem er bæting um 13/100 úr sekúndu. 19.11.2005 20:30
Naumur sigur Hauka Haukar unnu nauman sigur á Víkingi/Fjölni í Grafarvogi í dag 30-28 og komust fyrir vikið í þriðja sæti deildarinnar. Þá vann topplið Vals auðveldan sigur á Selfyssingum 38-27. 19.11.2005 20:00
West Brom burstaði Everton West Bromwich Albion tók lánlaust lið Everton í kennslustund á heimavelli í dag 4-0, en liðið hafði tapað þremur leikjum í röð fyrir leikinn í dag. Nathan Ellington skoraði tvö mörk fyrir West Brom og þeir Neil Clement og Robert Earnshaw gerðu út um leikinn. West Brom lyfti sér í 16. sæti deildarinnar með sigrinum, en Everton situr í því 18. 19.11.2005 19:30
Mayweather drjúgur með sig Hinn ósigraði Floyd Mayweather er heldur betur drjúgur með sig fyrir bardagann við Sharmba Mitchell í nótt og segist vera farinn að hugsa um næsta bardaga, sem væntanlega muni skila honum meiri tekjum en bardagi kvöldsins. WBC belti Mayweather verður ekki undir í bardaganum í kvöld, sem sýndur er í beinni útsendingu á Sýn. 19.11.2005 18:15
Ævintýralegur sigur Leeds Leeds United vann ævintýralegan sigur á Southampton í ensku fyrstu deildinni í knattspyrnu í dag, eftir að hafa verið undir 3-0 í hálfleik. Gylfi Einarsson var ekki með Leeds vegna meiðsla. Ívar Ingimarsson lék allan tímann með Reading sem sigraði Hull 3-1, en Brynjar Björn Gunnarsson kom ekki við sögu. Loks spilaði Jóhannes Karl Guðjónsson allan leikinn fyrir Leicester í 1-0 tapi fyrir Burnley. 19.11.2005 18:00
Njarðvíkingar meistarar Njarðvíkingar tryggðu sér nú rétt í þessu sigur í úrslitaleik Powerade- bikarsins, þegar þeir lögðu KR 90-78. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkinga með 20 stig, en þeir Friðrik Stefánsson og Brenton Birmingham settu 19 stig hvor. Bandaríkjamaðurinn Omari Westley skoraði mest fyrir þá svarthvítu, 28 stig. 19.11.2005 18:00
Chelsea lagði Newcastle Leikjunum fimm sem hófust klukkan 15 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Chelsea sigraði Newcastle 3-0. Joe Cole, Hernan Crespo og Damien Duff skoruðu mörk meistaranna, sem hafa sem fyrr örugga forystu á toppi deildarinnar. Þá gerðist sérstakur atburður í leik Charlton og Manchester United. 19.11.2005 17:00
Stjarnan sigraði ÍBV Einum leik er lokið í DHL-deild karla í handbolta í dag, Stjarnan tók á móti ÍBV í Ásgarði og sigraði 39-36 í miklum markaleik, þar sem jafnt var í hálfleik 19-19. Patrekur Jóhannesson fór á kostum í liði Stjörnunnar og skoraði 13 mörk, en Ólafur Víðir Ólafsson og Goran Kuzmanovdki skoruðu 9 mörk hvor fyrir Eyjamenn. 19.11.2005 16:15
Manchester United leiðir gegn Charlton Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Alan Smith kom Manchester United yfir gegn Charlton á útivelli með marki á 37. mínútu. Liverpool hefur yfir 2-0 gegn Portsmouth, Zenden og Cissé skoruðu mörkin. 19.11.2005 15:45
Ólöf María á sjö yfir á fyrsta hring Ólöf María Jónsdóttir úr golfklúbbnum Keili lék fyrsta hringinn á úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina á sjö höggum yfir pari í dag, eða 80 höggum. Mótið fer fram á La Cala vellinum á Spáni. Ólöf er því nokkuð frá efstu mönnum á mótinu, en leiknir verða fjórir hringir. 19.11.2005 15:30
Tengdur öndunarvél og er í lífshættu Knattspyrnugoðið George Best heldur áfram að berjast fyrir lífi sínu á Cromwell sjúkrahúsinu í London, þar sem hann liggur á gjörgæslu vegna lungnasýkingar. Best var í öndunarvél í nótt og hefur lést um mörg kíló. Eins og staðan er nú hefur honum frekar hrakað og læknar vinna nú hörðum höndum við að reyna að bjarga lífi hans. 19.11.2005 15:15