Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Við megum aldrei hætta að hlusta, segir UNICEF Fjölmargir Íslendingar hafa fengið inn um bréfalúguna, eða fundið á fjölförnum stöðum, dularfullt umslag með áskoruninni um að hringja í símanúmerið 562-6262. Uppátækið er liður í því að Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á Íslandi hefur blásið nýju lífi í neyðarsöfnun sína fyrir börn í Sýrlandi. 31.10.2019 11:15
Nýir samningar um betri lífsgæði í hverri viku Ríkisstjórn Bangladess skrifaði í morgun undir 1,3 milljarða króna samning við Alþjóðabankann um fjármögnun á nýrri vatnsveitu fyrir þrjátíu sveitarfélög í landinu sem kemur til með að bæta lífsgæði 600 þúsund íbúa. 30.10.2019 15:00
UNICEF setur upp barnvæn svæði í flóttamannabúðum Sjö þúsund sýrlenskir flóttamenn, helmingurinn börn, hafa flúið átökin í landinu og haldið yfir í suðurhluta Íraks. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). hefur sett upp barnvæn svæði í flóttamannabúðum og tímabundin kennslusvæði svo börn geti haldið áfram að nýta rétt sinn til menntunar. 29.10.2019 14:30
Stúlka ekki brúður – landssöfnun UN Women á föstudagskvöld Yfir tólf milljónir barnungra stúlkna eru þvingaðar í hjónaband ár hvert. Það þýðir að 23 barnungar stúlkur eru þvingaðar í hjónaband á hverri mínútu. Þessi útbreidda birtingarmynd kynbundins ofbeldis, þvinguð barnahjónabönd, verður í brennidepli á föstudaginn kemur, 1. nóvember, þegar landsnefnd UN Women á Íslandi efnir til landssöfnunar í beinni útsendingu á RÚV. 28.10.2019 14:30
Íslensk stuðningur bætir lífsgæði í útgerðarbænum Tombo Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra vígði á dögunum nýtt reykofnaskýli í fiskimannabænum Tombo í Síerra Leóne sem er hluti af samstarfsverkefni Íslands með þarlendum stjórnvöldum. Ráðherra fór einnig í vettvangsskoðun og kynnti sér metnaðarfullt samstarfsverkefni með UNICEF í vatns-, salernis- og hreinlætismálum. 25.10.2019 10:45
Utanríkisráðherra beiti sér í baráttunni um að stöðva stríð gegn börnum Fulltrúar Barnaheilla – Save the Children – afhentu Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra áskorun í gær um að stöðva stríð gegn börnum. 24.10.2019 17:00
Uppbygging neyðarvarna á áhættusvæðum í Malaví Flóð, þurrkar og fellibyljir hafa kostað ófá mannslíf og mikið tjón í Malaví undanfarin ár. Einn helsti áhersluþáttur samstarfs Rauða kross félaganna á Íslandi og í Malaví um þessar mundir er uppbygging sterkra neyðarvarna á helstu áhættusvæðum. 23.10.2019 12:30
Áhersla lögð á atvinnusköpun í lágtekjuríkjum og aðkomu einkageirans Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti um nýliðna helgi ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington DC. 22.10.2019 10:30
Ísland styður baráttuna gegn fæðingarfistli Örkuml og útskúfun er oft örlög kvenna í fátækum ríkjum, sem fá fæðingarfistil. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hlustaði á dögunum á reynslusögur nokkurra kvenna í Síerra Leóne, en Íslendingar styðja verkefni á vegum Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) í landinu þar sem boðið er upp á meðferð gegn fistli. 17.10.2019 15:45
Neyðarsöfnun fyrir Sýrland hafin af hálfu Rauða krossins á Íslandi Talið er að 11,7 milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda í Sýrlandi vegna harðnandi átaka. Rauði krossinn hefur hafið neyðarsöfnun. Almennir borgara líða mest fyrir átökin, helmingur íbúa hefur yfirgefið heimili sín og ýmist flúið innan Sýrlands eða til annarra landa í leit að öryggi. 17.10.2019 10:15
UNICEF: Vannæring og ofnæring draga úr þroska barna Þriðjungur barna í heiminum yngri en fimm ára – alls um 200 milljónir barna – eru ýmist vannærð eða ofnærð en hvoru tveggja dregur úr möguleikum þeirra til að ná fullum þroska, segir í árlegri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um stöðu barna. 16.10.2019 14:30
Íslendingar styrkja verkefni í Síerra Leóne til að tryggja skólagöngu stúlkna Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tilkynnti í vinnuheimsókn til Síerra Leóne á dögunum um tæplega 20 milljóna króna framlag Íslendinga til verkefnis á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. 15.10.2019 16:30
Aldarafmæli Barnaheilla – Save the Children – helgað börnum á átakasvæðum Alþjóðasamtökin Barnaheill – Save the Children – eru 100 ára á þessu ári. Í tilefni af afmælinu blása samtökin til alþjóðlegs átaks undir yfirskriftinni "Stöðvum stríð gegn börnum“ en rúmlega 420 milljónir barna búa við stríðsástand, eða fimmta hvert barn í heiminum. 15.10.2019 10:00
Stúlkur geta allt - líka breytt heiminum Dagur stúlkubarnsins var víða haldinn hátíðlegur síðastliðinn föstudag, 11. október. Að þessu sinni var þema dagsins: Kraftur stelpna – óskrifaður og óstöðvandi. 14.10.2019 16:00
Sýrland: Óttast að óbreyttum borgurum og börnum sé ekki hlíft Alþjóðaráð Rauða krossins minnir á að þeir sem taka þátt í átökunum í Sýrlandi er skylt samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum að hlífa óbreyttum borgurum og öllum öðrum sem ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum. UNICEF ítrekar kröfu um að börnum – og þeim innviðum sem þau þurfa á að halda – verði hlíft í samræmi við alþjóðalög. 11.10.2019 16:30
Rauði krossinn vinnur gegn blæðingaskömm í Malaví Rauði krossinn hefur um árabil unnið með stúlkum sem búa við sárafátækt á dreifbýlum svæðum í Malaví. Áhersla er lögð á hreinlæti í tengslum við blæðingar og heilbrigði kvenna ásamt því að vinna gegn blæðingaskömm, sem hamar stúlkum á marga vegu. 11.10.2019 11:45
Jemen: Tæplega 300 föngum sleppt úr haldi Í vikunni var 290 einstaklingum sleppt úr haldi í Jemen. Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) og Sameinuðu þjóðirnar leiddu aðgerðina eftir beiðni frá landsnefnd um málefni fanga í Jemen. 2.10.2019 16:00
Mikilvægt að rödd ungu kynslóðarinnar heyrist Esther Hallsdóttir, fyrsti ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. flutti ræðu sína í gær á fundi félags,- mannúðar- og menningarnefndar allsherjarþingsins, þar sem rætt var um félagslega þróun, þar með talin réttindi ungmenna. 2.10.2019 11:15
Viðbótarfjármagn frá SOS Barnaþorpunum til flóttafólks frá Venesúela SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa lagt fram tæpar sjö milljónir króna í viðbótarframlag til aðstoðar við flóttafjölskyldur frá Venesúela í Kólumbíu. Að mati samtakanna hefur ástandið stigversnað undanfarna mánuði. 1.10.2019 15:30
Óttast að tólf milljónir íbúa í sunnanverðri Afríku þurfi matvælaaðstoð Loftslagsbreytingar hafa þegar haft afdrifaríkar afleiðingar í sunnanverðri Afríku en víðs vegar í þeim heimshluta hefur úrkoma ekki verið minni frá árinu 1981. Að mati Samræmingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (UN-OCHA) búa rúmlega 9,2 milljónir íbúa í Afríku sunnan Sahara við alvarlegan matarskort 1.10.2019 12:45
Tvær milljónir barna utan skóla í Jemen Tvær milljónir barna í Jemen ganga ekki í skóla vegna stríðsátakanna í landinu og enn fleiri eru líkleg til þess að flosna upp úr námi, að mati Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). 30.9.2019 13:45
Verkefni vetrarins rædd á fundi nýskipaðs ungmennaráðs heimsmarkmiðanna Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundaði í utanríkisráðuneytinu í gær. Um var að ræða fyrsta fund nýskipaðs ungmennaráðs en þetta er í annað sinn sem skipað er í ráðið. 27.9.2019 10:45
Styðjum börnin og tökum slaginn með þeim "Nú þegar við fögnum 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna skulum við ekki einungis skuldbinda okkur til að hlusta á börn og ungt fólk heldur styðja þau, taka slaginn með þeim og fylgja þeirra fordæmi,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF 26.9.2019 11:30
Háskólar Sameinuðu þjóðanna verði Þekkingarmiðstöð þróunarlanda Þekkingarmiðstöð þróunarlanda verður nýtt yfirheiti skólanna fjögurra sem hafa um langt árabil verið starfræktir sem skólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Skólarnir verða áfram reknir af utanríkisráðuneytinu sem hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. 25.9.2019 16:00
Brýnt að hraða framgangi Heimsmarkmiðanna António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að þrátt fyrir lofsverðan árangur sé mikið verk óunnið við að hrinda heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun í framkvæmd. 25.9.2019 14:15
Greta Thunberg gagnrýndi þjóðaleiðtoga á loftslagsfundinum Almennar umræður á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hefjast í dag að loknum loftslagsfundi samtakanna í gær þar sem "öll augu hvíldu á Greta Thunberg baráttukonunni sextán ára sem dró ekkert af sér í gagnrýni sinni á leiðtogana 24.9.2019 14:30
Leiðtogafundur um loftslagsmál á allsherjarþinginu í dag Leiðtogafundur um loftslagsmál fer fram í dag.á 74. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem stendur nú yfir í New York. Fundurinn er vettvangur ríkja, einkageirans og borgaralegs samfélags til að kynna lausnir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og efla viðnám við loftslagsbreytingum og aðlögun. 23.9.2019 12:45
Landgræðsluskólinn útskrifar á þriðja tug sérfræðinga Ellefu konur og tíu karlar útskrifuðust úr árlegu sex mánaða námi Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Útskriftarhópurinn er sá fjölmennasti til þessa. 20.9.2019 15:45
Barnadauði helmingi minni en í upphafi aldar Fleiri börn og konur lifa af núna en nokkru sinni fyrr. Frá árinu 2000 hefur barnadauði dregist saman um næstum helming og mæðradauði um þriðjung. 20.9.2019 13:00
Verður heimurinn betri? komin út í þriðja sinn Kennslubókin "Verður heimurinn betri?“ er komin út ásamt þýddum og staðfærðum kennsluleiðbeiningum sem sniðnar eru að nemendum í 8.-10. bekk grunnskóla og nemendum í framhaldsskólum. Bókin fjallar um þróunina í heiminum og hefur að leiðarljósi að efla ungt fólk til umræðu um alþjóðasamvinnu og þróunarmál. 20.9.2019 08:45
Lífið víðast hvar erfiðara fyrir stelpur en stráka Þrátt fyrir framfarir í menntun stúlkna eru möguleikar kvenna takmarkaðir vegna félagslegra viðhorfa, lagasetningar sem mismunar kynjunum og kynbundins ofbeldis, samkvæmt skýrslu Gates samtakanna. Það gildir einu hvar barn er fætt, ef barnið er stúlka er lífið erfiðara fyrir hana en stráka. 18.9.2019 10:30
Tólf milljónir barna setjast aldrei á skólabekk Samkvæmt nýrri tölfræðilegri úttekt Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) koma að óbreyttu um tólf milljónir barna aldrei til með að setjast á skólabekk, þar af níu milljónir stelpna. 17.9.2019 12:30
Íslensk sérþekking á sjóeldi í nýju Alþjóðabankaverkefni í Indónesíu Íslendingar taka þátt í nýju verkefni með Alþjóðabankanum í Indónesíu sem á bæði að tryggja matvælaöryggi og auka verðmætasköpun og útflutning á eldisafurðum frá Indónesíu. 16.9.2019 15:45
Alvarleg vannæring ógnar lífi barna í Mósambík Tæplega ein milljón íbúa Mósambík býr við vannæringu og matarskort, þar af 160 þúsund börn yngri en fimm ára. Þetta segir í tilkynningu frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) 16.9.2019 11:15
Fjárfestingar vegna loftslagsbreytinga skila sér margfalt til baka Samkvæmt nýrri skýrslu ráðgjafahóps Sameinuðu þjóðanna eru færð rök fyrir því að aðlögun tengd loftslagsbreytingum geti skilað "þreföldum arði“ með því að takmarka tjón í framtíðinni, skila jákvæðum efnahagslegum ábata með nýsköpun, og skila nýjum félagslegum og umhverfislegum ávinningi. 13.9.2019 13:00
Vísindamenn draga upp dökka mynd af framtíðinni Aukinn ójöfnuður og loftslagsbreytingar draga úr framförum í átt að heimsmarkmiðunum um sjálfbærni og ógna sjálfri tilvist mannsins á jörðinni. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar skýrslu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og framgang heimsmarkmiðanna. 12.9.2019 12:45
Skólatöskugrafreitur fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna Fulltrúar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stilltu upp í vikunni, við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York, 3.758 skólatöskum sem litu út eins og legsteinar. Hver taska táknaði eitt barn sem lést á átakasvæðum á síðasta ári. 11.9.2019 16:15
Samfélagsleg skylda okkar að gera heiminn betri Erindi um ávinning og tækifæri fyrirtækja í því að styðja þróunarsamvinnu voru flutt í gærmorgun, á málstofu tengdri átakinu "Þróunarsamvinna ber ávöxt". Átakið er samstarfsverkefni allra helstu íslensku félagasamtakanna í mannúðarstarfi og alþjóðlegri þróunarsamvinnu, auk utanríkisráðuneytisins. 11.9.2019 10:15
Allt að 200 milljónir til ráðstöfunar til fyrirtækja í þróunarsamvinnu Umsóknir um styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulífið um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, þurfa að berast fyrir miðnætti 15. október 2019. Allt að tvö hundruð milljónir króna verða til ráðstöfunar úr sjóðnum á þessu ári. 10.9.2019 09:15
Hægt að útrýma malaríu fyrir miðja öldina Malaría er einn skæðasti og banvænasti sjúkdómur sem mannkynið hefur glímt við um aldir. Að mati fræðimanna ætti að vera unnt að útrýma malaríu um miðja þessa öld. 9.9.2019 16:00
Málstofa á morgun um þátttöku fyrirtækja í þróunarsamvinnu Markmið málstofu sem haldin verður á morgun er að kynna fyrirtækjum tækifæri og ávinning þess að styðja við alþjóðlega þróunarsamvinnu. Málstofan er hluti af vitundarvakningunni Þróunarsamvinna ber ávöxt og fer fram á Nauthóli. 9.9.2019 10:00
UNICEF: Þriðjungur ungmenna orðið fyrir einelti á netinu Um það bil þriðjungur ungmenna í þrjátíu ríkjum segist hafa orðið fyrir einelti á netinu og fimmtungur segist hafa sleppt því að mæta í skólann af þeim sökum. 5.9.2019 12:15
Sex hundruð börn látin í ebólufaraldrinum í Kongó Tæplega 600 börn hafa látið lífið af völdum ebólufaraldurs í norðausturhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó. Alls hafa 850 börn smitast af þessari banvænu veiru frá því faraldurinn braust út í ágúst 2018 og tala látinna er komin yfir tvö þúsund. 4.9.2019 11:15
Herferðir gegn plastmengun í september Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu (UNRIC) tekur ásamt Evrópusambandinu og fleirum, þátt í strandhreinsunarátakinu #EUBeachCleanUp. 3.9.2019 16:15
Menntun flóttabarna í miklum ólestri Innan við helmingur barna á skólaaldri sem er á flótta fær formlega menntun, segir í nýrri skýsrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Annar hver flóttamaður í heiminum er barn. 2.9.2019 15:00