Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Dömur og herrar, notið almenna skynsemi“ Enginn af þremenningunum sem eltu og sátu fyrir Ahmaud Arbery höfðu tilefni til að framkvæma borgaralega handtöku eftir að þeir sáu blökkumanninn í hverfi þeirra í Brunswick í Georgíu í fyrra. Þeir ákváðu að elta hann „vegna þess að hann var blökkumaður á hlaupum eftir götum þeirra“. 22.11.2021 15:53
Rússneskur aðmíráll segir kafbát NATO hafa verið siglt á Kursk Vyachselav Popov, fyrrverandi aðmíráll í Rússlandi, heldur því fram að kafbátur frá ríki í Atlantshafsbandalaginu hafi valdið því að rússneski kafbáturinn Kursk hafi sokkið árið 2000. Eigin rannsókn Rússa leiddi í ljós að kafbáturinn sökk eftir sprengingu vegna gallaðs tundurskeytis. 22.11.2021 15:19
Biden vill Powell áfram sem seðlabankastjóra Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Jerome Powell seðlabankastjóra Bandaríkjanna til að gegna embættinu annað skipunartímabil. 22.11.2021 14:59
Kanna hvort ökumaðurinn hafi verið á flótta eftir glæp Lögregluþjónar í Waukesha í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsaka hvort maðurinn sem ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í gær hafi verið að flýja vettvang glæps. Minnst fimm dóu og rúmlega fjörutíu er slasaðir eftir að maðurinn ók inn í þvögu fólks. 22.11.2021 14:05
Tilnefnir Andersson sem næsta forsætisráðherra Forseti sænska þingsins hefur tilnefnt Magdalenu Andersson, fjármálaráðherra og nýkjörinn formann sænska Jafnaðarmannaflokksins, sem næsta forsætisráðherra landsins. 22.11.2021 13:05
Segir ofbeldishneigða fávita nýta sér mótmæli Mark Rutte, fráfarandi forsætisráðherra Hollands, segir ofbeldishneigða fávita hafa valdið ofbeldi á óeirðum í landinu um helgina. Ofbeldisfull mótmæli gegn neyðaraðgerðum vegna Covid-19 voru haldin i Hollandi um helgina og kom til ofbeldis milli mótmælenda og lögreglu. 22.11.2021 12:03
Grænlensku „tilraunabörnin“ krefjast bóta frá danska ríkinu Hópur Grænlendinga hefur krafið danska ríkið um skaðabætur vegna félagslegrar tilraunar sem þau voru hluti af sem börn árið 1951. 22.11.2021 11:50
SÞ ítrekað hundsað beiðnir um afhendingu gagna vegna sprengingarinnar í Beirút Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað hundsað beiðnir fjölskyldna þeirra, sem fórust í sprengingunni í Beirút í fyrra, um afhendingu upplýsinga sem myndu hjálpa til við rannsókn málsins. 219 fórust í sprengingunni í ágúst í fyrra og hundruð til viðbótar slösuðust. 22.11.2021 11:50
Unnusta Khashoggi biður Bieber að hætta við tónleika í Sádi-Arabíu Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi sem var myrtur hrottalega af útsendurum krónprins Sádi-Arabíu, hefur biðlað til tónlistarmannsins Justins Bieber að hann blási af tónleika sína í Sádi-Arabíu í næsta mánuði. 22.11.2021 10:28
Þörf á annarri umferð í forsetakosningunum í Chile Enginn hlaut hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fór í Chile í gær og mun því önnur umferð fara fram í næsta mánuði. 22.11.2021 07:40
Fjöldi mótmælir nýjum og ströngum sóttvarnaaðgerðum Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi í Austurríki á miðnætti vegna kórónuveirufaraldursins og er öllum landsmönnum gert að halda sig heima næstu tíu dagana hið minnsta. 22.11.2021 07:00
Fimm látnir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu Fimm eru látnir og rúmlega fjörutíu slasaðir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum. Atburðurinn átti sér stað í borginni Waukesha sem er í grennd við Milwaukee. 22.11.2021 06:40
Einn handtekinn grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, í dag. Hann er grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng í gær. 21.11.2021 23:31
Áttu hálftíma langt símtal við Peng Shuai Forsvarsmenn Alþjóðaólympíunefndarinnar ræddu við kínversku tenniskonuna Peng Shuai í gegn um myndbandssímtal í hálftíma í dag. Ekkert hafði spurst til hennar í þrjár vikur frá því að hún birti færslu á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo þar sem hún sakaði Zhang Gaoli, fyrrverandi varaforseta Kína, um að hafa nauðgað sér. 21.11.2021 22:54
Eiginmaður myrti konu sína með kóbraslöngu Móðir hinnar indversku Uthra fann hana hreyfingarlausa í rúmi sínu. Á vinstri handlegg hennar var blóð og krufning leiddi í ljós að dánarorsök hafi verið snákabit. 21.11.2021 16:51
„Auðvitað er þetta svikamylla“ Sérfræðingur í málefnum Austur-Evrópu segir Hvít-Rússa beita „nýju vopni“ í átökum á landamærunum. Dr. Hilmar Þór Hilmarsson var í viðtali á Sprengisandi í morgun og segir ástandið slæmt. Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur verið sakaður um að nota flótta- og farandfólk sem „peð“ í deilum við Evrópusambandið. 21.11.2021 15:00
Meina ferðamönnum aðgang að eyju á Ítalíu vegna gosóróa Bæjarstjóri eyjarinnar Vulcano, sem er í eyjaklasa í námunda við Sikiley á Ítalíu, hefur beðið fólk að yfirgefa ákveðið svæði á eyjunni vegna gosoróa. Um hundrað og fimmtíu manns búa á svæðinu og ferðamönnum hefur verið meinaður aðgangur að eyjunni allri. 21.11.2021 14:49
Óðagot þegar peningum rigndi yfir hraðbrautina Seðlum hreinlega rigndi á hraðbraut í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær, sem olli því að hraðbrautin lokaðist þegar ökumenn námu staðar og freistuðu þess að ná sér í skjótfenginn gróða. Peningarnir komu úr sendiferðabíl sem virðist ekki hafa verið nægilega vel lokaður. 21.11.2021 14:17
Ekkert lát á Covid-mótmælum í Evrópu Víða hefur verið mótmælt í Evrópu vegna samkomutakmarkana. Þúsundir hafa streymt út á götur í Austurríki, Króatíu og á Ítalíu og mótmælt aðgerðum vegna faraldursins. Í Hollandi var mótmælt bæði á föstudag- og laugardagskvöld. 21.11.2021 11:34
Sýknu í máli Rittenhouse mótmælt víða um Bandaríkin Lögreglan í borginni Portland í Oregon í Bandaríkjunum lýsti því yfir í gærkvöldi að mótmæli í borginni, sem voru til komin vegna sýknu Kyle Rittenhouse, væru orðin að óeirðum. 21.11.2021 08:58
Segja Peng Shuai hafa verið á tennismóti tæpum þremur vikum eftir hvarf hennar Kínverska tenniskonan Peng Shuai, sem ekkert hafði spurst til eftir að hún sakaði fyrrverandi varaforseta Kína um nauðgun fyrr í þessum mánuði, er sögð hafa verið viðstödd tennismót í Kína í dag. Alþjóðlega tennissamfélagið hafði kallað eftir því að kínversk stjórnvöld sýndu fram á að hún væri örugg og á lífi eftir að hún setti ásakanirnar fram á samfélagsmiðlum. 21.11.2021 08:03
Fyrsta andlát af völdum Covid í Grænlandi Eldri maður lést af völdum Covid-19 á Grænlandi í vikunni en hann er sá fyrsti sem deyr vegna veirunnar í landinu. 20.11.2021 23:07
Kominn tími til að ræða skyldubólusetningar af alvöru Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gríðarlegar áhyggjur af mikilli uppsveiflu faraldursins í Evrópu síðustu vikurnar. Svæðisstjóri stofnunarinnar varar við því að 500 þúsund manns geti látist vegna veirunnar í Evrópu fyrir fyrsta ársfjórðung næsta árs og segir tíma til kominn að taka umræðuna um skyldubólusetningar út frá lagalegu og samfélagslegu samhengi. 20.11.2021 22:20
Hundruð Teslu-eigenda sátu fastir vegna bilunar í smáforriti Bilun í smáforriti rafbílaframleiðandans Teslu varð til þess að hundruð Teslu-eigenda gátu ekki startað bílum sínum í gær. 20.11.2021 18:45
Fjórtán ára drengur skotinn í Eskilstuna 14 ára drengur var skotinn í í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af Stokkhólmi, í dag. 20.11.2021 18:07
Sautján látnir og fleiri slasaðir eftir úrhelli á Indlandi Að minnsta kosti sautján eru látnir og fleiri slasaðir eftir gífurlega rigningu í ríkinu Andhra Pradesh á Suður-Indlandi. Úrhelli hefur verið í ríkinu síðan á fimmtudaginn, sem valdið hefur flóðum og hrint af stað aurskriðum. 20.11.2021 11:25
Börn bjartsýnni á betri heim en fullorðnir Niðurstöður nýrrar könnunar UNICEF og Gallup sýna að börn séu bjartsýnni á betri heim en fullorðnir. 21.000 manns, börn og fullorðnir, tóku þátt í könnuninni en hún var framkvæmd í tuttugu og einu landi. 20.11.2021 09:30
Lögregla skaut á Covid-mótmælendur Mótmælendur í hollensku borginni Rotterdam særðust þegar lögregla skaut á þá. Mótmælin í borginni, sem voru til komin vegna fyrirætlana stjórnvalda um að gera atvinnurekendum kleift að meina óbólusettum aðgang að ákveðnum svæðum, breyttust í óeirðir. 20.11.2021 08:42
Biden segist reiður yfir sýknu Rittenhouse Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst reiður yfir því að táningurinn Kyle Rittenhouse hafi verið sýknaður af öllum ákæruliðum á hendur sér í gær. Rittenhouse varð tveimur að bana og særði þann þriðja í óeirðum í borginni Kenosha á síðasta ári, og hafði verið ákærður fyrir morð. 20.11.2021 07:58
Líkti samstöðufundi við aftöku án dóms og laga Kevin Gough, verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery, sagði samstöðufund sem haldin var fyrir utan dómshúsið í Brunswick í Georgíu vera álíka aftöku mannanna þriggja. 19.11.2021 23:00
Krefjast svara um Peng Shuai Alþjóðatennissamband kvenna krefst þess að kínversk stjórnvöld bregðist við ásökunum tenniskonunnar Peng Shuai og að þau leggi fram sannanir um að hún sé örugg og á lífi. Að öðrum kosti muni sambandið ekki mæta til leiks á kínverskri grundu. 19.11.2021 19:21
Rittenhouse sýknaður af öllum ákærum Kyle Rittenhouse hefur verið sýknaður af því að skjóta tvo menn til bana og særa þann þriðja. Kviðdómur í Kenosha í Bandaríkjunum lýsti þessu yfir nú fyrir skömmu. 19.11.2021 18:18
Saka Lúkasjenka um að flytja fólk aftur að landamærunum Yfirvöld í Póllandi segja Hvít-Rússa flytja farand- og flóttafólk í trukkum aftur að landamærum ríkjanna. Verið sé að reyna að þvinga fólkið til að gera tilraun til að fara yfir landamærin. Það gerðist nokkrum klukkustundum eftir að Hvít-Rússar rýmdu búðir fólks nærri landamærunum í gær og virtust flytja fólkið á brott. 19.11.2021 18:00
Skógareyðing í Brasilíu ekki verið meiri í fimmtán ár Eyðing brasilísku regnskóganna hefur ekki verið meiri í heil fimmtán ár samkvæmt opinberum gögnum þar í landi. 19.11.2021 14:37
Heilbrigðisráðherra Þýskalands útilokar ekki allsherjar útgöngubann Stjórnvöld í Þýskalandi segja neyðarástand ríkja í landinu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og útiloka ekki að grípa til allsherjar útgöngubanns líkt og komið hefur verið á í Austurríki. 19.11.2021 12:12
Norðmenn herða á landamærum og biðla til fólks að hætta handaböndum Norsk stjórnvöld kynntu í morgun hertar reglur á landamærum sem fela í sér að frá 26. nóvember munu allir þeir sem ferðast til landsins að skrá sig á síðunni entrynorway.no. 19.11.2021 11:06
Hafa sammælst um að lögleiða neyslu kannabis Þýsku stjórnmálaflokkarnir þrír sem eiga nú í viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar hafa sammælst um að lögleiða almenna kannabisneyslu í landinu. Hingað til hefur neysla kannabis í lækningaskyni einungis verið heimil 19.11.2021 10:08
Hafa borið kennsl á „óþekkta sjómanninn“ Yfirvöldum í Ástralíu hefur tekist að bera kennsl á „óþekkta sjómanninn“; mann sem fórst með HMAS Sydney í seinni heimstyrjöldinni. Líkamsleifar Thomas Welsby Clark voru þær einu sem voru heimtar eftir að skipið sökk en allir um borð, 645 menn, fórust. 19.11.2021 09:03
Hættir við boðaðar breytingar á landbúnaðarkerfinu eftir mótmæli Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hefur tilkynnt að hann hafi dregið þrjú lagafrumvörp til baka – frumvörp sem ætlað var að gera róttækar breytingar á landbúnaðarkerfi landsins. Hörð mótmæli hafa staðið í landinu vegna boðaðra breytinga í um ár. 19.11.2021 08:17
Lögreglan sögð leita Jimmy Hoffa í landfyllingu í New Jersey Bandaríska alríkislögreglan framkvæmdi rannsókn á gamalli landfyllingu í Jersey City í október síðastliðnum, eftir að maður sagðist á dánarbeðinu hafa grafið líkamsleifar verkalýðsforingjans Jimmy Hoffa þar niður í stáltunnu. 19.11.2021 08:15
Öllum Austurríkismönnum gert að halda sig heima í tíu daga og krafa gerð um bólusetningu Stjórnvöld í Austurríki hafa ákveðið að loka samfélaginu í tíu daga vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar í landinu. Öllum landsmönnum, bæði bólusettum og óbólusettum, hefur þannig verið gert að halda sig heima í tíu daga, frá og með næsta mánudegi. Þá verði gerð krafa um bólusetningu frá 1. febrúar næstkomandi. 19.11.2021 07:41
Segja fyrsta tilfellið hafa verið starfsmann markaðarins í Wuhan Fyrsta þekkta tilvik SARS-CoV-2 sýkingar í mönnum greindist hjá konu sem seldi vörur á markaði í Wuhan í Kína en ekki hjá bókara sem hafði engin tengsl við markaðinn, eins og áður var talið. 19.11.2021 07:12
Forseti norska þingsins til rannsóknar hjá lögreglu og segir af sér Lögreglan í Osló hefur til rannsóknar sex þingmenn í Noregi að beiðni ríkissaksóknara. Eva Kristin Hansen, forseti þingsins, hefur staðfest að hún sé þeirra á meðal og hefur sagt af sér. 18.11.2021 23:31
Átján þúsund strandaðir vegna flóðanna Um það bil átján þúsund manns eru strandaðir vegna gífurlegra flóða í Bresku-Kólumbíu í Kanada. Þar af einhverjir á fjöllum en vegir, brýr og hús eyðilögðust í flóðum og aurskriðum í fylkinu eftir að óveður fór þar yfir um síðustu helgi. 18.11.2021 23:13
Sagði Arbery ekki hafa ógnað sér áður en hann miðaði á hann Travis McMichael, sem skaut Ahmaud Arbery til bana, sagði við vitnaleiðslur í dag að Arbery hefði ekki ógnað sér á nokkurn hátt, áður en hann miðaði haglabyssu á hann. McMichael skaut Arbery í febrúar í fyrra eftir að hann skokkaði í gegnum hverfi sem McMichael bjó í. 18.11.2021 21:00