Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kærastan beit eyrað af - hundurinn át það svo Breski matreiðslumaðurinn Trevor Wainman átti sennilega versta dag lífs síns rétt fyrir jól 2009. Samkvæmt frétt á vefnum The Daily Mail var hann að fagna 44 ára afmælinu sínu þegar barþerna gaf honum bjór í tilefni dagsins. 12.2.2011 21:00
Byltingin heldur áfram: Minnsta kosti 300 handteknir í Alsír Að minnsta kosti þrjú hundruð manns hafa verið handteknir í mótmælum í Algeirsborg höfuðborg Alsírs í dag. 12.2.2011 17:01
Mótmælendur handteknir í Alsír - byltingin heldur áfram Lögreglan í Alsír hefur tekið hart á mótmælendum, sem héldu út á götur höfuðborgarinnar í morgun, til að krefjast afsagnar Boutrika forseta. Þó nokkrir hafa verið handteknir. 12.2.2011 12:19
Kona á sjötugsaldri handtekin fyrir kynlífsleik út á götu Franska lögreglan handtók sextíu og þriggja ára gamla konu á fjölfarinni verslunargötu í bænum Carcassone í suðvesturhluta landsins. 12.2.2011 10:13
Enn fjöldi manns á Frelsistorginu í Kairó Ró hefur færst yfir Kairó höfuðborg Egyptalands eftir sigur mótmælenda í gær þegar Hosni Mubarak sagði af sér embætti forseta. Þó nokkur fjöldi fólks er þó enn á Frelsistorginu en fólk er yfirvegað og talar um væntingar sínar fyrir lýðræðislegu Egyptalandi í framtíðinni. 12.2.2011 09:59
Samstaða sýnd á Lækjartorgi Fólk um allan heim efnir í dag til samstöðufunda með íbúum Egyptalands og annarra ríkja Mið-Austurlanda. Hér á landi efnir Íslandsdeild Amnesty International til samstöðufundar á Lækjartorgi klukkan 14. Fólk er beðið um að klæðast svörtu, hvítu eða rauðu, sem eru litir egypska fánans. 12.2.2011 09:30
Margir skutu af byssum upp í loftið Sannkölluð þjóðhátíðarstemning var á Tahrir-torgi í Kaíró og víðar í Egyptalandi í gær, þar sem mannfjöldinn fagnaði því að Hosni Mubarak forseti skyldi hafa látið undan þrýstingi fjöldans og sagt af sér eftir nærri þrjátíu ára valdatíð. 12.2.2011 05:45
Skilnaðurinn reynist Christinu Aguileru dýr Poppdívan Christina Aguilera og dansarinn Jordan Bratman hafa komist að samkomulagi varðandi skilnað þeirra. Staðið hefur styrr um hvað Jordan fengi í sinn hlut en nú liggur fyrir að muni fá helming af eignum söngkonunnar. Þau gerðu ekki með sér kaupmála þegar þau gengu í hjónaband fyrir fimm árum. 11.2.2011 21:00
ElBaradei: Besti dagur lífs míns „Ekki trúði ég að ég myndi lifa þann dag þegar egypska þjóðinn myndi losna undan áratuga kúgun," sagði Mohamed ElBaradei, handhafi friðarverðlauna Nóbels, eftir að ljóst var að Hosni Mubarak hefði ákveðið að láta af embætti forseta Egyptalands. „Þetta er besti dagur lífs míns," sagði ElBaradei ennfremur. Hann er einn af leiðtogum mótmælenda sem undanfarna 18 daga hafa krafist afsagnar Mubaraks. ElBaradei er fyrrverandi yfirmaður Alþjóðakjarnorkueftirlitsins. 11.2.2011 17:25
Mubarak hættir Hosni Mubarak hefur ákveðið að láta af embætti forseta Egyptalands, að því er fram kemur á CNN. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þegar hann tilkynnti ákvörðun sína. 11.2.2011 16:09
Mubarak flúinn með fjölskylduna Óstaðfestar fréttir herma að Hosni Mubarak forseti Egyptalands og fjölskylda hans hafi yfirgefið höfuðborgina Kairó. Lars Lökke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur lýsti því yfir í dag, fyrstur vestrænna leiðtoga, að forsetinn ætti að segja af sér nú þegar. 11.2.2011 13:54
Herinn lofar umbótum Egypski herinn hefur heitið því að aflétta herlögum sem hafa gilt í Egyptalandi í 30 ár ,,þegar núverandi ástandi lýkur" eins og herforingjaráðið orðar það. 11.2.2011 11:53
Sjálfsvíg hafa áhrif á fasteignaverð Hæsta tíðni sjálfsvíga í heiminum er í Japan en þar eru um hundrað sjálfsmorð framin á degi hverjum. Ekki einungis hafa sjálfsvígin augljós tilfinningaleg áhrif á þá sem standa þeim næst heldur fylgja þeim jafnframt oft á tíðum veruleg fjárútlát fyrir fjölskyldur þeirra. Fáir vilja búa í íbúðum þar sem sjálfsvíg hafa verið framin og því telja leigusalar sig eiga kröfur á eftirlifandi aðstandendur vegna þess tekjumissis. 11.2.2011 11:14
Kaíró: Herinn styður valdaframsal Mubaraks Egypski herinn hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að hann styðji þá ákvörðun Mubaraks forseta að sitja áfram en framselja völd sín til Suleimans varaforseta. Búist er við milljónum mótmælenda í Kairó síðar í dag en allt er á suðupunkti í landinu eftir að Hosni Mubarak forseti tilkynnti í sjónvarpsræðu að hann ætlaði ekki að segja af sér fyrr en kosið verður í september. 11.2.2011 10:29
Kínverjar berja á mannréttindafrömuði Kínverskar öryggissveitir réðust inná heimili mannréttindafrömuðarins Chen Guangcheng og konu hans Yuan Weijin og börðu þau til óbóta. 11.2.2011 10:22
Morales forðaði sér frá mótmælendum Foseti Bólivíu, Evo Morales, þurfti að flýja æsta mótmælendur í gær. Morales ætlaði að halda ræðu á minningarathöfn um byltingu sem gerð var í námubænum Ororo á nýlendutímanum en mætti miklum fjölda mótmælenda sem vildu koma óánægju sinni um hækkandi matarverð í landinu til skila. Matarverð hefur hækkað mikið í Bólivíu og hafa mótmæli brotist út víða um landið síðustu daga. 11.2.2011 09:41
Skutu bankaræningja til bana Bandarískur unglingur sem tók gísla þegar bankarán sem hann hugðist fremja fór út úm þúfur var skotinn til bana af sérsveit lögreglunnar í nótt. Lögreglan í Cary í Norður Karólínu segir að hvorki gíslar né lögreglumenn hafi slasast í aðgerðinni, sem sýnd var í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Drengurinn var 19 ára gamall og hafði tekið sjö manns í gíslingu. 11.2.2011 09:11
Lestarræningi á milli heims og helju Einn frægasti ræningi síðari tíma, Ronnie Biggs, sem tók þátt í lestarráninu mikla á Englandi árið 1963 var fluttur á sjúkrahús í nótt eftir að hafa fengið slag. Óljóst er um líðan hans en hann er sagður á gjörgæslu. Sjúkraliðar voru kallaðir að elliheimilinu þar sem Biggs dvelur nú um stundir en hann snéri aftur til Bretlands árið 2001 eftir að hafa verið á flótta í fjörutíu ár. Lengst af lifði hann í vellystingum í Brasilíu. 11.2.2011 09:00
Assange gefi sig sjálfur fram Beatrice Ask, dómsmálaráðherra Svíþjóðar, hvetur Julian Assange, stofnanda Wikileaks, til þess að gefa sig sjálfur fram og mæta til yfirheyrslu í Svíþjóð. 11.2.2011 06:00
Hosni Mubarak situr sem fastast Hosni Mubarak Egyptalandsforseti ætlar að sitja á forsetastóli fram að forsetakosningunum í september. Þetta staðfesti hann í ávarpi til þjóðar sinnar í gærkvöldi. Gekk yfirlýsing hans þvert á staðhæfingar fjölmiðla um að hann ætlaði að stíga niður. 11.2.2011 04:30
Bretar vilja breytingar „Það er ekki okkar að ákveða hver leiðir Egyptaland heldur egypsku þjóðarinnar,“ segir William Hague, utanríkisráðherra Breta. Hann telur þó brýnt að Egyptar ráðist í umfangsmiklar breytingar. Þær þurfi að ná fram með friðsamlegum og lýðræðislegum hætti. Þetta kom fram í máli ráðherrans eftir að ljóst var að Hosni Mubarak mun sitja áfram sem forseti Egyptalands, en fjölmargir bjuggust við því að hann myndi segja af sér í kvöld. 11.2.2011 00:02
NATO reisir glæsibyggingar í Brussel „Það var búið að ákveða þetta fyrir mörgum árum, löngu áður en kreppan skall á," sagði Oana Lungescu, talskona Atlantshafsbandalagsins, um nýju höfuðstöðvarnar sem reistar verða í Brussel. 10.2.2011 20:30
Súdan: Nýtt ríki verður stofnað í júlí Súdan verður formlega skipt í tvö ríki, Norður- og Suður-Súdan, 9. júlí næstkomandi. Yfirgnæfandi meirihluti íbúa Suður-Súdans, um 98,8 prósent, greiddi aðskilnaðinum atkvæði sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu. 10.2.2011 20:00
Talið að Mubarak tilkynni um afsögn Búist er við að Hosni Mubarak tilkynni um afsögn sína sem forseti Egyptalands í sjónvarpsávarpi klukkan 20 að íslenskum tíma. 10.2.2011 19:08
Mubarak segir hugsanlega af sér í kvöld Erlendir fjölmiðlar segja mögulegt að Hosni Mubarak, forseti Egyptlands, muni segja af sér í dag. Þetta kom fram í máli Hossan Badrawi, framkvæmdastjóri NPD flokksins í ríkissjónvarpi Egyptalands. 10.2.2011 15:48
Sex fórust í flugslysi Að minnsta kosti sex fórust þegar lítil farþegaflugvél hrapaði nálægt Cork á Írlandi í dag. Vélin var að koma frá Belfast þegar hún lenti í mikilli þoku. Flugmaðurinn gerði tvær tilraunir til að koma inn til lendingar en hætti við sökum þokunnar. 10.2.2011 13:50
Segir ásakanir viðbjóðslegar „Þetta er skammarlegt og viðbjóðslegt,“ sagði Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, um málatilbúnað saksóknara gegn sér. 10.2.2011 11:00
Sáust síðast á ferju til Korsíku Leitin að sex ára tvíburasystrum frá Sviss barst í gær til Korsíku og sunnanverðrar Ítalíu, eftir að staðfesting fékkst á því að þær hefðu verið um borð í ferju til Korsíku fjórum dögum áður en faðir þeirra svipti sig lífi á Ítalíu. 10.2.2011 10:00
Gabrielle Giffords farin að tala - bað um ristað brauð Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords, sem skotin var í gegnum höfuðið fyrir einum mánuði í Arizona, er byrjuð að tala á ný.Fjölskylda hennar segir að um daginn hafi hún beðið um ristað brauð. Giffords virðist því vera að ná ótrúlegum bata á skömmum tíma en hún var skotin af stuttu færi í árás þar sem sex létust og 13 slösuðust. 10.2.2011 10:00
Drengur í skólabúningi sprengdi sig í loft upp Tuttugu og sjö létust og margir slösuðuðust þegar ungur sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi sig í loft upp í Pakistan í morgun. Vitni segja að drengurinn hafi verið klæddur í skólabúning þegar hann gekk upp að herstöð í bænum Mardan og sprengdi sig. 10.2.2011 08:53
Kokkur Al Kaída að losna frá Guantanamo Bandaríski herinn hefur stytt fangelsisdóm yfir Súdananum Ibrahim al-Qosi um tvö ár, en hann hefur verið í haldi frá árinu 2001 lengst af í Guantanamo búðunum á Kúbu. Al-Qosi var á sínum tíma dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að aðstoða hryðjuverkamenn en hann var kokkur í þjálfunarbúðum Al Kaída í Afganistan. Nú fær hann að snúa aftur til síns heima í Súdan og foreldrar hans segja að hann muni koma til með að taka við fjölskyldufyrirtækinu, sem er lítil matvörubúð. 10.2.2011 08:40
Mínus hjá þeim sem standa utan ESB Methalli var á viðskiptum Breta við helstu viðskiptalönd sín í desember og nam við áramót 9,25 milljörðum punda. Þetta er tæplega átta hundruð milljóna punda verri afkoma en í nóvember, samkvæmt upplýsingum bresku hagstofunnar sem birtar voru í gær. 10.2.2011 07:00
Kveiktu í trjám og lokuðu vegi Nærri tíu þúsund manns tóku þátt í mótmælunum á Tahrir-torgi í Kaíró í gær, á sextánda degi mótmælanna gegn Hosni Mubarak forseta og stjórn hans, þrátt fyrir hótanir Ómars Suleimans varaforseta um að mótmælin verði ekki liðin miklu lengur. 10.2.2011 03:00
Elsti bjór heims bruggaður á ný Vísindamenn hafa fengið í hendurnar elsta bjórsýni sem fundist hefur. Til stendur að greina það, endurgera uppskriftina og brugga hann á ný. 9.2.2011 20:00
Fannst getnaðarlimurinn góður felustaður fyrir kókaínið Lögreglumenn fylltust grunsemdum þegar þeir fundu lítinn poka með kókaíni í teygju á boxer-nærbuxum karlmanns sem þeir stöðvuðu fyrir umferðarlagabrot. Antoine Banks var þó með meira af fíkniefnum á sér eins og lögreglumennirnir komust að þegar þeir gerðu líkamsleit á honum í framhaldinu. Þrátt fyrir að vera ýmsu vanir kom þeim það mjög á óvart þegar þeir fundu annan poka af kókaíni á heldur óvenjulegum stað - undir forhúð Antoine. Auk þess að vera ákærður fyrir vörslu fíkniefna má hann búast við ákæru fyrir sölu og smygl á eiturlyfjum. 9.2.2011 13:50
Bandaríkjamenn þrýsta á Egypta um að aflétta neyðarlögum Bandaríkjamenn krefjast þess að Egyptar aflétti þegar í stað neyðarlögum sem sett voru í landinu fyrir þremur áratugum síðan. Joe Biden varaforseti ræddi í gær við kollega sinn Omar Suleiman og tilkynnti honum þetta. Biden hvatti einnig til þess að lögreglan hætti þegar í stað að berja á mótmælendum og blaðamönnum í landinu. 9.2.2011 11:45
Taylor ekki við lokasprettinn Réttarhöldunum yfir Charles Taylor, fyrrverandi einræðisherra Líberíu, ætlar að ljúka með sama hætti og þau hófust, nefnilega með því að sakborningurinn mætir ekki í réttarsalinn og segir réttarhöldin ósanngjörn og runnin undan pólitískum hvötum. 9.2.2011 11:00
Segist bera ábyrgð á árás Doku Umarov, einn téténsku stríðsherranna sem enn berjast fyrir aðskilnaði Téténíu frá Rússlandi, segist bera ábyrgð á sprengjuárásinni á Domodedovo-flugvelli nálægt Moskvu í síðasta mánuði. 9.2.2011 11:00
Króatar fá aðildardagsetningu í apríl Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, segir að í apríl fái Króatar væntanlega að vita hvenær þeir geta gengið í Evrópusambandið. 9.2.2011 11:00
Ástkona Picassos milljarða virði Verk eftir spænska stórmálarann Pablo Picasso seldist á uppboði hjá Sothebys í London í gær á 25 milljónir punda, eða rúma 4,5 milljarða íslenskra króna. 9.2.2011 09:00
Óttast að Alessia og Livia séu látnar Fjölskylda systrana tveggja frá Sviss sem saknað hefur verið frá því faðir þeirra nam þær á brott á dögunum óttast hið versta í málinu. 9.2.2011 08:58
Danskur maður myrti börnin sín þrjú Fjórutíu og fjögurra ára gamall maður skaut þrjú börn sín til bana í bænum Birkeröd á Norður-Sjálandi í Danmörku í nótt. Móðir barnanna hringdi á lögregluna um klukkan fimm í nótt en hún óttaðist um börnin sem gistu hjá föður sínum að því er haft er eftir lögreglunni á vef danska blaðsins Berlingske Tidende. 9.2.2011 08:04
Hamas hafnar kosningunum Palestínustjórn skýrði frá því að kosningar verði haldnar, bæði á Vesturbakkanum og á Gasaströnd, hinn 9. júlí í sumar. Stjórn Hamas-samtakanna á Gasa segir að Palestínustjórnin í Ramallah hafi engan rétt til að efna til þessara kosninga. 9.2.2011 08:00
Kurteisi bófinn handtekinn Lögreglan í Seattle handtók um helgina mann sem er grunaður um rán í kjörbúð og bensínstöð í borginni. 9.2.2011 06:15
Vill láta loka herstöðvum Hamid Karzai, forseti Afganistans, segir að þegar Afganar taka sjálfir við umsjón öryggismála verði nauðsynlegt að loka þeim alþjóðlegu herstöðvum, sem sinna einkum uppbyggingar- og þróunarstarfi í sveitum landsins. 9.2.2011 04:00