Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sprengdi sig upp í miðri veislu 21 féllu í sjálfsmorðssprengjuárás í vesturhluta Bagdadborgar seinni partinn í dag. 24.8.2008 20:06
Járnfrúnni hrakar Járnfrúin Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, er orðin elliær og hrakar stöðugt, að því er dóttir hennar upplýsir í nýrri bók sem kemur út í dag. 24.8.2008 18:45
Farþegaflugvél hrapaði í Kyrgistan - 25 lifðu af Farþegavél með um 90 farþega innanborðs hrapaði til jarðar og brotlenti á flugvelli í Kyrgistan í dag. 24.8.2008 16:46
Reknir vegna loftárásar sem banaði 89 óbreyttum borgurum Hamid Karzai, forseti Afganistan, rak í dag tvo háttsetta menn í afganska hernum vegna loftárásar sem sögð er hafa banað 89 almennum borgurum í fyrradag. 24.8.2008 15:31
Tíu er saknað eftir snjóflóð í Ölpunum Átta eru slasaðir og tíu er saknað eftir að snjóflóð féll úr hlíðum Mont Blanc í dag. Snjóflóðið hreif með sér hóp af fjallgöngumönnum sem voru að klífa fjallið Frakklandsmeginn. 24.8.2008 14:09
Fjórir féllu og fimmtán særðust í Bagdad Tvær sprengjur sprungu með stuttu millibili í Bagdad í morgun. Fjórir létust en fimmtán særðust. 24.8.2008 10:22
Ekkill Bhuttos klár í slaginn Asif Ali Zardari, ekkill Benazir Bhuttos hefur samþykkt að bjóða sig fram til forseta í Pakistan, eftir því sem BBC hefur eftir forystumönnum úr Pakistanska Þjóðarflokknum. 23.8.2008 20:47
10 látnir eftir sprengingu í Kandahar 10 létust þegar sprengja sprakk í vegkanti í Kandahar í Afganistan í morgun. Þeir sem létust voru allir almennir borgarar. 23.8.2008 12:31
Obama velur Joe Biden sem varaforsetaefni sitt Demókratinn Barack Obama hefur valið öldunfardeildarþingmanninn Joe Biden sem varaforsetaefni sitt í forsetakosningnum í Bandaríkjunum sem fram fara í nóvember. Þetta kom fram í sms-skilaboði sem hann sendi stuðningsmönnum sínum fyrir skömmu. 23.8.2008 08:11
Áfram í Georgíu Yfirvöld í Moskvu fullyrtu í dag að hermenn þeirra hafi nú yfirgefið Georgíu og að brottflutningurinn sé í samræmi við friðarsamkomulagið. Þar með hafi Rússar staðið við sínar skuldbindingar. Aftur á móti hafi þeir komið upp sérstöku öryggissvæði. 22.8.2008 18:03
76 óbreyttir borgarar felldir í Afganistan Hersveitir í Afganistan undir stjórn Bandaríkjamanna urðu 76 óbreyttum borgurum að bana í vesturhluta landsins í dag, að sögn Afganska innanríkisráðuneytisins. 22.8.2008 16:35
Danir hjóla aftur í múslima Danskt bókaforlag hefur tekið að sér að prenta og gefa út bók um eiginkonur Múhameðs spámanns múslima, sem hið bandaríska Random house þorði ekki að gefa út. 22.8.2008 14:43
Georgíumenn þurfa milljarða Georgíumenn þurfa einn til tvo milljarða bandaríkjadollara til þess að endurbyggja innviði landsins eftir átökin við Rússa. 22.8.2008 13:04
Kínverjar hótuðu Frakklandsforseta Nicolas Sarkosy hefur verið gagnrýndur heimafyrir fyrir að neita að hitta Dalai Lama, andlegan leiðtoga Tíbeta. 22.8.2008 11:46
Óttast fjöldasjálfsmorð sértrúarsafnaðar í Danmörku Dóttir leiðtoga sértrúarsafnaðar í Danmörku óttast að móðir hennar muni leiða safnaðarbörnin í fjöldasjálfsmorð. Guðfræðingur sem er sérfróður um málefni nýtrúarsafnaða er á sama máli. 22.8.2008 11:15
˜Líknarhvaladráp" í Sidney Ástralir gráta nú hnúfubakskálfinn Colin, sem veittur var líknardauði á grynningum fyrir utan Sidney í gær. Hvalurinn hafði orðið viðskila við móður sína og villst upp á grynningar í grennd við borgina þar sem borgarbúar hafa fylgst með honum síðustu daga. 22.8.2008 11:11
Hvað eru kínversku fimleikastelpurnar gamlar? Alþjóðlega Ólympíunefndin hefur farið þess á leit við forráðamenn Ólympíska fimleikasambandsins að kannað verði hvort kínversku fimleikastúlkurnar sem hafa verið sérstaklega sigursælar á leikunum í Peking uppfylli aldursskilyrði leikanna. 22.8.2008 09:01
Varaforseti Obama afhjúpaður í dag Fastlega er búist við því að Barack Obama, forsetaefni Demókrata í Bandaríkjunum, tilkynni um varaforsetaefni sitt í dag. Hann hefur sagt blaðamönnum að hann hafi þegar tekið ákvörðunina og að þingmenn og stuðningsmenn flokksins auk blaðamanna fái SMS skilaboð síðar í dag með nafni varaforsetaefnisins. 22.8.2008 08:59
Forsetakosningar í Pakistan sjötta september Forsetakosningar verða haldnar í Pakistan sjötta september næstkomandi. Pervez Musharraf, fyrrverandi forseti landsins, sagði af sér á mánudaginn var og samkvæmt lögum í landinu þarf að kjósa annan í stöðuna áður en mánuður er liðinn. Forsetinn er ekki kosinn í þjóðaratkvæðagreiðslu heldur kjósa þingmenn á landsþinginu og fjórum héraðsþingum nýjan forseta. 22.8.2008 08:54
Bretar aldrei verið eldri Í fyrsta sinn í sögunni eru ellilífeyrisþegar í Bretlandi fleiri en börn undir sextán ára aldri. Þetta kemur fram í tölum bresku hagstofunnar sem birtar voru í gær. Þær sýna glögglega að Breska þjóðin er að eldast enda hefur bætt heilbrigðiskerfi og betri lífsskilyrði almennt gert það að verkum að fólk lifir lengur en áður. 22.8.2008 08:47
Pattstaða í öryggisráðinu Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í afstöðu sinni til átakanna í Georgíu. Bandaríkjamenn hafa lýst því yfir að þeir séu tilbúnir til að beita neitunarvaldi sínu á tillögu í málinu sem Rússar hafa lagt fram en þar er gert ráð fyrir vopnahléssamningi í sex liðum. Rússar, sem einnig hafa neitunarvald í ráðinu, hafa á hinn bóginn lýst því yfir að þeir muni koma í veg fyrir að ályktun sem samin var af Frökkum nái fram að ganga en í henni er gert ráð fyrir að Rússar hörfi með öllu út af Georgísku landsvæði. 22.8.2008 08:29
DNA rannsóknir þarf til að bera kennsl á fórnarlömbin Grípa þarf til DNA rannsókna til þess að bera kennsl á stóran hluta þeirra sem fórust með þotu Spanair á Madrídarflugvelli á miðvikudaginn var, að sögn spænskra stjórnvalda. 153 létust í slysinu sem er það mannskæðasta á Spáni í 25 ár. 22.8.2008 07:52
Styttist í að Obama tilkynni um varaforsetaefni Áhugamenn um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum halda nú niðri í sér andanum og bíða eftir næstu stórfrétt: hver verður varaforsetaefni Baracks Obama frambjóðanda Demókrataflokksins. 21.8.2008 20:00
Vöruðu Georgíumenn við að ráðast inn í S-Ossetíu Bandaríkjastjórn varaði Georgíumenn við því að ráðast inn í Suður-Ossetíu kvöldið áður en georgískir hermenn fóru þar inn, að sögn sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO. 21.8.2008 19:00
Stutt í samninga um hermenn í Írak Utanríkisráðherra Írak, Hoshyar Zebari segir að Írakar og Bandaríkjamenn séu mjög nálægt þvi að ná samningum um framtíð hersveita Bandaríkjamanna í Írak. 21.8.2008 16:01
Sonur Gaddafi hættir stjórnmálaþátttöku Sayf al-Islam Gaddafi, sonur leiðtoga Líbýu, Muammar Gaddafi, hefur tilkynnt að hann muni ekki hafa frekari afskipti af stjórnmálum í landinu. 21.8.2008 15:40
Kínverjar slökkva á iTunes Talið er að Kínverjar hafi lokað fyrir möguleika á að hala niður tónlist í iPod. Það mun vera vegna mótmælasöngva vegna Tíbets sem hægt er að nálgast á iTunes. 21.8.2008 15:37
Bandarískar telpur bakvið víglínu Rússa Tvær bandarískar telpur sem urðu strandaglópar á bakvið rússnesku víglínuna í Georgíu eru aftur komnar til foreldra sinna. Sendiherra Frakklands í Georgíu fór og sótti þær á bíl sínum. 21.8.2008 15:06
Þriggja daga þjóðarsorg á Spáni Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir á Spáni eftir að flugvél spænska flugfélagsins Spanair fórst skömmu eftir flugtak frá Baraja-flugvelli í gær. 21.8.2008 15:03
Í aðgerð eftir árás rottweiler-hunda Fimm ára dönsk stúlka, sem tveir rottweiler-hundar réðust á í síðustu viku, gengst nú undir aðgerð á Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn vegna áverka sinna. 21.8.2008 14:10
Sri Lanka herjar þungt á Tamíla Orrustuþyrlur hersins á Sri Lanka létu eldflaugum og sprengjum rigna yfir vígstöðvar Tamíl tígra í dag. Hermenn felldu 33 skæruliða í bardögum á jörðu niðri, að sögn hernaðaryfirvalda. 21.8.2008 14:08
Mótmælendur krefjast sjálfstæðis S-Ossetíu og Abkazíu Mótmælafundir hafa verið í Suður-Ossetíu og Abkazíu þar sem aðskilnaðarsinnar heimta sjálfstæði héraðanna frá Georgíu. Leiðtogar aðskilnaðarsinna í báðum héruðum skoruðu á Rússa að viðurkenna sjálfstæði þeirra á fjöldasamkomunum. 21.8.2008 14:02
Sýrlendingar styðja Rússa í Georgíu Forseti Sýrlands sagðist styðja hernaðaraðgerðir Rússa gegn Georgíu, á fundi með fréttamönnum í dag. 21.8.2008 13:06
Sakar Kínverja um fjöldamorð síðastliðinn mánudag Dalai Lama andlegur leiðtogi Tíbeta hefur sakað Kínverja um að hafa skotið 140 mótmælendur til bana í Austur-Tíbet síðastliðinn mánudag. 21.8.2008 11:03
Bandaríkjamenn endurvopna her Georgíu Bandaríkin gera því skóna að þau muni hjálpa Georgíu að endurskipuleggja og endurreisa her sinn eftir bardagana við Rússa í síðustu viku. Bandaríski hershöfðinginn John Craddock er nú í heimsókn í Georgíu. 21.8.2008 10:41
Hátt í 60 látnir eftir mannskæða sjálfsvígsárás í Pakistan Að minnsta kosti 57 manns eru látnir eftir tvær sjálfsmorðsárásir við vopnaverksmiðju í pakistönsku borginni Wah. Árásin átti sér stað er verkamenn voru á leið í og úr vinnu eftir vaktaskipti. Talið er að tala látinna eigi enn eftir að hækka töluvert. 21.8.2008 10:38
Átta ára hryðjuverkamaður Meðal öryggisráðstafana sem bandarísk stjórnvöld hafa gert eftir 9/11 árásirnar er að búa til lista yfir grunaða hryðjuverkamenn. Sá listi er hinn undarlegasti. 21.8.2008 10:22
Sómalskir sjóræningjar láta til sín taka Sómalískir sjóræningjar sölsuðu í morgun undir sig tvö skip undan ströndum landsins í morgun. 21.8.2008 10:05
Uppgötvaði útdauða flugu á ebay Skordýrafræðingurinn Richard Harrington datt í lukkupottinn á dögunum þegar hann keypti steingerfða flugu hjúpaða rafi á uppboðsvefnum ebay. Harrington keypti steingerfinginn á tuttugu dollara, eða sextán hundruð krónur íslenskar, af manni í Litháen. 21.8.2008 08:44
Rússar semja sjálfir ályktun fyrir Öryggisráðið Rússar hafa lagt drög að ályktun fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sem tekur á ófriðnum á milli þeirra og Georgíumanna sem staðið hefur undanfarna daga. Í gær höfnuðu Rússar ályktun sem Frakkar lögðu fram í ráðinu en í henni var krafist að Rússar hyrfu tafarlaust frá Georgíu. 21.8.2008 08:36
Líklega tilkynnt um varaforseta Obama fyrir helgi Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum leiða að því líkum að Barack Obama forsetaframbjóðandi muni tilkynna um varaforsetaefni sitt fyrir helgi. Talið er að Obama vilji vera búinn að ljúka því máli áður en demókratar hittast á landsfundi sínum í Colorado á Mánudag. 21.8.2008 08:34
Enn falla hermenn NATO í Afganistan Þrír NATO hermenn létust í bardögum í Afganistan í nótt, aðeins nokkrum dögum eftir að tíu franskir hermenn voru felldir í landinu. Hermennirnir féllu í Ghazni héraði sem pólski herinn fer með forræði yfir, en ekki hefur verið staðfest hverrar þjóðar þeir voru. 21.8.2008 08:32
Rice heimsækir Bagdad Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna heimsótti Írak öllum að óvörum í morgun. Íraskir fjölmiðlar greina frá því að Rice hafi lent á flugvellinum í Bagdad í morgun en heimsókn hennar hafði ekki verið boðuð. 21.8.2008 08:24
Orsaka flugslyssins leitað Sérfræðingar í flugslysum rannsaka nú flak flugvélarinnar sem fórst á flugvellinum í Madrid í gær með þeim afleiðingum að 153 létu lífið. Rannsóknarmennirnir munu leita að vísbendingum um orsök slyssins í flakinu auk þess sem flugritar verða skoðaðir en þeir fundust í nótt. 21.8.2008 07:03
Staðfest að 153 létust í Madríd Yfirvöld á Spáni hafa staðfest að 153 létu lífið og 19 slösuðust þegar flugvél spænska flugfélagsins Spanair fórst á Madrídarflugvelli í morgun. 20.8.2008 22:28