Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Putin segir nauðsynlegt að styrkja rússneska herinn Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagði í dag að nauðsynlegt væri að byggja upp herinn og njósnastarfsemi landsins vegna nýrra ógna, þar á meðal uppbyggingu bandarísks eldflaugakerfis í Austur-Evrópu. Putin sagði þetta á fundi með háttsettum yfirmönnum í hernum og leyniþjónustunni í dag. 25.7.2007 16:12
Það koma fleiri bækur um Harry Potter JK Rowling, höfundur Harry Potter bókanna hefur upplýst að hún sé ekki hætt að skrifa um hann. Það koma fleiri bækur um galdrastrákinn. Það er þó ekki ný skáldsaga í burðarliðunum að sinni, heldur uppsláttarbók fyrir aðdáendur Harrys og félaga. 25.7.2007 15:55
Tileinka íröksku þjóðinni sigur sinn í undanúrslitum Asíukeppninnar Írakska landsliðið í fótbolta tileinkaði sigur sinn í undanúrslitum Asíukeppninnar íröksku þjóðinni. Liðið vann sigur á Suður-Kóreu í dag á eins dramatískan hátt og hægt er í fótbolta, eða í vítaspyrnukeppni. Markvörður Íraka, Noor Sabri, var valinn maður leiksins. Hann varði fjórðu vítaspyrnu Suður-Kóreumanna í leiknum. 25.7.2007 15:21
Fjölskyldur smitaðra barna fordæma náðun Fjölskyldur barnanna sem smituðust af HIV/AIDS í Líbýu hafa skorað á líbýsk stjórnvöld að slíta stjórnmálasambandi við Búlgaríu, reka alla búlgarska ríkisborgara úr landi og hætta viðskiptum við búlgörsk fyrirtæki. 25.7.2007 14:34
Múslimar hafna sjálfsmorðsárásum -og Bin Laden Fáir múslimar styðja sjálfsmorðsárásir samkvæmt nýrri alþjóðlegri könnun sem sagt er frá á fréttavef BBC. Úrtakið var 45 þúsund manns í 47 löndum. Þar hafði stuðningur múslima allsstaðar minnkað nema í Palestínu. Stuðningur við Osama bin-Laden hefur einnig minnkað verulega. 25.7.2007 14:32
Frakkar gera það oftast Frakkar eru duglegastir í bólinu samkvæmt nýrri könnun sem franska tímaritið L'Express lét gera í samvinnu við frönsku sjónvarpsstöðina France 24. Þjóðverjar koma í öðru sæti en Bretar standa sig verst. 25.7.2007 14:11
Da Silva hreinsar til í flugmálum Brasilíu Luiz Inacio da Silva, forseti Brasilíu, ætlar sér að skipta um ráðherra flugmála vegna slyssins sem varð þar í landi í síðustu viku. Nærri 200 manns létu lífið þegar farþegaþota rann útaf flugbraut á flugvellinum í Sao Paulo og hafnaði á bensínstöð. 25.7.2007 13:45
Nígerísk stjórnvöld höfða mál gegn Pfizer Nígerísk stjórnvöld hafa lagt fram formlega kæru gegn bandaríska lyfjarisanum Pfizer vegna lyfjaprófanna sem fram fóru í ríkinu Kanó í norðurhluta Nígeríu árið 1996. 25.7.2007 13:23
Þriðja þjóðverjanum rænt í Afghanistan Þriðja þjóðverjanum á einni viku var rænt í Afghanistan í morgun. Um helgina fannst lík annars þjóðverja sem rænt var í síðustu viku af Talibönum sem krefjast þess að þýsk og suður-kóresk stjórnvöld sendi herlið sín tafarlaust frá Afghanistan og að talibanar í afgönskum fangelsum verði leystir úr haldi. 25.7.2007 13:05
Hitabylgja í SA-Evrópu veldur miklum skaða Talið er að allt að fimm hundruð manns hafi látist í Ungverjalandi af völdum hitabylgjunnar sem gengið hefur yfir landið síðustu daga með um og yfir 40 stiga hita. Dauðsföll í nágrannaríkjunum í sunnanverðri Evrópu eru einnig rakin til hitannna og víða loga skógareldar vegna þurrka. 25.7.2007 12:58
Búist við að flóð nái hámarki næsta sólarhring Svo virðist sem verstu flóð í Englandi síðastliðin 60 ár séu að ná hámarki. Stór svæði eru þó enn undir vatni og meira en 350 þúsund íbúar á flóðasvæðunum eru enn án neysluhæfs drykkjarvatns. 25.7.2007 12:35
Sprengja sprakk á leið Tour de France Lítil sprening varð um hádegisbil á spænska legg Tour de France hjólreiðakeppninnar. Stuttu áður hafði maður sem kynnti sig sem meðlim ETA, basknesku aðskilnaðarsamtakanna, hringt í vegagerðina á Spáni og fullyrt að hópurinn hefði sett sprengjur við hluta leiðarinnar. Enginn særðist í sprengingunni og keppnin hélt áfram án áfalla. 25.7.2007 12:26
Búlgaría afpöntuð ókeypis Norsk ferðaskrifstofa hefur ákveðið að leyfa ungum viðskiptavinum sínum að afpanta ferðir til Búlgaríu sér að kostnaðarlausu. Fjölmargar fréttir hafa borist um nauðganir og önnur ofbeldisverk gegn Norrænum unglingum í baðstrandarbænum Sunny Beach á Svartahafsströnd landsins. 25.7.2007 11:23
Ítalir rökræða stöðu kvenna í þjóðfélaginu Mikil umræða fer nú fram á Ítalíu um stöðu kvenna í þjóðfélaginu. Ímynd kvenna þar í landi snýst um kynþokka og að hafa laglegar línur. Sumar konur telja karlrembu vera vera ástæðuna en aðrar konur segja ekkert eðlilegra en að vera stoltar af líkama sínum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndbrot með fréttinni. 25.7.2007 10:50
Starfsfólk BBC á námskeið til að læra að segja satt Yfir 16 þúsund starfsmenn breska ríkissjónvarpsins BBC hafa verið sendir á námskeið þar sem þeir eiga að læra að segja satt. Þetta var ákveðið eftir að upplýst var um stórfelldar falsanir í útvarps- og sjónvarpsþáttum þar sem fé var safnað. 25.7.2007 10:23
Stofnandi Facebook sakaður um að hafa stolið hugmyndinni Tengslavefurinn Facebook á nú yfir höfði sér málsókn frá stofnendum annars tengslavefs, ConnectU. Þeir segja stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, hafa stolið hugmyndinni frá sér á meðan þau voru saman við nám í Harvard háskóla. 25.7.2007 10:14
Kæra múslimskan frambjóðanda fyrir landráð Þingmaður íhaldsflokksins í Danmörku hefur kært Asma Abdol Hamíd frambjóðanda Einingarflokksins fyrir landráð fyrir að réttlæta árásir vígamanna á danska hermenn í Írak. Hún líkir þeim við andspyrnuhreyfingu Dana gegn þjóðverjum í síðari heimstyrjöldinni, sem danskir stjórnmálamenn úr öllum flokkum vísa á bug. Allt að sex ára fangelsi getur legið við landráði í danmörku. Eins og greint hefur verið frá stefna Danir að því að kalla herlið sitt heim frá írak í næsta mánuði. 25.7.2007 09:09
250 heimili í Oxford rýmd Íbúum 250 heimila í Oxford var gert að yfirgefa þau í nótt, en borgin er sú síðasta til að verða fyrir barðinu á flóðunum sem geysað hafa á Englandi undanfarna daga. 25.7.2007 09:07
Gordon Brown vill lengja tímann sem halda má grunuðum hryðjuverkamönnum án ákæru Forsætisráðherra Breta, Gordon Brown, íhugar að lengja þann tíma sem halda má grunuðum hryðjuverkamönnum án þess að ákæra þá, í allt að 56 daga. Þetta er tvöfaldur sá tími sem nú er. 25.7.2007 09:04
Danir hafa mismikið álit á fólki eftir hreimi Danir hafa minna álit á fólki sem tala dönsku með miðausturlenskum hreim en öðrum. Berlingske tiderne greinir frá þessu. Vísindamenn við Kaupmannahafnarháskóla báðu fólk að leggja mat á persónuleika 16 manns út frá því hvernig það las stuttan danskan texta. Þeir sem þóttu tala með miðausturlenskum hreim voru álitnir vitlausir og óáreiðanlegir, á meðan norðuevrópskur hreimur var tengdur við sjálfstæði, metnað og áreiðanleika. Þeir sem lásu textann voru allir með háskólamenntun og töluðu málfræðilega rétta dönsku. 25.7.2007 08:49
Fimm fjallgöngumenn frjósa í hel í Ölpunum Fimm fjallgöngumenn urðu úti í Ölpunum aðfaranótt þriðjudags. Lík fjögurra fundust frosin í fjögur þúsund metra hæð á Mont Blanc, og eins á Monte Rosa. Þá dvelur illa kalin þýsk kona á spítala í Zermann í Sviss. Slæmt veður gerði björgunarmönnum erfitt fyrir að ná til fólksins. Sjaldgæft er að svo margir verði úti á einum degi í Ölpunum. 25.7.2007 08:48
Fjárframlög aukin vegna flóðanna Breska ríkisstjórnin ætlar að auka fjárframlög um 10 milljónir punda vegna fóðanna sem herja á landið . Ákvörðunin var tekin eftir að ljóst varð að um 350 þúsund manns verða án hreins vatns í allt að tvær vikur. 24.7.2007 23:16
Samgönguráðherra Bretlands lofar úrbótum á lestarsamgöngum Ruth Kelly, samgönguráðherra Bretlands, hefur greint frá því að milljörðum punda verði varið til að bæta lestarsamgöngur í landinu. En samgöngurnar anna sem stendur ekki eftirspurn. Aðgerðirnar eiga að stuðla að stærri og öflugri járnbrautum sem geta flutt allt að helmingi fleiri farþega fyrir 2030. 24.7.2007 21:12
Heilbrigðisstarfsfólkið náðað Forseti Búlgaríu náðaði sex heilbrigðisstarfsmenn um leið og þeir komu til Búlgaríu frá Líbýu í dag. Þar höfðu þeir setið í fangelsi í átta ár. Líbýumenn fá bæði mikið fé og aukin stjórnmálatengsl fyrir að sleppa fólkinu. 24.7.2007 20:42
Íbúar við Thamesá varaðir við flóðum Óttast er að enn fleiri hús verði flóðunum í Bretlandi að bráð á morgun, þegar flóðbylgjur berast niðureftir Thamesánni. Spáð er áframhaldandi úrkomu sem myndi enn auka á vatnsflauminn. 24.7.2007 20:37
Hús hrundi aðeins augnablikum eftir rýmingu Byggingaeftirlitsmanni á Azoreyjum leist svo illa á hús sem hann fór framhjá að hann fékk lögregluna til þess að rýma það. Og það var eins gott. Aðeins nokkrum augnablikum eftir að síðasti íbúinn fór út úr húsinu hrundi það til grunna. 24.7.2007 20:03
Mannskæð hitabylgja í Ungverjalandi og víðar í Suður-Evrópu Um 500 dauðsföll í Ungverjalandi síðastliðna viku eru rakin til hitabylgjunnar sem gengur nú yfir Suður-Evrópu. Þetta er mesta mannfall vegna hita í landinu um margra ára skeið. Um 30 manns í nágrannalandinu Rúmeníu hafa einnig látið lífið í hitabylgjunni. 24.7.2007 19:51
Pútin segir framsalskröfu Breta bera vott um úreltan nýlenduhugsunarhátt Vladimir Pútin forseti Rússlands segir kröfu Breta um að Rússar framselji Andrei Lugovoy, meintan morðingja Alexanders Litvinenko, vera móðgun og bera vott um úreltan nýlenduhugsunarhátt Breta. "Krafa þeirra er augljós vottur um leifar af nýlenduhugsunarhætti," sagði Pútin í rússneska ríkissjónvarpinu í dag. 24.7.2007 17:32
Norska prinsessan segist vera skyggn Norska prinsessan Marta Lovísa tilkynnti í dag að hún sé skyggn og að hún ætli sér að hjálpa fólki að tala við engla. Marta Lovísa, sem er 35 ára, er menntaður sjúkraþjálfari. 24.7.2007 16:02
Bandaríkin og Íran stofna sameiginlega nefnd um stöðugleika í Írak Bandaríkin og Íran ákváðu í dag að setja á fót sérstaka nefnd sem á að taka á því verkefni að auka stöðugleika í Írak. Ákvörðunin var tekin á öðrum fundi þessara landa en sá fyrsti var haldinn í maí síðastliðnum. Fundurinn entist í nærri sjö klukkutíma. 24.7.2007 15:16
Lohan tekin fyrir ölvunarakstur og að hafa kókaín í fórum sínum Lögreglan í Santa Monica handtók nú um hádegisbil leikkonuna Lindsay Lohan vegna ölvunaraksturs. Þá kom í ljós að hún var einnig með eiturlyf á sér. Samkvæmt vefsíðunni TMZ.com var um kókaín að ræða sem fannst þegar leitað var á Lohan á lögreglustöðinni. 24.7.2007 13:34
Framdi sjálfsmorð með handsprengju Fyrrverandi fangi í Gvantanamó fangelsinu á Kúbu framdi sjálfsmorð með handsprengju í Pakistan í dag, frekar en komast undir manna hendur. Abdullah Mehsud var handtekinn í Afganistan þar sem hann barðist með Talibönum. 24.7.2007 13:13
Lentu flugvél á þjóðvegi Kennsluflugvél úr síðari heimsstyrjöldinni var nauðlent á þjóðvegi í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær vegna vélarbilunar. Vélin lenti innan um bíla sem voru þar á ferð, og varð að vonum uppi fótur og fit. 24.7.2007 13:00
Heilbrigðisstarfsfólk loksins frjálst Sex heilbrigðisstarfsmenn sem hafa setið í fangelsi í Líbýu í átta ár eru komnir heim til Búlgaríu. Fólkið var sakað um að hafa vísvitandi sýkt yfir 400 libysk börn af alnæmi. 24.7.2007 12:56
Varnargarðar reistir meðfram Thames-ánni Breskar björgunarsveitir hamast nú við að byggja varnargarða neðarlega meðfram Thamesá þar sem búist er við miklum flóðum á næstu dögum. Hundruð þúsunda manna hafa enn ekki neitt hreint vatn til drykkjar, en verið er að koma rafmagni á á nýjan leik. 24.7.2007 11:43
Frambjóðendur demókrata tókust á með hjálp YouTube Í gærkvöldi sátu átta frambjóðendur demókrata til forsetakosninga í Bandaríkjunum fyrir svörum í fyrstu kappræðunum þar sem einungis er stuðst við spurningar sem áhorfendur senda inn á netinu. Kappræðurnar voru samstarfsverkefni CNN fréttastöðvarinnar og myndbandavefsins Youtube. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndbrot frá kappræðunum. 24.7.2007 11:22
Klikkuðu DARPA- vísindamennirnir Ef það er klikkað og getur drepið fólk, varið hermenn eða njósnað um óvini þá geturðu verið viss að DARPA er að fjármagna þróun þess. DARPA stendur fyrir Defense Advanced Research Projects Agency eða Rannsóknarstofnun hátækni-varnarbúnaðar. 24.7.2007 11:00
Spánverjar handtaka rússneskan njósnara Spænska leyniþjónustan handtók í morgun grunaðan gagnnjósnara sem talið er að hafi sent ýmis ríkisleyndarmál til Rússlands. Alberto Saiz, yfirmaður leyniþjónustunnar skýrði frá þessu í morgun. Gagnnjósnarinn hafði unnið fyrir rússa síðastliðin þrjú ár. Ekki var gefið upp hversu lengi hann hafði unnið fyrir Spánverja. 24.7.2007 10:36
Líbýa og Evrópusambandið skrifuðu undir samstarfssamning Utanríkisráðherra Líbýu sagði í morgun að heilbrigðisstarfsfólkið sem hafði verið í haldi í landinu hefði verið sent til Búlgaríu eftir að Evrópusambandið og Líbýa skrifuðu undir samstarfssamning. 24.7.2007 10:27
80 þúsund heimili rafmagnslaus í Barcelona í dag Um 80 þúsund heimili í Barcelona, næststærstu borg Spánar, sjá í dag fram á annan daginn í röð án rafmagns. Rafmagnskapall slitnaði í gær og varð til þess að eldar kviknuðu á fjölmörgum rafstöðum. Í gær voru allt að 300 þúsund heimili rafmagnslaus vegna atviksins. 24.7.2007 10:03
Berjast gegn siðleysi í klæðaburði Lögregla í Íran skar í gær upp herör gegn ósiðlega klæddu kvenfólki, og karlmönnum með vestrænar hárgreiðslur. Tugir lögreglumanna gengu um götur Teheran og stöðvuðu fólk sem ekki klæddi sig í samræmi við íslamskar siðsemisreglur. Hundruð manna hafa verið handtekin frá því í apríl, þegar lög voru sett sem um klæðaburð, en nú á að herða sóknina gegn siðleysinu. Viðurlög við brotunum geta verið hýðingar, sektir eða fangelsisvist. 24.7.2007 09:56
Mugabe ætlar að þjóðnýta fyrirtæki í Zimbabwe Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, mun á næstunni kynna nýtt frumvarp um þjóðnýtingu og annað þess efnis að forseti landsins verði ekki kosinn af almenningi heldur þingmönnum. Zimbabwe, sem var áður eitt gjöfulasta land í suðurhluta Afríku, berst nú í bökkum vegna mikils matarskorts og gríðarlegrar verðbólgu. 24.7.2007 09:42
Bandaríkin munu beita sér fyrir viðurkenningu sjálfstæði Kosovo Leiðtogar Kosovo sögðu á fundi með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í morgun að þeir myndu ekki lýsa yfir sjálfstæði án samráðs við Bandaríkin. Rice fullvissaði þá um að Bandaríkin myndu beita sér fyrir alþjóðlegri viðurkenndingu á sjálfstæði Kosovo innan nokkurra mánaða, jafnvel án ályktun frá Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þrátt fyrir að Kosovo sé opinberlega hluti af Serbíu, hafa Sameinuðu þjóðirnar og NATO farið með stjórn þar frá árinu 1999. 24.7.2007 08:24
Bandaríkin og Íran funda Embættismenn frá Bandaríkjunum og Íran funda nú um öryggismál í Írak. Þetta er einungis annar fundur ríkjanna í 27 ár, en þau hittust einnig í lok maí á þessu ári. Bandaríkin saka Íran um að styða vígamenn sem ráðast á herlið Bandaríkjanna og Bretlands í Írak, en Íran kennir veru bandaríkjamanna hinsvegar um öryggisástandið þar. Þúsundir manns látast í átökum í Írak í hverjum mánuði. 24.7.2007 08:21
Fyrstu netkappræðurnar Frambjóðendur demókrata til forsetakosninganna í Bandaríkjunum á næsta ári hafa nýhafið kappræður á netinu, þær fyrstu sinnar tegundar. Í kappræðunum verður spurningum frá almenningi varpað til frambjóðendana í þrjátíu sekúndna löngum myndskilaboðum í gegnum myndbandsvefinn YouTube. 23.7.2007 23:37