Fleiri fréttir

Með samúðarkveðjum -bin Laden

Bróðir talibanaforingja sem féll í Afganistan í maí, segist hafa fengið samúðarbréf frá Osama bin Laden. Mullah Dadullah féll í árás Bandaríkjamanna. Fall hans er talið mesta áfall sem talibanar hafa orðið fyrir síðan þeim var steypt af stóli árið 2001.

Kínverjar lofa aðgerðum í umhverfismálum

Ríkisstjórn Kína hefur opinberað skýrslu þar sem fram kemur stefna þeirra og áætlaðar aðgerðir gegn loftlagsbreytingum. Í skýrslunni heitir stjórnin því að láta ekki sitt eftir liggja í baráttunni. Þó er tekið skýrt fram að ekkert verði aðhafst, ógni það örum vexti efnahagskerfis landsins.

Fjársjóðsskip vekur deilur

Spænsk stjórnvöld hafa lagt fram kæru hjá dómstól í Bandaríkjunum vegna skipsflaks sem bandaríska fyrirtækið Odyssey Marine Exploration hefur fundið og hirt fjársjóð úr. Fjársjóðurinn er sagður vera rúmlega þrjátíu milljarða króna virði.

Hikk hikk húrra

Margir Svíar eru ærir af gleði yfir því að Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að sænska ríkið hefði ekki heimild til þess að banna einstaklingum að kaupa áfengi á netinu. Einni klukkustund eftir að fregnirnar bárust höfðu yfir 13000 manns tekið þátt í skoðanakönnun sænska Aftenposten um hvort þetta væru góðar eða slæmar fréttir. Um 75 prósent sögðust mundu versla á netinu.

Fundu þrjátíu nýjar plánetur

Tuttugu og átta plánetur hafa fundist á braut um aðrar stjörnur undanfarið ár. Samtals er nú vitað um 236 plánetur utan okkar sólkerfis. Vísindamenn segja milljarða byggilegra pláneta geta verið til, samkvæmt fréttavef Reuters.

Elsta melóna í heimi fundin

Fornleifafræðingar í Vestur-Japan grófu á dögunum upp lítinn skífulaga hlut sem þeir telja vera elstu óröskuðu leifar af melónu sem fundist hafa.

Réttað yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan í Bandaríkjunum

Réttarhöld yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan hófust í Atlanta í Bandaríkjunum í dag. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa myrt tvo svarta unglingspilta árið 1964. Málið er í hópi fjölmargra annarra mála sem tengjast kynþáttaofbeldi á 6. og 7. áratug síðustu aldar sem tekin hafa verið upp að nýju í Bandaríkjunum á undanförnum árum.

Létu lífið þegar bananakassar hrundu yfir þá

Sex létu lífið þegar stæður af bananakössum hrundi yfir þá í flutningabíl við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó í dag. Mennirnir voru að reyna smygla sér ásamt öðrum yfir landamærin til Bandaríkjanna þegar slysið átti sér stað. Tíu aðrir slösuðust.

Kalla eftir samstöðu til að draga úr mengun

Kanadamenn hafa kallað eftir samstöðu meðal átta stærstu iðnríkja heims um að draga verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda. Þetta kom fram í máli Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, á fundi átta stærstu iðnríkja heims í Berlín í dag. Hann telur þó ólíklegt að Kanada nái að draga úr mengun í samræmi við Kyoto bókunina.

Pálmi ógnar plönturíki Noregs

Suðrænn nýbúi í plönturíki Noregs stefnir nú innlendum gróðri í hættu með því að breiðast út á ógnarhraða. Hlýnun jarðar í kjölfar loftslagsbreytinga hefur valdið því að plantan, sem kallast Tromsö pálmi, hefur þrifist óvenjulega vel á þessum norðlægum slóðum. Yfirvöld í Tromsö hafa skorið upp herör gegn pálmanum.

Ólíklegt að ákært verði

Ólíklegt er talið að hægt verði að fá opinbert mál höfðað á Íslandi gegn meintum morðingja Ashley Turner, flugliða sem myrt var á varnarsvæðinu á Miðnesheiði fyrir tæpum tveimur árum. Slíkt væri líkast til brot á ákvæðum marréttindasáttmála að mati íslenskra lögspekinga.

Miðar á Evrópu verði ekki hætt við

Pútín Rússlandsforseti hótar hefndaraðgerðum láti Bandaríkjamenn verða af því að byggja eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu. Hann segir að eldflaugum, búnum kjarnaoddum, verði miðað á Evrópuríki verði ekki hætt við þau áform. Svör frá Evrópuríkjum eru varfærin. Talsmaður Atlantshafsbandalagsins segir yfirlýsingu Pútíns ógagnlega.

Krefjast 150 milljarða í skaðabætur frá lyfjafyrirtæki

Dómstóll í Nígeríu ákvað í dag að fresta réttarhöldum yfir lyfjafyrirtækinu Pfizer til júlímánaðar. Fyrirtækið er meðal annars sakað um að hafa valdið dauða margra nígerískra barna eftir að þau voru notuð í tilraunaskyni fyrir ósamþykkt lyf. Fyrirtækið hefur vísað ákærunum á bug.

Frakkar herða tökin á ólöglegum innflytjendum

Frönsk stjórnvöld lýstu því yfir í dag að þau hyggðust senda að minnsta kosti 25 þúsund ólöglega innflytjendur til baka til heimalands síns fyrir árslok. Eru þetta mun stærri hópur en áður stóð til að vísa úr landi. Þetta í samræmi við fyrri yfirlýsingar franskra stjórnvalda um hertari aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum þar í landi.

Þingmaður ákærður fyrir spillingu

Reiknað er með því að bandarísk yfirvöld gefi út ákæru á hendur bandaríska þingmanninum William Jefferson í dag fyrir spillingu og mútuþægni. Þingmaðurinn hefur hingað til neitað öllum sakargiftum.

Konungsskipið bjargaði ungum Svíum

Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að allt fór í háaloft í knattspyrnuleik Dana og Svía á föstudaginn, mátti sjá hina hliðina á samskiptum landanna. Danska konungsskipið Dannebrog bjargaði tveim ungum Svíum úr sjávarháska.

Talsmaður danskra neytenda kærir Sterling

Flugfélagið Sterling, sem er í eigu íslenskra aðila, hefur verið kært til lögreglu í Danmörku fyrir verðauglýsingar félagsins á Netinu. Á heimasíðu félagsins var gefið upp verð án skatta og það var ekki fyrr en viðskiptavinurinn var kominn lengra í bókunarferlinu að hið raunverulega verð var gefið upp. Frá þessu er greint á heimasíðu Neytendasamtakanna.

Máli vísað frá í Gvantanamo

Bandarískur yfirdómari herdómstóls í Gvantanamo fangabúðunum á Kúbu, hefur vísað frá öllum ákærum á hendur ungum Kanadamanni. Dómarinn sagði að Kanadamaðurinn, Omar Khadr félli ekki undir hans lögsögu.

Íranar borga ekki kjarnorkuverið

Rússar segja að Íranar hafi ekki borgað nema brot af því sem þeir eigi að inna af hendi fyrir aðstoð Rússa við smíði Bushehr kjarnorkuversins. Íranar neita þessu og segja að Rússar seinki verkinu vegna þrýstings frá Vesturlöndum.

Sakfelldir fyrir umfangsmikið smygl á fólki

Sex karlar voru í dag í Uppsölum í Svíþjóð dæmdir í átta mánaða til tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir umfangsmikið smygl á Írökum til Svíþjóðar og annarra Evrópulanda.

Farðu til Rómar og vertu skakkur

Ef þú hefur einusinni komið til Rómar þá þráir þú að fara þangað aftur. Ítalskir vísindamenn hafa nú kannski uppgötvað ástæðuna fyrir því að Róm verður vanabindandi. Þeir voru að mæla loftmengun með nýjum og fullkomnum tækjum. Auðvitað fundu þeir merki um útblástur frá bílum, í andrúmsloftinu. En þeir fundu líka kókaín, nikótín, koffín og hass.

Tugthúsmyndin af París

Þegar fólk er sett í tugthús er venjan að taka af því ljósmyndir fyrir fangaskrána. Það var auðvitað gert þegar París Hilton kom í fangelsið í dag til þess að afplána 23 daga fangelsisvist í dag. Og líklega er þetta flottasta fangaportrett sem lengi hefur verið tekið af nýjum fanga í Lynwood fangelsinu í Kaliforníu. Smellið á "meira" til þess að sjá myndina af París.

Blair setti sjö lög á dag

Sjö ný lög hafa verið samþykkt á breska þinginu á hverjum einasta degi frá því Tony Blair tók við völdum fyrir tíu árum. Að meðaltali 2.685 lög voru samþykkt á ári í valdatíð hans. Það var 22 prósent aukning frá áratugnum á undan, þegar Íhaldsflokkurinn fór með völd. Þetta er til viðbótarl lögum sem hefur þurft að samþykkja

Rauði krossinn fordæmir morð á tveimur starfsmönnum á Sri Lanka

Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans fordæmir brottnám og morð á tveimur starfsmönnum Rauða krossins á Sri Lanka þann 3. júní. Skorað hefur verið á þarlend yfirvöld að hefja tafarlaust rannsókn á morðunum en ekki er vitað hverjir voru að verki.

Efnaverksmiðja í björtu báli

Efnaverksmiðja í Crewe í Englandi stendur í björtu báli eftir að þar varð mikil sprenging fyrir stundu. Verið er að rýma næsta nágrenni verksmiðjunnar en reykjarbólstrar standa mörghundruð metra í loft upp. Sjónarvottar segja að eldurinn sé að breiðast út. Ekki er á þessari stundu vitað um manntjón í verksmiðjunni.

Íranir eru ósigrandi

Íranar minnast þess nú að um þessar mundir eru 18 ár liðin frá dauða Ayatollah Kohmeini, stofnanda íranska lýðveldisins. Forseti landsins, Mahmoud Ahmadinejad sagði í ræðu í gær fyrir utan grafhýsi leiðtogans fyrrverandi að Íranir ætluðu sér ekki hætta við áform sín um að kjarnorkuvæða landið og sagði hann íranska lýðveldið vera „ósigrandi“.

Sjálfsmorðsárás á lögreglustöð í Tyrklandi

Þrír létust í sjálfsmorðssprengingu á lögreglustöð í Tunceli héraði í Tyrklandi nú fyrir stundu. Óljóst er hver stóð að baki tilræðinu en kúrdískir aðskilnaðarsinnar hafa látið til sín taka í héraðinu.

Hótar hefndaraðgerðum

Vladimír Pútín Rússlandsforseti hótar hefndaraðgerðum láti Bandaríkjamenn verða af því að byggja eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu. Hann segir kröfu Breta um framsal á fyrrverandi KGB manni hlægilega.

Bush leggur af stað til Evrópu

Forseti Bandaríkjanna, George Bush, leggur af stað til Þýskalands í dag til þess að taka þátt í fundi átta helstu iðnríkja heimsins, G8. Mikil mótmæli hafa verið í tengslum við fundinn en þúsund manns, þar af 433 lögreglumenn, slösuðust í átökum um helgina.

Gúmmíkúlur á hjúkrunarkonur

Lögreglan í Jóhannesarborg í Suður-Afríku skaut í dag gúmmíkúlum á hjúkrunarkonur sem sem taka þátt í allsherjarverkfalli opinberra starfsmanna. Nokkrar hjúkrunarkvennanna slösuðust. Tuttugu starfssystur þeirra voru handteknar í mótmælaaðgerðum í borginni Durban.

Vilja að þriðja kynið verði viðurkennt

Þeir sem ferðast til Taílands og þurfa að fylla út umsóknareyðublöð af einhverju tagi gætu í framtíðinni rekist á spurningar um kynferði og fengið þrjá möguleika: karl, kona og annað.

Einhverf vélmenni

Vélmenni hafa um nokkurt skeið verið notuð til að greina einhverfu hjá börnum. Nú hafa vísindamenn farið skrefinu lengra og búið til vélmenni sem aðstoðar börn að fást við einhverfu og mynda félagstengsl.

Þúsundir mótmæla Chavez í Caracas

Þúsundir stjórnarandstæðinga helltust út á götur Caracas í Venesúela í dag til þess að mótmæla þeirr ákvörðun forseta landsins, Hugo Chavez, að loka á sjónvarpsstöð. Mótmælendurnir fóru til skrifstofu verjanda fólksins, sem sér um að mannréttindum sé viðhaldið í landinu, og las þar upp skjal um að chavez hefti fjáningarfresli landsmanna með því að banna sjónvarpsstöðina.

Vilja fara í mál á Íslandi

Ættingjar flugliðans Ashley Turner, sem var myrt á varnarsvæðinu á Miðnesheiði fyrir tæpum tveimur árum, ætla að kanna hvort hægt verði að draga meintan morðingja hennar fyrir dóm hér á landi. Herréttur í Washington sýknaði hann í síðasta mánuði og samkvæmt bandarískum lögum er ekki hægt að kæra hann aftur fyrir morð.

Fimm Danir í haldi sjóræningja

Sjóræningjar hafa nú á valdi sínu danska flutningaskipið Donica White sem þeir tóku yfir undan strönd Sómalíu seint á föstudaginn. Fimm danskir skipherrar voru um borð og eru þeir allir í haldi sjóræningjanna. Yfirvöld í Kenýa segjast eiga von á hárri lausnargjaldskröfu.

Kennir al-Kaída um árásina

Forsætisráðherra Sómalíu, Ali Mohamed Gedi, sagði í dag að al-Kaída hefði verið á bak við árásina á heimili hans. Sjö manns létust þegar að jeppi hlaðinn sprengiefnum braust í gegnum varðstöðvar og keyrði á vegg í húsi Gedi.

Átök brjótast út í suðurhluta Líbanon

Átök brutust út í öðrum flóttamannabúðum í Líbanon í dag, nú í suðurhluta landsins í Ain al-Hilweh búðunum. Þar berjast Jund al-Sham vígamenn við stjórnarherinn. Tveir hafa slasast í átökunum hingað til. Ekki er vitað hvort að átökin tengist þeim í norðurhluta landsins í Nahr al-Bared flóttamannabúðunum.

Reynt að ráða forsætisráðherra Sómalíu af dögum

Sjálfsmorðssprengjumaður keyrði í gegnum vegartálma að húsi forsætisráðherra Sómalíu og spregndi sig í loft upp. Sex manns létu lífið í sprengingunni. Forsætisráðherran sakaði ekki í árásinni og hefur hann nú farið á tryggari stað. Þetta er þriðja morðtilraunin við Ali Mohamed Gedi, forsætisráðherra Sómalíu, síðan hann tók við völdum.

300 slösuðust í jarðskjálfta í Kína

300 manns slösuðust í jarðskjálfta í suðvesturhluta Kína í dag. 4 létu lífið. Borgin Púer hristist og skalf snemma morguns og fólk var enn í rekkju. Alls hefur þurft að flytja 120.000 manns frá borginni vegna eftirskjálftana. Lokað var fyrir rafmagn til borgarinnar og aðeins var hægt að hafa samband í Farsíma. Í Púer er framleitt te með sama nafni. Algengt er að jarðskjálftar verði á þessu svæði .

Tengdapabbinn vann með berklabakteríur í mörg ár

Yfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú hvort að einhver tengsl séu á milli Andrew Speaker, mannsins sem fékk fjölónæma berkla, og tengdaföður hans, sem vinnur hjá berkladeild Sjúkdómastjórnar í Denver. Það á eftir að taka marga mánuði og jafnvel ár að losa Speaker við bakteríuna.

Harry æfir fyrir Afganistan

Harry prins er víst kominn í þjálfunarbúðir breska hersins stutt fyrir utan Calgary í Kanada. Þar er verið að undirbúa hann fyrir hugsanlega ferð hans til Afganistan. Æðstu yfirmenn hersins komu í veg fyrir að Harry gæti farið til Íraks en talið var að nærvera hans gæti sett félaga hans í hættu.

Keyrði á 35 manns

Kona í Washington D.C. í Bandaríkjunum keyrði bílinn sinn í gegnum götuhátíð í gærkvöldi og særði 35 manns. Lögregla sagði að 7 af fórnarlömbum hennar hefðu meiðst alvarlega. Hún var með sjö ára dóttur sína með sér í bílnum. Konan, Tonya Bell, 30 ára, var síðan handtekin. Enn hefur ekki tekist að komast að því hvers vegna konan gerði þetta en beðið er eftir niðurstöðum úr blóðrannsóknum.

Blair til Þýskalands

Tony Blair er nú á leið sinni til Þýskalands til viðræðna við kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, fyrir G8 fundinn. Hann byrjar í upphafi næstu viku. Á fundi sínum með Merkel í dag ætlar Blair sér að ræða þróunar- og neyðaraðstoð í Afríku sem og loftslagsbreytingarnar.

Sjá næstu 50 fréttir