Fleiri fréttir

NATO í átökum í nágrenni Kabúl

Hersveitir NATO í Afganistan lentu í morgun í átökum við íslamska uppreisnarmenn í 70 kílómetra fjarlægð frá Kabúl. Er þetta fyrsti bardaginn svo nálægt Kabúl síðan stjórn Talibana var komið frá völdum.

Útbreiðsla kjarnorku hugsanleg í Mið-Austurlöndum

Sex Arabaríki tilkynntu í gær að þau ætluðu að verða sér úti um kjarnorkutækni. Löndin eru Alsír, Egyptaland, Marokkó, Túnis, Sameinuðu Arabísku Furstadæmin og Sádi Arabía. Fréttavefur breska dagblaðsins Times skýrir frá þessu í morgun.

Átröskunarsjúklingur lést vegna ofáts

22ja ára ungversk kona sem þjáðist af búlimíu lést á sjúkrahúsi í Búdapest eftir að hafa etið of stóran skammt af mat. Konan var ekki vannærð eða undir kjörþyngd og virtist í góðu líkamlegu ástandi en kvartaði undan ákaflega sársaukafullum verkjum í maga og kviðvöðvum. Magi hennar var svo þaninn að hann hafði ýtt öðrum líffærum úr stað og stöðvað blóðflæði í stórum æðum.

Molnuðu í höndunum á viðskiptavinum

Um 1500 evruseðlar úr þýskum hraðbönkum hafa molnað í höndum viðskiptavina síðustu vikur ekki er vitað til þess að slíkt hafi gerst í öðrum Evrópusambandslöndum. Svo virðist sem seðlarnir hafi komist í tæri við sýru.

83 lík fundin á einum og hálfum sólarhring

Lögreglan í Bagdad segist hafa fundið 83 lík hér og þar um borgina á síðastliðnum einum og hálfum sólarhring. Sum bera þess merki að fólk hafi verið pyntað áður en það var myrt. 7 bandarískir hermenn til viðbótar létust í Írak og að sögn bandaríska hersins féllu 13 uppreisnarmenn. Flestir eru karlmenn og fundust bundnir á höndum og fótum.

Hestum bjargað af hól

Rúmlega hundrað hestum var bjargað í dag ofan af litlum hól í Hollandi þar sem þeir sátu fastir. Hestarnir urðu innlyksa þegar flæddi yfir friðlýst svæði á þriðjudaginn en þar hafði hestunum verið sleppt lausum. 18 hestar drukknuðu en 20 var bjargað þegar á miðvikudag, áður en veður versnaði á ný.

Bandaríkin vilja taka við stjórn friðargæslu S.þ.

Bandaríkin vilja taka yfir stjórn friðargæslu Sameinuðu þjóðanna þegar Ban Ki-Moon tekur við embætti framkvæmdastjóra S.þ. um mánaðamótin. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir háttsettum bandarískum embættismanni sem ekki vill láta nafns síns getið. Frakkar stýra friðargæslunni eins og er.

Sýndi ódæðið á netinu

Kanadíska lögreglan hefur handtekið mann sem misnotaði barnunga stúlku kynferðislega í beinni útsendingu á netinu. Lögreglumaður hafði áunnið sér traust ódæðismannsins á spjallrás á netinu og fékk aðgang að útsendingunni. Maðurinn var handtekinn tveimur klukkustundum síðar.

Skotárás mótmælt

Tvær palestínskar konur féllu og sex særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á mosku í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í morgun. Hópur herskárra Palestínumanna hafði leitað þar skjóls og höfðu konurnar svarað kalli Hamas-liða og tekið sér stöðu milli moskunnar og hermannanna. Efnt var til mótmælagöngu á götum borga og bæja á Gaza-svæðinu vegna atburðarins. Byssumennirnir sátu í moskunni meðan umsátrið varði í 19 klukkustundi. Hermenn umkringdu moskuna. Hamas-samtökin kölluðu eftir stuðningi palestínskra kvenna í útvarpsávarpi og báðu þær um að taka sér stöðu við moskuna sem lifandi skildir. Um tvö hundruð konur komu á vettvang og tóku sér stöðu. Ísraelsher mun, að sögn vitna hafa skotið á konur þar sem þær hlupu að moskunni og stóðu við hana. Atvikið mun nú í rannsókn hjá Ísraelsher en hermenn á vettvangi segjast hafa verið að svara skothríð frá Palestínumönnunum sem hafi falið sig meðal kvennanna. Sumir þeirra eru sagðir hafa dulbúið sig sem konur til að lauma sér út úr moskunni. Ekki liggur fyrir hve margir herskáir Palestínumenn sem leituðu skjóls í moskunni. Sumir miðlar segja þá hafa verið allt að sextíu en aðrir að þeir hafi ekki verið fleiri en fimmtán. Rúmlega 20 Palestínumenn og einn ísraelskur hermaður hafa fallið í áhlaupi Ísarela á Beit Hanoun sem hófst á miðvikudaginn. Ísraelsher segir áhlaupið gert til að koma í veg fyrir að herskáir Palestínumenn skjóti flugskeytum á ísraelskt landsvæði. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hafa báðir fordæmt aðgerðir Ísrelshers í Beit Hanoun og sagt þær fjöldamorð.

600 kíló af sprengiefnum gerð upptæk í Egyptalandi

Egypska lögreglan fann 600 kíló af sprengiefni á norðanverðum Sínaískaga í dag, nærri staðnum þar sem eitt tonn af sprengiefnum fannst í síðustu viku. Rúmlega 100 manns hafa látist í sprengjuárásum á ferðamannastaði á Sínaskaga frá október 2004. Sprengiefnið var falið í pokum í eyðimerkursandi en ekki fylgdi sögunni hvort einhver hefur verið handtekinn.

Dómur kveðinn upp yfir Hussein á sunnudag

Búist er við því að dómur verði kveðinn upp á sunnudag yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samverkamönnum hans vegna morðs á nærri 150 sjítum í bænum Dujail árið 1982. Fólkið lét hann drepa eftir að reynt var að ráða hann af dögum í bænum. Fari svo að hann verði sakfelldur má búast við því að hans bíði dauðadómur sem framfylgt verður með hengingu.

Reiði vegna myndbands úr brúðkaupi

Tíu mínútna myndband úr giftingarveislu sem Than Shwe, leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Maynmar, eða Burma, hélt dóttur sinni í sumar veldur mikilli reiði og fordæmingu meðal íbúa Burma eftir að myndbandið fór í sýningu á Netinu. Mayanmar er eitt af fátækari ríkjum heims.

Óttast að hundruð þúsunda flýi heimili sín í Írak

Um fimmtíu þúsund Írakar flýja heimili sín í hverjum mánuði og búast má við að hundruð þúsunda muni gera það á næstunni vegna viðvarandi óstöðuleika í landinu. Þetta er mat flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Fyrir rétti vegna hvatningar til morða

Breskur múslimi, kom fyrir dómara í dag, sakaður um að hafa hvatt til morða, í mótmælastöðu fyrir utan danska sendiráðið í Lundúnum, í Febrúar.

Dómur yfir Saddam á sunnudag

Búist er við að dómur verði kveðinn upp yfir Saddam Hussein og sjö meðreiðarsveinum hans á sunnudag, í einum af mörgum ákæruliðum sem þeir verða að svara fyrir. Krafist er dauðadóms yfir forsetanum fyrrverandi.

Saka arabíska vígamenn um morð á börnum í Darfur

Friðargæsluliðar á vegum Afríkubandalagsins í Darfur-héraði í Súdan saka arabíska vígamenn úr svokölluðum Janjawwed-sveitum um að hafa drepið að minnsta kosti 63 borgara í árásum í liðinni viku. Þar af sé tæpur helmingur börn undir tólf ára aldri.

Skotið á mosku

Minnst tvær palestínskar konur féllu og sex særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á mosku í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í morgun. 60 palestínskir byssumenn höfðu leitað þar skjóls og konurnar höfðu tekið sér stöðu milli moskunnar og hermannanna.

Bechtel kallar starfsmenn heim frá Írak

Bandaríska verktakafyrirtækið Bechtel hefur ákveðið að kalla alla starfsmenn sína heim frá Írak. Fyrirtækið, sem er að reisa álver í Reyðarfirði fyrir Fjarðaál, hefur einnig tekið þátt í endurbyggingu í Írak. Rúmlega fimmtíu starfsmenn fyrirtækisins hafa týnt lífi þar.

Bók um smábörn sögð lífshættuleg

Margir sérfræðingar, á Norðurlöndunum, vara eindregið við sænskri bók um barnauppeldi, sem þeir segja að sé beinlínis lífshættuleg börnum. Höfundurinn er Anna Wahlgren, sem sjálf er ellefu barna móðir.

Öryggisráðið klofið vegna Hariri-málsins

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í afstöðu sinni til sérstaks dómstóls sem skal rétta í máli sakborninga fyrir morðið á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Bandaríkin styðja tillöguna enda er ríkisstjórn Líbanons undir verndarvæng Bandaríkjanna. Rússar draga hins vegar taum Sýrlendinga, sem almannarómur sakar um að hafa skipulagt morðið.

Vestræn ríki verða að búa sig undir aukin elliglöp

Breskir vísindamenn vara við því í nýútkominni skýrslu að vestræn samfélög ættu að undirbúa aukna aðstöðu og aðstoð við aldrað fólk með elliglöp eða hrörnunarsjúkdóma sem leggjast á heila, út af því að batnandi lífskjör og lífslíkur hafa það í för með sér að fleira og fleira fólk nær háum aldri með bilandi heilastarfsemi.

Fiskurinn hverfur eftir 42 ár

Fiskistofnar og sjávarspendýr í höfum heimsins hrynja árið 2048 ef mannfólkið heldur áfram með uppteknum hætti við að spilla umhverfi og lífríki sjávar. Þetta er niðurstaða vísindamanna sem hafa unnið úr vísindagögnum sem ná aftur til sjöunda áratugarins og heimildum fornleifafræðinga um þróun lífríkisins í yfir þúsund ár.

Færeyingar reiðir Íslendingum

Reiði ríkir í Færeyjum vegna umræðu um bágborna stöðu samkynhneigðra í eyjunum en Íslendingar vöktu athygli á málinu á þingi Norðurlandaráðs. Óttast er að umræðan geti jafnvel orðið til að skaða réttindabaráttu homma og lesbía í Færeyjum.

Myrti dóttur sína til að hefna framhjáhalds eiginkonunnar

Breskur karlmaður var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða þriggja ára gamla dóttur sína með klóróformi fyrir tæpu ári síðan. Maðurinn reyndi einnig að fremja sjálfsvíg eftir ódæðið. Hann segist hafa framið ódæðið í hefndarskyni eftir að hann komst að því að eiginkona hans hélt fram hjá honum.

Ein eftirlitsmyndavél á hverja 14 Breta

Í Bretlandi fylgist ein eftirlitsmyndavél með hverjum fjórtán íbúum, og það er von á fleirum. Formaður bresku Persónuverndarinnar óttast að Bretland sé orðið að því eftirlitsþjóðfélagi sem George Orwell sá fyrir í bók sinni 1984.

Kenna stúlkunni sjálfri um hópnauðgun

Fjórir grískir skólapiltar hafa verið ákærðir fyrir að hópnauðga búlgarskri bekkjarsystur sinni. Íbúar þorpsins sem þetta gerðist í, segja að þetta hafi verið stúlkunni að kenna.

Óttast blóðsúthellingar á hinsegin dögum

Enn er verið að draga víglínur í Jerúsalem, en að þessu sinni eru þær á milli strangtrúaðra gyðinga og samkynhneigðra. Búist er við að 8000 manns taki þátt í skrúðgöngu "Hinsegin daga" í borginni helgu hinn tíunda þessa mánaðar.

Neyðarfundur vegna morðöldu í Napólí

Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, fór til neyðarfundar í Napólí, í dag, til að leggja á ráðin um hvernig sé hægt að stöðva öldu morða sem gengið hefur yfir borgina undanfarnar vikur.

Kaup á lettneskum banka gagnrýnd

Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga.

Blair vill ekki rugla saman Guði og Darwin

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir í viðtali við tímaritið New Scientist, að hann yrði áhyggjufullur ef sköpunarsagan yrði kennd sem raunvísindi, í breskum skólum. Sköpunarsagan er sú kenning Biblíunnar að Guð hafi skapað heiminn á sex dögum.

Mjög samviskusamur næturvörður

Pólskur innbrotsþjófur hringdi og bað lögregluna að bjarga sér eftir að næturvörður réðst á hann, vopnaður exi, og barði hann til óbóta.

Leit að skipverja hætt á Eystrasalti

Leit hefur verið hætt að skipverja sem féll útbyrðis þegar sænskt flutningaskip sökk í Eystrasalti í gærkvöld. Ofsaveður og stórsjór voru á þessum slóðum þegar neyðarkall barst frá skipinu og skömmu síðar valt það.

Íraksforseti vill hafa bandaríska herinn 2-3 ár til viðbótar

Íraski forsetinn Jalal Talabani sagði í morgun að bandarískar hersveitir ættu að vera í landinu allt að þrjú ár í viðbót svo að lögregla á svæðinu geti byggt upp starfsemi sína. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem hann hélt við upphaf vikuferðalags um Frakkland.

Nýr soldán skipaður í Nígeríu

53 ára gamall ofursti úr nígeríska hernum, Mohammed Sada Abubakar, hefur verið skipaður soldáninn af Sokoto. Sá er gegndi embættinu á undan honum lést í flugslysi í Nígeríu þann 29. október síðastliðinn.

Panama í Öryggisráðið

Panama verður líklega fulltrúi Suður-Ameríku í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á næstunni. Gvatemala og Venúsúela höfðu barist hatrammlega um sætið síðustu misseri en eftir 47 atkvæðagreiðslur án niðurstöðu ákvöðu löndin að best væri að þriðja landið tæki sætið.

Kerry biðst afsökunar

John Kerry, öldungardeildarþingmaður demókrata í Massachusetts, lét í kvöld undan þrýstingi og bað hermenn í Írak afsökunar, sem og fjölskyldur þeirra og nákomna. Hann sagðist harma það að orð sín hefðu verið mistúlkuð, hann hefði ekki viljað særa neinn. Repúblikanar hafa gert sér mat úr orðum hans og er talið að þetta gæti jafnvel haft áhrif á kosningaúrslit.

Guðfaðir korsísku mafíunnar látinn í bílslysi

Jean-Baptiste Colonna, "hinn eini sanni guðfaðir korsísku mafíunnar" samkvæmt rannsóknarskýrslu franska þingsins, lést í bílslysi á Korsíku í kvöld. Sterkur grunur lék á að hann tengdist heróínmsmyglhringnum French connection sem smyglaði gríðarlegu magni af heróíni til Bandaríkjanna á árunum 1937-1973 en hann var sýknaður eftir áfrýjun.

260 þúsund tonn af olíu gætu lekið í Eystrasaltið

Flutningaskipið Finnbirch hafði fulla tanka, samtals um 260 þúsund tonn af olíu þegar það sökk í aftakaveðri í kvöld á milli eyjanna Eylands og Gotlands. Vaktstjóri hjá sænsku strandgæslunni segir engin merki um það enn að olían sé farin að leka en segir að möguleikinn sé alltaf til staðar. Hvöss norðnorðaustanátt er enn á slysstaðnum og eins er enn saknað.

Líbanskur klerkur segir Íran stjórna Líbanon í gegnum Hisbollah

Einn æðsti klerkur súnnímúslima, Mohammad Ali Jouzou, mufti í fjallahéraðinu Mt Lebanon, gagnrýnir Hisbollah-hreyfingu sjíamúslima fyrir að þjóna hagsmunum Írans og Sýrlands. "Öll afrek sem Hisbollah montar sig af eru verk Persa sem ekki þjóna aröbum á nokkurn hátt," sagði Jouzou í ræðu í dag. Frá þessu er greint í líbanska dagblaðinu Daily star.

Tveggja enn saknað eftir skipsskaða í Eystrasalti

Flutningaskipið Finnbirch er horfið í hafið við sænsku eyna Gotland eftir að hafa marað í hálfu kafi síðan um hálfsjö-leytið að íslenskum tíma. 4-5 metra ölduhæð og kafaldsbylur hafa hamlað björgunarstörfum en 12 af 14 manna áhöfn hefur þó verið bjargað um borð í þyrlu. Þyrlur og nærstödd skip leita enn að þeim tveimur sem saknað er.

Forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar fær aukin völd

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag að veita forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar til þess að hann geti stýrt landinu farsællega til kosninga á næsta ári. Forseti landsins, Laurent Gbagbo, er þar með sviptur nær öllum völdum.

Kerry iðrast klaufalegs brandara

John Kerry, öldungardeildarþingmaður demókrata, sagðist í sjónvarpsviðtali iðrast þess að hafa sagt klaufalegan brandara um hermenn í Írak. Hann neitar hins vegar að biðja hermenn í Írak formlegrar afsökunar og segir skeytið hafi átt að beinast gegn repúblikönum og stjórnarháttum þeirra.

Sjá næstu 50 fréttir