Fleiri fréttir Rán í beinni útsendingu Löngum hefur verið sagt að armur laganna sé langur. Nýlegir atburðir í Bretlandi færðu sönnur á að almenningur getur framlengt hann enn frekar. Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í hús í Lancaster á dögunum, vissu ekki betur en þeir væru að athafna sig óséðir í skjóli myrkurs. Svo var þó ekki því húsráðandi horfði á þá láta greipar sópa úr töluverðri fjarlægð í gegnum öryggismyndavél sem hann hafði tengt við farsíma sinn. 5.10.2006 21:30 Verðlaunamynd tryggði gervihendi Níu ára drengur, sem missti vinstri hönd sína í jarðskjálftanum í Pakistan í október í fyrra, hefur fengið gervihendi eftir að þýsk kona sá mynd af honum og ákvað að færa hann undir hendur færustu sérfræðinga á Ítalíu. 80 þúsund manns fórust í hamförunum og fjölmargir örkumluðust. 5.10.2006 21:15 Óvíst hvort al-Masri er lífs eða liðinn Írakar rannsaka nú erfðaefni úr látnum manni til að kanna hvort hann hafi verið Abu Ayyub al-Masri, nýr leiðtogi al Kaída í Írak. Tvær arabískar sjónvarpsstöðvar fullyrða að hann hafi fallið í loftárásum Bandaríkjamanna fyrr í vikunni. 5.10.2006 19:30 NATO tekið við í Afganistan Atlantshafsbandalagið tók í dag við stjórn öryggismála í Austur-Afganistan úr höndum Bandaríkjahers. Bandalagið hefur þegar tekið við stjórn mála í öðrum landshlutum, þar á meðal í höfuðborginni, Kabúl. 5.10.2006 19:15 Útgefendur Nyhedsavisen gagnrýndir Útgefendur Nyhedsavisen í Danmörku eru gagnrýndir harðlega í dönskum fjölmiðlum í dag fyrir að hafa ekki nú þegar gefið upp hverjir fjármagna útgáfu blaðsins. Hagfræðingur, sem hefur kannað málið fyrir danska blaðamannafélagið, segir þetta ótrúverðugt. Blaðið kemur út í fyrsta sinn á morgun. 5.10.2006 19:00 Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. 5.10.2006 18:10 Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag. Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. 5.10.2006 17:51 Grænfriðungar stýra fiskverslun í Englandi 5.10.2006 16:49 OPEC hækkar verð á olíu 5.10.2006 16:08 Rússar þjarma enn að Georgíu Rússar hertu í dag enn tökin á smáríkinu Georgíu, með því að loka fyrirtækjum sem Georgíumenn eiga í Rússlandi, og frysta atvinnuleyfi. Þá eru þeir að undirbúa að stórhækka verð á gasi sem þeir selja til Georgíu, sem væri gríðarlegt áfall fyrir efnahag landsins. 5.10.2006 15:35 Hópur sjakala réðst á þorp í Indlandi Flytja þurfti 35 manns á sjúkrahús eftir að hópur af sjakölum réðst á þorp, í Austur-Indlandi, í gær. 5.10.2006 14:50 Risa hafeðlur fundnar á Svalbarða Norskir vísindamenn hafa fundið beinagrindur af risa-hafeðlum, sem þeir segja að hafi verið jafnvel enn skelfilegri en landeðlan Tyrannosaurus Rex, sem kölluð er Grameðla, á íslensku. 5.10.2006 14:07 Færeyingur fær umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Náttúru- og umhverfisverðlaunin 2006 til Færeyja Afburða framlag til rannsókna á sviði loftslagsbreytinga Færeyingurinn Bogi Hansen prófessor og rithöfundur hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2006. Verðlaunin eru 350.000 danskra króna. Þema verðlaunanna í ár var loftslagsbreytingar og aðlögun að loftslagsbreytingum. 5.10.2006 13:40 Aftökurútur auka framboð líffæra Fréttastofa Sky segir Kínastjórn nota aftökurútur í þeim tilgangi að taka þúsundir manna af lífi ár hvert. Í frétt sem fréttastofan flutti fyrr á árinu komu fram tengsl milli aftökukerfis Kína og mikillar uppsveiflu í líffærasölu. Einungis tvö ár eru þangað til Kína heldur næstu ólympíuleika, en skilyrði fyrir réttinum til að halda leikana var að mannréttindamál yrðu bætt í landinu. 5.10.2006 12:44 Tilraun N-Kóreu ógnun við friðinn Hörð viðbrögð hafa borist við fyrirhuguðum kjarnorkutilraunum Norðurkóreumanna en forseti öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna segir tilraunina ógna friði, stöðugleika og öryggi, bæði í Asíu og utan álfunnar. 5.10.2006 11:26 Tækjastuldur í herstöðinni Óprúttnir aðilar hafa farið ránshendi um gömlu herstöðina á Keflavíkurflugvelli. Þar hefur sérhæfðum flugvallarbúnaði verið stolið. Meðal þess sem stolið var er svokallaður töggur eða dráttarbifreið fyrir flugvélar. 5.10.2006 10:47 Ákærur í njósnahneyksli HP Ríkissaksóknari Californíu í Bandaríkjunum hefur ákært fyrrum stjórnarformann Hewlett-Packard tölvufyrirtækisins ásamt fjórum öðrum sem tengjast fyrirtækjanjósnum. Málið fór af stað þegar fyrirtækið gaf upp að að leynilögreglumenn sem það réði í því skyni að komast að leka úr stjórn fyrirtækisins, hefðu leynilega náð í færslur símtala ýmissa yfirmanna, starfsmanna og blaðamanna. 5.10.2006 10:22 Lögregla í liði með dauðasveitum Liðsmenn í íraskir lögreglusveit hafa verið leystir tímabundið frá störfum, allir sem einn, og sendir aftur í þjálfun. Þeir hafa verið sakaðir um að láta ódæði dauðasveita í landinu átölulaus. Mennirnir voru sendir heim eftir að vopnaðir menn rændu nærri 40 manns í Bagdad, höfuðborg landsins, fyrr í vikunni. Nokkrir þeirra sem rænt var féllu síðan fyrir hendi mannræningja sinn. 4.10.2006 21:45 4 bandarískir hermenn féllu í Írak Fjórir bandarískir hermenn féllu í árás nærri Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem mannskæð árás er gerð á hersveitir Bandaríkjamanna nærri höfuðborginni. 4.10.2006 21:30 Myrti aldraða sjúklinga Fyrrverandi hjúkrunarkona á sjúkrahúsi í Texas í Bandaríkjunum gekkst við því fyrir dómi í dag að hafa myrt 10 aldraða sjúklinga í hennar umsjá fyrir nærri sex árum. 4.10.2006 21:30 Hleranir áfram leyfðar Bandarísk stjórnvöld geta áfram stundað hleranir án sérstakrar heimildar á meðan áfrýjun bandaríska dómsmálaráðuneytisins vegna banns á þeim hefur ekki verið tekin fyrir. Þetta var niðurstaða áfrýjunarréttar í Cincinnati í dag. 4.10.2006 20:58 Telur ekki hættu á stríðsátökum Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, telur enga hættu á því að til stríðsátaka komi milli Rússa og Georgíumanna vegna deilna ríkjanna síðustu vikur. Hann hvetur þó deilendur til að gæta hófsemi og sýna stillingu. 4.10.2006 20:45 Sprenging í Pakistan Lögreglan í Pakistan fann í dag sprengiefni í garði nálægt heimili Pervez Musharraf, forseta landsins í borginni Rawalpindi. Það gerðist eftir að sprenging heyrðist þar í borg. Enginn féll eða sæðrist. 4.10.2006 19:59 IRA sagður skaðlaus Írski lýðveldisherinn hefur snúið baki við hryðjuverkum og ekki stafar lengur ógn af samtökunum. Óháð nefnd um afvopnun á Norður-Írlandi hefur komist að þessari niðurstöðu. 4.10.2006 19:00 Taka Íslendinga til fyrirmyndar Norðmenn opna Barnahús að íslenskri fyrirmynd en þar er sinnt málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. 4.10.2006 19:00 Barist í Nígeríu Til skotbardaga kom milli herskárra Nígeríumanna og liðsmanna í stjórnarher landsins í óshólmum Nígeríu síðdegis. Skipts var á skotum nálægt olíudælustöð Royal Dutch Shell á austurhluta svæðisins. 4.10.2006 17:45 Barnaníðingum verður lítið ágengt 4.10.2006 16:58 Njósnahnettir sjá sprengjuundirbúning í N-Kóreu Bandarískir njósnagervihnettir hafa séð óvenjulega umferð á nokkrum stöðum sem Norður-Kórea gæti notað til þess að sprengja tilraunakjarnorkusprengju eins og þeir tilkynntu í gær að þeir ætlauðu gera. 4.10.2006 16:22 Sjötíu prósent Grænlendinga reykja 4.10.2006 15:54 Ný leið til þess að ræna flugvél Flugfélögin hafa fengið nýtt vandamál að kljást við. Hvernig getur einn óvopnaður farþegi rænt farþegaþotu í millilandaflugi og neytt áhöfnina til að lenda þar sem hann segir? 4.10.2006 15:29 Ótrúleg heppni 4.10.2006 14:40 Hættuleg sauna-böð 4.10.2006 14:32 Banvænt megrunarlyf 4.10.2006 14:23 Vill leysa upp ríkisstjórn Hamas 4.10.2006 13:27 Stærri vöðvar - minni heili Steralyf sem stækka vöðva íþróttamanna, geta líka stuðlað að minnkun heilans samkvæmt nýrri rannsókn sem sýnir að inntaka vöðva-steralyfja stuðli að tapi á heilafrumum. Áður var vitað að sterar auka framleiðslu karlhormónsins testesteróns sem leiðir til að árásarhneigð og reiði ágerist. 4.10.2006 13:16 Löngu látinn 4.10.2006 13:02 Brjóstin björguðu Búlgörsk kona getur þakkað silikonbrjóstum að hún slapp vel frá alvarlegu bílslysi. Silikonpúðarnir í brjóstum hinnar 24 ára gömlu konu virkuðu sem loftpúðar þegar hún lenti í hörðum árekstri við annan bíl. Breska blaðið Standard sagði að konan hefði keyrt yfir á rauðu ljósi, á annan bíl á stórum gatnamótum í Ruse. 4.10.2006 12:31 Airbus hlutabréf lækka Hlutabréf í EADS, móðurfélagi Airbus flugvélaverksmiðjanna, féllu um tíu prósent í morgun eftir enn eina tilkynningu um seinkun á framleiðslu á A-380, tveggja hæða risaþotunni. 4.10.2006 12:15 Farþegar fréttu af flugráninu eftir lendingu Farþegar flugvélar Turkish Airlines sem var rænt á leið frá Albaníu til Tyrklands í gær vissu ekki af flugráninu. Þeim var sagt að lenda þyrfti á Ítalíu vegna tæknilegra örðugleika á flugvellinum í Istanbul. Það var ekki fyrr en þeir sáu vopnaða hermenn á flugvellinum í Brindisi og fengu SMS skilaboð frá áhyggjufullum ættingjum, að þeir áttuðu sig á stöðu mála. 4.10.2006 12:12 Vilja ekki að öryggisráð Sþ ræði kjarnorkutilraunir Kínverjar eru andvígir því að fyrirhugaðar tilraunir Norður-Kóreumanna með kjarnorkuvopn verði teknar upp í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. 4.10.2006 12:07 Vilja banna botnvörpuveiðar Umhverfisverndarsinnar leggja nú hart að allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að banna botnvörpuveiðar. Umræður um bann við slíkum veiðum á alþjóðlegum hafsvæðum fara fram á þinginu í vikunni. 4.10.2006 11:15 10 látnir og 72 slasaðir í Baghdad 10 eru látnir og 72 slasaðir eftir að fjöldi sprengja sprakk í Baghdad í dag. Fjöldi lögreglumanna og gangandi vegfarenda slasaðist, bílar eyðilögðust og hluti nærliggjandi byggingar hrundi. Sprengja hæfði einnig öryggisfylgd iðnaðarráðherra Íraks sem var á ferð í nýjum hluta borgarinnar. 4.10.2006 10:57 Flugvél nauðlent í Teheran Farþegaflugvél var nauðlent á Mehrabad-flugvelli í Teheran, höfuðborg Írans, í dag. Íranska fréttastofan Fars segir að kviknað hafi í hreyfli flugvélarinnar og því hafi henni verið nauðlent. Sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang. Flugmálayfirvöld þar í borg segja ekkert hæft í þeim fullyrðingum. 3.10.2006 20:08 Líkast til aðeins einn flugræningi en ekki tveir Svo virðist sem einn maður hafi rænt tyrkneskri farþegaflugvél í dag en ekki tveir eins og haldið hefur verið fram. Vélin var á leið frá Tírana í Albaníu til Istanbúl þegar henni var rænt og beint til Ítalíu. Flugræninginn mun, að sögn tyrkneskra fjölmiðla, ekki hafa verið að mótmæla væntanlegri heimsókn Benedikts páfa XVI. með flugráninu eins og haldið hefur verið fram. 3.10.2006 19:50 Man ekki eftir að hafa orðið systrum sínum að bana Maðurinn sem myrti systur sínar þrjár í Ósló í fyrrakvöld kveðst ekkert muna eftir að hafa orðið þeim að bana. Hann dvelur á geðdeild vegna þess að hann er enn í of miklu losti til að hægt sé að yfirheyra hann. 3.10.2006 19:15 Sjá næstu 50 fréttir
Rán í beinni útsendingu Löngum hefur verið sagt að armur laganna sé langur. Nýlegir atburðir í Bretlandi færðu sönnur á að almenningur getur framlengt hann enn frekar. Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í hús í Lancaster á dögunum, vissu ekki betur en þeir væru að athafna sig óséðir í skjóli myrkurs. Svo var þó ekki því húsráðandi horfði á þá láta greipar sópa úr töluverðri fjarlægð í gegnum öryggismyndavél sem hann hafði tengt við farsíma sinn. 5.10.2006 21:30
Verðlaunamynd tryggði gervihendi Níu ára drengur, sem missti vinstri hönd sína í jarðskjálftanum í Pakistan í október í fyrra, hefur fengið gervihendi eftir að þýsk kona sá mynd af honum og ákvað að færa hann undir hendur færustu sérfræðinga á Ítalíu. 80 þúsund manns fórust í hamförunum og fjölmargir örkumluðust. 5.10.2006 21:15
Óvíst hvort al-Masri er lífs eða liðinn Írakar rannsaka nú erfðaefni úr látnum manni til að kanna hvort hann hafi verið Abu Ayyub al-Masri, nýr leiðtogi al Kaída í Írak. Tvær arabískar sjónvarpsstöðvar fullyrða að hann hafi fallið í loftárásum Bandaríkjamanna fyrr í vikunni. 5.10.2006 19:30
NATO tekið við í Afganistan Atlantshafsbandalagið tók í dag við stjórn öryggismála í Austur-Afganistan úr höndum Bandaríkjahers. Bandalagið hefur þegar tekið við stjórn mála í öðrum landshlutum, þar á meðal í höfuðborginni, Kabúl. 5.10.2006 19:15
Útgefendur Nyhedsavisen gagnrýndir Útgefendur Nyhedsavisen í Danmörku eru gagnrýndir harðlega í dönskum fjölmiðlum í dag fyrir að hafa ekki nú þegar gefið upp hverjir fjármagna útgáfu blaðsins. Hagfræðingur, sem hefur kannað málið fyrir danska blaðamannafélagið, segir þetta ótrúverðugt. Blaðið kemur út í fyrsta sinn á morgun. 5.10.2006 19:00
Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. 5.10.2006 18:10
Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag. Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. 5.10.2006 17:51
Rússar þjarma enn að Georgíu Rússar hertu í dag enn tökin á smáríkinu Georgíu, með því að loka fyrirtækjum sem Georgíumenn eiga í Rússlandi, og frysta atvinnuleyfi. Þá eru þeir að undirbúa að stórhækka verð á gasi sem þeir selja til Georgíu, sem væri gríðarlegt áfall fyrir efnahag landsins. 5.10.2006 15:35
Hópur sjakala réðst á þorp í Indlandi Flytja þurfti 35 manns á sjúkrahús eftir að hópur af sjakölum réðst á þorp, í Austur-Indlandi, í gær. 5.10.2006 14:50
Risa hafeðlur fundnar á Svalbarða Norskir vísindamenn hafa fundið beinagrindur af risa-hafeðlum, sem þeir segja að hafi verið jafnvel enn skelfilegri en landeðlan Tyrannosaurus Rex, sem kölluð er Grameðla, á íslensku. 5.10.2006 14:07
Færeyingur fær umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Náttúru- og umhverfisverðlaunin 2006 til Færeyja Afburða framlag til rannsókna á sviði loftslagsbreytinga Færeyingurinn Bogi Hansen prófessor og rithöfundur hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2006. Verðlaunin eru 350.000 danskra króna. Þema verðlaunanna í ár var loftslagsbreytingar og aðlögun að loftslagsbreytingum. 5.10.2006 13:40
Aftökurútur auka framboð líffæra Fréttastofa Sky segir Kínastjórn nota aftökurútur í þeim tilgangi að taka þúsundir manna af lífi ár hvert. Í frétt sem fréttastofan flutti fyrr á árinu komu fram tengsl milli aftökukerfis Kína og mikillar uppsveiflu í líffærasölu. Einungis tvö ár eru þangað til Kína heldur næstu ólympíuleika, en skilyrði fyrir réttinum til að halda leikana var að mannréttindamál yrðu bætt í landinu. 5.10.2006 12:44
Tilraun N-Kóreu ógnun við friðinn Hörð viðbrögð hafa borist við fyrirhuguðum kjarnorkutilraunum Norðurkóreumanna en forseti öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna segir tilraunina ógna friði, stöðugleika og öryggi, bæði í Asíu og utan álfunnar. 5.10.2006 11:26
Tækjastuldur í herstöðinni Óprúttnir aðilar hafa farið ránshendi um gömlu herstöðina á Keflavíkurflugvelli. Þar hefur sérhæfðum flugvallarbúnaði verið stolið. Meðal þess sem stolið var er svokallaður töggur eða dráttarbifreið fyrir flugvélar. 5.10.2006 10:47
Ákærur í njósnahneyksli HP Ríkissaksóknari Californíu í Bandaríkjunum hefur ákært fyrrum stjórnarformann Hewlett-Packard tölvufyrirtækisins ásamt fjórum öðrum sem tengjast fyrirtækjanjósnum. Málið fór af stað þegar fyrirtækið gaf upp að að leynilögreglumenn sem það réði í því skyni að komast að leka úr stjórn fyrirtækisins, hefðu leynilega náð í færslur símtala ýmissa yfirmanna, starfsmanna og blaðamanna. 5.10.2006 10:22
Lögregla í liði með dauðasveitum Liðsmenn í íraskir lögreglusveit hafa verið leystir tímabundið frá störfum, allir sem einn, og sendir aftur í þjálfun. Þeir hafa verið sakaðir um að láta ódæði dauðasveita í landinu átölulaus. Mennirnir voru sendir heim eftir að vopnaðir menn rændu nærri 40 manns í Bagdad, höfuðborg landsins, fyrr í vikunni. Nokkrir þeirra sem rænt var féllu síðan fyrir hendi mannræningja sinn. 4.10.2006 21:45
4 bandarískir hermenn féllu í Írak Fjórir bandarískir hermenn féllu í árás nærri Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem mannskæð árás er gerð á hersveitir Bandaríkjamanna nærri höfuðborginni. 4.10.2006 21:30
Myrti aldraða sjúklinga Fyrrverandi hjúkrunarkona á sjúkrahúsi í Texas í Bandaríkjunum gekkst við því fyrir dómi í dag að hafa myrt 10 aldraða sjúklinga í hennar umsjá fyrir nærri sex árum. 4.10.2006 21:30
Hleranir áfram leyfðar Bandarísk stjórnvöld geta áfram stundað hleranir án sérstakrar heimildar á meðan áfrýjun bandaríska dómsmálaráðuneytisins vegna banns á þeim hefur ekki verið tekin fyrir. Þetta var niðurstaða áfrýjunarréttar í Cincinnati í dag. 4.10.2006 20:58
Telur ekki hættu á stríðsátökum Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, telur enga hættu á því að til stríðsátaka komi milli Rússa og Georgíumanna vegna deilna ríkjanna síðustu vikur. Hann hvetur þó deilendur til að gæta hófsemi og sýna stillingu. 4.10.2006 20:45
Sprenging í Pakistan Lögreglan í Pakistan fann í dag sprengiefni í garði nálægt heimili Pervez Musharraf, forseta landsins í borginni Rawalpindi. Það gerðist eftir að sprenging heyrðist þar í borg. Enginn féll eða sæðrist. 4.10.2006 19:59
IRA sagður skaðlaus Írski lýðveldisherinn hefur snúið baki við hryðjuverkum og ekki stafar lengur ógn af samtökunum. Óháð nefnd um afvopnun á Norður-Írlandi hefur komist að þessari niðurstöðu. 4.10.2006 19:00
Taka Íslendinga til fyrirmyndar Norðmenn opna Barnahús að íslenskri fyrirmynd en þar er sinnt málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. 4.10.2006 19:00
Barist í Nígeríu Til skotbardaga kom milli herskárra Nígeríumanna og liðsmanna í stjórnarher landsins í óshólmum Nígeríu síðdegis. Skipts var á skotum nálægt olíudælustöð Royal Dutch Shell á austurhluta svæðisins. 4.10.2006 17:45
Njósnahnettir sjá sprengjuundirbúning í N-Kóreu Bandarískir njósnagervihnettir hafa séð óvenjulega umferð á nokkrum stöðum sem Norður-Kórea gæti notað til þess að sprengja tilraunakjarnorkusprengju eins og þeir tilkynntu í gær að þeir ætlauðu gera. 4.10.2006 16:22
Ný leið til þess að ræna flugvél Flugfélögin hafa fengið nýtt vandamál að kljást við. Hvernig getur einn óvopnaður farþegi rænt farþegaþotu í millilandaflugi og neytt áhöfnina til að lenda þar sem hann segir? 4.10.2006 15:29
Stærri vöðvar - minni heili Steralyf sem stækka vöðva íþróttamanna, geta líka stuðlað að minnkun heilans samkvæmt nýrri rannsókn sem sýnir að inntaka vöðva-steralyfja stuðli að tapi á heilafrumum. Áður var vitað að sterar auka framleiðslu karlhormónsins testesteróns sem leiðir til að árásarhneigð og reiði ágerist. 4.10.2006 13:16
Brjóstin björguðu Búlgörsk kona getur þakkað silikonbrjóstum að hún slapp vel frá alvarlegu bílslysi. Silikonpúðarnir í brjóstum hinnar 24 ára gömlu konu virkuðu sem loftpúðar þegar hún lenti í hörðum árekstri við annan bíl. Breska blaðið Standard sagði að konan hefði keyrt yfir á rauðu ljósi, á annan bíl á stórum gatnamótum í Ruse. 4.10.2006 12:31
Airbus hlutabréf lækka Hlutabréf í EADS, móðurfélagi Airbus flugvélaverksmiðjanna, féllu um tíu prósent í morgun eftir enn eina tilkynningu um seinkun á framleiðslu á A-380, tveggja hæða risaþotunni. 4.10.2006 12:15
Farþegar fréttu af flugráninu eftir lendingu Farþegar flugvélar Turkish Airlines sem var rænt á leið frá Albaníu til Tyrklands í gær vissu ekki af flugráninu. Þeim var sagt að lenda þyrfti á Ítalíu vegna tæknilegra örðugleika á flugvellinum í Istanbul. Það var ekki fyrr en þeir sáu vopnaða hermenn á flugvellinum í Brindisi og fengu SMS skilaboð frá áhyggjufullum ættingjum, að þeir áttuðu sig á stöðu mála. 4.10.2006 12:12
Vilja ekki að öryggisráð Sþ ræði kjarnorkutilraunir Kínverjar eru andvígir því að fyrirhugaðar tilraunir Norður-Kóreumanna með kjarnorkuvopn verði teknar upp í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. 4.10.2006 12:07
Vilja banna botnvörpuveiðar Umhverfisverndarsinnar leggja nú hart að allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að banna botnvörpuveiðar. Umræður um bann við slíkum veiðum á alþjóðlegum hafsvæðum fara fram á þinginu í vikunni. 4.10.2006 11:15
10 látnir og 72 slasaðir í Baghdad 10 eru látnir og 72 slasaðir eftir að fjöldi sprengja sprakk í Baghdad í dag. Fjöldi lögreglumanna og gangandi vegfarenda slasaðist, bílar eyðilögðust og hluti nærliggjandi byggingar hrundi. Sprengja hæfði einnig öryggisfylgd iðnaðarráðherra Íraks sem var á ferð í nýjum hluta borgarinnar. 4.10.2006 10:57
Flugvél nauðlent í Teheran Farþegaflugvél var nauðlent á Mehrabad-flugvelli í Teheran, höfuðborg Írans, í dag. Íranska fréttastofan Fars segir að kviknað hafi í hreyfli flugvélarinnar og því hafi henni verið nauðlent. Sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang. Flugmálayfirvöld þar í borg segja ekkert hæft í þeim fullyrðingum. 3.10.2006 20:08
Líkast til aðeins einn flugræningi en ekki tveir Svo virðist sem einn maður hafi rænt tyrkneskri farþegaflugvél í dag en ekki tveir eins og haldið hefur verið fram. Vélin var á leið frá Tírana í Albaníu til Istanbúl þegar henni var rænt og beint til Ítalíu. Flugræninginn mun, að sögn tyrkneskra fjölmiðla, ekki hafa verið að mótmæla væntanlegri heimsókn Benedikts páfa XVI. með flugráninu eins og haldið hefur verið fram. 3.10.2006 19:50
Man ekki eftir að hafa orðið systrum sínum að bana Maðurinn sem myrti systur sínar þrjár í Ósló í fyrrakvöld kveðst ekkert muna eftir að hafa orðið þeim að bana. Hann dvelur á geðdeild vegna þess að hann er enn í of miklu losti til að hægt sé að yfirheyra hann. 3.10.2006 19:15
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent