Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ESB: Staðfestingarferlinu frestað Staðfestingarferli stjórnarskár Evrópusambandins hefur verið slegið á frest. Hvort eða hvenær staðfestingarferli stjórnarskrár Evrópusambandsins hefst að nýju er á huldu. 17.6.2005 00:01
Sendiráðum lokað í Nígeríu Sendiráði Bandaríkjanna í Abuja, höfuðborg Nígeríu, og skrifstofu bandaríska konsúlsins í Lagos, stærstu borg landsins, var lokað í morgun af öryggisástæðum. Bretar fylgdu í kjölfarið skömmu síðar og lokuðu sendiráði sínu í Lagos af sömu ástæðu. 17.6.2005 00:01
Ráðherrann gagnrýnir Schröder Forsætisráðherra Tyrklands gagnrýndi Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, í morgun í kjölfar þess að þýska þingið harmaði meint þjóðarmorð Tyrkja á Armenum í fyrri heimsstyrjöld. 17.6.2005 00:01
Miklar deilur á leiðtogafundi ESB Það logar stafna á milli á leiðtogafundi Evrópusambandins sem hófst í Brussel í gær. Samþykkt stjórnarskrársáttmála sambandsins hefur verið slegið á frest um óákveðinn tíma og nú er hart tekist á um fjárframlög þjóðanna í sameiginlega sjóði. 17.6.2005 00:01
Fleiri sendiráð rýmd í Nígeríu Ítalir og Indverjar hafa látið rýma sendiráð sín og skrifstofubyggingar í Nígeríu líkt og Bandaríkjamenn og Bretar gerðu fyrr í morgun. Mikill viðbúnaður er í borginni Lagos eftir að óljósar fregnir bárust af því að íslömsk hryðjuverkasamtök myndu láta til skarar skríða gegn erlendum erindrekum. 17.6.2005 00:01
Sænskur dómari kaupir sér blíðu Sænskur héraðsdómari var staðinn að því að kaupa sér blíðu vændiskvenna. Athygli vekur að þetta er þriðji sænski dómarinn á þessu ári sem staðinn hefur verið að þessari iðju. 17.6.2005 00:01
Raforkukerfi Danmerkur eflt Danir leggja nýjan rafstreng undir Stórabelti fyrir rúman milljarð danskra króna. Þannig sameina þeir og efla raforkukerfi austur- og vesturhluta Danmerkur. Fyrir tveimur árum fór rafmagn af samtímis í suðurhluta Svíþjóðar og Danmörku og kom þá í ljós hve viðkvæmt rafveitunetið er. 17.6.2005 00:01
Sex látnir eftir loftárásir Að minnsta kosti sex eru látnir eftir að Bandaríkjamenn gerðu loftárásir á aðsetur meintra hryðjuverkamanna í Írak í nótt. F-16 orrustuþotur flugu yfir skotmörkin, sem flest eru í og við bæinn Qaim í vesturhluta landsins, og vörpuðu fjölda mjög öflugra sprengna. 17.6.2005 00:01
Seldi dóttur sína í vændi Fjörutíu og fjögurra ára gamall karlmaður var dæmdur í níu ára fangelsi í Svíþjóð fyrir að nauðga dóttur sinni og selja hana í barnavændi á aldursbilinu fjögurra til níu ára. Fjórir menn í viðbót eru sakfelldir fyrir að beita stúlkuna kynferðislegu ofbeldi, allir yngri en faðirinn. 17.6.2005 00:01
Chirac samþykkir frestun Jacques Chirac, forseti Frakklands, sagði fyrir stundu að hann væri reiðubúinn að fresta atkvæðagreiðslu um tillögu þess efnis að Bretar fái ekki lengur afslátt af gjöldum Evrópusambandsins, gegn því að það verði til þess að breyting verði á fjárframlögum til sambandsins í heild. 17.6.2005 00:01
Sláum því á frest „Sláum því á frest“ er helsta niðurstaða leiðtogafundar Evrópusambandsþjóðanna um sameiginlega stjórnarskrá sem lýkur í Brussel í kvöld. Þá var hart deilt um frjárframlög í sameiginlega sjóði. 17.6.2005 00:01
Dómararnir sækja í vændiskonur Á einu ári hafa þrír sænskir dómarar verið staðnir að því að kaupa sér blíðu vændiskvenna sem er refsiverður verknaður í Svíþjóð. 17.6.2005 00:01
Lögin opna fyrir íslensk föðurnöfn Umdeild nafnalög voru samþykkt á danska þinginu í morgun. Lögin auðvelda útlendingum í landinu að taka upp dönsk eftirnöfn og opna fyrir íslensk föðurnöfn. 17.6.2005 00:01
Allt í hnút í ESB Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, gerði hlé á leiðtogafundi Evrópusambandsins stuttu eftir hádegi í gær. Umræður um fjárlög sambandsins fyrir tímabilið 2007 til 2013 fóru í hnút og Juncker mun hafa boðað hina leiðtogana 24 á sinn fund til þess að ræða einslega við þá áður en lengra verður haldið. 17.6.2005 00:01
Nafnalög samþykkt Danskir þingmenn samþykktu ný nafnalög sem fela meðal annars í sér að öllum skuli vera frjálst að taka upp eftirnafn sem fleiri en tvö þúsund Danir bera. 17.6.2005 00:01
Norður-Kóreumenn vilja funda Norður-kóresk stjórnvöld segjast vilja funda með bandarískum stjórnvöldum í næsta mánuði og ræða um kjarnorkuafvopnun. 17.6.2005 00:01
Íranar fjölmenntu á kjörstað Afar góð kjörsókn var í írönsku forsetakosningunum í gær. Úrslit munu liggja fyrir í dag en búist er við að kjósa þurfi aftur á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu. 17.6.2005 00:01
Danir mega nota íslensku aðferðina Á þjóðhátíðardegi Íslendinga hafa danskir þingmenn samþykkt ný nafnalög sem fela meðal annars í sér endurvakningu föðurnafna að íslenskri hefð. 17.6.2005 00:01
Héldu börnum í gíslingu Eitt barn og tveir byssumenn létu lífið þegar lögregla réðst til atlögu og yfirbugaði mannræningja í Kambódíu sem höfðu haldið tæplega þrjátíu leikskólabörnum í gíslingu í morgun. Sex menn vopnaðir byssum ruddust inn í leikskólann í morgun og tóku um fjörutíu börn í gíslingu en ellefu þeirra var sleppt fljótlega. 16.6.2005 00:01
Ekki búist við niðurstöðu á fundi Ekki er búist við að nein niðurstaða náist um fjármál Evrópusambandsins á fundi leiðtoga landa sambandsins sem haldinn verður síðar í dag. Aðallega er deilt um 400 milljarða skattaafslátt Breta sem samið var um árið 1984 á þeim forsendum að þeir fengju minna í styrki en önnur lönd. Öll lönd sambandsins, önnur en Bretar, vilja að afslátturinn verði afnuminn hið fyrsta. 16.6.2005 00:01
Herþota brotlenti í bakgarðinum Meira en þrettán hundruð manns þurftu að yfirgefa heimili sín í Arizona í Bandaríkjunum í gærkvöldi þegar herþota brotlenti í bakgarði íbúðarhúss. Flugmaðurinn slapp með lítils háttar meiðsl og ekki er vitað til þess að neinn annar hafi slasast þó að kviknað hafi í húsinu. Mikil hætta var á ferðum þar sem inni í þotunni voru fjórar 200 kílógramma sprengjur og mikið af skotfærum. 16.6.2005 00:01
Leystu upp eiturlyfjahring Lögregluyfirvöld á Ítalíu, Spáni og í Suður-Ameríku hafa leyst upp alþjóðlegan eiturlyfjahring og handtekið fjórtán menn og lagt hald á hálft tonn af kókaíni. Að sögn lögreglunnar á Ítalíu hafði hringurinn um nokkurt skeið séð um flutning eiturlyfja frá Suður-Ameríku til Evrópu. 16.6.2005 00:01
Handtók 13 al-Qaida liða Írakska lögreglan handtók í morgun þrettán menn sem grunaðir eru um aðild að samtökum al-Qaida í landinu. Lögreglan gerði áhlaup á nokkra staði í Bagdad þar sem vitað var að uppreisnarmennirnir héldu sig. 16.6.2005 00:01
Aukin framleiðsla hefur ekki áhrif Olíuverð nálgast nú 56 dollara á fatið og er greinilegt að ákvörðun OPEC-ríkjanna í gær um að auka framleiðslu hefur engin áhrif haft á verð á mörkuðum. Verðið hefur til að mynda hækkað um tvo dollara á fatið á markaði í Bandaríkjunum í þessari viku. Sérfræðingar telja engar líkur á verðlækkun þar sem það jaðrar við olíuskorti. 16.6.2005 00:01
Afboðar líklega þjóðaratkvæði Danir munu að öllum líkindum afboða þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarsáttmála Evrópusambandsins, en hún átti að fara fram 27. september næstkomandi. Heimildarmaður <em>Reuters </em>segir Anders Fogh-Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hafa miklar efasemdir um að samkomulag náist innan Evrópusambandsins um hvernig haga beri framhaldinu eftir að Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarsáttmálanum fyrir skemmstu. 16.6.2005 00:01
Eigi ekki í viðræðum við Mladic Serbnesk yfirvöld neita því með öllu að þau reyni nú að semja við fyrrverandi hershöfðinga Bosníu-Serba, Ratko Mladic, um að hann gefi sig fram við yfirvöld og verði í kjölfarið framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag. 16.6.2005 00:01
Hafi vitað af vilja til samninga Ný gögn benda til þess að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hafi vitað af vilja fyrirtækis sem sonur hans vann hjá til að fá arðbæran samning við Sameinuðu þjóðirnar vegna áætlunar um olíu fyrir mat í Írak. 16.6.2005 00:01
Engin von um að Schiavo næði sér Engin von var til þess að Terri Schiavo næði sér. Krufning leiddi þetta í ljós en ekki tókst að finna ástæðu þess að hún féll í dá fyrir fimmtán árum síðan. 16.6.2005 00:01
Kosningabaráttu lokið í Íran Líflegri forsetakosningabaráttu lauk í nótt í Íran. Ungt fólk var áberandi á kosningasamkundum þrátt fyrir lítinn stjórnmálaáhuga en margir sögðust þar einungis til að skemmta sér. 16.6.2005 00:01
Vill stofna OPEC-samtök fiskveiða Færeyingurinn Högni Hoydal lagði til á fiskveiðiráðstefnu vestnorræna ráðsins, sem haldin er í Þórshöfn í Færeyjum, að stofnuð yrðu í samstarfi við Noreg ný fiskveiðisamtök, nokkurs konar OPEC-samtök fiskveiðanna, eins og hann orðaði það með skírskotun til samtaka olíuframleiðsluríkja. Þetta kemur fram á vef Norðurlandaráðs. 16.6.2005 00:01
Gripu samstarfsmann al-Zarqawis Bandaríkjaher greindi frá því í dag að hann hefði handsamað háttsettan samstarfsmann Abus Musabs al-Zarqawis, leiðtoga al-Qaida í Írak, nærri Mósúl. Mohammed Khalif Shaiker, sem einnig gengur undir nafninu emírinn af Mósúl, var handtekinn á þriðjudaginn var eftir að íbúar í Mósúl höfðu vísað á hann. Hann veitti litla mótspyrnu við handtökuna að sögn talsmanns Bandaríkjahers. 16.6.2005 00:01
Vildi fresta staðfestingarferli Jean Claude Jucker, forsætisráðherra Lúxemborgar, lagði til að staðfestingarferli stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins yrði lagt til hliðar í níu mánuði til eins árs á meðan leiðtogar aðildarríkjanna ákvæðu næstu skref í kjölfar þess að Frakkar og Hollendingar felldu stjórnarskrána. Tillöguna bar hann upp á fundi leiðtoga íhaldsflokka innan Evrópusambandsins í Brussel í dag og þrátt fyrir að Joes Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefði ljáð honum stuðning sinn fékk tillagan ekki náð fyrir augum íhaldsleiðtoganna. 16.6.2005 00:01
Sprengjutilræði í Sofíu Sex slösuðust þegar sprengja sprakk undir bíl í úthverfi Sofíu, höfuðborgar Búlgaríu, í dag. Talsmaður innanríkisráðuneytis Búlgaríu sagði í samtali við <em>Reuters</em>-fréttastofuna að ekki væri ljóst hver stæði á bak við tilræðið en hann taldi ólíklegt að um hryðjuverkaárás væri að ræða. Deilur milli glæpaklíkna, sem eru atkvæðamiklar í landinu, eru sagðar hafa kostað fjölda fólks lífið undanfarið ár en tilræðum sem þessum hefur verið beitt í átökunum. 16.6.2005 00:01
Dóu í aurskriðu í Gvatemala Að minnsta kosti nítján manns létust þegar aurskriða æddi yfir bæinn San Antonio Senahu í fjallahéruðum Gvatemala í dag. Rigningar og flóð eru talin hafa komið aurskriðunni af stað og er fjöldi húsa og bíla í bænum á kafi í aurnum. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka en björgunarstörf standa enn yfir. 16.6.2005 00:01
Segir bin Laden ekki í Afganistan Sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan, Zalemy Khalilzad, telur að hvorki Osama bin Laden né Mohammed Mullah Omar, leiðtogi talibana, séu í landinu. Þetta lét sendiherrann hafa eftir sér á síðasta blaðamannafundi sínum í Afganistan en hann færir sig nú til Íraks þar sem hann mun gegna sama embætti. Khalilzad vildi ekki gefa upp hvart hann teldi að tvímenningarnir væru niður komnir en lesa mátti úr orðum hans að þeir væru hugsanlega í Pakistan. 16.6.2005 00:01
Vill neyðarfund um framtíð ESB Jacques Chirac Frakklandsforseti fór fram á það í dag að haldinn yrði sérstakur neyðarfundur um framtíð Evrópusambandsins í ljósi þess vanda sem upp er kominn vegna þess að Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrársáttmála sambandsins. Á fundi með öðrum leiðtogum ESB í Brussel í dag sagði Chirac að nauðsynlegt væri að ræða hvernig brúa mætti bilið milli sambandsins og almennings í álfunni. 16.6.2005 00:01
Snyrtileg höfuðföt á Ascot Það er höfuðmál að vera glæsilegur til höfuðsins á konunglegu Ascot-veðreiðunum í Bretlandi en þær standa nú sem hæst. Það þykir að vísu reginhneyksli að aðallinn sem sækir þessar veðreiðar heim þurfi nú að fara alla leið til York til að vera við þær og hattatískan virðist ekki hafa batnað við flutningana. Hattarnir gætu þó komið að góðum notum því að í gær var veðrið heldur nöturlegt: rok og rigning. 16.6.2005 00:01
Svartsýni á árangur Við upphaf tveggja daga leiðtogafundar Evrópusambandsins í Brussel í gær kallaði Jacques Chirac Frakklandsforseti eftir því að efnt verði til sérstaks leiðtogafundar aðildarríkjanna 25 um framtíð sambandsins. "Þetta er einn erfiðasti leiðtogafundur sem við höfum nokkru sinni haldið," sagði Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemborgar. 16.6.2005 00:01
Heppin amma Donna Goeppert, 55 ára gömul amma í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, vann eina milljón dollara, andvirði um 65 milljóna króna, í lottói í vikunni. Það væri ekki sérstaklega í frásögur færandi nema vegna þess að hún hafði áður unnið milljón dollara hámarksvinninginn. 16.6.2005 00:01
Segir bin Laden ekki í Afganistan Sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan, Zalmay Khalilzad, fullyrti í gær að hvorki Osama bin Laden né fyrrverandi talibanaleiðtoginn Mullah Omar væru í landinu. 16.6.2005 00:01
Danir styðja afnám hvalveiðibanns Eina leiðin til að vernda hvali er að afnema hið algera bann við veiðum í atvinnuskyni sem verið hefur í gildi frá því árið 1986. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir Per Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur. 16.6.2005 00:01
Gagnrýna ESB fyrir Hamas-tengsl Ísraelsk stjórnvöld sögðust í gær hafa lagt inn formleg mótmæli hjá Evrópusambandinu gegn auknum samskiptum þeirra við hin herskáu Hamas-samtök Palestínumanna. Talsmenn Hamas staðfestu að tengsl við erindreka ESB færust í aukana. 16.6.2005 00:01
Hyggjast sniðganga kosningar Íranar hyggjast margir hverjir sniðganga kosningar á morgun þar sem þeir vilja breytingar í landinu. Þeir eru hins vegar ekki sammála um hvaða breytingar. Hver sem verður kosinn munu harðlínumenn eftir sem áður ráða mestu. 16.6.2005 00:01
Samið við súnní-araba Sex bandarískir hermenn féllu í sprengju-og skotárásum í vesturhluta Íraks í gær og minnst átta írakskir lögreglumenn létu lífið í sjálfmorðs-bílsprengjuárás nærri Bagdadflugvelli. Ofbeldisverkin eru talinn liður í baráttu uppreisnarmanna gegn því að nýju stjórnkerfi Íraks takist að festa sig í sessi. 16.6.2005 00:01
Lengri frestur á stafræn vegabréf Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að gefa borgurum 27 landa sem hafa mátt ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar, þar á meðal Íslands, eins árs lengri frest til að verða sér úti um vegabréf sem uppfylla nýjustu öryggiskröfur. 16.6.2005 00:01