Fleiri fréttir

Danir styðja afnám hvalveiðibanns

Eina leiðin til að vernda hvali er að afnema hið algera bann við veiðum í atvinnuskyni sem verið hefur í gildi frá því árið 1986. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir Per Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur.

Koizumi hættir á næsta ári

Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, ætlar að hætta í september á næsta ári. Kouzumi tilkynnti þetta í dag og sagðist ætla að segja af sér um leið og formennskutími hans í LDP-flokknum rennur út. Koizumi komst til valda árið 2001 þegar hann var kjörinn með miklum meirihluta en eitt af loforðum hans var að knýja fram endurbætur á flokknum, sem verið hafa lítt áberandi.

Sótt gegn uppreisnarmönnum

Sjö afganskir uppreisnarmenn hafa verið drepnir og tíu handteknir í áhlaupi Bandaríkjahers og afghanskra öryggissveita á vígi uppreisnarmanna nærri borginni Kandahar. Mjög róstursamt hefur verið í Afghanistan síðan í mars eftir nokkuð rólega tíð í marga mánuði þar á undan.

Allharður skjálfti í Kaliforníu

Jarðskjálfti upp á sjö á Richter varð skammt undan ströndum Kaliforníu í Bandaríkjunum í nótt. Hvorki hafa borist fregnir af skaða á fólki eða skemmdum á mannvirkjum. Strax í kjölfar skjálftans var gefin út flóðbylgjuviðvörun fyrir svæðið allt frá Mexikóflóa og alla leið að landamærum Kanada en viðvörunin var svo afturkölluð nú í morgunsárið.

Vill bíða með atkvæðagreiðslur

Forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir rétt að bíða með frekari atkvæðagreiðslu um stjórnarskrá sambandsins eftir að Hollendingar og Frakkar höfnuðu henni. Jose Manuel Barroso segir að stjórnarskráin sé alls ekki endanlega búin að vera en hins vegar sé skynsamast að bíða með frekari atkvæðagreiðslur að sinni.

Írak ekki öruggara en fyrir innrás

Írak er ekki öruggara en árið 2003 þegar ráðist var inn í landið, segir Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Rumsfeld viðurkenndi í viðtali við sjónvarpsstöðina <em>BBC</em> í gærkvöldi að öryggi óbreyttra borgara væri síst meira nú en fyrir innrásina. Það mætti ekki síst rekja til þess að stjórnvöld í Sýrlandi og Íran gerðu ekki nóg til þess að loka landamærunum að Írak fyrir uppreisnarmönnum.

Fólk óþarft við lyfjaprófun?

Það kann að verða óþarft að nota fólk við prófun á lyfjum í allra nánustu framtíð. Nokkur lyfjafyrirtæki hafa þegar tekið í notkun tölvubúnað sem líkir eftir líffræðilegum ferlum í fólki og getur þannig sagt til um hugsanlega virkni lyfja sem verið er að þróa. Með þessari aðferð er einnig hægt að ákvarða áhrif mismunandi skammtastærða á fólk og því ekki þörf á að prófa lyf á fjölmörgum viðmiðunarhópum.

Bjóða upp áritaða Mein Kampf

Áhugasamir geta nú boðið í eintak af Mein Kampf, áritað af sjálfum Adolf Hitler. Bókin fannst í einni af skrifstofum Hitlers skömmu eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar. Eintakið verður boðið upp hjá Bloomsbury í Bretlandi og búist er við að til að hreppa hnossið þurfi að reiða fram um það bil þrjár milljónir íslenskra króna.

Kjötát auki líkur á ristilkrabba

Ný viðamikil rannsókn bendir til þess að mikið kjötát auki verulega líkurnar á krabbameini í ristli. Samkvæmt rannsókninni er þróun slíks krabbameins meira en þriðjungi líklegri hjá þeim sem borða kjöt tvisvar á dag en hjá þeim sem aðeins borða kjöt einu sinni í viku. Fiskát vegur hins vegar á móti þessari þróun og því hvetja rannsakendur alla til þess að skipta út kjöti fyrir fisk þegar því verður viðkomið.

Handtóku grunaða hryðjuverkamenn

Lögregla á Spáni hefur handtekið sextán grunaða íslamska öfgamenn. Þar af eru ellefu tengdir Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaida, að sögn talsmanns spænska innanríkisráðuneytisins. Hinir fimm eru sagðir tengjast hryðjuverkunum í Madríd þann 11. mars á síðasta ári. Fimm hundruð lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum sem leiddu til handtöku mannanna.

Mannskæð árás í Bagdad

Sjálfsmorðssprengjumaður myrti nú rétt áðan sextán manns þegar hann sprengdi sig í loft upp á veitingastað í Bagdad. Veitingastaðurinn er mikið sóttur af írökskum hermönnum. Frengir af árásinni eru enn óljósar en þó er vitað að sextán biðu bana í henni.

Bin Laden sagður við hestaheilsu

Osama bin Laden er við hestaheilsu að sögn háttsetts talibana. Sá vísar sögusögnum um heilsubrest leiðtoga al-Qaida á bug og segir þær ekki eiga við rök að styðjast. Mullah Akhtar Usmani sagði einnig að leiðtogi talbana, Mullah Mohammed Omar, væri hraustur og stýrði aðgerðum talibana í Afganistan.

Fresta gildistöku vegabréfa

Bandaríkjastjórn ætlar að veita 27 Evrópuríkjum enn lengri frest til að ganga frá rafrænum vegabréfum með stafrænum myndum og fingrafari. Ísland er meðal ríkjanna en borgarar þeirra þurfa ekki vegabréfsáritun hyggist þeir dvelja skemur en þrjá mánuði í Bandaríkjunum. Mörg ríkjanna hafa greint bandarískum yfirvöldum frá því að þau sjái sé ekki fært að uppfylla öll skilyrðin fyrir lok október næstkomandi þegar nýjustu reglurnar eiga að taka gildi.

Ástandið hafi ekkert batnað í Írak

Ástandið í Írak hefur ekkert batnað frá því að Saddam Hussein var steypt af stóli, að mati Donalds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.

Önnur mannskæð árás í Írak

Að minnsta kosti tíu létust og 29 særðust í bílsprengjuárás á hóp írakskra lögreglumannna sem voru á eftirlitsferð um Suður-Bagdad í dag. Meðal hinna látnu voru bæði almennir borgarar og lögreglumenn og segja yfirvöld í borginni að sprengingin hafi verið svo öflug að stór gígur hafi myndast eftir hana og þá eyðilögðust einnig nokkrir bílar.

Hersveitir frelsa ástralskan gísl

Írakskar og bandarískar hersveitir hafa frelsað Ástralann Douglas Wood sem hefur verið haldi írakskra uppreisnarmanna í sex vikur. Frá þessu greindi John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, á ástralska þinginu í dag. Ekki er ljóst hvort um var að ræða skipulagða aðgerð til að frelsa hann eða hvort hann hafi fundist í áhlaupi hersveita á aðsetur uppreisnarmanna en Howard sagði að hann nyti nú verndar ástralskra hersins.

Fundu frænku jarðar

Frænka jarðarinnar er fundin. Pláneta, sem líkist jörðinni mjög, hefur fundist og það alls ekki langt frá sólkerfi okkar.

Frakkar sakna frankans

Þrír af hverjum fimm Frökkum sakna frankans, gjaldmiðilsins sem evran leysti af hólmi fyrir þremur árum. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem gerð var fyrir franska tímaritið <em>Valeurs Actuelles</em> og undirstrikar frekar afstöðu margra Frakka til samstarfs innan Evrópusambandsins, en eins og kunnugt er felldu Frakkar stjórnarskrá sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum.

UNICEF aftur til starfa í Sómalíu

Starfsmenn Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sneru aftur til starfa í norðausturhluta Sómalíu í dag, þremur vikum eftir að þeir höfðu fengið líflátshótanir. Í tilkynningu frá barnahjálpinni segir hún hafi leyst deilur við yfirvöld í Puntland-héraði og að unnið verði sameiginlega að velferð barna í héraðinu. Barnhjálpin lokaði í síðasta mánuði skrifstofum sínum í héraðinu eftir að starfsmenn hennar höfðu fengið nokkrar líflátshótanir, en róstusamt hefur verið í landinu í 14 ár.

Reynir aftur við nektargöngu

Einn frægasti strípalingur Bretlandseyja, Stephen Gough, sem reyndi fyrir rúmu ári að ganga nakinn frá syðsta odda Bretlands til þess nyrsta, hefur aftur komist í fréttirnar. Hann hyggst nú reyna í annað sinn að fara þessa 1400 kílómetra leið og þetta sinn með kærustu sinni.

Bíður með að staðfesta sáttmála

Stuðningsmenn stjórnarskár Evrópusambandsins urðu fyrir enn einu áfallinu í dag þegar Horst Köhler, forseti Þýskalands, tilkynnti að hann myndi ekki undirrita stjórnarskrársáttmálann fyrr en dómstólar í Þýskalandi hefðu staðfest að hann samræmdist stjórnarskrá Þýskalands. Bæði neðri og efri deild þýska þingsins samþykktu stjórnarskrársáttmálann í síðasta mánuði en forsetinn þarf að staðfesta hann með undirskrift.

Vöxtur í flugi í Miðausturlöndum

Það hljómar nánast ótrúlega að í heimshluta sem einkennist af átökum og ólgu sé blússandi uppgangur í flugbransanum og það á sama tíma og stóru, vestræna flugfélögin ramba á barmi gjaldþrots.

Klofningur sjaldan meiri í ESB

Klofningur hefur sjaldan virst vera meiri í Evrópusambandinu en nú. Djúpstæður ágreiningur um árlegar endurgreiðslur sem Bretar fá úr sjóðum ESB, um niðurgreiðslur til franskra bænda, um stjórnarskrársáttmála sambandsins og veikt gengi evrunnar leggst allt á eitt um að varpa skugga á leiðtogafundinn sem hefst í Brussel í dag.  

Sextán handteknir á Spáni

Spænska lögreglan upplýsti í gær að hún hefði handtekið sextán menn grunaða um tengsl við hryðjuverkahópa íslamskra öfgamanna.

OPEC eykur framleiðsluna

Ráðherrar OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, ákváðu í gær að auka framleiðslukvóta hráolíu um hálfa milljón fata á dag, með það fyrir augum að lækka heimsmarkaðsverð. Neikvæðra afleiðinga hás olíuverðs hefur í auknum mæli farið að gæta í alþjóðahagkerfinu að undanförnu.

Nú er hún Snorrabúð stekkur

Þau tímamót urðu í fjölmiðlasögu Bretlands í gær, að síðasta fjölmiðlafyrirtækið flutti frá Fleet Street sem í þrjúhundruð ár var aðsetur virtustu dagblaðanna sem gefin voru út í bresku höfuðborginni.

Voru ekki að hafna ESB

Franskir og hollenskir kjósendur voru ekki að hafna Evrópusambandinu er þeir greiddu atkvæði gegn stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslunum um síðustu mánaðamót. Að þessari niðurstöðu var komist í skoðanakönnun sem gerð var í löndunum tveimur.

Kærður fyrir æluárás

Bandarískur menntaskólanemi, sem kastaði upp á spænskukennarann sinn, hefur nú verið ákærður fyrir líkamsárás.

Segir bin Laden á lífi

Akthar Usmani, háttsettur foringi talebana, sagði í viðtali sem birt var á pakistönsku einkasjónvarpsstöðinni Geo í gær að Osama bin Laden og talebanaleiðtoginn Mullah Omar væru báðir á lífi og við góða heilsu.

Ástralskur gísl frelsaður

Íraskir og bandarískir hermenn frelsuðu í gær ástralskan gísl sem hafði verið í haldi mannræningja í 47 daga. Þá fórust tugir Íraka í sjálfsmorðssprengjutilræðum.

Átta fórust í jarðskjálfta í Chile

Átta manns fórust í mjög öflugum jarðskjálfta í norðurhluta Chile í gærkvöldi. Skjálftinn mældist 7,9 á Richter og hans varð vart í nágrannalöndunum Bólivíu og Perú. Hann stóð yfir í um það bil mínútu og olli miklum skriðum og jarðhruni.

18 látnir og 50 særðir

Að minnsta kosti átján manns létust og meira en fimmtíu særðust í sjálfsmorðsárás í borginni Kirkuk í morgun. Árásarmaðurinn gekk hlaðinn sprengiefni að fjölmennu markaðstorgi og sprengdi sig þar í loft upp.

Gríðarlegir eldar á Filippseyjum

Um níu hundruð fjölskyldur hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Maníla á Filippseyjum eftir að gríðerlegir eldar brutust út í íbúðahverfi í nótt. Eldurinn braust út upp úr klukkan tvö og er talið að kviknað hafi í út frá steinolíulampa.

Meira en milljón smituð af alnæmi

Meira en ein milljón Bandaríkjamanna er smituð af alnæmi í fyrsta sinn síðan á níunda áratugnum. Fólki með alnæmi í Bandaríkjunum fjölgaði um nærri tvö hundruð þúsund manns á milli áranna 2002 og 2003.

Írakar handteknir í Þýskalandi

Lögregluyfirvöld í Þýskalandi handtóku í morgun þrjá Íraka sem búsettir eru í Þýskalandi fyrir hugsanlega aðild að hryðjuverkasamtökunum Ansar al-Islam. Þýska lögreglan réðst í morgun til atlögu á tuttugu og fjórum stöðum þar sem grunur lék á að hryðjuverkamenn héldu sig.

1000 njósnarar í Ástralíu

Kínversk stjórnvöld hafa yfir eitt þúsund njósnara og uppljóstrara í Ástralíu að sögn tveggja kínverskra embættismanna sem hafa beðið þar um hæli.

Stofnandi Daewoo handtekinn

Maðurinn sem stofnaði Daewoo-samsteypuna í Suður-Kóreu var handtekinn þegar hann kom aftur til heimalands síns eftir að hafa verið landflótta síðan árið 1999. Kim Woo-Choong, sem nú er sextíu og níu ára gamall, var dýrkaður í Suður-Kóreu fyrir að byggja upp stærsta fjölskyldufyrirtæki landsins.

Varaforseti S-Afríku rekinn

Mbeki, forseti Suður-Afríku, rak Jacob Zuma, varaforseta sinn, úr embætti í dag vegna spillingarmála. Nelson Mandela harmaði að til þessa þyrfti að koma en lýsti jafnframt yfir stuðningi við ákvörðun forsetans.

Fleiri en 350 gæludýr á heimilinu

Dýraeftirlitið í Bretlandi greindi frá því í dag það hafi aðvarað tvo húseigendur í Norfolk-héraði fyrir að hafa fleiri en 350 gæludýr á heimili sínu. Á meðal þeirra dýra sem fólkið hélt var 131 hundur, 48 kettir, 80 kanínur og 86 naggrísir.

28 látnir í dag - 24 lík finnast

Að minnsta kosti 28 manns hafa látist í árásum Írak í dag. Auk þess fundust 24 lík rétt fyrir utan Bagdadborg. Þrettán aðrir menn sem teknir höfðu verið af lífi fundust í gærkvöldi.

Guantanamo skaðar ekki ímyndina

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, telur ekki að fangabúðirnar við Guantanamo-flóa á Kúbu skaði ímynd Bandaríkjanna. Hann segir fangana fá betri meðferð þar en þeir fengju nokkurs staðar annars staðar.

Búast við frystingu fullgildingar

Forsætisráðherrar Svíþjóðar og Danmerkur sögðu báðir í gær að þeim þætti koma til greina að hætta við áformaðar þjóðaratkvæðagreiðslur í löndum sínum um staðfestingu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins.

Hamfarir í Chile

Stjórnvöld í Chile reyndu í gær allt sem í þeirra valdi stóð til að hindra frekari hörmungar og hlú að þeim sem um sárt eiga að binda eftir að öflugur jarðskjálfti, 7,9 á Richter, skók dreifbýlt hérað í Andesfjöllum í norðurhluta landsins í fyrrinótt. Skjálftinn varð að minnsta kosti tíu manns að fjörtjóni og olli miklu tjóni á mannvirkjum.

Sjá næstu 50 fréttir