Fleiri fréttir

Efast enn um kosningakerfið

Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseti, segir langt í land áður en hægt verður að tryggja heiðarlegar kosningar í Flórída þar sem öruggt er að úrslitin verði í samræmi við vilja kjósenda.

Þrjú myrt á sólarhring

Níu mánaða barn, átján ára stúlka og 41 árs karlmaður voru myrt í Noregi um helgina. Þrír karlmenn hafa verið handteknir vegna rannsóknar málanna þriggja og tengjast þeir allir, með einum eða öðrum hætti, þeim sem þeir eru grunaðir um að hafa myrt.

Setja hömlur á SMS-leiki

Kínversk stjórnvöld hafa bannað sjónvarpsstöðum að efna til leikja þar sem fólk sendir svör inn í smáskilaboðum úr farsímum nema að fengnu sérstöku leyfi. Ákvörðunin er að sögn tekin eftir að ein sjónvarpsstöð efndi til leiks sem fól í sér að fólk átti að svara því hversu margir hefðu látið lífið í gíslatökunni í Beslan í Rússlandi.

Frakkar nýti sér íslenskan hagvöxt

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hitti Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, að máli í Hotel Matignon, embættisbústað þess síðarnefnda í París í gær. Þetta var fyrsti fundur Halldórs með erlendum starfsbróður frá því að hann tók við embætti forsætisráðherra um miðjan þennan mánuð.

Rússland er orðið amerísk nýlenda

Nafn Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistara, verður trúlega alltaf tengt Bobby Fischer og einvígi aldarinnar í Reykjavik. Spassky hefur verið búsettur í Frakklandi undanfarna áratugi og er franskur ríkisborgari, kvæntur franskri konu.

Leiðtogi Hamas myrtur

Einn af leiðtogum palestínska öfgahópsins Hamas var myrtur í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í morgun. Maðurinn sem var myrtur, Izz el-Deen al-Sheikh Khalil að nafni, hefur verið útlagi frá Ísrael í tólf ár en forsvarsmenn Hamas segja að leyniþjónusta Ísraels, Mossad, hafi myrt hann.

Jeanne kominn til Flórída

Fellibylurinn Jeanne gekk á land á austurströnd Flórída snemma í morgun og hefur þegar valdið töluverðu tjóni. Rafmagnslínur, sem sumar eru nýviðgerðar eftir aðra fellibyli undanfarnar vikur, hafa nú enn og aftur farið í sundur og þök, og reyndar allt lauslegt, fýkur um svæðið.

Íhugaði ekki afsögn

Átökin í Írak skyggja á upphaf flokksþings Verkamannaflokksins í Bretlandi í dag þar sem Tony Blair forsætisráðherra er forystusauður. Að sögn fjölmiðla þar í landi er Blair mikið í mun að beina kastljósinu að innanríkismálum í aðdraganda kosninganna í Bretlandi sem eiga að fara fram á næsta ári.

Stuðningur við Kerry dvínar

Stuðningur við John Kerry í forsetakosningunum í Bandaríkjunum virðist fara dvínandi. Kosningastjórar hans binda nú vonir við að vel gangi í fyrstu sjónvarpskappræðum frambjóðendanna sem haldnar verða í vikunni. 

Kjósa gegn innflytjendum

Svisslendingar hafna tillögu þess efnis að auðvelda börnum og barnabörnum innflytjenda að fá svissneskt vegabréf samkvæmt fyrstu tölum. Atkvæðagreiðsla um málið fór fram í dag og ef fer sem horfir markar það sigur hinnar hægri sinnuðu stjórnmálahreyfingar í landinu sem er mjög mótfallin fjölgun innflytjenda í landinu.

Jeanne veldur talsverðu tjóni

Fellibylurinn Jeanne olli talsverðu tjóni þegar hann gekk á land á austurströnd Flórída í morgun. Jeanne er þó ekki á meðal stærstu fellibylja en vindhraðinn var samt 53 metrar á sekúndu sem er fárviðri samkvæmt gömlu íslensku mælingunum. Jeanne er fjórði fellibylurinn sem gengur yfir Flórídabúa á örfáum vikum.

Nauðlenti vegna sprengjuhótunar

Farþegaflugvél gríska flugfélagsins Olympic Airlines nauðlenti á Stansted-flugvelli í London nú síðdegis eftir að hringt hafði verið í dagblað í Grikklandi og tilkynnt að sprengja væri um borð í vélinni. Tvö hundruð nítíu og þrír farþegar voru um borð ásamt tólf manna áhöfn.

Tveir hafa látist á Flórída

Að minnsta kosti tveir hafa látist á Flórída í dag en fellibylurinn Jeanne gekk þar á land snemma í morgun. Jeanne er fjórði fellibylurinn sem gengur yfir Flórídabúa á örfáum vikum.

Enn neyðarástand á Haítí

Á Haítí gætir ennþá áhrifa þess þegar Jeanne reið þar yfir. Þar hafa óeirðir og slagsmál brotist út vegna skorts á matvælum og drykkjarvatni. Friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna urðu að skjóta upp í loft til að hrekja frá múg manna sem réðst á flutningabíla fyllta neyðarbirgðum.

Kemur ef hann kemur

Íbúar Miami á suðurodda Florída kipptu sér vart upp við fellibylinn Jeanne í fyrrinótt og gærmorgun. Hann gekk enda yfir nokkuð norðan við borgina og lét finna fyrir sér í grennd við Fort Pierce og Okeechobee. </font /></b />

Ísraelar teygja sig til Sýrlands

Bílasprengja grandaði einum leiðtoga Hamas-samtakanna í Damaskus í Sýrlandi viku eftir að Ísraelar gáfu út viðvörun um að yfirmönnum herskárra múslima yrði þar ekki vært.</ />

Fjórði fellibylurinn á sex vikum

Fjórði fellibylurinn á sex vikum gerði Flórídabúum lífið leitt í dag. Fellibylurinn Jeanne lagði í rúst það sem björgunarsveitir voru enn að reyna að bæta eftir yfirreið síðasta byls.

Blóðug borgarastyrjöld framundan?

Blóðug borgarastyrjöld gæti brotist út í Súdan takist ekki að semja frið í Darfur-héraði innan skamms. Hundruð þúsunda flóttamanna halda enn til í flóttamannabúðum og fleiri eru á leiðinni.

Heita herferð gegn Síonistum

Hefndum er heitið fyrir drápið á einum leiðtoga Hamas-samtakanna í Sýrlandi í morgun. Hamas heitir herferð gegn Síónistum um allan heim.

Fréttahaukur hleypur á sig

Dan Rather, fréttamaður hjá CBS, gerði alvarleg mistök í umfjöllun sinni um Bandaríkjaforseta þegar hann birti fölsuð minnisblöð um herþjónustu hans. Hætt er við að orðstír þessa farsæla fréttamanns hafi beðið varanlegan hnekki. </font /></b />

Jeanne veldur usla í Flórída

Fellibylurinn Jeanne, sem farið hefur um Karabíska hafið undanfarna viku og valdið dauða um 1.500 manns, skall á austurströnd Flórída á miðnætti á laugardag.

Darfur verður að fá heimastjórn

"Skýrt framsal á völdum verður að eiga sér stað í Darfur," sagði Ruud Lubbers, flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, þegar hann hvatti til þess að íbúar Darfur fengju heimastjórn. Súdönsk stjórnvöld hafa hingað til sagst reiðubúin að semja um slíkt en hafa ekki viljað ganga jafn langt og uppreisnarmenn krefjast.

Átta féllu í Fallujah

Bandaríkjaher hóf enn eina stórsóknina á Fallujah í Írak í nótt. Að minnsta kosti átta eru fallnir. Með árásinni á enn einu sinni að reyna að uppræta öfgamenn í hryðjuverkahópi Abu Musab al-Zarqawi sem staðið hefur fyrir flestum voðaverkum í Írak að undanförnu.

Ein milljón manna flýr Flórída

Tæplega ein milljón manna á Flórída í Bandaríkjunum hefur neyðst til þess að flýja heimili sín vegna fellibyljarins Jeanne en óttast er að bylurinn kunni að valda miklum usla á svæðinu. Jeanne er sá fjórði sem ríður yfir Flórída á undanförnum vikum.

Búið að lífláta Bigley?

Breski gíslinn Kenneth Bigley, sem haldið er föngnum af mannræningjum í Írak, hefur verið tekinn af lífi samkvæmt tilkynningu sem birt var á íslamskri vefsíðu í dag. Breska utanríkisráðuneytið segist ekki taka tilkynninguna trúanlega, enda hafi vefsíðan áður birt tíðindi af gíslum í Írak sem svo hafi komið í ljós að ekki áttu við rök að styðjast.

Se og hör fær dóm í Danmörku

Ritstjórar og blaðamenn danska tímaritsins <em>Se og hör</em> voru dæmdir til greiðslu sektar að andvirði tæplega átta hundruð þúsunda íslenskra króna fyrir dönskum dómstólum í gær. Blaðið fjallaði í nóvember 2002 um ástamál Önju Andersens sem er þekktasta handboltakona Danmerkur.

Upplausn á Haítí

Aðframkomnir íbúar Haítís reyndu í gær að brjótast inn í matvælageymslur hjálparstofnana til að verða sér úti um mat og vatn. Fellibylurinn Jeanne, sem lagði norðurhéruð Haítís í rúst fyrr í vikunni, stefnir nú á Flórída-ríki þar sem hátt í milljón manns hefur flúið heimili sín.

Óvíst um afdrif Bigleys

Misvísandi fréttir berast um afdrif Kens Bigleys, breska gíslsins sem situr í haldi mannræningja í Írak. Bandaríkjaher gerði í morgun stórsókn á Falluja í enn einni tilrauninni til að uppræta hryðjuverkahóp Al-Zarqawis, sem er öfgahópurinn sem rændi Bigley og reyndar mörgum fleirum. 

Olíuverð hækkar í kjölfar Ívans

Verð á olíu í heiminum hækkaði mikið í liðinni viku og hefur aldrei verið hærra. Áhyggjur af minnkandi birgðum í Bandaríkjunum og fellibylurinn Ívan eru talin valda hækkuninni að þessu sinni. Hækkunin nam fjórum bandaríkjadölum og var verðið 48,9 dalir á tunnu þegar markaðir lokuðu á föstudag, litlu hærra en 19. ágúst í sumar þegar það náði síðast hámarki.

Matvælum dreift til fólksins

Keppst er við að dreifa mati og drykkjarvatni til íbúa Haítí sem búa enn við skort eftir að fellibylurinn Jeanne olli þar miklum flóðum. Verst er ástandið í borginni Gonaives þar sem jafnframt er skortur á lyfjum og læknisaðstoð.

Náðarhögg ESB?

Hafni margar Evrópusambandsþjóðir nýrri stjórnarskrá sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslum gæti það reynst náðarhögg evrópska verkefnisins að mati Romanos Prodis, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hafni eitt ríki stjórnarskránni sé hægt að bjarga því, en verði þau mörg sé úti ævintýri.

Olíuverð nálgaðist sögulegt hámark

Olíuverð nálgaðist sögulegt hámark í gær þegar fatið var komið yfir fjörutíu og níu dollara þegar lokað var á markaði í Bandaríkjunum. Í morgun hefur það lækkað nokkuð á ný í Asíu. Litlar olíubirgðir eru sagðar ástæða þessa og virðist engu hafa breytt að Bandaríkjastjórn ákvað að opna neyðarbirgðir sínar til að auka framboð.

Ókeypis laxveiði í Noregi

Norsk yfirvöld hafa gripið til þess ráðs að bjóða almenningi til ókeypis laxveiða í ám í Suður- Hörðalandi og er fólk hvatt til að veiða allt hvað það getur. Það er þó ekki fyrir gjafmildi eða ummhyggju fyrir þegnunum að stjórnvöld gera þetta heldur hefur orðið vart við tugi þúsunda strokulaxa á svæðinu.

Grátbað stjórnina um miskunn

Utanríkisráðherra Breta segir að breska ríkisstjórnin reyni allt sem í hennar valdi standi til að reyna að tryggja lausn breska gíslsins, Ken Bigley. Breskir ráðamenn hafa þó útilokað með öllu að semja eða ræða beint við öfgahópinn sem heldur honum föngnum.

Ófrjó en ól samt barn

Belgískri konu, sem varð ófrjó vegna geislameðferðar, hefur nú verið gert kleift að eignast barn með aðferð sem talin er byltingarkennd í læknisfræðinni og gæti valdið straumhvörfum fyrir ungar konur sem fá krabbamein.

Ráðist á danska sendiráðið

Mótmælendur réðust á danska sendiráðið í Stokkhólmi í Svíþjóð í morgun, brutu þar rúður og skvettu rauðri málningu á veggina til að mótmæla stuðningi dönsku ríkisstjórnarinnar við stríðið í Írak. Thomas Lehmann, sendifulltrúi í sendiráðinu, segir að hópur sem kallar sig Global Intifada hafi staðið fyrir aðgerðunum. Danir hafa sent hersveitir til Íraks.

Blóðug borgarastyrjöld möguleg

Blóðug borgarastyrjöld gæti brotist út í Súdan, leysist friðarviðræður stjórnvalda og aðskilnaðarsinna upp. Þetta er mat æðsta fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Súdan. Hann óttast að ástandið yrði þá sambærilegt við hörmungarnar í Sómalíu.

Pútín neitar ásökunum

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, neitar því að stjórnarhættir hans séu afturhvarf til sovéskra hátta. Hann segir frelsi og lýðræði lykilinn að bjartri framtíð. Ýmsar hugmyndir, sem Pútín hefur kynnt undanfarnar vikur, hafa vakið undrun á Vesturlöndum og þótt benda til þess að hann safni sífellt meiri völdum til sín.

Opið allan sólarhringinn?

Þjóðverjar velta því nú fyrir sér hvort þeir kæri sig um að verslanir geti verið opnar allan sólarhringinn. Efri deild þýska þingsins skoðar nú frumvarp til laga sem gefur verslunartímann frjálsan. Það yrði þá í verkahring sambandslandanna að ákveða opnunartíma.

Bara hörð leikföng

Efni sem gera plast mjúkt hafa verið bönnuð innan Evrópusambandsins. Mjúkt plast er gjarnan notað í barnaleikföng og það er meginástæða bannsins, þar sem óttast er að efnin geti verið hættuleg heilsu barna. Vísindamenn telja að efnin geti meðal annars haft áhrif á æxlunarfæri barnanna þegar þau eru komin á fullorðinsaldur.

Ekki vitað um afdrif Bigleys

Ekki er vitað hvort Bretinn Kenneth Bigley, sem hefur verið í haldi mannræningja í Írak, er lífs eða liðinn en mannræningjarnir hafa hótað að drepa hann. Öldruð móðir Bigleys bað honum griða í sjónvarpi í gærkvöldi og féll að því loknu saman. 

Segja sig úr kirkjunni í hrönnum

Úrsögnum úr rómversk-kaþólsku kirkjunni í Austurríki hefur fjölgað verulega undanfarna mánuði. Ástæðan er hneykslismál sem hafa umlukið kirkjuna. Snemma í sumar uppgötvaðist mikið magn barnakláms í prestaskóla og einn þekktasti prestur landsins hefur verið sakaður um að beita sóknarbörn á táningsaldri kynferðislegu ofbeldi.

Vill heimastjórn í Darfur

"Skýrt framsal á völdum verður að eiga sér stað í Darfur," sagði Ruud Lubbers, flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, þegar hann hvatti til þess að íbúar Darfur fengju heimastjórn. Súdönsk stjórnvöld hafa hingað til sagst reiðubúin að semja um slíkt en hafa ekki viljað ganga jafn langt og uppreisnarmenn krefjast.

Handteknir vegna mengunar

Sex stjórnendur og starfsmenn bandarísks námufyrirtækis hafa verið handteknir í Indónesíu vegna rannsóknar á því hvort fyrirtækið hafi hent hættulegum úrgangi í sjó með þeim afleiðingum að íbúar í nágrenninu veiktust.

Nauðgað til að tryggja giftingu

Fjöldi eþíópískra stúlkna hefur orðið fórnarlamb manna sem ræna þeim og nauðga. Þannig vilja mennirnir tryggja að þeir fái að giftast þeim og þurfi ekki að greiða foreldrum þeirra jafn mikið og ella væri raunin.</font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir