Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkið gæti þurft að koma heimilunum til aðstoðar Fjármálaráðherra segir til greina koma að ríkisstjórnin grípi til aðgerða vegna aukinnar vaxtabyrði heimilanna. Skilaboð Seðlabankans í gær hafi verið skýr varðandi baráttuna við verðbólgu en einnig þurfi að gæta þess að hækka vexti ekki of mikið þannig að það skapist samdráttur og kreppa í samfélaginu. 23.3.2023 19:40
Dansaði úti á miðri götu og truflaði umferð Lögreglu barst tilkynning um mann sem truflaði umferð í Múlunum með dansi. Manninum var bent á að gangstéttin væri betri dansstaður og færði hann sig þangað. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu yfir verkefni dagsins í dag. 23.3.2023 19:07
Skipti engu máli hvort Edda hafi unnið í bakaríi eða banka Hildur Lillendahl og Sóley Tómasdóttir segja aðferðir Frosta Logasonar við að reyna að „slaufa“ Eddu Falak illa rökstuddar og ódýrar. Engu máli skipti hvort hún hafi unnið í banka eða bakaríi. Vilja þær að samfélagið læri af reynslunni og hætti að láta „vænisjúka samsæriskenningasmiði“ stjórna samfélagsumræðunni. 23.3.2023 18:41
Sinubruninn kviknaði í skólaferðalagi: „Viðkomandi aðili er miður sín“ Sinubruninn sem logar nú við Straumsvík við Hafnarfjörð kviknaði við óvarlega meðferð elds í skólaferðalagi, líklega af völdum blyss. Skólameistari við Menntaskólann í Kópavogi segir að nemendur séu miður sín. 23.3.2023 18:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Yfirlögfræðingur hjá umboðsmanni skuldara segir ótækt að einkaaðilar stundi innheimtu fyrir lánasjóð námsmanna enda hafi þeir hag af því að fá greiddan innheimtukostnað. Hún vill að innheimtan sé á vegum ríkisins en ekki lögmanna úti í bæ og segir það stór mistök að ábyrgðarmannakerfið hafi ekki verið lagt af í heild sinni. 23.3.2023 18:01
Rússar skjóta föstum skotum á utanríkisráðherra Rússneska sendiráðið í Reykjavík skýtur föstum skotum á „nýja tísku“ í orðfæri íslenskra embættismanna í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu. Sendiráðið nefnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra sérstaklega, sem notaði orðin „þið megið fokka ykkur,“ í tengslum við baráttuanda Úkraínumanna gegn Rússum. Orðin voru ekki hennar eigin, að sögn ráðherrans. 23.3.2023 17:32
Hefur áhyggjur af því að fangelsi landsins séu að fyllast af „barnungum afbrotamönnum“ Verjandi Gabríels Douane hefur áhyggjur af þeirri þróun að fangelsi landsins séu að fyllast af barnungum afbrotamönnum og kallar eftir auknum stuðningi og úrræðum stjórnvalda. Þá er hún ósátt við að rúmlega þrítugur karlmaður hafi verið sýknaður í dag af þátttöku sinni í Borgarholtsskólamálinu. 23.3.2023 17:03
Gabríel Douane dæmdur í tveggja ára fangelsi Gabríel Douane hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir þátt sinn í Borgarholtsskólamálinu svokallaða og tvær aðrar líkamsárásir. Þrír ungir karlmenn fengu sex mánaða skilorðsbundinn dóm en einn ákærðu var sýknaður. 23.3.2023 15:54
Íslendingur dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás á Jótlandi Dómstóll í Hjørring á Jótlandi hefur dæmt 46 ára Íslending í þriggja ára fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás og fíkniefnavörslu. Þá er honum vísað úr landi. 23.3.2023 15:21
Nota beltabíla og hitamyndavélar til að glíma við sinueldinn Á þriðja tug slökkviliðsmanna glímir nú við sinueld sem logar í Straumsvík við Hafnarfjörð. Það fær liðsauka frá björgunarsveitum og ríkislögreglustjóra sem útveguðu beltabíla og hitamyndavélar. Engin mannvirki eru sögð í hættu. 23.3.2023 15:20
Vinsælustu nöfnin í fyrra: Emil skákar Aroni og Embla heldur sínu sæti Emil var vinsælasta fyrsta eiginnafn hjá nýfæddum drengjum á síðasta ári. Alls fengu 42 drengir nafnið Emil. Embla var vinsælasta fyrsta eiginnafn stúlkna hér á landi í fyrra en alls var 30 stúlkum gefið nafnið Embla. 23.3.2023 15:09
Bjarni segir skatta á launafólk ekki verða hækkaða Fjármálaráðherra segir að engar breytingar verði gerðar á sköttum sem bitni á launafólki í væntanlegri fjármálaáætlun. Hins vegar verði dregið úr ýmsum ívilnunum sem rafbílar hafi notið og gjaldtöku á umferð og vegi almennt breytt. 23.3.2023 14:00
Mikið í húfi að fá veðurstöð í Vík Unnið er að því að fá veðurstöð í Vík í Mýrdal. Sveitarstjórnin telur að í ljósi margföldunar umferðar um svæðið á síðustu árum sé mikið í húfi að hægt sé að spá fyrir um veðrið á svæðinu með sem nákvæmustum hætti. 23.3.2023 13:51
Óvissustigi vegna Covid aflýst Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Frá 27. janúar 2020 hafa ýmis almannavarnastig verið í gildi en er þar um að ræða óvissu-, hættu og neyðarstig. 23.3.2023 13:23
Tilkynnt um sinueld nærri Straumsvík Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um gróðureld nærri Óttarsstöðum í Straumsvík í Hafnarfirði um klukkan 13 í dag. 23.3.2023 13:22
Alþingi ályktar að hungursneyðin í Úkraínu hafi verið hópmorð Alþingi samþykkti nú í morgun þingsályktunartillögu Diljár Mistar Einarsdóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokksins, þess efnis að hungursneyðin í Úkraínu á árunum 1932-1933 hafi verið hópmorð. 23.3.2023 12:50
„Ég þykist vita að Heimildin sé komin í ákveðna klemmu" „Ég mun ekki gefa upp nákvæmlega hvernig ég fékk þessar upplýsingar staðfestar eða hverja ég talaði við en ég get sagt að ég hefði aldrei komið fram með þessar ásakanir ef ég hefði ekki verið búinn að fá þetta allt saman hundrað prósent staðfest,“ segir Frosti Logason fjölmiðlamaður í samtali við Vísi. 23.3.2023 12:38
Sakaður um að hafa myndað sambýliskonu sína þegar hún svaf Karlmaður á Norðurlandi eystra hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa tekið kynferðislegar ljósmyndir af sambýliskonu sinni í óþökk hennar. Aðalmeðferð í málinu fer fram í apríl. 23.3.2023 11:52
Hættulegur staður allt árið um kring Kona á þrítugsaldri lést þegar hún féll á annað hundrað metra við fossinn Glym í Hvalfirði í gær. Aðstæður voru mjög hættulegar á vettvangi, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Slysið sýni að bæta þurfi verulega öryggi á ferðamannastöðum landsins. 23.3.2023 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um nýja könnun sem sýnir meðal annars fram á að einn af hverjum sex kjósendum Vinstri grænna sé óánægður með störf ríkisstjórnarinnar. 23.3.2023 11:40
Bentu hvor á annan í máli sem endaði með sjö hundruð milljóna sekt Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Þorkel Kristján Guðgeirsson til greiðslu 713 milljón króna sektar fyrir brot í rekstri tveggja félaga í hans eigu. Þorkell taldi sök í máli annars félagsins liggja hjá öðrum starfsmanni, sem vísaði á móti alfarið á Þorkel. 23.3.2023 11:35
Tveggja tíma bið eftir strætóferð til höfuðborgarinnar Eina strætóskýlið á Keflavíkurflugvelli er í talsverði fjarlægð frá flugvallabyggingunni og er hvergi auglýst. Flestir ferðamenn virðast ekki hafa hugmynd um að sá möguleiki að ferðast með strætó til höfuðborgarinnar sé til staðar. Ferðirnar eru reyndar stopular og góður krókur er tekinn í Reykjanesbæ. Þá er ekki farið lengra en til Hafnarfjarðar um helgar. En allt stendur þetta til bóta. 23.3.2023 11:25
Grunaður um tilraun til manndráps í nánu sambandi Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar ætlað stórfellt brot í nánu sambandi og ætlaða tilraun til manndráps frá 25. febrúar síðastliðnum. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp. 23.3.2023 10:37
Mikill meirihluti telur kjör öryrkja vera slæm Mikill meirihluti Íslendinga telur kjör öryrkja ýmis frekar eða mjög slæm og segir brýnt að bæta þau. 23.3.2023 09:46
Segir engar raunverulegar aðgerðir til að draga úr losun á Íslandi Ríkisstjórnin hefur ekki komið fram með neinar aðgerðir til að hamla innkaupum á bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Það skjóti skökku við að veita bílaleigum milljarð í styrk til að kaupa rafmagnsbíla í stað þess að stöðva innflutning á bensín- og dísilbílum. 23.3.2023 09:44
Sviptir hulunni af elstu ljósmynd Íslandssögunnar Í Íslandi í dag var greint frá fundi á elstu varðveittu ljósmyndum sem teknar hafa verið á Íslandi. Myndirnar eru teknar nokkrum vikum áður en myndin sem áður var sögð sú elsta var tekin, vorið 1845. Guðmundur J. Guðmundsson fann ljósmyndirnar í austurrísku tímariti eftir umfangsmikið grúsk, en ekki í góðum gæðum, og það vantar þar ljósmynd sem önnur mynd skyggir á. 23.3.2023 08:56
Kona á þrítugsaldri lést eftir hátt fall við Glym Kona á þrítugsaldri sem féll niður í gil við fossinn Glym í Hvalfirði í gær er látin. Talið er að hún hafi látist samstundis eftir hátt fall. 23.3.2023 08:49
Hvergi til nægileg þekking til að finna endanlega lausn á rakavandamálum Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra telur að ekki liggi fyrir nægileg þekking hér á landi þannig að finna megi lausnir á rakavandamálum í byggingum. Þetta kemur fram í svörum ráðherra við fyrirspurn Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um byggingarannsóknir. 23.3.2023 06:51
Fjórir handteknir í kjölfar slagsmála í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um klukkan 22 í gærkvöldi þess efnis að menn væru vopnaðir hnífum fyrir utan skemmtistað í miðbænum. Fjölmennt lið var sent á vettvang en mennirnir voru farnir þegar lögregla mætti á staðinn. 23.3.2023 06:26
Skemmdir á bílskúr eftir heitavatnsleka á Grandavegi Nokkrar skemmdir urðu á bílskúr vegna heitavatnsleka sem varð á Grandavegi í kvöld. 22.3.2023 23:50
Sérsveitin kölluð til vegna slagsmála í Bankastræti Mikill viðbúnaður er við Bankastræti í Reykjavík í kjölfar þess að slagsmál brutust þar út fyrr í kvöld. Sérsveitin var kölluð til ásamt lögreglu og sjúkrabíl. 22.3.2023 23:43
Bærinn ljótur að sjá eftir gríðarlegan sandstorm Bær á Meðallandi í Skaftárhreppi lítur illa út eftir mikinn sandstorm sem reið þar yfir í gær. Tún eru þakin djúpum sandi og húsin ljót að sjá. Bóndinn á bænum hefur gengið á eftir því að fá að græða lúpínu til að hefta fokið en ekki fengið fræ frá Landgræðslunni afhent. 22.3.2023 23:07
„Eiga börnin bara að fá pláss einhvers staðar hjá einhverjum?“ Hópur leikskólakennara í Reykjavík birti í dag grein á Vísi sem vakið hefur mikla athygli. Þar gagnrýna kennarar og starfsfólk leikskóla borgaryfirvöld harðlega fyrir aðgerðarleysi í málaflokknum. Leysa verði vandann inni á leikskólunum áður en leikskólavandinn sjálfur verður leystur. Kennararnir segja umræðu um leikskóla einungis fara fram á forsendum atvinnulífs og foreldra. 22.3.2023 21:24
Langvarandi verðbólga eykur líkur á kreppu Þrálát verðbólga eykur hættu á kreppu að sögn seðlabankastjóra. Mikill hiti sé í hagkerfinu og nauðsynlegt að hægja meðal annars á fjárfestingum fyrirtækja. Vextir verði hækkaðir þar til verðbólga minnki. 22.3.2023 19:40
Þurfti að selja húsið til að greiða upp gamalt námslán sonar síns Sýslumaður hyggst framkvæma fjárnám hjá 82 ára gamalli konu vegna námslána sem hún gekk í ábyrgð fyrir á tíunda áratugnum hjá syni sínum. Annar sonur konunnar segir skítt að þegar ábyrgðarmannakerfið var afnumið hafi það ekki náð til ábyrgða á lánum í vanskilum. Konan segir málið eyðileggja fyrir henni efri árin. 22.3.2023 19:12
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir vaxtastökk Seðlabankans í dag og ástæður bankans fyrir þessari tólftu vaxtahækkun sinni. Seðlabankastjóri segir hættu á kreppu fái mikil verðbólga að grassera í langan tíma og þá verði erfiðara að vinda ofan af henni. 22.3.2023 18:15
Skotmaðurinn á Dubliner í fjögurra vikna gæsluvarðhald Karlmaður sem grunaður er um að hafa hleypt af skoti inni á skemmtistaðnum The Dubliner var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. apríl á grundvelli almannahagsmuna. 22.3.2023 18:08
Fleiri samningar í höfn hjá RSÍ og VM Rafiðnaðarsamband Íslands og VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna skrifuðu undir kjarasamning við Landsvirkjun nú síðdegis. Félögin skrifuðu einnig undir samning við Norðurorku í dag en í gær náðust samningar við HS Orku og HS Veitur og á mánudag sömdu þau við Orkuveitu Reykjavíkur. Rafiðnaðarsambandið skrifaði þá undir samning við Rarik í dag. 22.3.2023 17:27
„Er ekki kominn tími á að ríkisstjórnin skili lyklunum að Stjórnarráðinu?“ Tólfta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð hefur vakið hörð viðbrögð víða í samfélaginu en þingmenn vöktu margir hverjir athygli á aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina kjarklausa og verkstola og þingflokksformaður Viðreisnar segir þau ekki geta dvalið lengur í Hvergilandi. 22.3.2023 16:59
Stór plástur í sár á útidyrahurðinni á Siglufjarðarkirkju Allt helgihald fellur niður í Siglufjarðarkirkju á sunnudag eftir að útidyrahurð kirkjunnar gaf sig í vindi í morgun. Meðhjálpari segir að hurðin verði lagfærð en svo verði blankur söfnuðurinn að finna leið til að fjárfesta í nýrri hurð. Þessi sé komin vel til ára sinna. 22.3.2023 16:10
Hótaði að kveikja í sér vegna óánægju með afgreiðslu Erlendur karlmaður hótaði að bera eld að sjálfum sér í húsnæði Útlendingastofnunar í hádeginu. Aðgerðum lögreglu á vettvangi var lokið um hálftíma eftir að tilkynning barst. 22.3.2023 14:53
Fall mannsins við Glym mun hærra en talið var í fyrstu Ljóst er að um alvarlegt slys er að ræða í tilfelli ferðamanns sem féll við fossinn Glym fyrir hádegi í dag. Fjölmennt lið björgunarsveitar auk lögreglu er á svæðinu og er verið að bera viðkomandi frá slysstað. 22.3.2023 14:43
Ólöf Kristín nýr forseti FÍ Ólöf Kristín Sívertsen hefur verið kjörin forseti Ferðafélags Íslands (FÍ). Fyrrverandi forseti félagsins sagði af sér og sig úr félaginu í september á síðasta ári. 22.3.2023 14:35
Staðfest að brakið og líkamsleifarnar séu úr banaslysinu Flugvélabrak og líkamsleifar sem festust í veiðarfæri skipsins Hrafns Sveinbjarnarsonar GK-255 þann 8. mars síðastliðinn eru úr banaslysi sem varð á svæðinu fyrir fimmtán árum síðan. Rannsóknarnefnd samgönguslysa komst að þessari niðurstöðu í dag. 22.3.2023 14:23
Segja Ójón afbökun á Jóni og segja nei Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um að nafnið Ójón verði samþykkt og fært í mannanafnaskrá. 22.3.2023 13:13