Fleiri fréttir

Hoppukastalamálinu ekki vísað frá
Dómari í Hoppukastalamálinu svokallaða féllst ekki á frávísun málsins. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra nú síðdegis. Málið verður því tekið til efnismeðferðar.

Synjun birtingar þrengi verulega að möguleikum þingmanna til eftirlits
Þingmaður Viðreisnar segir synjun birtingar á greinargerð fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol setja þingmenn í erfiða stöðu og hafa þrengt að möguleikum þeirra til að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu líkt og þeim ber að gera.

Grét þegar hann var upplýstur um magn efnanna
Á myndbandi sem sýnt var við aðalmeðferð í stóra kókaínmálinu í Héraðsdómi Reyjavíkur í dag sést Jóhannes Páll Durr, einn sakborninga, brotna niður þegar lögregla upplýsir hann um að vigtun á efnunum hafi leitt í ljós að um rúmlega 99 kíló af kókaíni væri að ræða. Verjandi Jóhannesar segir lögreglu hafa sprengt málið upp á fáránlegum tímapunkti.

Fjórum sinnum fleiri neikvæðir en jákvæðir gagnvart sjókvíeldi
Um 61 prósent landsmanna eru neikvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir hagsmunasamtök um verndun laxastofnsins. Aðeins fjórtán prósent svarenda eða fjórum sinnum færri segjast vera jákvæðir gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum.

Dómi yfir Jóni Baldvini ekki haggað
Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni Jóns Baldvins Hannibalssonar vegna dóms Landsréttar yfir honum fyrir kynferðislega áreitni á Spáni.

Til í að taka áhættu með lyfið: „Ég hef ekki miklu að tapa“
Það eru tvö ár síðan kvikmyndagerðarkonan Helga Rakel Rafnsdóttir greindist með MND sjúkdóminn. Helga hefur lengi reynt að fá aðgang að lyfjum við sjúkdómnum en án árangurs. Nú eru jákvæð teikn á lofti en hún stígur varlega til jarðar.

„Það er ákveðin leitun að samvinnuþýðari sakborningi“
Verjandi Páls Jónssonar timbursala segir himinn og hafa hafa verið á milli þeirra sem hlutu þunga dóma í Saltdreifaramálinu svokallaða og ákærðu í stóra kókaínmálinu. Hann taldi eðlilega refsingu fyrir Pál vera upp á fjögur til fimm ár að frátöldu gæsluvarðhaldi sem umbjóðandi hans hefur setið í síðan í ágúst.

Ágæt en fyrirsjáanleg niðurstaða
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það vera ágætt að komin sé niðurstaða í kjaradeilu samtakanna við Eflingu. Hann segir deilan sanna það að verkföll borgi sig ekki.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um niðurstöðu atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu setts ríkissáttasemjara sem ætlað er að binda enda á kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Miðlunartillagan samþykkt
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara sem lögð var fram í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) var samþykkt. 98,5 prósent aðildarfélaga SA og 85 prósent þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni hjá Eflingu samþykktu tillöguna. Kjörsókn hjá meðlimum SA var 81 prósent en hjá Eflingu tæp 23 prósent.

Skýr ásetningur og krefst hámarksrefsingar
Saksóknari í stóra kókaínmálinu segir að innflutningur á hundrað kílóum af kókaíni gæti ekki þýtt annað en hámarksrefingu fyrir sakborninga. Þetta kom fram í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða hefðu fengið allt að tólf ára dóm eða hámark refsirammans.

Kjartan Páll nýr formaður Strandveiðifélags Íslands
Kjartan Páll Sveinsson, strandveiðimaður og félagsfræðingur, var kjörinn nýr formaður Strandveiðifélags Íslands á aðalfundi félagsins sem haldinn var síðastliðinn sunnudag.

Ritstjóri og blaðamaður Vísis kallaðir fyrir dóm
Erla Björg Gunnarsdóttir, ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, og Margrét Björk Jónsdóttir, fréttamaður miðilsins, voru boðaðar fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur við aðalmeðferð stóra kókaínmálsins í morgun.

Atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu að ljúka
Atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu Ástráðs Haraldssonar, setts ríkissáttasemjara, í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins lýkur klukkan 10 í dag. Reikna má með að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar verði kynnt fljótlega eftir að atkvæðagreiðslu lýkur.

Draugabær birtist undan snjónum eftir rýmingu svæðisins
Enn á eftir að fjarlægja um fimmtán hjólhýsi af þeim um tvö hundruð sem voru í gömlu hjólhýsabyggðinni við Laugarvatn. Mikið rusl eftir rýminguna hefur birst eftir því sem snjó hefur tekið að leysa á staðnum í hlýindum undanfarinna vikna.

„Okkur finnast þetta vera stjórnsýsluleg fantabrögð“
„Við erum algjörlega steinhissa og í raun misboðið yfir þeim fréttum að ráðuneytið skuli þegar eiga í viðræðum við KGRP um rekstur nýrra bálstofu,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, forsvarskona og stofnandi Trés lífsins.

Öllum starfsmönnum Listdansskóla Íslands sagt upp
Öllum fastráðnum starfsmönnum Listdansskóla Íslands hefur verið sagt upp og framtíð skólans er í óvissu. Skólastjórinn segir skólann hafa átt í fjárhagslegum erfiðleikum en vonir standa til að hægt verði að tryggja áframhaldandi rekstur.

Gat ekki borgað fyrir gistingu á hóteli og átti ekki í önnur hús að venda
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning frá hótelstarfsmönnum í borginni í gær vegna einstaklings í annarlegu ástandi sem var að reyna að greiða fyrir gistingu án árangurs.

Illræmdur blóðsjúgandi fuglamítill staðfestur á Íslandi
Blóðsjúgandi mítill fannst í smyrli sem líffræðingur og doktorsnemi hjá Þekkingarsetri Suðurnesja fékk afhent nýverið til rannsóknar. Fundurinn veldur áhyggjum þar sem á ferðinni er sníkjudýr sem halda þarf í skefjum með notkun skaðlegra mítlalyfja.

Magnað að sjá bara vatnsgufu úr hreyflinum en enga mengun
Stórri farþegaflugvél, sömu gerðar og Icelandair notar í innanlandsfluginu, hefur í fyrsta sinn í sögunni verið flogið á vetni. Fulltrúi Icelandair var viðstaddur þetta tímamótaflug vestanhafs en þetta er meðal þeirra lausna sem félagið skoðar til orkuskipta í fluginu á Íslandi.

Velferðarsamfélag í fremsta flokki eigi að vera komið lengra
Um tíu þúsund börn búa við fátækt á Íslandi og fjölgar þeim milli ára. Leiðtogi hjá Barnaheillum segir fólk festast í fátæktargildru, sem erfitt reynist að komast út úr og erfist jafnvel milli kynslóða. Mismunun eigi sér stað til að mynda þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu. Stjórnvöld þurfi að marka stefnu, sem hingað til hefur ekki verið til staðar, og uppræta fátækt í eitt skipti fyrir öll.

Tillaga um lokun Borgarskjalasafns samþykkt
Tillaga borgastjóra um framtíðarstarfssemi á starfssemi Borgarskjalasafns var samþykkt í borgarstjórnarfundi í dag með ellefu atkvæðum gegn tíu.

Fylgjendatölur Haraldar rjúka upp
Á síðasta sólarhring hefur Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og fyrrum starfsmaður Twitter, bætt við sig rúmlega 70 þúsund fylgjendum á samfélagsmiðlinum.

Drykkja hefur aukist aftur eftir afnám samkomutakmarkana
Áhættudrykkja er farin að aukast aftur eftir að hafa dregist saman þegar samkomutakmarkanir voru í gildi árin 2020 og 2021. Sérfræðingur hjá landlækni segir nauðsynlegt að halda í takmarkað aðgengi að áfengi til að hægt sé að draga úr drykkju á ný.

Leggur áherslu á mál sem formaður VR hafi sýnt lítinn áhuga
Elva Hrönn Hjartardóttir sem býður sig fram til formennsku í VR gegn Ragari Þór Ingólfssyni sitjandi formanni segir félagið verða að taka á málum sem formaðurinn hafi sýnt lítinn áhuga. Formanns- og stjórnarkjör hefst í VR, fjölmennasta verkalýðsfélagi landsins, í fyrramálið og liggja niðurstöður fyrir á hádegi á miðvikudag eftir viku.

Alvarlegt að ekki hafi tekist að manna sjúkraflug
Heilbrigðisráðherra segir alvarlegt að maður sem beið eftir lifrarígræðslu hafi misst af tækifærinu þar sem ekki tókst að manna sjúkraflug. Tryggja þurfi að atvikið endurtaki sig ekki en til greina komi að taka upp bakvaktir til að tryggja að flugáhöfn sé alltaf til taks.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Um tíu þúsund börn búa við fátækt á Íslandi og fjölgar þeim milli ára. Leiðtogi hjá Barnaheillum segir fólk festast í fátæktargildru, sem erfitt reynist að komast út úr. Stjórnvöld þurfi að marka stefnu, sem hingað til hefur ekki verið til staðar og uppræta fátækt í eitt skipti fyrir öll.

Fimm bíla árekstur á Miklubraut
Fimm bílar lentu í árekstri á Miklubraut nú síðdegis skammt frá Skeifunni. Töluverðar tafir hafa verið á umferð vegna árekstursins.

Sakar borgarskjalavörð um að hafa ítrekað farið með fleipur
Formaður borgarráðs sakar borgarskjalavörð um að hafa farið ítrekað með fleipur í fjölmiðlum. Hann segir borgarfulltrúa Flokks fólksins og fleiri hafa étið umrædd ummæli „hrátt“ upp.

Mygludraugabanar geti fundið myglu þar sem þeir vilja
Hilmar Þór Björnsson arkitekt segir það vera vandamál að verkfræðistofan EFLA skuli bæði sjá um að greina myglu og bjóða upp á ráðgjöf við að fjarlægja hana. Sérfræðingur í myglu segir ekkert vera athugavert við það þar sem verkefnið sé flókið.

Stjórnvöld þurfi að taka sig á: „Svona lagað má aldrei endurtaka sig“
Þingmaður stjórnarandstöðunar segir mál manns sem missti af líffæraígræðslu þar sem ekki tókst að manna sjúkraflugvél til að flytja hann til Svíþjóðar - grafalvarlegt. Stjórnvöld þurfi að tryggja að samningar séu til staðar og haldi í öllum tilvikum. Málið megi aldrei endurtaka sig.

Einkennilegt að upplýsingarétti almennings sé mætt með lagaþrætu
Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, segir kröfuna um að greinargerð fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvolsmálið verði gerð opinber vera sjálfsagða og mikilvæga. Það sé einkennilegt að upplýsingarétti almennings sé mætt með lagaþrætu.

Þjóðskjalasafn vanti fjármagn eigi það að taka við starfsemi Borgarskjalasafns
Borgarstjórn mun í dag ákveða hvort Borgarskjalasafn verði lagt niður. Til umræðu hefur komið að sameina safnið Þjóðskjalasafni og hefur þjóðskjalavörður óskað eftir fundi hjá ráðuneytinu vegna umfangsins. Við blasi að talsvert meira fjármagn þurfi til Þjóðskjalasafns eigi það að taka við verkefninu.

Skipuð ráðuneytisstjóri í ráðuneyti Lilju
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Sigrúnu Brynju Einarsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu til fimm ára frá og með 1. apríl næstkomandi.

Tekist á um formannsembættið í VR í Pallborðinu
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Elva Hrönn Hjartardóttir sem býður sig fram til embættis formanns ásamt honum mæta í beina útsendingu í Pallborðinu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni klukkan tvö í dag. Kosning til formanns og stjórnar VR hefst á morgun.

Þrettán prósent íslenskra barna búa við fátækt
Um tíu þúsund börn eða 13,1 prósent barna búa við fátækt á Íslandi samanborið við 12,7 prósent árið á undan. Hvorki stefna né áætlun er til á Íslandi um að uppræta fátækt.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um stöðuna á sjúkraflugi hér á landi.

Hélt hnífi að kviði manns á veitingastað við Hverfisgötu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa hótað öðrum manni með því að hafa haldið hnífi upp að kviði hans á veitingastað við Hverfisgötu í Reykjavík að næturlagi í janúar 2020.

Jóhannes Nordal er látinn
Jóhannes Nordal, sem gegndi embætti seðlabankastjóra á árunum 1961 til 1993, er látinn, 98 ára að aldri.

Einbýlishús, rándýr bíll og lúxuslífstíll en haldið uppi af pabba
Rannsakendur lögreglu telja að Birgir Halldórsson, einn af sakborningum í stóra kókaínmálinu, sé ekki jafn lítið peð í málinu og hann heldur sjálfur fram. Hann segist aðeins hafa verið milliliður en lögreglumaður sem kom að rannsókn málsins telur Birgir sé sá sem „sér um það sem vantar hér á landi, að það sé skaffað,“ líkt og það var orðað við aðalmeðferð málsins. Annar rannsakandi sagði frá því að Birgir og sambýliskona hans hefðu lifað lúxuslífstíl þrátt fyrir að vera ýmist á bótum eða á lágmarkslaunum.

Fjórðungur stundar áhættudrykkju en 2.000 hafa hætt að reykja
Árið 2022 féll um það bil fjórðungur Íslendinga undir þá skilgreiningu að vera með skaðlegt neyslumynstur áfengis eða stunda svokallaða áhættudrykkju, um 27 prósent karla og 21 prósent kvenna.

Segir óvenjulega staðið að málinu og leynd hafa ríkt um tillöguna
Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður segir vægast sagt óvenjulega hafa verið staðið að þeirri tillögu að leggja niður Borgarskjalsafn. Svo mikil leynd hafi ríkt yfir tillögunni að hvorki hún né aðrir starfsmenn safnsins voru látnir vita.

Reykjanesbraut breikkuð milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns
Breikkun Reykjanesbrautar á milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns hefur verið boðin út og eru verklok áformuð eftir þrjú ár. Jafnframt hefur Vegagerðin auglýst forval vegna nýrrar Ölfusárbrúar við Selfoss.

Öflugur skjálfti við Herðubreið
Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 mældist í um fjögurra kílómetra fjarlægð norð-norð-austur af Herðubreið klukkan 20:20 í kvöld.

Dómurinn algjört ippon fyrir SA
Forseti Alþýðusambands Íslands segir niðurstöðu Félagsdóms í dag vera vonbrigði. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að verkbann Samtaka atvinnulífsins hafi verið löglega boðað og Samtökum atvinnulífsins yfirhöfuð heimilt að boða til verkbanna. Framkvæmdastjóri SA fagnar niðurstöðunni.