Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meirihluti Eflingarfólks var hlynntur verkfalli í haust Tveir af hverjum þremur félagsmönnum Eflingar voru síðastliðið haust hlynntir því að fara í verkfallsaðgerðir til að ná fram betri kjörum. Fjórir af hverjum fimm sem tóku afstöðu reyndust hlynntir. Fram undan er könnun meðal félagsfólks hvort fara eigi í verkfall eftir að Efling sleit samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins í dag. 10.1.2023 17:08
Jónas Elíasson prófessor er látinn Dr. Jónas Elíasson, prófessor emeritus, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 8. janúar 84 ára gamall. 10.1.2023 16:54
Á annað kíló af kókaíni falin í höfuðpúða og úlpu Svissneskur karlmaður á miðjum þrítugsaldri sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var gripinn með á annað kíló af kókaíni á Keflavíkurflugvelli en efnin voru falin með sérstökum hætti. 10.1.2023 16:26
Reykjanesbær tekur á móti 350 flóttamönnum Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Reykjanesbæ. Samningurinn var undirritaður í Ráðhúsi Reykjanesbæjar í gær og kveður á um að Reykjanesbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 350 flóttamönnum. 10.1.2023 16:03
Ólafur Hrafn Ásgeirsson er látinn Ólafur Hrafn Ásgeirsson, kerfisstjóri og fyrrum hnefaleikakappi, lést 2. janúar síðastliðinn á líknardeild Landspítala. Hann lést í faðmi fjölskyldu sinnar. Útförin fer fram í kyrrþey. 10.1.2023 16:00
Tilboð Eflingar óaðgengilegt Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að tilboð Eflingar til samtakanna um gerð kjarasamnings sé óaðgengilegt og að því hafi verið lýst yfir á fundi í kjaradeilunni í húsnæði ríkissáttasemjara í dag. Himinn og haf sé á milli tilboðsins og þeirra kjarasamninga sem þegar hafi verið gerðir. Hann er hugsi yfir því að starfsmenn á opinberum vinnumarkaði séu í samninganefnd Eflingar. 10.1.2023 14:12
Stefnir í verkfall eftir að Efling sleit viðræðum Efling hefur ákveðið að slíta viðræðum. Þetta staðfestir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður félagsins sem gekk út af fundi í húsakynnum ríkissáttasemjara rétt í þessu. 10.1.2023 13:14
Skólastjóri vísar ásökunum um innrætingu kennara í Verzló á bug Skólastjóri Verzlunarskóla Íslands segir það klaufalegt að þingmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi verið settur í hóp með Hitler og Mussolini á glæru í kennslustund en að málið hafi verið tekið úr samhengi. Sigmundur segir atvikið skýrt dæmi um innrætingu og áróður af hálfu kennara. Skólastjóri vísar því á bug og segist munu ræða við Sigmund. 10.1.2023 13:05
Frekar tilkynning en sáttameðferð Fjármálaeftirlitið telur Íslandsbanka mögulega hafa brotið lög þegar ríkið seldi 22,5% hlut sinn í bankanum, en bankinn sendi frá sér tilkynningu þess efnis að sáttaferli væri hafið milli bankans og FME. Stjórnarandstæðingur segir frekar um að ræða tilkynningu um væntanleg viðurlög heldur en sáttameðferð. 10.1.2023 13:04
Engin fagleg rök fyrir aðgerðum á landamærum vegna Covid í Kína Sóttvarnalæknir telur engin fagleg rök fyrir því að taka upp aðgerðir á landamærum hér á landi til að vernda lýðheilsu vegna útbreiðslu Covid-19 í Kína. Þetta kemur fram í nýju minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra. 10.1.2023 11:46
„Þetta veldur auðvitað áhyggjum“ Ríkissaksóknari telur mögulegt að Landsrétt hafi skort lagaheimild til að þyngja refsingu Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu. Verjandi eins sakborninga í málinu segir það áhyggjuefni, hafi áfrýjunardómstóllinn Landsréttur farið út fyrir refsirammann með þessum hætti. 10.1.2023 11:45
Rúta rann út af vegi á Hellisheiði Rúta fyrirtækisins Bus4U rann út af veginum á Hellisheiði nú í morgun. Tuttugu manns eru í rútunni en engin slys urðu á fólki eða farartækjum. 10.1.2023 11:37
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verðum við með puttann á púlsinum í Karphúsinu og greinum frá niðurstöðum fundar Eflingar og Samtaka Atvinnulífsins en svo gæti farið að boðað verði til verkfalls að loknum þeim fundi. 10.1.2023 11:35
Fyrstur til að veita rafrænan aðgang í gegnum talsmann sinn Fyrsti einstaklingurinn hefur nú veitt rafrænan aðgang í gegnum talsmann sinn. Þessu greinir réttindagæslumaður fatlaðs fólks frá. 10.1.2023 11:33
Lögreglan lýsir eftir Modestas Antanavicius Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni. 10.1.2023 11:16
Bein útsending: Ögurstund upp runnin í Karphúsinu Samninganefndir Eflingar og Samtaka atvinnulífsins sitja nú á fundi hjá ríkissáttasemjara í Borgartúni. Fulltrúar beggja fylkinga mættu á svæðið um og upp úr klukkan ellefu og hófst fundur rétt fyrir klukkan hálf tólf. 10.1.2023 11:16
Vafi leikur á um hvort Landsréttur hafi mátt þyngja refsingu Angjelin Ríkissaksóknari telur möguleika á því að Landsrétt hafi skort lagaheimild til að þyngja refsingu Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu. Mikilvægt sé að Hæstiréttur taki málið til skoðunar. 10.1.2023 09:59
Vefnaður kenndur á Hallormsstað Vefnaður er eitt af því, sem nemendur Hússtjórnarskólans á Hallormsstað læra til að koma í veg fyrir að þetta gamla handverk glatist ekki. Skólameistarinn segir nauðsynlegt að viðhalda þessum gamla menningararfi, sem vefnaður er. 10.1.2023 09:30
Áfengisneysla stigmagnast: „Á meðan þeir eru fúnkerandi er best að grípa inn í“ Áfengisneysla Íslendinga hefur stigmagnast og tilfellum skorpulifrar fjölgað, að sögn forstjóra Vogs. Hún segir sjúklinga illa á sig komna vegna drykkju og hvetur fólk til að takast á við vandamálin áður en í óefni er komið. 10.1.2023 09:13
Vera nýr framkvæmdastjóri Lífs styrktarfélags Vera Víðisdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Lífs styrktarfélags frá og með 1. janúar 2023. Áður starfaði Vera hjá hönnunarfyrirtækinu iglo+indi, en þar á undan rak hún eigin barnafataverslun. Undanfarin þrjú ár hefur Vera verið búsett í New York, ásamt fjölskyldu sinni. 10.1.2023 09:10
Telur að fasta rútan hafi greitt götu björgunarsveita Bóndi í Vestur-Skaftafellssýslu sem aðstoðaði rútu sem festi sig í tvígang í ófærð á jóladag segir að björgunarsveitir hafi átt greiðari leið með fólk í skjól vegna þess að eigendur rútunnar fengu hann til hjálpar. Lögreglurannsókn á málinu stendur yfir. 10.1.2023 09:01
Hrasaði á hlaupahjóli og hrækti á lögreglu Karlmaður búsettur á Akureyri þarf að dúsa í níutíu daga fangelsi eftir að hann hrækti á og kleip lögreglumenn í júní 2021. Lögreglumennirnir höfðu afskipti af honum eftir að hann hafði hrasað ölvaður á rafhlaupahjóli. 10.1.2023 08:46
Borgin ekki enn greitt skaðabætur vegna mistaka barnaverndar árið 2013 Reykjavíkurborg hefur ekki enn greitt konu skaðabætur sem Landsréttur dæmdi borgina til að greiða í júní 2021. Þá neitar borgin að afhenda konunni greinagerð dómkvaddra matsmanna um miska konunnar, sem borgin óskaði eftir. 10.1.2023 07:35
Velferðarráð Reykjavíkurborgar ræðir lokun Vinjar á morgun Velferðarráð Reykjavíkurborgar mun á morgun fjalla um tillögu borgarstjórnar frá 6. desember síðastliðnum um að leggja niður Vin, dagsetur fyrir fólk með geðraskanir. 10.1.2023 06:52
Björgunarsveitir í æfingaferð aðstoðuðu tugi ökumanna Liðsmenn þriggja björgunarsveita voru fyrir tilviljun staddir á Mosfellsheiði þegar tugir ökumanna lentu í vandræðum uppi á heiðinni í gær. 9.1.2023 23:55
Sigmundi slegið upp með Hitler og Mússólíní í Verzló Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er allt annað en sáttur við að hafa birst með á glæru með frægustu fasistum sögunnar í kennslustund í Verslunarskóla Íslands. Á glæru sem Sigmundur segir hafa verið notaða við kennslu sést Sigmundur ásamt þeim Adolf Hitler og Benító Mússólíní undir yfirskriftinni „Nokkrir merkir þjóðernissinnar". 9.1.2023 23:08
Hvalkjötið komið í skip og á leið til kaupenda í Japan Allt hvalkjöt frá síðustu vertíð, og raunar meira til, er farið úr landi. Flutningaskip lestaði kjötið í Hafnarfirði skömmu fyrir jól og er það núna á leiðinni til kaupenda í Japan. 9.1.2023 22:42
Sólin búin að lengja daginn um 47 mínútur í Reykjavík Myrkrið víkur núna hratt með hækkandi sól og í dag hafði daginn lengt um 47 mínútur í Reykjavík frá vetrarsólstöðum og um eina klukkustund á Akureyri. 9.1.2023 20:40
Hugvíkkandi efni spennandi en margt enn óljóst Geðlæknar eru upp til hópa spenntir fyrir þeirri nálgun að hugvíkkandi efni í lækningarskyni að sögn Karls Reynis Einarssonar, formanns Geðlæknafélags Íslands. 9.1.2023 20:34
Fékk brjálæðiskast yfir frönskum kartöflum Viðskiptavinum veitingastaðarins Just Wingin It í Garðabæ brá heldur betur í brún á laugardagskvöld þegar karlmaður á fertugsaldri missti stjórn á skapi sínu eftir að hafa ekki fengið franskar kartöflur með vængjunum sínum. 9.1.2023 19:40
Íslandsbanki kunni að hafa brotið lög við útboðið Í frummati fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna athugunar á framkvæmd Íslandsbanka hf. á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5 prósent eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka segir að FME telji að bankinn kunni að hafa brotið gegn lögum og reglum sem um bankann gilda. 9.1.2023 18:57
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður Eflingar segir komið að ögurstundu í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Deiluaðilar funda hjá ríkissáttasemjara á morgun, klukkustund áður en nýtt gagntilboð Eflingar rennur út. Efling boðar verkfall, taki SA ekki tilboðið til grundvallar. 9.1.2023 18:00
Fjölmargar ábendingar borist um vitni í Breiðholtslaug Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið fjölmargar ábendingar um vitni að því þegar hreyfihamlaður karlmaður á áttræðisaldri missti meðvitund í Breiðholtslaug í desember. Andlátið er til rannsóknar hjá lögreglu. 9.1.2023 17:06
Rannsókn á axarárásinni í Úlfarsárdal miðar vel Karlmaður sem réðst á fyrrverandi eiginkonu sína vopnaður öxi fyrir framan Dalskóla þann 30. nóvember sætir en gæsluvarðhaldi vegna árásarinnar. 9.1.2023 16:53
Lögreglumanni dæmdar bætur vegna slyss á valdbeitingarnámskeiði Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða tæpar 8,8 milljónir króna í bætur til lögreglumanns sem varð fyrir vinnuslysi. Umrætt slys átti sér stað í janúar 2020 þegar maðurinn starfaði við þjálfun lögreglumanna á valdbeitingarnámskeiði á vegum ríkislögreglustjóra. 9.1.2023 16:52
Sakar Eflingu um að ala á klofningi milli verkafólks eftir búsetu Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags, sakar forystufólk Eflingar um að ala á klofningu á milli verkafólks á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Þetta sé gert með því að halda því fram að félagsmenn Eflingar þurfi hærri laun sökum þess að þeir starfi á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að svo virðist sem að Efling stefni í að verða eyland í íslenskri verkalýðsbaráttu. 9.1.2023 14:42
Meintur gerandi fái vernd á meðan brotaþoli og fjölskylda sitja í djúpum sárum Réttargæslumaður fimmtán ára stúlku, sem sakaði stjúpföður sinn um ítrekað og gróft kynferðisofbeldi, segir ekki boðlegt að réttarkerfið geti ekki unnið úr málum án þess að valda brotaþolum skaða. Stúlkan hafi þurft að bíða í nærri tvö ár án ákæru og lögreglan á þeim tíma afhent manninum síma brotaþola. Maðurinn nýtur nú verndar í formi nálgunarbanns. 9.1.2023 14:31
Sökuð um að hafa sent nektarmyndir af eiginmanninum áfram Kona nokkur hefur verið ákærð fyrir að særa blygðunarsemi eiginmanns síns þáverandi og annarrar konu með myndasendingum til fleiri aðila. 9.1.2023 14:31
Enginn haft samband við Eddu: „Þetta er búið og gert“ Stjórn ÍBV hefur sætt mikilli gagnrýni vegna þrettándagleði sem fram fór síðastliðinn föstudag í Vestmannaeyjum. Gagnrýnin snýr að því að nafn Eddu Falak var ritað á tröll sem tók þátt í göngunni. Edda hefur lýst því yfir að hún upplifi atvikið sem ofbeldi og rasisma. Formaður ÍBV segir málið búið og gert og staðfesti að enginn hafi haft samband við Eddu vegna málsins. 9.1.2023 13:35
Sýknaður af líkamsárás á sambýliskonu sína Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað karlmann sem ákærður var fyrir að ráðast á þáverandi sambýliskonu sína. Framburður fórnarlambsins hjá lögreglu og fyrir dómi þótti óstöðugur en konan gaf þrjár mismunandi lýsingar af atvikum. 9.1.2023 12:50
Nokkuð um að vegum hafi verið lokað vegna fastra ferðamanna Nokkur dæmi eru um loka hafi þurft vegum að óþörfu í vetur, þar sem ferðamenn sem eru óvanir aðstæðum hafa valdið stíflu. Mosfellsheiðin er enn lokuð og nokkrir vegir eru á óvissustigi. 9.1.2023 12:00
Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ á nýársnótt Fertugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps á nýársnótt í Reykjanesbæ fyrir þremur árum. Þrír til viðbótar, þeirra á meðal brotaþoli í tilrauninni, eru ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 9.1.2023 11:52
Hlustar ekki á „hótanir“ Halldórs Benjamíns Formaður Eflingar segir að félagið muni slíta kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins og hefja verkfallsundirbúning, fallist samtökin ekki á að hafa nýtt tilboð Eflingar til grundvallar í frekari viðræðum. Hún kveðst þó bjartsýn á að ná góðum samningi fyrir Eflingarfólk og gefur lítið fyrir „hótanir“ framkvæmdastjóra SA um brottfall afturvirkni. 9.1.2023 11:39
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum ræðum við nýjasta tilboð Eflingar í kjaradeilu þeirra við Samtök atvinnulífsins. 9.1.2023 11:30
Ákærður fyrir leynilega upptöku í þríleik Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir að hafa í júní 2021 í Reykjavík tekið upp myndskeið á síma sinn af konu hafa samræði við sig og veita þriðja manni munnmök. 9.1.2023 10:47