Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds Lögreglan krefst áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir einum þeirra sem handtekinn var í umfangsmiklum aðgerðum í tengslum við mögulega hryðjuverkaógn. Búið er að boða til blaðamannafundar á morgun klukkan þrjú. 28.9.2022 18:23
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Margfalt fleiri landsmenn telja líklegra en áður að mannskæð hryðjuverk verði framin á Íslandi. Þetta sýnir ný könnun en afbrotafræðingur segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart og vera viðbrögð við nýlegum fréttum. 28.9.2022 18:00
Þorsteinn og Þórhallur skipaðir héraðsdómarar Dómsmálaráðherra hefur skipað Þorstein Magnússon og Þórhall Hauk Þorvaldsson í embætti héraðsdómara. Þorsteinn mun hafa starfsstöð við héraðsdóm Reykjavíkur og Þórhallur við héraðsdóm Reykjaness. Þeir hefja störf 1. október næstkomandi. 28.9.2022 17:31
Opna þakið á þeim hluta sem brennur ekki Mikill eldur logar í húsnæði Vasks á Egilsstöðum. Vaskur er þvottahús, efnalaug og verslun með hreinlætisvörur, skrifstofuvörur, hljóðfæri, víngerðarefni, búsáhöld, leikföng og hannyrðavörur. Þvottahús er í húsinu þar sem talið er líklegt að eldurinn hafi komið upp. 28.9.2022 16:53
Dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn barnungri frænku en gengur laus á Íslandi Karlmaður sem var dæmdur í sex ára fangelsi í heimalandi sínu í Evrópu fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barnungri frænku sinni hefur verið úrskurðaður í farbann. Lögregla fór fram á gæsluvarðhald yfir manninum en dómstólar hér á landi höfnuðu kröfunni. 28.9.2022 15:06
Hálsaskógur óþekkjanlegur eftir storminn Skógræktarfélag Djúpavogs varð fyrir miklu tjóni vegna óveðursins sem geisaði nú fyrir skömmu. Lágmark þrjú hundruð tré eyðilögðust í Hálsaskógi vegna veðursins. Stuðningsmaður skógræktarfélagsins telur ekki mögulegt fyrir félagið að taka til og laga svæðið nema með utanaðkomandi aðstoð. 28.9.2022 14:14
Sýndu tveggja tíma þögult myndband í Rauðagerðismálinu Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu svokallaða hófst í Landsrétti í dag. Málsmeðferðin hófst á sýningu tveggja klukkustunda langs myndbands, þar sem fylgst er með aðilum máls á ferð þeirra kvöldið sem Armando Beqirai var ráðinn bani. 28.9.2022 13:45
Sigrún segir ástandið innan FÍ í tíð Önnu Dóru hafa verið orðið óbærilegt Sigrún Valbergsdóttir, nýr forseti Ferðafélags Íslands, hefur sent frá sér tilkynningu sem hún stílar á félaga í FÍ. Þar kemur meðal annars fram að vegna ólýðræðislegra vinnubragða Önnu Dóru Sæþórsdóttur hafi öll stjórnun verið komin í óefni. 28.9.2022 13:45
Öfugmæli að aðgerðir Seðlabankans komi heimilunum illa Seðlabankastjóri segir að þeir sem gagnrýnt hafi aðgerðir Seðlabankans til að ná niður verðbólgu fari með öfugmælavísur. Verðbólga sé mesti óvinur þeirra verst settu í þjóðfélaginu og nú bendi margt til að aðgerðir til á ná henni niður séu farnar að virka. 28.9.2022 12:23
Viðskiptavinir geti setið uppi með hundruð þúsunda króna reikning Bílaleigur landsins standa uppi með gríðarlegt tjón eftir fárviðri helgarinnar en margir bílar eru óökufærir. Bæði bílaleigurnar og viðskiptavinir bera kostnaðinn að sögn forstjóra Bílaleigu Akureyrar en hann getur numið nokkrum milljónum króna. Þar af gætu óheppnir ferðamenn þurft að greiða hundruð þúsunda. 28.9.2022 12:03
Korpuskóli skásti möguleikinn í afleitri stöðu Tekin hefur verið ákvörðun um að nemendur í 8. bekk Hagaskóla verði í vikunni fluttir tímabundið í Korpuskóla í Grafarvogi. Þar mun kennsla fara fram í um 3-5 vikur á meðan leyst er úr brunavarnamálum í bráðabirgðahúsnæði þeirra í Ármúla. Formaður Foreldrafélags Hagaskóla segir þetta skásta möguleikann í annars afleitri stöðu. 28.9.2022 11:55
Dularfullt lambsdráp í Skorradal Refaskytta í Borgarnesi birti myndskeið af sundurskotinni kind á Facebooksíðu sinni. Fyrir liggur að einhver hefur beint riffli sínum að kindinni og skotið hana. 28.9.2022 11:46
Krefjast þyngri refsingar fyrir morðið í Rauðagerði Ríkissaksóknari fer fram á að dómurinn yfir Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu verði þyngdur. Angjelin var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir morðið á Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar 2021. 28.9.2022 11:25
Enginn blaðamannafundur í dag vegna meintrar hryðjuverkaógnar Ekkert verður af blaðamannafundi ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna rannsóknar þar sem grunur leikur á um skipulagningu hryðjuverka. Stefnt var að því að halda fundinn í dag en nú sé unnið út frá því að fundurinn verði á morgun samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. 28.9.2022 10:57
Segir leitt að 53 ára skólastarfi að Húnavöllum hafi lokið svona skyndilega Harðar deilur hafa staðið innan sveitarstjórnar hinnar nýju Húnabyggðar um þá ákvörðun hennar að hætta grunnskólastarfi í Húnavallaskóla og sameina skólastarfið Blönduskóla á Blönduósi strax í haust. 28.9.2022 08:01
Skoða flutning Hagskælinga í Korpuskóla Til skoðunar er að flytja hluta nemenda í áttunda og níunda bekk Hagaskóla tímabundið í Korpuskóla. Þá er einnig möguleiki að húsnæðið sem Hagaskóli hefur haft til umráða í Ármúla verði tvísetið en fulltrúar Reykjavíkurborgar funduðu með fulltrúum skólans í vikunni um næstu skref. 28.9.2022 06:40
Beitti seljanda loftriffils rafvopni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi tvo vegna brota á vopnalögum þar sem maður hafði ætlað að selja öðrum loftriffil. Kaupandinn hafði þar reynt að hafa af riffillinn af seljandanum án þess að greiða fyrir og beitt viðkomandi rafvopni (tazer). 28.9.2022 06:00
Gjaldskrárhækkun Strætó skárri kostur af tveimur slæmum Í dag var tilkynnt að gjaldskrá Strætó muni hækka um 12,5 prósent. Þetta er mesta hækkun sem fyrirtækið hefur farið í í langan tíma en fjárhagsstaða þess hefur verið afar slæm upp á síðkastið. Stjórnarmaður í Strætó segir nauðsynlegt að skoða hvernig eigi að reka almenningssamgöngur hér á landi. 27.9.2022 23:37
Munu leggja til að þjóðminjavörður verði færður í fyrra starf Félag fornleifafræðinga mun leggja til að nýskipaður þjóðminjavörður verði færður í fyrra starf sitt sem safnsstjóri Listasafns Íslands á fyrsta fundi nýstofnaðs samráðshóps um málefni höfuðsafnanna þriggja. 27.9.2022 22:47
Segir hundinn ekki hafa ráðist á neinn Eigandi hundsins á Akureyri sem fjallað var um á Vísi í gær segir hann ekki hafa bitið neinn heldur einungis hlaupið í átt að stúlku með annan hund í bandi. Hundurinn sé aldrei skilinn einn eftir úti. 27.9.2022 21:31
Aukið álag vegna barna á flótta Málum vegna barna af erlendum uppruna hefur fjölgað nokkuð hjá Barnavernd Reykjavíkur. Framkvæmdastjórinn segir aukið álag vegna barna á flótta eftir að covid takmörkunum var aflétt. 27.9.2022 21:01
Verðbólga, lögregla og leigubifreiðar á Alþingi Þingmaður Flokks fólksins segir öfugsnúið að berjast gegn verðbólgu með hækkun vaxta sem auki greiðslubyrði heimilanna og verðbólguna. Fjármálaráðherra segir vaxtahækkanir Seðlabankans hins vegar hafa dregið úr hækkun húsnæðisverðs og nú fari verðbólga minnkandi. 27.9.2022 19:42
Tugir segja sig úr Ferðafélaginu á „ákaflega sorglegum degi“ Stjórn Ferðafélags Íslands hafnar alfarið ásökunum fráfarandi forseta félagsins, sem sakar stjórnina meðal annars um að hafa þaggað niður kynferðisofbeldismál. Varaforseti segir vantraustsyfirlýsingu gegn forsetanum hafa verið í undirbúningi. 61 hefur sagt sig úr Ferðafélaginu vegna málsins í dag. 27.9.2022 19:31
Um tvö þúsund manns mættu í bólusetningu Í fyrsta sinn í hálft ár var stólum raðað upp fyrir fjöldabólusetningu og hjúkrunarfræðingar gengu um með bakka fulla af sprautum. Hluti þeirra sem mættu fengu bæði inflúensubólusetningu og örvunarskammt af nýju bóluefni gegn ómíkrón afbrigðinu. 27.9.2022 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Evrópuríki gruna Rússa um að hafa sprengt upp göt á Nord Stream gasleiðsluna sem flytur gas frá Rússlandi til Evrópu. Búist er við að Pútín tilkynni á næstum dögum um innlimun úkraínskra héraða sem Rússar hafa náð tökum á. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 27.9.2022 18:02
Ekki í anda trúarinnar að tvístra nemendahópum Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur við Laugarneskirkju vísar á bug ásökunum um að kirkjan sé að kynda undir ófriðarbál með því að afþakka kirkjuheimsóknir á vegum grunnskólanna í aðventunni. Ákvörðunin hafi verið tekin sérstaklega til að slökkva ófriðarbál því andstaða hafi við skipulagðar kirkjuheimsóknir hafi farið stigvaxandi. Þá sé það ekki í anda kirkjunnar að skilja börn út undan. 27.9.2022 17:08
Orðin lenska að taka langan tíma í kjarasamninga Yfir 99 prósent kjarasamninga á Íslandi renna út áður en nýr samningur er gerður. Þetta er of hátt hlutfall sem skapar óvissu fyrir launafólk og atvinnurekendur að mati ríkissáttasemjara. Hann vonar að hægt verði að breyta þessari hefð í náinni framtíð. 27.9.2022 16:39
Konan sem leitað var að er komin í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti síðdegis í dag eftir 25 ára konu. Innan við klukkustund eftir tilkynningu lögreglu var konan komin í leitirnar. 27.9.2022 16:33
Vilja enn að Alþingi biðji ráðherra í landsdómsmáli afsökunar Fjórir þingmenn Mið- og Sjálfstæðisflokksins lögðu fram ályktun um að Alþingi biðji Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og tvo aðra ráðherra afsökunar vegna ákæru til landsdóms. Í þingsályktunartillögu þeirra segir að rangt hafi verið að leggja fram ályktun um að höfða mál gegn þeim. 27.9.2022 15:21
Afgreiðsla forsætisnefndar á máli Sigurðar Inga sögð skrípaleikur Þingmenn stjórnarandstöðunnar sóttu hart að stjórnarliðum vegna afgreiðslu forsætisnefndar á siðanefndakæru á hendur Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra á Alþingi í dag. 27.9.2022 14:29
Lögregla fann manninn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. 27.9.2022 14:00
Tómas vísar ásökunum Önnu Dóru á bug og segir öllu á haus snúið Tómas Guðbjartsson, læknir og útivistarmaður, stjórnarmaður í Ferðafélagi Íslands, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann mótmælir harðlega því sem hann vill meina að séu alvarlegar ásakanir í sinn garð af hálfu fráfarandi forseta FÍ; Önnu Dóru Sæþórsdóttur. 27.9.2022 13:23
Hafnar því að hún harmi skipan þjóðminjavarðar Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segist ekki harma skipan þjóðminjavarðar, líkt og haldið var fram í Fréttablaðinu í morgun. Hins vegar hefði mátt auglýsa stöðuna til að halda sátt um skipanina. Ekki standi til að draga hana til baka. 27.9.2022 12:55
Gríðarlegt tjón í tugum íbúða eftir fordæmalausa rafmagnsbilun Margra milljóna króna tjón varð í tæplega hundrað íbúðum í Urriðaholti á föstudag þegar bilun kom í rafmagnsgötukassa og allt of há spenna komst inn á íbúðirnar. Gríðarlegur fjöldi heimilistækja skemmdist og dæmi eru um að lyftur í stigagöngum séu óvirkar. 27.9.2022 12:44
Stjórn FÍ vísar á bug ásökunum og lýsingum forsetans Stjórn Ferðafélags Íslands lýsir yfir vonbrigðum og furðu með hvernig Anna Dóra Sæþórsdóttir, fráfarandi forseti félagsins, lýsir viðskilnaði sínum við félagið. Stjórnin vísar algjörlega á bug þeim ásökunum og lýsingum sem hún setur fram í yfirlýsingu sinni. 27.9.2022 12:07
Hádegisfréttir Bylgjunnar Skipun þjóðminjavarðar, stórfellt rafmagnstjón, kirkjuheimsóknir barna og efnahagskrísa Breta verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 27.9.2022 11:38
Ekki þannig að myndavélar verði settar í hvert horn og hver sem er hleraður Umræðan um frumvarp um rannsóknarheimildir lögreglu ber keim af áróðri að sögn dómsmálaráðherra. Frumvarpið hefur sætt nokkurri gagnrýni en ráðherrann segir ekki nógu skýr ákvæði um heimildir lögreglu til staðar. Það standi alls ekki til að setja myndavélar í hvert horn og hlera fólk sem ekkert hafi af sér gert heldur þurfi einfaldlega að tryggja öryggi borgara. 27.9.2022 11:14
Aflýsa hættustigi á Austur- og Suðurlandi vegna óveðursins Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra á Austurlandi og Suðurlandi hefur ákveðið að aflýsa hættustigi almannavarna vegna veðurs sem fór yfir umdæmin 24. til 26. september. 27.9.2022 09:49
Þetta er uppáhalds sundlaug Íslendinga Sundlaug Akureyrar er uppáhalds sundlaug Íslendinga, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fréttastofa sótti tvær vinsælustu laugar landsins heim í dag. Heildarniðurstöður má nálgast neðst í fréttinni. 27.9.2022 09:42
Hættir sem forseti FÍ: Segir Tómas hafa barist fyrir endurkomu Helga Anna Dóra Sæþórsdóttir hefur sagt af sér sem forseti Ferðafélags Íslands (FÍ) sem og úr félaginu sjálfu. Hún segir stjórnarhætti ganga þvert á hennar gildi. Stjórnarmaður hafi barist hart fyrir því að koma vini sínum aftur til starfa sem hafði sagt sig úr stjórn félagsins vegna ásakana um kynferðisofbeldi. 27.9.2022 09:30
Breyta fyrirkomulagi launagreiðslna ríkisstarfsmanna eftir gagnrýni Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur heimilað Fjársýslunni að breyta fyrirkomulaginu á launagreiðslum ríkisstarfsmanna eftir mikla gagnrýni á fyrirkomulagið. Með breytingunni verða laun greidd út fyrsta hvers mánaðar, óháð því hvort dagsetningin lendi á helgi eða lögbundnum frídegi. 27.9.2022 09:11
Munu reisa Angró á nýjum stað í bænum Til stendur að reisa sögufræga húsið Angró á Seyðisfirði á nýjum stað í bænum eftir að það féll saman í óveðrinu um helgina. Múlaþing vinnur nú að því í samvinnu við Minjastofnun að undirbúa aðgerðir á svæðinu en það hefur lengi staðið til að flytja húsið á nýjan stað. 27.9.2022 07:35
„Þetta varð alltaf verra og verra“ Talið er að um fimm þúsund börn hafi dvalið á um þrjátíu vistheimilum á vegum hins opinbera frá síðustu öld. Þá er ótalið öll þau börn sem dvöldu á sveitabæjum. Nú hafa sanngirnisbætur verið greiddar eða eru á leiðinni fyrir dvöl á næstum öðru hverju heimili. Umsjónarmaður sanngirnisbóta segir að algjört eftirlits-og stefnuleysi hafi ríkt í málaflokknum á sínum tíma. Það sé því miður raunin að nokkru leyti ennþá. 27.9.2022 07:02
Rólegt veður í dag og á morgun eftir illviðri síðustu daga Haglætis veður verður á landinu í dag og á morgun eftir illviðri síðustu daga og hefur vindur gengið niður á Austurhluta landsins. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. 27.9.2022 06:42
Segir Lilju harma skipun þjóðminjavarðar en ekki geta dregið hana til baka Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, formaður Íslandsdeildar International Council of Museums (ICOM), segir Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra hafa harmað skipun þjóðminjavarðar án auglýsingar á Safnaþingi á Austfjörðum í síðustu viku. 27.9.2022 06:26