Fleiri fréttir

Aðgerðir gegn verðbólgunni verri en verðbólgan sjálf
Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir aðgerðir stjórnvalda gegn verðbólgunni verri fyrir heimilin en verðbólgan sjálf. Grípa þurfi til róttækra aðgerða til þess að verja heimilin.

Tóku á móti stúlkubarni á miðjum Hafnarfjarðarvegi
Sjúkrabílaáhöfn tók á móti stúlkubarni á miðjum Hafnarfjarðarvegi á leið á fæðingadeildina í nótt. Samkvæmt Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins gekk allt að óskum.

Fjórtán ára meðhjálpari á Rauðasandi
Yngsti meðhjálpari landsins, Tryggvi Sveinn Eyjólfsson er ekki nema fjórtán ára gamall en hann þjónar í Saurbæjarkirkju á Rauðasandi í Patreksfjarðarprestakalli hjá séra Kristjáni Arasyni, sóknarpresti. Hann segir starfið mjög skemmtilegt þó að það sé unnið í sjálfboðavinnu.

Tæplega sjö þúsund manns sáu gosið í gær
Alls fóru 6.685 manns um gossvæðið í gær samkvæmt talningu Ferðamálastofu en lögreglan segir það mega gera ráð fyrir því að fjöldinn hafi verið mun meiri. Aldrei hafa fleiri gengið í átt að gosstöðvunum á einum sólarhring en teljarinn var settur upp í mars á síðasta ári er gosið í Geldingadölum hófst.

Óskar þess að ró færist yfir verkalýðshreyfinguna fyrir gerð kjarasamninga
Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins kallar eftir því að ríkið haldi sig til hlés þar til á lokametrum kjaraviðræðna í haust. Hann segist óska eftir því að ró færist yfir ASÍ áður en gengið verði að samningsborðinu.

Lortur beið lögreglu eftir innbrot í Árbæ
Nóg var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Lögreglan var til að mynda kölluð til vegna innbrots í fyrirtæki í Árbæ. Í stað þess að mæta innbrotsmanninum við komuna á vettvang tók lortur á gólfi fyrirtækisins á móti lögreglunni og innbrotsmaðurinn hvergi sjáanlegur.

Úkraínskir krakkar lærðu fótbolta og eignuðust nýja vini hjá Þrótti
Úkraínskir krakkar nutu velvildar Þróttara í liðinni viku þegar þeim var boðið að sækja fótboltanámskeið. Það voru Úkraínumennirnir Konstiantyn Iaroshenko og Konstiantyn Pikul, leikmenn Þróttar, sem leiðbeindu krökkunum sem sumir höfðu aldrei spilað fótbolta áður.

Mikilvægt að taktur náist fyrir komandi kjarasamninga
Formaður Bandalags háskólamanna segir mikilvægt að taktur náist innan Alþýðusambands Íslands fyrir komandi kjaraviðræður. Þær setji öðrum aðilum verkalýðshreyfingarinnar ramma. Náist sá taktur ekki gæti opinberi markaðurinn þurft að taka af skarið.

Lítið hægt að gera ef „menn hverfa í hraunið“
Það er nánast ógjörningur fyrir viðbragðsaðila við gosstöðvarnar í Meradölum að koma fólki til bjargar, ef það lendir í sjálfheldu úti á sjálfu hrauninu. Myndband sem sýnir ferðamenn hætta sér ískyggilega nálægt gígunum hefur vakið athygli.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Í kvöldfréttum okkar klukkan hálf sjö segjum við frá því að ferðamenn stofnuðu sér í voða þegar þeir stóðu á nýju hrauni við eldgíg í gær. Við ræðum við fulltrúa lögreglunnar en að sögn hans fara viðbragðsaðilar ekki á slíkt svæði ef eitthvað kemur upp.

„Við áttum að finna hann þarna“
Regnbogafáni sem var á húni fyrir utan Hjallakirkju í Kópavogi var rifinn niður um helgina. Sunna Dóra Möller, sóknarprestur í Hjallakirkju, telur þetta hafa verið gert af ásetningi til að senda skilaboð og hefur tilkynnt málið til lögreglu.

Katrín hleypur fyrir Alzheimer-samtökin
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og hleypur hún fyrir Alzheimer-samtökin. Innblásturinn segir Katrín sækja til Magnúsar Karls Magnússonar og Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur, sem hefi opnað augu margra fyrir alzheimer-sjúkdómnum.

Fáir sigurvegarar í kjarasamningsviðræðum í óðaverðbólgu
Átökin innan verkalýðshreyfingarinnar komu framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins ekki á óvart en hann segir það heldur ekki til hagsbóta fyrir samtökin að stjórn Alþýðusambandsins sé í lausu lofti. Ekki virðast samtökin líta svo á að mikið svigrúm sé fyrir launahækkanir í haust.

Þremur sleppt eftir yfirheyrslur vegna hnífstungu
Þremur unglingspiltum sem voru handteknir í gær vegna hnífsstungu við Ingólfstorg í fyrrinótt hefur öllum verið sleppt að lokinni skýrslutöku. Einn þeirra er grunaður um að hafa stungið dreng undir lögaldri í bakið í fyrrinótt.

Reyndi að komast á skemmtistað með hníf og hnúajárn
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning frá dyravörðum um mann sem vara að reyna að komast inn á skemmtistað í miðbænum. Maðurinn var með hníf og hnúajárn.

Kjaramálin, Landspítalinn og þolmörk jarðarinnar rædd á Sprengisandi
Á Sprengisandi í dag verða tekin fyrir kjaramál, verkalýðsmál og verkalýðshreyfing. Fyrir viku boðaði Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR að haustið verði erfitt á vinnumarkaði. Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA ætlar að bregðast við því.

Nyrsta gosopið lokað og metfjöldi á gosstöðvum
6.496 manns fóru og báru eldgosið í Meradölum augum í gær, samkvæmt talningu Ferðamálastofu, en það er mesti fjöldinn á einum degi frá því teljarinnar var settur upp í mars í fyrra. Nyrsta gosopið í Meradölum lokaðist í gær.

Segjast óupplýstar á lífshættulegum biðlista
Trans konurnar Elín Ósk og Þórhildur Sara lýsa yfir mikilli óánægju vegna þjónustu íslenska heilbrigðiskerfisins gagnvart trans konum. Þær segja lengd biðtíma eftir kynleiðréttingaraðgerðum óásættanlega og stjórnvöld segi biðtímann mikið styttri en hann sé í raun. Lítið upplýsingaflæði segja þær vera á milli kerfisins og kvennanna. Biðin geti reynst trans konum lífshættuleg.

Gengu út á hraunið og upp að gígunum
Myndband náðist í gær af fólki sem hafði gengið út á glænýtt hraun í Meradölum í gær og upp að gígunum. Fólkið stóð nærri hraunflæðinu þegar maður notaði dróna til að reka þau á brott.

Fleiri barir en börn í skólanum á Borgarfirði eystri
Það eru fleiri barir hérna en börn í skólanum“, segir sveitarstjórnarmaður Vinstri grænna í Múlaþingi en þá á hann við þorpið á Borgarfirði eystri. Mikil uppbygging er á staðnum, ekki síst í ferðaþjónustu og nú hafa fyrstu nýju íbúðarhúsin í fjörutíu ár verið byggð í þorpinu.

Kastaði flösku í höfuð manns
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um hávaða og ónæði í öllum hverfum. Alls var farið í ellefu slík útköll og níu sinnum fóru lögregluþjónar að huga að fólki sökum ölvunarástands. Fimm voru vistaðir á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í nótt.

„Hústökuleikskóli“ í Ráðhúsinu
Móðir sautján mánaða gamals barns sem ekki fær leikskólapláss í borginni ætlar að setja upp hústökuleikskóla í Ráðhúsi Reykjavíkur í næstu viku. Hún segir algjört neyðarástand ríkja meðal foreldra barna á leikskólaaldri. Svör borgarinnar til foreldra séu kæruleysisleg.

Reyndi að þvinga bíl af veginum, negldi aftan á hann og flúði af vettvangi
Ökuníðingur reyndi að þvinga mann út af vegi við Rauðavatn, keyrði síðan harkalega aftan á bíl hans og flúði af vettvangi. Lögreglan hafði upp á ökuníðingnum stuttu síðar og handtók hann.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Móðir sautján mánaða gamals barns sem ekki fær leikskólapláss í borginni ætlar að setja upp hústökuleikskóla í Ráðhúsi Reykjavíkur í næstu viku. Hún segir algjört neyðarástand ríkja meðal foreldra barna á leikskólaaldri. Svör borgarinnar til foreldra séu kæruleysisleg.

Beittu armlás og tóku dróna svissnesks tökuliðs ófrjálsri hendi
Lögreglan á Vesturlandi hefur endurheimt dróna svissnesks tökuliðs sem níu starfsmenn Hvals tóku ófrjálsri hendi þegar tökuliðið var að mynda hvalstöðina í Hvalfirði. Tökuliðið hefur nú gefið skýrslu hjá lögreglu en Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, hefur einnig kært atvikið.

Sá sem var stunginn er sextán ára gamall Íslendingur
Þrír unglingspiltar eru í haldi lögreglu eftir að hafa stungið þann fjórða í bakið í miðbæ Reykjavíkur í gær. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var um alvarlega árás að ræða og var blæðingin veruleg. Fórnarlambið, sextán ára gamall Íslendingur, fór á gjörgæslu og svo á Barnaspítala Hringsins í nótt, en hefur verið útskrifaður.

„Miðað við vísindin þá erum við á villigötum“
Heitar umræður hafa spunnist um lestrarkennslu í skólakerfinu að undanförnu. Því er haldið fram að kennsla foreldra sé lykilþáttur í læsi barna og við lestrarkennslu sé notast við aðferðir sem henti íslenskunni illa. Samt sem áður er lítið af kennsluefni til fyrir foreldra og Pisa niðurstöður benda til hnignandi lesskilnings. Lestrarfræðingur telur að menntakerfið sé á villigötum að þessu leyti.

Landverðir munu létta undir með björgunarsveitum við gosið
Landverðir munu framvegis standa vaktina part úr degi til að létta undir með björgunarsveitum við gosstöðvarnar í Meradölum. Landsbjörg hefur kallað eftir því að geta losað sitt fólk undan sífelldri gæslu við gosstöðvarnar enda sjálfboðaliðarnir ekki óþrjótandi auðlind. Mikil umferð er við gosstöðvarnar og gistipláss í Grindavík eru full.

Þrír í haldi vegna hnífstungu
Þrír Íslendingar eru í haldi eftir að maður var stunginn í bakið með hníf nálægt Ingólfstorgi í miðbæ Reykjavíkur í gær. Eftir árásina upphófst leit lögreglu að sakamönnunum og bar hún árangur í morgun.

Auglýsa eftir verkefnastjóra Sundabrautar
Vegagerðin auglýsti í vikunni eftir umsóknum um starf verkefnastjóra fyrir Sundabraut. Sá sem sækir um og fær starfið á að sinna undirbúningi fyrir byggingu Sundabrautar.

Eggert Þór Kristófersson ráðinn forstjóri Landeldis
Eggert Þór Kristófersson hefur verið ráðinn í starf forstjóra Landeldis hf. Hann mun hefja störf 17. ágúst næstkomandi.

Kunna ekki skýringar á minni gosóróa
Jarðvísindamenn telja ekki að nýjar gossprungur séu að opnast í Meradölum, líkt og talið var mögulegt í morgun. Samdráttur í gosóróa á svæðinu í morgun vakti grunsemdir vísindamanna.

Nokkrum fjölskyldum vísað frá í gær
Nokkrum erlendum fjölskyldum var vísað frá gönguleiðinni að eldgosasvæðinu í Meradölum í gær. Var það gert vegna ungs aldurs barna. Eftirlit er sagt hafa gengið vel en gangan mun hafa reynst mörgum erfið í nótt og þurftu margir aðstoð við að komast niður af fjallinu.

Enginn biðlisti í leikskólann á Skagaströnd
Íbúum á Skagaströnd er að fjölga en það gerist hægt. Kona, sem flutti á staðinn fyrir þremur árum segir að staðurinn sé friðsæll og náttúran allt í kringum þorpið sé yndisleg. Börn eru tekin níu mánaða inn í leikskólann og þar er engin biðlisti.

Leita manns eftir hnífstungu í miðbænum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar manns sem stakk annan mann í bakið í miðbænum í nótt. Maðurinn flúði eftir hnífstunguna og stendur leit yfir. Sá sem var stunginn var fluttur á sjúkrahús og var hann þá með meðvitund.

Missti báða fótleggina eftir slys á Tröllaskaga
Daniel Hund var að halda upp á tveggja ára brúðkaupsafmælið sitt hér á landi í mars á þessu ári ásamt eiginkonu sinni Sierra þegar hann lenti í alvarlegu slysi á fjallaskíðum á Tröllaskaga. Hann féll niður bratta brekku milli klettabelta og hryggbrotnaði. Á Landspítalanum þurfti að fjarlægja báða fótleggi hans þar sem hann fékk drep í þá báða.

UMFÍ tekur við rekstri Skólabúðanna að Reykjum
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) mun taka við rekstri Skólabúðanna að Reykjum frá næsta skólaári. Um 3.200 nemendur í 7. bekk í grunnskóla heimsækja búðirnar ár hvert.

Næðisskikkjur og lekalausir pokar fyrir göngufólk í spreng
Viðbúið er að fjöldi fólks leggi leið sína að gosstöðvunum í Meradölum um helgina, enda búið að bæta gönguleiðir og auka aðgengi að gosinu. Það eru þó ákveðnir hlutir sem einhverjir hafa áhyggjur af. Það eru klósettmálin.

Dagur fetar ekki í fótspor Garðbæinga
Eru mávar hatursefni? Samfélagið skiptist í fylkingar yfir þessu eins og borgarstjóri Reykjavíkur bendir á og sitt sýnist hverjum. Ólíkt öðrum sveitarfélögum, kemur þó ekki til greina í Reykjavík að fara að skjóta máva eða stinga á egg þeirra.

Auglýsingaherferðir og stórar hugmyndir fyrir kjaraviðræður
Bæði atvinnurekendur og leiðtogar stéttarfélaga eru svartsýnir fyrir komandi kjaraviðræður í haust. Á meðan smá stéttarfélög íhuga að ganga ekki sameinuð að samningaborðinu hefur Félag atvinnurekenda stungið upp á því að forstjórar stórfyrirtækja lækki laun sín.

Fjórtán og fimmtán ára börn skáru niður regnbogafánana á Hellu
Við rannsókn lögreglu á eignaspjöllum sem framin voru á Hellu aðfaranótt mánudags kom í ljós að það voru fjórtán og fimmtán ára börn sem báru ábyrgð á verknaðnum. Málið telst vera upplýst að sögn lögreglu.

Gönguleið A lokað í nótt
Gönguleið A í átt að gosstöðvum í Meradölum verður lokað í nótt vegna framkvæmda. Göngufólk er vinsamlegast beðið um að notast við gönguleið C skyldi það ætla sér að ganga í átt að gosinu í nótt.

Inga Hrefna ráðin aðstoðarmaður utanríkisráðherra
Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.

Ljósmöstur verða sett upp við gönguleiðina að gosinu á næstu dögum
Á fimmta þúsund gekk að gosstöðvunum í Meradölum í gær samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Björgunaraðilar segja vel hafa gengið við gosið undanfarna daga þrátt fyrir þennan gríðarlega fjölda fólks og nú sé unnið að lagfæringu gönguleiðarinnar.

Höfuð Þorsteins numið á brott úr Hallormsstaðaskógi
Brjóstmynd af einu af þekktari ljóðskáldum þjóðarinnar, Þorsteini Valdimarssyni, sem staðið hefur í Trjásafninu í Hallormsstaðaskógi í áratugi, hefur verið brotin af stalli sínum og numin á brott.