Fleiri fréttir

Kominn með styttuna í skottið eftir að Landsréttur sneri við dómi héraðsdóms
Bronsstytta af Guðríði Þorbjarnardóttur sem hvarf af stöpli á Laugarbrekku á sunnanverðu Snæfellsnesi í apríl er nú komin í hendur bæjaryfirvalda í Snæfellsbæ.

Útilokar að undirgangast stefnu Samfylkingarinnar í borginni
Oddviti Framsóknarflokksins segir það ekki koma til greina að taka þátt í meirihlutasamstarfi undir stefnu Samfylkingarinnar. Viðræður við flokka í dag hafi verið óformlegar og að ekki hafi verið farið út í nein málefni.

Kosningavaktin: Ágreiningur um fjölda mála hafa valdið viðræðuslitum á Akureyri
Línur eru farnar að skýrast víða um land hvaða flokkar muni reyna að ná saman og mynda meirihluta, í þeim sveitarfélögum þar sem einn flokkur náði ekki meirihluta.

Vill ekki að fólk oftúlki orð sín – stefnan sé sett á samflot
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að ekki megi oftúlka orð hennar um að útiloka ekki neinn. Oddvitar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata hafi talað sig saman um að vera í samfloti í gegnum meirihlutaviðræður.

Skúli Tómas kominn í leyfi frá Landspítala
Læknirinn sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á árunum 2018 til 2020 er kominn í leyfi frá Landspítalanum.

Margrét og Friðjón oftast útstrikuð í Reykjanesbæ
Af þeim sjö flokkum sem voru í framboði í sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ á laugardaginn var oftast strikað yfir nöfn frambjóðenda Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. 39 sinnum var strikað yfir nöfn frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins og 36 sinnum hjá Samfylkingunni.

Fjörutíu og einn greiddi atkvæði í Skorradalshreppi
Fjörutíu og einn greiddi atkvæði í sveitarstjórnarkosningum í Skorradalshreppi á laugardag. Þó það virðist vera lítið var kjörsókn 87,2% en 47 voru á kjörskrá.

Meirihluti í Dalabyggð vill hefja sameiningarviðræður
Meirihluti íbúa í Dalabyggð vill hefja sameiningarviðræður. Flestir þeirra vilja sameinast Sameinuðu sveitarfélagi Helgafellssveitar og Stykkishólms og næst flestir Húnaþingi vestra.

Útilokar ekki samstarf með Sjálfstæðisflokki
Halla Karen Kristjánsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ, segir flokkinn ekki útiloka meirihlutasamstarf með Sjálfstæðisflokknum. Hún hefur ekki náð að ræða við alla flokka og því geti hún hvorki útilokað einn né neinn.

Andrea Ýr fékk flest atkvæði í Hvalfjarðarsveit
Andrea Ýr Arnarsdóttir fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum í Hvalfjarðarsveit en þar voru listar ekki boðnir fram heldur var um persónukjör að ræða.

F-listinn með meirihluta í Eyjafjarðarsveit
F-listinn fékk meirihluta atkvæða í Eyjafjarðarsveit á laugardag. Alls var 821 á kjörskrá í sveitarfélaginu og greiddu 587 atkvæði, eða 71,5%.

Einar Örn 63 ára hjólaði í vinnuna úr Reykjavík á Selfoss
Einar Örn Thorlacius fer alla leið í átakinu „Hjólað í vinnuna“ því hann hjólaði í morgun frá Þingholtunum í Reykjavík þar sem hann býr á Selfoss, en þar vinnur hann hjá Matvælastofnun.

Litlu munaði hjá Sjálfstæðisflokki og E-lista í Vogum
D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra í Vogum fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum á laugardag. D-listinn og E-listinn náðu báðir þremur mönnum inn í bæjarstjórn.

J-listi Grósku með meirihluta í Hörgársveit
J-listi Grósku hlaut flest atkvæði og tryggði sér meirihluta fulltrúa í sveitarstjórn Hörgársveitar í kosningunum á laugardaginn. H-listi Hörgársveitar fékk tvo fulltrúa kjörna.

Leggja til að sameinað sveitarfélag fái nafnið Húnabyggð
D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum nýsameinaðs sveitafélags Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps.

Þetta eru nýju borgarfulltrúarnir í Reykjavík
Af þeim 23 borgarfulltrúum sem náðu kjöri í kosningunum um helgina koma tíu nýir inn. Sumir hafa áður setið í borgarstjórn og einn tók sæti sem borgarfulltrúi á yfirstandandi kjörtímabili.

Ö-listi með fjóra fulltrúa af fimm í Skaftárhreppi
Ö-listi Öflugs samfélags tryggði sér fjóra fulltrúa af fimm í sveitarstjórn Skaftárhrepps í kosningunum á laugardag. Sjálfstæðismenn náðu inn einum manni.

Ýtt niður listann með útstrikunum og missir af sæti í sveitarstjórn
Elín Höskuldsdóttir mun ekki taka sæti í sveitarstjórn Flóahrepps þrátt fyrir að hafa skipað annað sætið á lista sem hlýtur tvo fulltrúa. Útstrikanir ýttu henni niður listann og Harpa Magnúsdóttir fær sætið.

Sjálfstæðismenn í viðræður við N-lista um nýjan meirihluta í Rangárþingi eystra
Sjálfstæðismenn í Rangárþingi eystra ætla að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf við N-lista Nýja óháða listans.

Á-listinn fékk meirihluta í Rangárþingi ytra með ellefu atkvæðum
Litlu munaði að Sjálfstæðisflokkurinn bæri sigur úr bítum í sveitarstjórnarkosningum í Rangárþingi ytra á laugardag. Ellefu atkvæðum munaði, að sögn oddvita flokksins, að hann hefði fengið meirihluta.

Munaði tveimur atkvæðum á Framsókn og Nýju afli í Húnaþingi vestra
Listi Framsóknarflokksins og annarra framfarasinna hlaut flesta fulltrúa kjörna, eða þrjá, í kosningum til sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra, í kosningunum á laugardag. Listar Nýs afls (N) og Sjálfstæðisflokksins (D) hlutu báðir tvo fulltrúa kjörna.

Flestir strikuðu yfir Þórhall Jónsson
Á Akureyri voru það aðallega kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem strikuðu yfir nöfn frambjóðenda í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Strikað var yfir nöfn þeirra alls 120 sinnum. Af frambjóðendunum var það Þórhallur Jónsson í þriðja sæti listans sem fékk flestar útstrikanir, 81 talsins.

Hlutkesti skilaði Jóni Inga í sveitarstjórn í Tálknafirði
Óbundnar kosningar til sveitarstjórnar í Tálknafjarðarhreppi fóru fram á laugardaginn sem þýðir að allir íbúar voru í framboði. Jóhann Örn Hreiðarsson hlaut flest atkvæði, en hlutkesti réði ríkjum hver tók fimmta sætið í nýrri sveitarstjórn.

Ný sýn hélt meirihluta sínum í Vesturbyggð
N-listi Nýrrar sýnar hélt meirihluta sínum í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru á laugardag. Listinn fékk fjóra menn kjörna líkt og í kosningunum 2018, og D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra þrjá kjörna.

Einar segir stöðuna galopna og hefur áhuga á borgarstjórastólnum
Oddviti Framsóknarflokksins vill ræða við oddvita allra flokka í Reykjavík í dag. Hann segist hafa áhuga á stóli borgarstjóra og telur stöðuna galopna. Þrátt fyrir það virðast fáir valkostir í myndun meirihluta á borðinu eins og staðan er núna.

Jón Páll áfram bæjarstjóri þrátt fyrir valdaskiptin
Jón Páll Hreinsson verður endurráðinn bæjarstjóri í Bolungarvík þrátt fyrir að Sjálfstæðismenn hafi misst meirihlutann í bæjarstjórn. K-listi Máttar meyja og manna bættu við sig manni og náðu inn fjórum mönnum af sjö í bæjarstjórn í kosningunum um helgina.

Segir barlóm blóðmerabónda ekki standast og ásakanir fráleitar
Arnþór Guðlaugsson framkvæmdastjóri Ísteka furðar sig á alvarlegum ásökunum sem Sigríður Jónsdóttir blóðmerabóndi í Arnarholti setti fram í Bændablaðinu; hann segir þær algerlega úr lausu lofti gripnar.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum verða nýafstaðnar sveitarstjórnakosningar fyrirferðamiklar.

Þorgeir sneri aftur til Strandabyggðar og vann sigur
T-listi Strandabandalagsins vann sigur í sveitarstjórnarkosningum í Strandabyggð á laugardaginn. Oddviti listans er Þorgeir Pálsson, fyrrverandi sveitarstjóri Standabyggðar, sem var sagt upp í apríl 2020.

Sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins er í Ölfusi
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, fagnar niðurstöðunum í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Elliði hefur lagst yfir tölurnar og fundið út úr því að fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aldrei mælst hærra í sveitarfélaginu.

Garðyrkjumaður að norðan stýrir Kirkjugarðasambandinu
Smári Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Akureyrar, er nýr formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ). Smári var kosinn einróma á 26. aðalfundi sambandsins sem haldinn var á laugardag.

Segir ljóst að ekkert breytist verði Framsókn varahjól undir bíl fallins meirihluta
Óformlegar viðræður eiga sér nú stað í Reykjavík. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að lítið verði um breytingar ákveði Framsókn að vera „varahjól“ undir föllnum meirihluta. Hildur mun eiga fundi með nokkrum oddvitum í dag en vill lítið gefa upp um hverja hún hittir.

Ræðir íslensku við Apple, Amazon og Microsoft
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hélt í gærkvöldi til Kaliforníu í Bandaríkjunum þar sem hann leiðir íslenska sendinefnd á fund bandarískra stórfyrirtækja í tækniiðnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.

Eins og búið sé að taka pólitík úr stjórnmálunum
Kjörsókn var ljómandi framan af í gær en þegar líða fór á dagin dró úr henni. Í tíu stærstu sveitarfélögum landsins var kjörsókn rétt um og yfir sextíu prósent. Prófessor í stjórnmálafræði telur rólega kosningabaráttu og breytt kosningalög skýra dræma kjörsókn.

Eldur í ruslagámi við Ánanaust
Eldur kviknaði í ruslagámi við Ánanaust í morgun. Engin hætta skapaðist samkvæmt varðstjóra hjá Slökkviliðinu hjá höfuðborgarsvæðinu.

„Við fórum yfir stöðuna og ákváðum að halda saman“
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar í borgarstjórn segir að oddvitar meirihlutaflokkanna hafi á fundi í gær ákveðið að „halda saman“. Miklar vangaveltur eru uppi um hvaða flokkar muni mynda meirihluta í borgarstjórn en meirihlutinn féll í sveitarstjórnarkosningum á laugardag.

Mun byrja á því að ræða við Rósu
Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar í Hafnarfirði, segir að Framsóknarmenn muni fyrst eiga viðræður við Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðar og oddvita Sjálfstæðismanna, í vikunni um hvort grundvöllur sé fyrir áframhaldandi meirihlutasamstafi flokkanna í bæjarstjórn.

Hefja meirihlutaviðræður á Akureyri
Bæjarlisti Akureyrar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur munu hefja formlegar viðræður um myndun meirihluta í sveitarstjórn bæjarins.

Réðst á ökumann undir stýri
Tilkynnt var um líkamsárás í Kópavogi á ellefta tímanum í gærkvöldi þar sem kona og maður virðast hafa ráðist á þriðja mann.

Stærsti skjálftinn 3,0 að stærð í nótt
Heldur rólegra var um að litast á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar í nótt eftir ákafa hrinu á Reykjanesskaga síðustu dag sem olli því að lýst var yfir óvissustigi Almannavarna.

Ók á 200 kílómetra hraða og komst undan
Lögreglan veitti ökumanni bifreiðar eftirför um klukkan sjö í gærkvöldi. Atburðarrásin hófst í miðbænum þar sem tilkynnt var um ölvaðan ökumann.

„Þetta var ofbeldi, ekki einhver andleg vinna“
Áróra Helgadóttir, heilbrigðisverkfræðingur og jógakennari, sagði í Kompás frá reynslu sinni af eins konar sértrúarsafnaðarsamfélagi utan borgarmarkanna þar sem hún var beitt ítekuðu ofbeldi, gaslýsingu og kærleikskæfingu. Hún komst loks í burtu með klækjum, eftir að hafa misst tengslin við raunveruleikann og hætt að trúa sínu eigin innsæi.

Guðmundur Árni óskar eftir formlegum meirihlutaviðræðum við Framsókn
Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, hefur óskað eftir því við oddvita Framsóknar í bænum, Valdimar Víðisson, að flokkarnir tveir hefji viðræður um myndun nýs bæjarstjórnarmeirihluta.

Tafirnar skýrast af glænýrri reglugerð sem kjörstjórnin skilur ekkert í
Margir pirruðu sig á mikilli seinkun sem varð á fyrstu tölum úr Reykjavík eftir kosningar í gær. Formaður yfirkjörstjórnar gagnrýnir nýjar og strangari reglur um talningu og sér ekki tilganginn með þeim.

Óvissustigi lýst yfir vegna skjálftanna á Reykjanesi
Ríkislögreglustjóri hefur, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinunnar á Reykjanesskaga. Nokkurrar skjálftavirkni hefur gætt þar að undanförnu, en í dag mældist til að mynda einn skjálfti af stærðinni 4,3.