Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Ég hefði átt að vera varkárari í orðum mínum“ Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segist sjá eftir því að hafa ekki verið varkárari í orðum sínum í viðtali sem birtist á forsíðu Fréttablaðsins í morgun. Hann kveðst ekki myndu lýsa því þannig að Danir væru að „eyðileggja“ samningaviðræður Íslands og Pfizer, líkt og haft var eftir honum í blaðinu. Hann segir viðtalið þó ekki hafa valdið neinu fjaðrafoki innan Pfizer. 12.1.2021 13:48
Fóru ekki eftir tillögum fyrrverandi yfirlæknis um brjóstaskimun Fyrrverandi yfirlæknir og sviðsstjóri leitarsviðs Krabbameinsfélagsins telur að heppilegra hefði verið að fara hægar í það að hækka aldurinn fyrir brjóstaskimunum kvenna úr 40 árum í 50 ár. Hann lagði til við skimunarráð að konum sem nú þegar eru byrjaðar í skimun yrði áfram fylgt eftir en ekki var farið að hans ráðum. Tæplega tíu þúsund hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem nýjar reglur eru gagnrýndar. 12.1.2021 13:17
Felldu tvo íslenska hesta eftir slys á flugvelli í Belgíu Fella þurfti tvo íslenska hesta eftir að gámur sem þeir voru fluttir í féll af palli á flugvelli í Belgíu rétt fyrir jólin. Icelandair Cargo hefur stöðvað frekari flutning á hrossum til stærstu dreifimiðstöðvar fyrirtækisins í Evrópu um óákveðinn tíma. 12.1.2021 13:12
Brottförum fækkaði um eina og hálfa milljón árið 2020 Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 480 þúsund árið 2020 eða um 1,5 milljón færri en árið 2019, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkunin milli ára nemur 75,9 prósent. Ekki hafa svo fáar brottfarir mælst í tíu ár, að því er segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu. 12.1.2021 13:04
Þau vilja taka við starfi forsetaritara Birtur hefur verið listi yfir þá sem sóttu um embætti forsetaritara sem nýlega var auglýst laust til umsóknar. Viðkomandi mun taka við starfinu af Örnólfi Thorssyni sem hefur gegnt því frá árinu 2005. 12.1.2021 12:20
Starfandi fólki fækkar um tæp átta prósent milli ára Tæplega átta prósent færri voru starfandi á vinnumarkaði hér á landi í október í fyrra en í október árið 2019. Þá fækkaði starfandi fólki einnig milli mánaðanna september og október. Formaður samfylkingarinnar segir núverandi kreppu vera ójafnaðarkreppu. 12.1.2021 12:06
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um þróun kórónuveirufaraldursins en aðeins tveir greindust innanlands í gær. 12.1.2021 11:33
Segir öll samskipti sín við Pfizer hafa verið fín Sóttvarnalæknir segir öll samskipti sín við fulltrúa lyfjaframleiðandans Pfizer hafa verið fín. Hann hefur ekki fengið veður af meintum trúnaðarbresti dansks fulltrúa Pfizer, sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar lýsti í viðtali í Fréttablaðinu í morgun. 12.1.2021 11:30
Tveir greindust innanlands og fimmtán á landamærum Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Annar þeirra sem greindist var í sóttkví en hinn ekki. 12.1.2021 10:59
Safna undirskriftum gegn því að brjóstaskimun hefjist ekki fyrr en við fimmtugt Hafin er undirskriftasöfnun gegn þeirri ákvörðun heilbrigðisyfirvalda að hefja ekki skimun fyrir krabbameini í brjóstum kvenna fyrr en við fimmtugt. Söfnunin hófst í gærkvöldi og þegar þetta er skrifað hafa 6.600 manns skrifað undir. 12.1.2021 10:25
Bóluefni Moderna komið til landsins Bóluefni Moderna gegn Covid-19 er komið til landsins. Um er að ræða 1200 skammta af efninu sem verða notaðir til þess að ljúka bólusetningu einstaklinga í framlínu. Í kjölfarið munu svo berast 1200 skammtar af bóluefninu á tveggja vikna fresti. 12.1.2021 09:29
Snorri telur vinagreiða ráða við úthlutunum listamannalauna Snorri Ásmundsson myndlistarmaður hefur sent Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra bréf þar sem hann bendir ráðherra á að hafa vakandi auga með úthlutun úr launasjóði myndlistarmanna. 12.1.2021 08:49
Þrjár leiðir heilsugæslunnar til að ná til eldra fólks vegna bólusetningar Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að heilsugæslan vinni eftir þremur leiðum til þess að hafa samband við eldra fólk vegna bólusetningar gegn Covid-19. 12.1.2021 07:38
Bóluefni Moderna kemur í dag Von er á 1200 skömmtum af bóluefninu frá Moderna til landsins í dag. Skammtarnir verða notaðir til að ljúka bólusetningu einstaklinga í framlínuhópum. Í kjölfarið munu svo berast 1200 skammtar af bóluefninu á tveggja vikna fresti. 12.1.2021 06:48
Segir umboðsmann Pfizer hafa brotið trúnað um viðræður Íslendinga við fyrirtækið Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir Dani að öllum líkindum vera að eyðileggja fyrir Íslendingum gagnvart lyfjafyrirtækinu Pfizer um að rannsaka áhrif bóluefnis gegn Covid-19 á heila þjóð. 12.1.2021 06:35
Beið eftir aðstoð í allt að tuttugu gráðu frosti Gönguskíðamaðurinn sem slasaðist á fæti á Langjökli síðdegis í dag var fluttur niður af jöklinum og komið um borð í sjúkrabíl í Húsafelli eftir að hafa beðið eftir aðstoð ásamt félögum sínum. 11.1.2021 23:01
Ölvuð í Heiðmörk með ársgamalt barn í bílnum Lögregluþjónar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins handtóku í dag par í Heiðmörk vegna gruns um ölvunarakstur. Parið verður í fangageymslu í nótt og verða þau yfirheyrð á morgun. 11.1.2021 22:51
Tvöföld skimun „alveg þess virði“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur fylgst vel með komufarþegum á Keflavíkurflugvelli til þess að tryggja að allir þekki þær reglur sem eru í gildi. Heilbrigðisráðherra greindi frá því í gær að ákveðið hefði verið að fólk sem kemur hingað til landsins og kýs ekki að fara í skimun þurfi að fara í tveggja vikna sóttkví í farsóttahúsi. 11.1.2021 20:56
Hestar háma í sig jólatré í Þorlákshöfn Sex hestar í Þorlákshöfn lifa sældarlífi þessa dagana því þeir fá að éta jólatré út í gerðinu sínu, sem þeir gera með bestu lyst. 11.1.2021 20:04
Álag og samskiptavandi við yfirmenn sögð valda óánægju meðal slökkviliðsmanna Mikil óánægja er meðal slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar starfsánægjukönnunar. Álag, léleg samskipti við yfirmenn og lítil endurmenntun eru sögð helstu vandamálin. 11.1.2021 20:00
Brjóstaskimunin varð lífsbjörg Kona sem lauk nýlega meðferð við brjóstakrabbameini segir að boðun í skimun sem hún fékk fertug líklega hafa bjargað lífi sínu. Hún segir það hafa verið átakanlegt að heyra af ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um að skima konur ekki fyrr en við fimmtugt. 11.1.2021 19:31
Ekki útilokað að grípa til sams konar aðgerða og Danir og Bretar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir útilokar ekki að krefja fólk um neikvætt vottorð við kórónuveirunni fyrir komu þess til Íslands. Hann segir helstu hættuna sem steðji að Íslendingum vera fjölda smita á landamærunum. 11.1.2021 19:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kona sem nýverið lauk meðferð við brjóstakrabbameini segir að boðun í skimun sem hún fékk rétt fyrir fertugsafmæli sitt hafi líklega bjargað lífi sínu. Rætt verður við hana í kvöldfréttum Stöðvar 2 en hún furðar sig á ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um að skima konur ekki fyrr en við fimmtugsaldur. 11.1.2021 18:01
Sækja slasaðan gönguskíðamann á Langjökul Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út um þrjúleytið í dag vegna gönguskíðamanns sem slasaðist á Langjökli. Ekki er talin hætta á ferðum að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg. 11.1.2021 15:53
Telur afstöðu ráðuneytisins í launamáli forstöðumanna ekki í samræmi við lög Ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja tveimur forstöðumönnum um rökstuðning fyrir launaákvörðun var ekki í samræmi við lög. Þetta er niðurstaða setts umboðsmanns Alþingis í áliti frá 30. desember sem birt var í dag. 11.1.2021 14:57
Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist rúm 24 prósent Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,4 prósent, tæplega þremur prósentustigum lægra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var undir lok nóvember 2020. 11.1.2021 14:54
Kafarar sendir að fóðurpramma til að loka fyrir göt Um leið og birti í morgun voru kafarar sendir að fóðurpramma sem sökk í Reyðarfirði um helgina. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins sem á prammann segir að mengunarvarnir séu fyrsta forgangsmál. 11.1.2021 14:23
Sjálfstæðismenn vilja leggja búsáhaldabyltingu og árásina á þinghúsið í Bandaríkjunum að jöfnu Fjölmargir flokksbundnir Sjálfstæðismenn hafa stigið fram að undanförnu og lýst því yfir að búsáhaldabyltingin og óeirðirnar við þinghúsið í Bandaríkjunum séu á margan hátt hliðstæðir atburðir. 11.1.2021 13:51
John Snorri handviss um að búnaðurinn hafi staðið af sér storminn Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson og liðsfélagar hans una sér nú vel í grunnbúðum fjallsins K2 eftir að hafa komið búnaði sínum tryggilega fyrir í búðum tvö ofar í fjallinu. John Snorri er fullviss um að búnaðurinn hafi staðið af sér storm, sem hefur sett strik í reikning annarra hópa sem freista þess að ná toppnum þennan veturinn. 11.1.2021 13:17
Þakkar árangurinn yfir jólin persónulegum smitvörnum einstaklinga Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki tilefni til frekari takmarkana á landamærunum, þrátt fyrir alvarlega stöðu í Bretlandi og Austur-Evrópu, þaðan sem margir ferðast til Íslands. 11.1.2021 12:49
Farsóttarhúsið við Rauðarárstíg fullt og nýtt opnað Farsóttarhúsið við Rauðarárstíg í Reykjavík er orðið fullt. Síðasta herbergið var fyllt í morgun og verður annað farsóttarhús opnað á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þetta kom fram í máli Gylfa Þórs Þorsteinssonar, umsjónarmanns sóttvarnahússins, á upplýsingafundi almannavarna og Embættis landlæknis í morgun. 11.1.2021 11:41
Von á 1.200 skömmtum frá Moderna á morgun Von er á 1.200 skömmtum af bóluefninu frá Moderna á morgun, sem verður notað til að ljúka bólusetningu einstaklinga í framlínuhópum. Í kjölfarið munu berast 1.200 skammtar af bóluefninu á tveggja vikna fresti. 11.1.2021 11:28
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um stöðuna í kórónuveirufaraldrinum hér á landi en þrír greindust innanlands í gær og voru þeir allir í sóttkví. 11.1.2021 11:28
Ekkert bendir til aukins fjölda dauðsfalla í kjölfar bólusetninga Ráðist var í þrenns konar athuganir í kjölfar andláta sem urðu eftir bólusetningar gegn Covid-19. Þetta sagði Alma Möller landlæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19 faraldursins rétt í þessu. 11.1.2021 11:19
Umboðsmaður Alþingis vill fá upplýsingar um öll alvarleg atvik hjá frelsissviptum Settur umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því að dómsmálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið sjá til þess að stofnanir sem undir þau heyra og hýsa frelsissvipt fólk tilkynni umboðsmanni um alvarleg atvik sem þar verða. 11.1.2021 10:56
Þrír greindust innanlands og sautján á landamærum Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví. 11.1.2021 10:51
Svona var 152. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til hefðbundins upplýsingafundar á mánudagi klukkan 11 í dag. 11.1.2021 10:16
Söngvarar lýsa yfir vantrausti og bera óperustjóra þungum sökum Félagsfundur Klassís, fagfélags klassískt menntaðra söngvara á Íslandi, hefur lýst yfir vantrausti á stjórn og óperustjóra Íslensku óperunnar, Steinunni Birnu Ragnarsdóttur, „vegna stjórnunarhátta stofnunarinnar á undanförnum árum.“ 11.1.2021 09:19
„Leiðbeiningar sem komu um ræktina að mestu leyti komnar frá ræktinni sjálfri“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að þær breytingar á sóttvarnareglum sem taka gildi á miðvikudag og snúa að líkamsræktarstöðvum séu byggðar á tillögum sem stöðvarnar lögðu fram sjálfar. 11.1.2021 08:27
Rætt við fleiri en Pfizer um rannsókn á hjarðónæmi Rætt hefur verið við nokkra framleiðendur bóluefnis gegn kórónuveirunni um þá hugmynd að Ísland verði einskonar tilraunaverkefni til að rannsaka hjarðónæmi heillar þjóðar. 11.1.2021 06:58
Vilja minnka umferðarhraða á Bústaðavegi Meirihluti íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis vill að umferðarhraði á Bústaðavegi verði minnkaður úr 50 km/klst niður í 30 km/klst. Þetta kemur fram í nýlegri bókun ráðsins en greint er frá málinu í Morgunblaðinu í dag. 11.1.2021 06:45
Liggur við að Kári spyrji hvað Svíinn í Sviss sé að reykja „Ég hafði svo sannarlega rangt fyrir mér og það gleður mig,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, um þann spádóm að Íslendingar þyrftu að glíma við nýja bylgju kórónuveirufaraldursins í tengslum við hátíðirnar. Þess í stað hafi gengið prýðilega að halda faraldrinum hér niðri, sérstaklega ef litið er til Bandaríkjanna eða ríkja Evrópu. 10.1.2021 23:56
Fólk sem velur ekki skimun gert að dvelja í sóttvarnarhúsi Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skylda farþega sem neita að fara í landamæraskimun til að fara í 14 daga sóttkví í farsóttarhúsi. Með þessu féllst hún ekki á þá tillögu sóttvarnalæknis að öllum komufarþegum verði skylt að fara í landamæraskimun. 10.1.2021 23:15
Óttast „glatað sumar“ vegna tvöfaldrar skimunar Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skipta sköpum fyrir ferðaþjónustuna að fólk sé ekki skyldað til þess að vera í sóttkví milli skimana og er hún ekki hrifin af þeirri hugmynd að einhverjir gætu verið skyldaðir í farsóttahúsið ef þeir greinist með tiltekið afbrigði veirunnar. Hún efist um að það sé lagaheimild fyrir slíkum aðgerðum. 10.1.2021 21:41
Elliði segir talsmenn Stjórnarskrárfélagsins nota sömu aðferð og Trump Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, sakar forsvarsmenn Stjórnarskrárfélagsins um að nota sömu aðferð og Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, í baráttu sinni fyrir upptöku nýrrar stjórnarskrár. 10.1.2021 21:02