Fleiri fréttir

Búist við góðri gæsaveiði

Gæsaveiðitímabilið hófst í morgun og er búist við góðri veiði. Varp heiðargæsar og grágæsar gekk mjög vel í sumar og búast má við óvenju sterkum veiðistofnum.

Íslenskt forrit upplýsir áhorfendur um allt í kvikmyndinni

Íslenskt forrit fyrir snjallsíma og tölvur sem fylgist með kvikmyndum um leið og maður horfir á þær og veitir upplýsingar um allt sem kemur þar fyrir er nú í þróun. Fyrirtækið Stream Tags sem hannar forritið tók þátt í nýsköpunarverkefninu Startup Reykjavík í sumar og kynnti afraksturinn fyrir fjárfestum á síðasta föstudag. Nú standa yfir viðræður við fjárfesta og aðra sem vilja koma að verkefninu en stefnan er sett á Bandaríkin.

Skólakrakkar bera með sér nýjar hættur í umferðinni

Flestir grunnskólar landsins hefja störf í vikunni og því bætast margir ungir vegfarendur í umferðina. Þá er mikilvægt að ökumenn hugi sérstaklega að þessum nýliðum í umferðinni og séu meðvitaðir um þá, sérstaklega inni í íbúðarhverfum. Í myndbandinu hér að ofan rennir Umferðarstofa yfir helstu atriðin sem skipta máli þegar þessir óreyndu einstaklingar leggja af stað út í umferðina.

Mikael Torfason ritstýrir Fréttatímanum

"Þetta leggst bara mjög vel í mig. Það eru fimm ár síðan ég starfaði síðast við fjölmiðla, þannig ég kem til baka núna í þvílíku formi og mjög sáttur,“ segir Mikael Torfason, sem hefur verið ráðinn annar tveggja ritstjóra Fréttatímans. Hann sest við hlið Jónasar Haraldssonar, sem ritstýrir blaðinu nú.

Í upphafi skyldi ð-ið skoða

Þótt flestar bækur séu fullar af bókstöfum fá fæstir bókstafir skrifaða um sig heila bók. Í ð-ástarsaga, sem kemur út á vegum Crymogeu í haust, er saga samnefnds bókstafs rakin í máli og myndum.

Lítill árangur af rannsókn nauðgunarmála úr Eyjum

Rannsókn í tveimur af þeim þremur nauðgunarmálum sem upp komu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hefur engan árangur borið. Meintur gerandi hefur hins vegar fundist í þriðja málinu en ekki hefur verið tekin ákvörðun um ákæru.

Árborgarstrætó verður ekki lengur ókeypis

Í næstu viku hefst gjaldtaka í strætóferðum milli Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar í fyrsta sinn. Vegna skólasetninga á svæðinu í þessari viku var ákveðið að hefja ekki gjaldtöku fyrr en á mánudaginn næsta.

Hljóp tíu kílómetra í annað sinn á hækjum

„Ég var alla vega ekki síðastur í mark,“ segir Arnar Vilhjálmsson tölvunarfræðingur sem vakti mikla athygli í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardag en hann var sá eini sem hljóp tíu kílómetra á hækjum.

Stór hluti flugeldanna fór ekki á loft

Mannleg mistök urðu líklega til þess að flugeldasýningin á menningarnótt varð ekki eins vegleg og til stóð. "Ein röð af tívolíbombunum fór ekki á loft og fyrir vikið varð sýningin rosalega hæg í byrjun," segir Hilmar Már Aðalsteinsson, sem situr í stjórn Hjálparsveita skáta.

Lyf ekki alltaf besti kostur gegn of háum blóðþrýstingi

Lyfjameðferð gegn mildum háþrýstingi hefur takmarkaðan árangur í för með sér og bættir lifnaðarhættir eru vænlegri til árangurs. Þetta kemur fram í nýrri grein í British Medical Journal. Prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands (HÍ) segir að ef farið verði eftir tilmælum sem sett eru fram í greininni gæti það haft áhrif á meðferð tugþúsunda Íslendinga og skilað sparnaði í heilbrigðiskerfinu.

Banaslys á Sandskeiði

Miðaldra karlmaður lést af sárum sínum á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hann féll á torfæruhjóli á æfingasvæði skammt frá Sandskeiði í gærkvöldi. Hann var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið, en lést þar skömmu síðar. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir og óljóst er hvort einhver vitni urðu að slysinu.

Gæsaveiðitímabilið hófst í morgun

Gæsaveiðitímabilið hófst í morgun og er búist við góðri veiði, samkvæmt heimasíðu Skotveiðifélagisns. Þar segir að varp heiðargæsar og grágæsar hafi gengið mjög vel í ár og búast megi við sterkum veiðistofnum. Það færist í vöxt að landeigendur leigi út veiðilendur og sagði gæsaveiðimaður í viðtali við Fréttastofu að menn ættu að hafa samband við landeigendur, áður en þeir hefja veiðar.-

Nýr meirihluti kynntur í dag

Viðræður framsóknarmanna við fulltrúa Grindavíkurlistans og Samfylkinguna um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur hafa staðið yfir alla helgina, og er stefnt að því að kynna nýjan meirihluta í dag. Meirihluti framsóknarmanna og sjálfstæðismanna sprakk í síðustu viku, meðal annars vegna deilna um uppbyggingu íþróttamannvirkja og sölu á félagsheimilinu Festi.

Segja miklu minna magn hafa lekið í sjóinn

Forsvarsmenn Eimskipafélags Íslands telja að miklu minna magn olíu hafi runnið úr Goðafossi í Óslóarfirði en norsk yfirvöld halda fram og hafa fengið sjálfstæðan rannsóknaraðila til að fara yfir málin.

Virðist sem óréttlætið hafi náð út yfir gröf og dauða

Á Seylu er miðaldakirkjugarður nokkur sem kemur reyndar við sögu í Sturlungu en þar var skagfirski höfðinginn Oddur Þórarinsson grafinn. Þessi vígfimasti maður landsins var reyndar í banni þegar hann var veginn svo hann mátti ekki liggja í vígðri mold. En menn dóu ekki ráðalausir á Sturlungaöld svo hann var grafinn inn undir kirkjuvegginn á Seylu. Það kom fornleifafræðingum því á óvart þegar þeir voru að fara að skoða þennan

Veita ráðgjöf við virkjanagerð

Landsvirkjun Power og Verkís hafa tryggt samning um verkfræðiráðgjöf við georgíska fyrirtækið Machakhela HPP 1 LLC við smíði tveggja vatnsaflsvirkjana. Fyrirtækin urðu hlutskörpust í útboði á verkefninu.

Vikulöng þjóðarsorg í Suður-Afríku hefst á morgun

Vikulöng þjóðarsorg hefst á morgun í Suður-Afríku eftir að 34 verkamenn í hvítagullsnámu nærri Jóhannesborg voru drepnir af lögreglumönnum. Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, sagði íbúa landsins brugðið í miklum sárum eftir átökin.

Ofursnekkja í Reykjavík - Paul Allen kominn aftur?

Risasnekkjan Octopus er komin aftur hingað til lands. Snekkjan er í eigu auðkýfingsins Paul Allens sem er annar stofnanda Microsoft. Snekkjan kom hingað til lands í morgun og er vel sýnileg ökumönnum og gangandi vegfarendum á Sæbrautinni.

Þótti sérviskulegt að hlaupa í vegarköntum

Þegar Sigurður P. Sigmundsson sást hlaupa í vegarköntum á áttunda áratugnum þótti það sérviskulegt. Nú eru allir úti að hlaupa. Sigurður á sinn þátt í því, hann hefur verið óþreytandi að þjálfa og aðstoða við skipulagningu langhlaupa og er nýbúinn að halda erindi hjá fyrirtæki í borginni í tilefni Reykjavíkurmaraþons þegar hann mætir í viðtal við Gunnþóru Gunnarsdóttur.

Hátt í 80 jarðskjálftar um helgina

Hátt í áttatíu skjálftar hafa mælst síðan á föstudaginn en sá stærsti mældist nærri Goðabungu nærri Mýrdalsjökli en hann var 3,8 á richter samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.Töluvert var svo um minni skjálfta á svipuðu svæði en ekkert í líkingu við þann stóra.

Mikið um sjúkraflutninga - slökkvilið ánægt með Menningarnótt

Mikið hefur verið um sjúkraflutninga hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Menningarnótt tókst þó vel til að mati slökkviliðsmanna en þar gerði muninn að sjúkraflutningamenn voru á litlum vélhjólum í miðbænum og gátu þannig komist auðveldlega á milli í mannhafinu.

Skipuleggjendur Menningarnætur í skýjunum

Verkefnastjóri menningarnætur er í skýjunum eftir gærkvöldið og segir allt hafa gengið að óskum. Það hafi hjálpað til að fólk mætti snemma í bæinn og hafi verið til fyrirmyndar.

Ræddu við sendiherra Rússlands áður en dómur féll í Pussy Riot málinu

Íslensk stjórnvöld komu áhyggjum sínum af máli kvennanna í Pussy Riot á framfæri við rússnesk stjórnvöld áður en dómur féll í máli þeirra á föstudag. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að bregðast við dómnum sjálfum en utanríkisráðherra skorar á yfirvöld að fella dóminn úr gildi.

Jón Gnarr: Stærsta vandamál borgarinnar eru bílar

"Ég tel að stærsta vandamál Reykjavíkur og þá sérstaklega miðbæjarins, sé bílaumferð,“ sagði Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Uppblásna íþróttahúsið vígt í dag

Fyrsta uppblásna íþróttahúsið sem hefur verið reist, hér á landi, eða blásið upp öllu heldur, verður vígt í Hveragerði klukkan þrjú í dag. Húsið er 5.100 fermetrar og er fjölnota íþróttahús. Íþróttahúsið kostaði 300 milljónir.

Braust inn og réðst á húsráðanda

Brotist var inn í hús í Reykjanesbæ í nótt. Karlmaður braut glugga á útihurð og komst þannig inn. Húsráðandi vaknaði við lætin og mætti manninum í anddyrinu. Sá sem braust inn réðst þá á húsráðandann og urðu nokkur átök inn í húsinu. Húsráðandanum tókst svo að stökkva manninum á flótta. Lögreglan hefur ekki fundið manninn og er hans enn leitað. Ekki er vitað hvað honum gekk til með athæfi sínu.

Mikið um líkamsárásir eftir Menningarnótt

Alls voru níu líkamsárásir tilkynntar til lögreglunnar í nótt. Allar árásirnar áttu sér stað í miðborg Reykjavíkur eftir Menningarhátíðina í gærkvöldi. Einn ofbeldismaður var vistaður í fangageymslu eftir líkamsárás á gatnamótum Laugavegs og Klapparstígs.

Skjálftahrina í Krísuvík

Skjálftahrina hefur verið á Krísuvíkursvæðinu. Um er að ræða smáa skjálfta en þeir eru allir undir einum á richter samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.Skjálftarnir eru á annan tug og byrjaði hrinan skömmu fyrir fjögur í dag. Skjálftavirkni á svæðinu er mikil og skjálftahrinan nú þykir ekki óeðlileg. Sérfræðingar á veðurstofunni munu hinsvegar fylgjast vel með framgangi mála.

Borgartréð 112 ára gamall Gljávíðir

Jón Gnarr, borgarstjóri, útnefndi 112 ára gamlan Gljávíði sem borgartré við athöfn í garði Hressingarskálans við Austurstræti í dag. Garðurinn við Hressingarskálann er einn þekktasti einkagarður frá lokum nítjándu aldar og stóð við hús Árna Thorsteinssonar landfógeta í Reykjavík frá 1862. Garðurinn var nýttur til skrauts og nokkurra nytja og var jafnan kallaður Landfógetagarðurinn.

Um fimmtíu þúsund manns í miðbænum

Um fimmtíu þúsund manns eru komnir niður í miðbæ Reykjavíkur að sögn lögreglumannsins Ágústs Svanssonar, sem sér meðal annars um samhæfingu aðgerða lögreglu og björgunarsveita.

Íslandsmót í hrútaþuklun

Í dag hefst Íslandsmót í hrútaþuklun á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Keppt er bæði í flokki reyndra þuklara og þeirra sem eru óvanir. Með hrútaþukli reyna menn að meta gæði hrúta með hendurnar einar að vopni.

Tíu og tólf ára drengir kveiktu óvart í Fellaskóla

Tveir tíu og tólf ára gamlir drengir kveiktu í Fellaskóla á áttunda tímanum í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar tilkynning barst um eldsvoðann en það tók slökkviliðsmenn stuttan tíma að ráða niðurlögum eldsins.

Mikil hætta af lögbrjótum í miðbænum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill beina því til fólk að nýta sér strætó í dag en ókeypis er í vagnana í dag. Lögreglan brýnir einnig fyrir ökumönnum að virða lokanir á götum, en brögð eru af því að fólk hafi ekið gegn lokunum og þannig skapað mikla hættu.

Tveir hlauparar fluttir á sjúkrahús

Það er töluverður reytingur hjá slökkviliðnu á höfuðborgarsvæðinu en samkvæmt varðstjóra þá hefur Menningarnótt gengið stóráfallalaust fyrir sig enn sem komið er.

Latabæjarhlaupið hafið

Latabæjarhlaupið hófst 13:30 þegar íþróttaálfurinn sjálfur ræsti hlaupið. Fjöldi barna tekur þátt en tveggja til fimm ára gömul börn hlaupa 550 metra en sex til átta ára gömul börn hlaup 1,3 kílómetra.

Arnar vann aftur í heilu maraþoni

Metfjöldi þátttakenda tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun en yfir þrettán þúsund manns hlupu hinar ýmsu vegalengdir. Arnar Pétursson sigraði annað árið í röð í heilu Maraþoni eftir ótrúlegan endasprett. Arnar var tæpri einni og hálfri mínútu á eftir Piotr Karolczak frá Póllandi þegar fimm kílómetrarar voru eftir. Arnar kom í mark á tveimur klukkustundum, 41 mínútu og tveimur sekúndum og var 10 sekúndum á undan næsta manni.

Ben Stiller myndaði íslenska maraþonhlaupara

Stórstjarnan Ben Stiller var við Reykjavíkurhöfn í morgun þegar hann sá hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni hlaupa framhjá. Leikarinn segir á Twitter síðu sinni að hann hafi verið að fara að finna hentuga tökustaði fyrir kvikmynd sína, The secret life of Walter Mitty þegar hann sá hóp maraþonhlaupara fara hjá. Hann greip því farsímann og tók meðfylgjandi mynd af hlaupurunum, sem brostu vingjarnlega til stórleikarans.

Russell Crowe spilar meðal annars á Gamla Gauknum í kvöld

Stórleikarinn og tónlistarmaðurinn Russell Crowe mun ásamt samstarfsfélaga sínum, Alan Thomas Doyle, koma fram á afmælisballi Gamla Gauksins á Menningarnótt. Þetta er líklega í fyrsta skiptið sem stórstjarna úr kvikmyndageiranum heldur tónleika á Menningarnótt í Reykjavík.

Ölvaður ökumaður velti bíl og slasaðist

Bílvelta varð um miðnætti í gær á Skeiðavegi við bæinn Bitru. Ungur ökumaður missti stjórn á bifreið sem fór fjórar veltur áður en hún stöðvaðist. Ökumaður var ásamt þremur farþegum í bílnum. Allir sluppu án stórfelldra áverka og voru komnir út úr bílnum þegar lögreglu bar að garði. Þeir voru þó sendir til aðhlynningar á slysadeild í Reykjavík.

Kári Steinn ræsti hlaupið

Reykjavíkur Maraþon Íslandsbanka hófst klukkan skömmu fyrir klukkan níu í morgun, en þá var hálfmaraþon og boðhlaup ræst.

Einn yfirheyrður vegna eldsvoða í Fellaskóla

Einn aðili hefur verið yfirheyrður vegna eldsvoða í Fellaskóla í Breiðholti á áttunda tímanum í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn en töluverðan reyk lagði frá þaki skólans þegar slökkviliðið bar að.

Sjá næstu 50 fréttir