Segja miklu minna magn hafa lekið í sjóinn Karen Kjartansdóttir skrifar 20. ágúst 2012 12:09 Goðafoss við strendur Noregs. mynd/ afp.
Forsvarsmenn Eimskipafélags Íslands telja að miklu minna magn olíu hafi runnið úr Goðafossi í Óslóarfirði en norsk yfirvöld halda fram og hafa fengið sjálfstæðan rannsóknaraðila til að fara yfir málin. Stofnun hafs- og stranda í Noregi, eða Kystverket eins og stofnunin heitir þar í landi, fer fram á að Eimskip greiði hátt í tvo milljarða króna í skaðabætur vegna strands Goðafoss í Óslóarfirði í febrúar árið 2011. Talsmaður strandgæslunnar, Johan Marius Ly, segir í viðtali við Aftenposten í gær að krafist verði skaðabóta vegna hreinsunarstarfs eftir að Goðafoss strandaði, en talið er að meira en 100 tonn hafi lekið í hafið í firðinum. Ólafur William Hand upplýsingafulltrúi Eimskips, er ósáttur við að heyra af slíku í norskum fjölmiðlun. „Að sjálfsögðu hefðu menn átt að setja sig í samband við okkur áður en þeir fara með svona í fjölmiðla. Annað er bara mjög óeðlilegt," segir hann. Hann segir að þessi krafa muni þó ekki hafa áhrif á daglegan rekstur fyrirtækisins þar sem það sé vel tryggt. Í Aftenposten segir einnig að það vegi þungt að skiptstjórinn á Goðafossi beri mikla ábyrgð á strandinu. Hann hafi verið einn í brúnni þegar skipið strandaði, hann hafi ekki vitað nákvæmlega hvar skipið var auk þess sem farmur á þilfarinu hafi byrgt honum sýn. Ólafur segir að skipstjórinn njóti fulls traust hjá fyrirtækinu, ekki sé hægt að skella skuldinni á einn mann þegar svona stórslys verða. Minnir hann á að norski lóðsinn fór fyrr frá broði en gert er ráð fyrir.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira