Fleiri fréttir

Leitast við að draga úr áhættu

lÁhersla er lögð á mataræði og næringarefni sem stuðla að því að draga úr áhættu á næringartengdum sjúkdómum í nýjum tillögum að Norrænu næringarráðleggingunum 2012 (NNR).

Vélarvana bátur nærri Kvískerjum í öræfum

Björgunarfélag Hornafjarðar var kallað út klukkan hálf níu í kvöld þegar tilkynning barst um vélarvana bát, um 40-50 sjómílur út af Kvískerjum í Öræfum. Um er að ræða yfirbyggðan plastbát og eru þrír menn í áhöfn. Björgunarskipið Ingibjörg er á leið á staðinn en þangað er um þriggja tíma sigling.

Göngin pikkföst í þinginu en tilboðið að renna út

Tilboð í gerð Vaðlaheiðarganga, sem lagt var fram fyrir átta mánuðum, rennur út á fimmtudag, og hefur Vegagerðin nú í annað sinn neyðst til að fara þess á leit við lægstbjóðendur að þeir framlengi tilboð sitt. Tilboðin voru opnuð í október í haust og áttu ÍAV og Marti lægsta boð, upp á 8,9 milljarða króna og vonaðist fulltrúi verktakanna til að geta hafið framkvæmdir fljótlega eftir áramót.

Táknrænn og lifandi staður

Skagafjörður skein við sólu þegar Gunnþóra Gunnarsdóttir og Gunnar V. Andrésson ljósmyndari brunuðu heim að Hólum til fundar við nýjan háskólarektor, Erlu Björk Örnólfsdóttur, fyrstu konuna í embætti stjórnanda Hólaskóla í 130 ára sögu hans.

Sálfræðingur skoðar Alþingi: Reiðin og heiftin stýrir meiru en áður

"Eitt af því sem við horfum upp á eftir hrun á Alþingi, er að átökin virðast persónulegri en áður,“ Sagði Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur í samtali við Reykjavík síðdegis í dag en þar var hann beðinn um að skoða Alþingi út frá vísindum sálfræðinnar. Hann segir það tilfinningu flestra að átökin séu ekki eins og þau voru á Alþingi áður, þar sem tekist var harkalega á í ræðustól eða í Kastljósi, en svo virtust átökin ekki ná lengra á milli þingmanna.

Verð sífellt meiri sósíalisti

Jón Gnarr hefur setið lengst allra sem borgarstjóri síðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hætti og telur sig ekki hafa smitast af veikinni sem hann ætlaði að lækna. Hann gagnrýnir nágrannasveitarfélögin fyrir að víkja sér undan ábyrgð.

Norski hreimurinn háir Hannesi: „Þetta fer af mér, ég lofa því“

"Það er alveg rétt, það er fullt af fólk sem hefur verið að benda mér á að það sé ótækt að hafa forseta sem talar ekki hreint,“ sagði Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag þar sem hlustendum gafst tækifæri til þess að spyrja hann spjörunum úr. Hannes hefur verið búsettur í Noregi síðastliðin þrettán ár eins og vitað er, og líkt og flestir heyra, hefur norskan tekið yfir íslenska hreiminn.

Gefur egg í Indlandi fyrir þúsund dollara

Íslensk kona sem nú er stödd á Indlandi til að selja úr sér egg segir vel hugsað um staðgöngumæður í landinu. Hún fær eitt þúsund dollara borgaða fyrir að taka þátt í þessu ferli.

Björn Valur: Planið að eyðileggja sem mest

Þingflokksformaður Vinstri grænna segir að ekki komi til greina að draga veiðigjaldafrumvarpið til baka til þess að flýta fyrir þingstörfum. Hann gagnrýnir stjórnarandstöðuna fyrir ólýðræðisleg vinnubrögð.

Hreyfing á Helguvík - álverinu tryggð rafskaut

Hreyfing er á viðræðum um álverið í Helguvík og gæti fengist úr því skorið fyrir lok mánaðarins hvort framkvæmdir fari á fullt upp úr áramótum. Eigandi Norðuráls, Century, tilkynnti í dag um kaup á rafskautaverksmiðju í Hollandi sem annar bæði Grundartanga og nýju álveri í Helguvík.

Haraldur Briem fær Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár

Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2012 hlotnast að þessu sinni dr. Haraldi Briem, sóttvarnalækni og sérfræðingi í smitsjúkdómum hjá Embætti landlæknis, fyrir mikilvægar rannsóknir á útbreiðslu smitsjúkdóma og fyrir baráttu gegn ónæmi fyrir sýklalyfjum. Haraldi voru veitt verðlaunin á árlegum fundi norrænna heilbrigðisráðherra sem nú stendur yfir í Bergen í Noregi.

Þrjúhundruð unglingar í Háskólann

Ríflega þrjú hundruð krakkar á aldrinum 12-16 ára settust í morgun á skólabekk í Háskóla unga fólksins sem starfræktur verður í Háskóla Íslands í þessari viku. Þar munu nemendur sækja fjölbreytt námskeið sem spanna hinar ólíku greinar sem kenndar eru við Háskóla Íslands.

Sækja slasaðan ferðamann að Glym

Erlendur ferðamaður slasaðist á gönguleiðinni að Glymi í Hvalfirði fyrr í dag og eru björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi að sækja hann. Um 20 björgunarsveitamenn eru nú á staðnum eða rétt ókomnir þangað. Maðurinn hugðist ganga upp með fossinum en féll við þegar hann var kominn nokkuð ofarlega og er talið að hann sé ökklabrotinn.

Fundu landaflöskur og bjór eftir umferðarohapp

Skutbifreið var ekið út af á Reykjanesbraut, austan við Vogaafleggjara í gær. Þegar lögreglan á Suðurnesjum kom á vettvang var ökumaður á bak og burt, en á gólfi bifreiðarinnar fundust tvær lítraflöskur af landa og á annan tug bjórdósa. Lögregla hafði samband við eiganda bílsins sem kvaðst hafa lánað hann vini kunningja síns en kom að öðru leyti af fjöllum hvað útafaksturinn varðaði. Bíllinn er óökufær eftir útafaksturinn enda hafnaði hann á stórgrýttum mel. Hjólabúnaður laskaðist og loftpúðar sprungu út. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni stendur til að fjarlægja bílinn í dag.

Um 1000 ungmenni mættu til vinnu

Um 1000 ungmenni á aldrinum 15 til 16 ára mættu til vinnu í blíðskaparveðri víðs vegar um borgina í dag, en nú er fyrsti starfsdagur Vinnuskóla Reykjavíkur. Alls hafa rúmlega 1500 nemendur verið skráðir til vinnu en þeir munu flestir sinna hefðbundnum garðyrkjustörfum í sumar.

Fá ekki aðgang að gögnum saksóknara

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest að sakborningar í al-Thani málinu og verjendur þeirra munu ekki fá aðgang að listum yfir símtöl sem sérstakur saksóknari hleraði við rannsókn málsins. Þeir munu heldur ekki fá aðgang að þeim tölvupóstum sem saksóknari lagði hald á við rannsóknina. Úrskurður Hæstaréttar var kveðinn upp á föstudaginn, en með honum var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavikur um sama mál staðfest.

36 vilja fá íslenskan ríkisborgarétt

Allsherjar- og menntamálanefnd leggur til að þrjátíu og sex einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt í frumvarpi sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. Nefndinni bárust fimmtíu og sjö umsóknir.

Milljónamærings leitað - Keyptir þú miða á Akureyri?

"Nei, hann eða hún er ekki búinn að hafa samband,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. Heppinn spilari vann rúmar 73 milljónir í lottóinu um helgina. Vinningsmiðinn var keyptur í Leirunesti við Leiruveg á Akureyri .

Enn einum hnakknum stolið á Selfossi

Brotist var inn í hesthús að Norðurtröð á Selfossi í morgun. Þaðan var stolið hnakk, reiðtygjum og brynningartæki. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við lögregluna á Selfossi.

Seldu 113 reiðhjól

Hundrað og þrettán hjól seldust á reiðhjólauppboði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fór fram á laugardaginn. Barnahjólin seldust frá þúsund krónum og upp í fimmtán þúsund en fullorðinshjólin seldust á bilinu sex þúsund og upp í sextíu þúsund, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Skjálftahrina í Kötlu

Jarðskjálftahrina hófst í Kötlu laust fyrir klukkan fimm í morgun. Milli klukkan fimm og sex mældust þar fjórtán smáskjálftar en síðan virðist hafa dregið úr hrinunni og milli klukkan sex og níu mældust þar sex skjálftar, samkvæmt skjálftavef Veðurstofunnar. Sá stærsti mældist 1,6 stig.

Grundfirðingar veiða þorsk af bryggjunum

Grundfirðingar þurfa ekki lengur að róa eftir þorski í soðið, þar sem góð veiði er af bryggjunum.Undanfarna daga hefur vænn þorskur, upp í að minnstakosti 4 kíló að þyngd, haldið sig við bryggjurnar og stundum er hann svo þéttur að það er eins og að horfa ofan í eldiskví, að horfa niður af bryggjunum, að sögn sjónarvotts.

Þrjú ungmenni á spítala eftir bílveltu

Þrjú ungmenni liggja enn á Landsspítalanum eftir að bíll þeirra valt út af útnesvegi á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Engin þeirra er þó í lífshættu, en tveir þeirra köstuðust út úr bílnum í veltunni.

Trúboð bannað í hafnfirskum skólum

Trúar- og lífsskoðunarfélögum hefur nú verið bannað að stunda trúboð innan veggja leik- og grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar á skólatíma. Viðmiðunarreglur þess efnis voru samþykktar í morgun. Sóknarpresturinn kveðst þó ánægður með reglurnar og hrósar bæjarfélaginu fyrir gott samtal.

Segir Hannes hafa komið á óvart - 2. kosningaþáttur Stöðvar 2

Þjóðin velur sér forseta næstu fjögur árin eftir tæpar þrjár vikur. Þá þurfum við að ákveða hver heldur utan um neyðarhemilinn, eða öryggisventilinn sem felst í málskotsréttinum, eins og fram kom í ítarlegri kosningaumfjöllun Stöðvar 2 sem birtist í gær.

Sala óhollustu hrundi eftir átak

Neysla Vopnfirðinga á gosdrykkjum og sælgæti hefur dregist saman um tugi prósenta síðan í apríl, en sala á ávöxtum og grænmeti hefur aukist mikið á sama tíma. Heilsuátak á vegum sjávarútvegsfyrirtækisins HB Granda á staðnum er talið sennileg ástæða þessa.

Slitastjórn vill rifta kaupum á eigin skuldabréfum

Slitastjórn Kaupþings hefur sent út tugi riftunartilkynninga í tengslum við endurkaup Kaupþings á eigin skuldabréfum frá því á árinu 2008. Kaupin áttu sér stað síðustu sex mánuðina áður en Kaupþing féll og sum þeirra áttu sér stað mjög nálægt falli bankans, samkvæmt Feldísi

Fundu töluvert magn af fíkniefnum

Töluvert magn af fíkniefnum fannst í heimahúsi í vesturbæ Reykjavíkur þegar lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af íbúum þar upp úr miðnætti. Nánari upplýsingar er ekki að hafa af málinu.

Óvenjumikill fjöldi báta og skipa á miðunum

Yfir sjö hundruð skip og bátar voru að veiðum umhverfis landið um klukkan sex í morgun, sem er óvenju mikill fjöldi. Þar af voru nokkur hundruð strandveiðibátar, enda er nú gott sjóveður á öllum miðum.

Magntollur á sykur það eina sem virkar

Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, segir að skattleggja þurfi óhollustuna burt eins og nágrannalöndin hafi gert. Leiðbeiningaskiltum um hóflegt magn komið fyrir við nammibari Krónunnar. Nammibarnum lokað hjá Víði.

Ganga landshorna á milli í annað skipti

Sex vaskar konur undirbúa nú göngu þvert yfir landið í annað sinn. Lagt verður af stað frá Hornvík á Vestfjörðum á miðvikudag og endað í Hornsvík á suðausturhorni landsins um miðjan júlí. Áætlað er að gengnir verði um það bil 650 kílómetrar.

Vilja skýringu á boðsferð WOW

Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í borgarráði hafa óskað eftir áliti innri endurskoðanda á boðsferð flugfélagsins WOW Air með hliðsjón af siðareglum og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa og embættismanna borgarinnar.

Búist við mikilli aðsókn í flug

Gert er ráð fyrir því að um 2.500 ferðamenn muni í sumar nýta sér flugleið Icelandair á milli Akureyrar og Keflavíkur. Flugfélagið hóf flug á milli bæjanna í síðustu viku og verður flogið fjórum sinnum í viku út sumarið. Um er að ræða tilraunaverkefni Icelandair til að auðvelda Norðanmönnum að komast til útlanda sem og að bregðast við auknum vinsældum Norðurlands hjá erlendum ferðamönnum.

Blandar metangasi við olíuna

Tekinn hefur verið í notkun nýr flutningabíll sem gengur bæði fyrir dísilolíu og metangasi. Hann keyrir milli Reykjavíkur og Akureyrar og er fyrsti ?græni? trukkurinn í flota Landflutninga, að því er fram kemur í tilkynningu Landflutninga-Samskipa.

Slösuðust í bílveltu

Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir bílveltu á Útnesvegi á Snæfellsnesi í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild Landspítalans er fólkið ekki í lífshættu en beinbrotið. Þremenningarnir verða á Landspítalanum í nótt að minnsta kosti.

Fjölmenni á tónleikum hjá Elvis Costello

Elvis Costello hélt tónleika fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu í kvöld og hlaut góðar undirtektir viðstaddra. Hann tók alla sína helstu slagara. Upphaflega stóð til að Costello héldi tónleika sína í nóvember en hann frestaði þeim vegna mikilla veikinda föður síns. Faðir hans lést skömmu seinna. Costello hafði orð á því á tónleikunum hve góðar móttökur hann hefði fengið en þetta er í annað sinn sem hann kemur hingað til lands.

Risastórar "hamstrakúlur“ fyrir börn

Nýtt skemmtitæki fyrir börn var tekið í notkun í Fjölskyldugarðinum um helgina. Skemmtitækið minnir á hlaupakúlur fyrir ofvaxna hamstra. Börn geta svo skriðið inn í kúlurnar og hlaupið innan í þeim yfir vatnstjörnina í garðinum.

Búið að slökkva eldinn

Eldsvoðinn við Ljósafossvirkjun reyndist minniháttar og slökkvilið hefur þegar ráðið niðurlögum hans.

Eldur við Ljósafossvirkjun

Eldur er laus í bílskúr við húsnæði við Ljósafossvirkjun. Dælubílar slökkviliðs eru á leiðinni á svæðið. Enn er hvorki nokkuð vitað um upptök eldsvoðans né hefur tekist að ráða niðurlögum hans.

Sjá næstu 50 fréttir