Sálfræðingur skoðar Alþingi: Reiðin og heiftin stýrir meiru en áður 11. júní 2012 21:30 „
Eitt af því sem við horfum upp á eftir hrun á Alþingi, er að átökin virðast persónulegri en áður," sagði Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur í samtali við Reykjavík síðdegis í dag en þar var hann beðinn um að skoða Alþingi út frá vísindum sálfræðinnar. Hann segir það tilfinningu flestra að átökin séu ekki eins og þau voru á Alþingi áður, þar sem tekist var harkalega á í ræðustól eða í Kastljósi, en svo virtust átökin ekki ná lengra á milli þingmanna. „Reiðin og heiftin virðist vera fari að stýra meiru en áður," sagði Einar Gylfi og bætti við að það væri náttúrulega ekki gott. Einar Gylfi sagði að Alþingi virtist vera afar erfiður vinnustaður í dag. Hann benti á að Alþingi nýtur lítillar virðingar samkvæmt könnunum og að miklar væntingar hefðu verið gerðar til þingmanna eftir hrunið. „Þetta virðist hafa mistekist," sagði Einar Gylfi. Spurður hvort þingmenn þyrftu jafnvel að fara á reiðistjórnunarnámskeið tók hann ekki svo djúpt í árinni en svaraði því til að það væri kannski gott fyrir þingmenn að fá einhvern stuðning til þess að takast á við vonbrigðin af fyrrnefndum væntingum og eftirköstum hrunsins. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira