Innlent

Fundu landaflöskur og bjór eftir umferðarohapp

Skutbifreið var ekið út af á Reykjanesbraut, austan við Vogaafleggjara í gær. Þegar lögreglan á Suðurnesjum kom á vettvang var ökumaður á bak og burt, en á gólfi bifreiðarinnar fundust tvær lítraflöskur af landa og á annan tug bjórdósa. Lögregla hafði samband við eiganda bílsins sem kvaðst hafa lánað hann vini kunningja síns en kom að öðru leyti af fjöllum hvað útafaksturinn varðaði. Bíllinn er óökufær eftir útafaksturinn enda hafnaði hann á stórgrýttum mel. Hjólabúnaður laskaðist og loftpúðar sprungu út. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni stendur til að fjarlægja bílinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×