Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Brotið blað í íslenskri flugsögu Í gær frumsýndi Þyrluþjónustan nýja þyrlu sem notuð verður í skoðunarferðir ferðamanna um Ísland. Þetta er í fyrsta sinn sem þyrla er keypt til landsins gagngert til farþegaflugs og því ákveðið skref sem Þyrluþjónustan steig með þessu uppátæki. 10.6.2012 12:02
Búið að ræsa hjólagarpana Reiðhjólakeppnin Bláalónsþrautin var ræst klukkan 10 í morgun. Fjöldi litríkra keppenda hafði safnast saman við rásmarkið í Hafnarfirði. Þeir munu hjóla að Bláa Lóninu. 10.6.2012 10:57
Ólafur með hreinan meirihluta í nýrri könnun Ólafur Ragnar Grímsson hefur mestu fylgi að fagna miðað við könnun sem gerð var fyrir útvarpsþáttinn Sprengisand á Bylgjunni. Ólafur mældist með 50,2% fylgi, eða hreinan meirihluta. Þóra Arnórsdóttir kemur næst á eftir Ólafi með 33,2% fylgi. 10.6.2012 10:43
Skákuppboð aldarinnar í dag Uppboð á tveimur sögulegum taflsettum úr fórum Friðriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara Íslendinga, fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Uppboðið, sem kallað hefur verið Skákuppboð aldarinnar, er liður í uppskeruhátíð Skákakademíu Reykjavíkur sem haldin er í dag. 10.6.2012 10:30
Ari Trausti í fjallgöngu Forsetaframbjóðandinn Ari Trausti bauð öllum áhugasömum með sér í fjallgöngu. Gangan hófst klukkan tíu í dag en göngutíminn verður alls um 3 klukkutímar. 10.6.2012 10:20
Eitraður kræklingur við Ísland Matvælastofnun varar við neyslu á kræklingi sem safnað er í Hvalfirði og Eyjafirði. Tekin voru sýni af sjó á þessum stöðum í síðustu viku til greiningar á eitruðum þörungum. Í Eyjafirði var PSP eitur yfir mörkum, en það getur valdið lömun, og í Hvalfirði mældist DSP eitur yfir mörkum, sem sem getur valdið uppköstum og niðurgangi. 10.6.2012 10:03
Tala eins og forsetaframbjóðendur í sitthvoru ríkinu Það er stórhættulegt fyrir Ísland að losarabragur sé á hugmyndum forsetaframbjóðenda á valdsviði forseta, segir stjórnmálafræðingur sem rætt er við í öðrum þætti Stöðvar 2 um forsetakosningarnar. 10.6.2012 20:32
Bílslys við Skipanes Bílslys varð við Skipanes nálægt Borgarnesi seinnipartinn í dag. Tveir strákar voru í bílnum sem tók veltu og hafnaði utanvegar þegar ökumaður missti stjórn á honum. Hvorugur mannanna slasaðist alvarlega en þeir voru sendir á slysavaktstofuna á Akranesi til aðhlynningar. Grunur leikur á að bílstjórinn hafi verið undir áhrifum áfengis. 9.6.2012 20:51
Stærsta hjólreiðakeppni ársins á morgun Stærsta hjólreiðakeppni ársins, hin svonefnda Bláalóns-þraut, fer fram á morgun. Aðstandendur keppninnar segja hana vera stærsta hjólamót sem haldið hefur verið á Íslandi. 9.6.2012 20:39
Hreyfihamlaður ofurhugi klífur Hvannadalshnjúk Leifur Leifsson, ungur maður sem hefur verið bundinn við hjólastól alla ævi, hefur æft níu til tíu sinnum í viku síðastliðna mánuði og styrkt hendur sínar í því skyni að komast upp á hæsta tind landsins. 9.6.2012 20:00
Vann yfir 73 milljónir í Lottó Einn einstaklingur var með allar tölur réttar í Lottó í kvöld. Hann hlaut í vinning rúmar 73 milljónir króna. Vinningsmiðinn var keyptur í Leirunesti við Leiruveg á Akureyri. 9.6.2012 19:27
Álver opnað á Reyðarfirði Stærsta kersmiðjan í stærsta álveri landsins, álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði, var opnuð klukkan þrjú í dag að viðstöddum iðnaðarráðherra, þingmönnum og starfsmönnum fyrirtækisins. Kersmiðjan mun skapa 60 ný störf á Reyðafirði. Vinna hófst við smiðjuna á árinu 2010 en heildarfjárfesting vegna hennar nemur þremur og hálfum milljarði króna. Ker í álverum þarf að endurnýja á 5-7 ára fresti. Í nýju kersmiðjunni verður mögulegt að fóðra þrjú ker í einu, en opnun kersmiðjunnar er lokahnykkurinn í byggingu álversins sem var reist fyrir 5 árum. 9.6.2012 18:29
Stúlkan fundin Fríða Níelsdóttir, stúlkan sem lögreglan á suðurnesjum lýsti eftir fyrr í dag er fundin. Hún fannst heima hjá kærastanum í Ytri-Njarðvík. Þar hafði hún ætlað að vera yfir helgina. 9.6.2012 17:18
Forseti fundaði með Google Forseti átti í gær fund með sendinefnd frá Google sem heimsækir Ísland í boði hans. Tilgangur ferðarinnar er að kanna möguleika á samstarfi um ábyrgara eftirlit með veiðum á höfum heims. Einkum var litið til hvernig upplýsingatækni og reynsla Íslendinga nýtist í þessum efnum. 9.6.2012 19:47
432 nemendur útskrifast frá HR Í dag brautskráðust 432 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Á árinu hefur háskólinn útskrifað hátt í 900 nemendur samtals. 9.6.2012 18:20
Stærsta kersmiðjan í stærsta álverinu vígð Síðasta áfanganum í byggingu álvers Alcoa á Reyðarfirði er nú lokið en stærsta kersmiðjan í stærsta álveri á Íslandi var formlega vígð við hátíðlega athöfn í dag. Vinna hófst við kersmiðjuna á árinu 2010. Á meðan á framkvæmdunum stóð unnu að jafnaði um 70-80 manns við byggingunna en 160 þegar umsvifin voru í hámarki. Sagt er að smiðjan muni skapa aukalega 50-60 störf á Reyðarfirði. Heildarfjárfesting vegna hennar er um 3,5 milljarðar króna. 9.6.2012 16:52
Týnd stúlka Lögregla leitar nú að Fríðu Níelsdóttur, 14 ára stúlku úr Grindavík. Fríða er 162 cm á hæð og um 58 kg. Hún er með ljósbrúnt hár niður fyrir axlir og blá augu. Fríða var klædd í svarta hettuspeysu með nafninu hennar á bakinu, svörtum legging og bleikum Kawasaki skóm. 9.6.2012 15:05
Fjölmenni á hjólauppboði Um tvö til þrjú hundruð manns mættu á reiðhjólauppboð lögreglunnar í dag. Boðin voru upp reiðhjól sem fundist hafa á höfuðborgarsvæðinu og enginn hefur hirt um að sækja. Uppboðið fór fram í húsnæði Vöku í Skútuvogi. 9.6.2012 15:01
Forsetaefnin skýra áherslur sínar Forsetaframbjóðendurnir skýrðu afstöðu sína til fjögurra málefna sem varða hlutverk forseta í Fréttablaðinu í dag. Fram komu m.a. skoðanir frambjóðenda á siðareglum, málskotsréttinum og tengslum forseta við viðskiptalífið. 9.6.2012 13:06
Forsetaefnin fjalla um stór pólitísk málefni Forsetaefnin lýstu skoðun sinni á því hvort forseti ætti að taka afstöðu til stórra pólitískra mála í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Á forseti að lýsa yfir afstöðu sinni til stórra pólitískra deilumála á borð við umsókn um aðild að Evrópusambandinu? 9.6.2012 13:04
Forsetaefnin fjalla um utanríkisstefnu forseta Forsetaefnin fjölluðu um hlutverk forseta á alþjóðavettvangi í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Á forseti markvisst að lýsa eigin sjónarmiðum á alþjóðavettvangi, jafnvel þótt þau gangi gegn stefnu sitjandi ríkisstjórnar? 9.6.2012 13:02
Forsetaefnin fjalla um málskotsréttinn Forsetaefnin lýstu skoðunum sínum á málskotsréttinn í 26. gr. stjórnarskrárinnar í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Hver er afstaða þín til beitingar málskotsréttar forseta samkvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar? 9.6.2012 13:01
Forsetaefnin fjalla um siðareglur forseta Forsetaefnin skýrðu áherslur sínar varðandi siðareglur forseta og tengsl hans við viðskiptalífið í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Finnst þér að setja eigi siðareglur um samskipti forseta við viðskiptalífið? Hvernig á forsetinn að beita sér í þágu einstakra fyrirtækja og atvinnugreina? 9.6.2012 12:08
Kalli í Pelsinum setur Apótekið á sölu Karl J. Steingrímsson, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum, hefur boðið Austurstræti 16 eða Apótekið til sölu eða leigu. Húsið er fimm hæðir auk kjallara og rishæðar, alls einir 2773 fermetrar. 9.6.2012 11:33
Aukin framlög til NATO Íslendingar juku við framlög sín til Atlantshafsbandalagsins, NATO, í kjölfar þess að varnarsvæðinu á Suðurnesjum var lokað árið 2006. Þá ákvað ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að Ísland gerðist aðili að mannvirkjasjóði NATO. 9.6.2012 11:15
Hjólauppboð lögreglu í dag Rúmlega hundrað reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Um er að ræða reiðhjól sem fundist hafa í umdæminu en enginn hefur hirt um að sækja. 9.6.2012 10:22
Fundur fram á miðja nótt Þingfundi lauk á fjórða tímanum í nótt, og voru þá enn þingmenn á mælendaskrá. Rætt var um ríkisstjórnarfrumvarp um veiðigjöld en sú umræða hefur staðið í sex daga. Ekkert samkomulag liggur fyrir um þinglok. Boðað hefur verið til þingfundar klukkan hálf ellefu og verður þá umræðu um veiðigjöld haldið áfram. Enn er um áttatíu málum ólokið á Alþingi, þar á meðal umdeilt frumvarp um breytingar á kvótakerfinu, rammaáætlun og fjármögnun Vaðlaheiðarganga. 9.6.2012 09:59
Landsbyggðin tapar konum Konur eru alls staðar á landsbyggðinni færri en karlar, en þær hafa í meira mæli flutt burt á síðustu árum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var fyrir Byggðastofnun. 9.6.2012 00:01
Ískyggilegt ástand á ýsustofninum Þorskveiði á næsta fiskveiðiári verður aukin um 19 þúsund tonn verði ráðgjöf fylgt. Innan seilingar er 250 þúsund tonna þorskkvóti verði haldið rétt á spilunum. Vondu fréttirnar eru hins vegar þær að ástand ýsustofnsins er ískyggilegt og veiðibann er ekki fjarlægur möguleiki. 9.6.2012 00:01
70 milljóna lottóvinningur í kvöld Vinningurinn er orðinn sjöfaldur og stefnir í yfir 70 milljónir króna í lottó í kvöld. Því er til mikils að vinna og margir hafa lagt leið sína í Happahúsið í Kringlunni og aðrar sjoppur í dag. Vinningar í lottó eru skattfrjálsir og arðurinn af getspánni rennur til góðra málefna eins og Öryrkjabandalagsins og íþróttahreyfingarinnar. 9.6.2012 17:56
Ár síðan barkaígræðsla læknaði krabbamein Í dag er eitt ár frá því að nemandi við Háskóla Íslands gekkst undir tímamótaaðgerð þegar plastbarki baðaður stoðfrumum var græddur í hann. Erítreubúinn Andemariam T. Beyene greindist með illvígt krabbamein í hálsi en fyrir nákvæmlega ári tókst að bjarga lífi hans með aðgerð á Karolinska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð. 9.6.2012 15:28
Vilja ræða mögulega sameiningu Bæjarstjórn sveitarfélagsins Garðs samþykkti á síðasta fundi sínum að verða við ósk frá fulltrúum Reykjanesbæjar um að funda um mögulega sameiningu sveitarfélaganna Garðs, Sandgerðis og Reykjanesbæjar. 9.6.2012 11:30
Reykvískir víkingar ósáttir við borg sína Víkingafélagið Einherjar í Reykjavík telur stuðning borgarinnar forsendu þess að hægt verði að setja upp víkingahátíð í ætt við þá sem haldin er í Hafnarfirði. Félagið fékk félagsheimili hjá borginni, en gæti misst það komist hátíðin ekki á. 9.6.2012 11:00
Ný tækni í sýnatöku í brjóstholi Hafin er söfnun fyrir berkjuómspeglunartæki fyrir Landspítalann. Um er að ræða tæki sem notað er til sýnatöku úr eitlum í brjóstholi. 9.6.2012 09:00
Æfa viðbrögð við slysi á sjó Almannavarnanefnd Þingeyinga og embætti Lögreglustjórans á Húsavík standa í dag, laugardag, fyrir sjóslysaæfingu á Skjálfanda og á Húsavík. Um samstarf við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæsluna er að ræða. 9.6.2012 07:45
Advania hyggst þjálfa upp nýja sérfræðinga Upplýsingatæknifyrirtækið Advania hefur ákveðið að bregðast við skorti á fólki með þekkingu á bæði upplýsingatækni og viðskiptafræði með því að ráða til sín 10 til 20 reynsluminni einstaklinga sem verða fyrsta starfsár sitt þjálfaðir í að vinna ráðgjafastörf fyrir fyrirtækið. 9.6.2012 07:00
Fransk-íslenska endurvakið Fransk-íslenska viðskiptaráðið verður endurvakið á fundi næstkomandi þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu er markmiðið að „auka viðskipti milli landanna og miðla þekkingu og upplýsingum um viðskiptatækifæri og viðskiptaumhverfi“. 9.6.2012 07:00
Yfirtakan á SpKef eitt allsherjar klúður - einhver þarf að axla ábyrgð Yfirtaka ríkisins á Sparisjóðnum í Keflavík er eitt allsherjar klúður sem einhver þarf að axla ábyrgð á, segir formaður Sjálfstæðisflokksins. Yfirtakan kostar ríkissjóð 19 milljarða króna, eða 8 milljörðum meira en gefið var út þegar sparisjóðurinn var sameinaður Landsbankanum. 8.6.2012 19:48
Bíræfnir þjófar í Norðlingaholti - leikskólabörn fundu þýfið Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag en um klukkan tíu í morgun var tilkynnt um glæfralegan akstur eftir götu í Mosfellsbæ. Fáeinum mínútum síðar var tilkynnt um bifreiðina stórskemmda fyrir utan veg og tvo menn á hlaupum frá henni. Skömmu síðar kom í ljós að bifreiðinni hafði verið stolið. Mennirnir komust undan. 8.6.2012 19:40
Aukning þorskafla skapar 8 milljarða tekjur Aukning þorskafla um 19 þúsund tonn á næsta fisveiðiári skapar þjóðinni yfir 8 milljarða í auknum útflutningstekjum. Þorskaflinn stefnir í 250 þúsund tonn á næstu árum segir forstjóri Hafrannsóknarstofnunar. 8.6.2012 18:35
Þakklátur að löggan stoppaði mig "Ég taldi að áfengið væri runnið úr mér. Ég mátti vita betur - það var rangt hjá mér að taka þá afstöðu,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem var tekinn á dögunum ölvaður undir stýri. Hann missir bílprófið í 8 mánuði. 8.6.2012 18:25
Fékk sér húðflúr með mynd af pabba Persónuleg húðflúr eru að verða vinsælustu húðflúrin sem fólk fær sér um þessar mundir, segir Össur Hafþórsson einn af skipuleggjendum húðflúrhátíðar sem haldin er á Bar 11 um helgina. Hann tekur dæmi um stelpu sem kom til hans með mynd af pabba sínum og vildi að hún yrði flúruð á. 8.6.2012 17:04
Rekstrarniðurstaða neikvæð um rétt rúman milljarð Óendurskoðaður árshlutareikningur A- hluta Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - mars 2012 var lagður fram í borgarráði í gær. Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og eignasjóð. 8.6.2012 15:55
Borgin kaupir Alliance húsið á 340 milljónir Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær kaupsamning sem Reykjavíkurborg hefur gert um kaup á Alliance húsinu og meðfylgjandi lóðarréttindi að Grandagarði 2 samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 8.6.2012 15:24
Umferðartafir vegna bílveltu á Miklubraut Bíll valt á Miklubraut, rétt við Ártúnsbrekkuna, nú rétt eftir klukkan tvö í dag. Varðstjóri hjá sjúkraliðinu sagði í samtali við Vísi að bíllinn væri á hliðinni en allir væru komnir út. Enginn slasaðist í veltunni en eitthvert magn af olíu lak niður og þreif slökkviliðið það upp. 8.6.2012 14:58