Göngin pikkföst í þinginu en tilboðið að renna út Kristján Már Unnarsson skrifar 11. júní 2012 22:30
Tilboð í gerð Vaðlaheiðarganga, sem lagt var fram fyrir átta mánuðum, rennur út á fimmtudag, og hefur Vegagerðin nú í annað sinn neyðst til að fara þess á leit við lægstbjóðendur að þeir framlengi tilboð sitt.Tilboðin voru opnuð í október í haust og áttu ÍAV og Marti lægsta boð, upp á 8,9 milljarða króna og vonaðist fulltrúi verktakanna til að geta hafið framkvæmdir fljótlega eftir áramót. Sú von rættist ekki, efasemdir voru á Alþingi um að veggjöld stæðu undir verkefninu, og síðan hefur málið velkst fram og til baka milli ríkisstjórnar og þingsins. Þrátt fyrir að Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, fengi í nóvember heimild á fjáraukalögum til að ganga frá samningum um Vaðlaheiðargöng treysti hann sér ekki til að ljúka málinu þá í andstöðu við marga stjórnarþingmenn, þeirra á meðal áhrifamenn úr eigin flokki, eins og Ögmund Jónasson, ráðherra vegamála. Úr varð að nýr fjármálaráðherra, Oddný Harðardóttir, flutti í mars sérstakt stjórnarfrumvarp um heimild ríkissjóðs til að lána fyrir göngunum, en undanfarnar þrjár vikur hefur málið setið fast í annarri umræðu og ekki komist á dagskrá. Á meðan bíða Vegagerðin og verktakarnir, sem og Norðlendingar, í óvissu. Tilboðið gilti upphaflega til 15. febrúar en þá samþykku ÍAV og Marti að framlengja það til 15. júní, og nú hefur Vegagerðin farið fram á aðra framlengingu. Óvíst er hverju verktakarnir svara núna.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira